Morgunblaðið - 21.11.2004, Page 4
4 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJÖLDI árangurslausra fjárnáma
hjá einstaklingum á tímabilinu frá
2001 til 15. október 2004 var 17.336.
Þar af voru 12.508 árangurslaus fjár-
nám gerð hjá körlum en 4.828 hjá
konum. Fjöldi árangurslausra fjár-
náma hjá fyrirtækjum á þessu sama
tímabili var 5.131. Í heild námu ár-
angurslaus fjárnám hjá einstakling-
um og fyrirtækjum, á þessum tíma,
rúmlega 61 milljarði króna.
Kemur þetta fram í skriflegu svari
dómsmálaráðherra, Björns Bjarna-
sonar, við fyrirspurn Jóhönnu Sig-
urðardóttur, þingmanns Samfylk-
ingarinnar.
Jóhanna fjallar um þetta svar á
vef sínum: althingi.is/johanna/.
Bendir hún þar á að heildarfjárhæð
árangurslausra fjárnáma hafi verið
helmingi hærri hjá einstaklingum en
fyrirtækjum. „Kannske er það at-
hyglisverðast líka að af 42 milljarða
heildarfjárhæð krafna áttu karlar
85% þeirra eða 35 milljarða en konur
rúma 6 milljarða króna eða einungis
15%,“ skrifar þingmaðurinn.
Hún bendir á að ríkissjóður hafi
verið stærsti kröfuhafi hjá einstak-
lingunum. Kröfur hans námu 22
milljörðum. Næstir komu bankar og
aðrar lánastofnanir með tæpa 11
milljarða. Þar á eftir komu svo aðrir
einkaaðilar og aðrir opinberir aðilar.
Árangurslaus fjárnám
Heildarfjár-
hæð nam
61 milljarði
ALÞJÓÐLEGAR brunarannsóknir
í jarðgöngum undir stjórn dr.
Hauks Ingasonar, sérfræðings hjá
Sænsku brunamálastofnuninni,
hafa svipt hulunni af vanmetinni
hættu sem stafar af brennandi
flutningabílum með „venjulegan“
farm, þ.e. húsgögn og aðar vörur
sem ekki eru flokkaðar sem hættu-
leg efni. Í ljós hefur komið að flutn-
ingabílar með venjulegan farm geta
skapað jafnmikla hættu og brenn-
andi olíuflutningabílar. Ný þekking
sem rannsóknirnar hafa leitt af sér
er þegar farin að skila sér í hertum
öryggiskröfum við hönnun jarð-
ganga í Evrópu og víðar.
Orkan í brennandi bíl er mæld í
megavöttum og sýndi viðamikil til-
raun Hauks í fyrra að 10 tonna
flutningabíl fullur af húsgögnum
getur gefið allt að 200 mw orku,
sem er álíka og brennandi olíuflutn-
ingabíll. Hitinn sem myndast við
slíkan bruna var einnig mun meiri
en almennt var talið, eða allt að
1.350 gráður í stað 1.000 gráða eins
og talið var.
Haukur hefur starfað hjá
Sænsku brunamálastofnuninni í 15
ár og stóð fyrir tilrauninni í norsk-
um jarðgöngum í fyrra. Undirbún-
ingurinn tók eitt ár og kostaði
rannsóknin um 80 milljónir ís-
lenskra króna og fékkst fjármagn
hjá vegagerðum og iðnaðargeiran-
um á Norðurlöndum.
Niðurstöðurnar komu
vísindamönnum á óvart
Niðurstöðurnar komu vísinda-
mönnunum ekki á óvart en öðrum
brá mjög í brún við þær.
Tilraunin fólst í því að kveikja í
nokkrum mismunandi stórum flutn-
ingabílum og mæla hversu hratt
eldurinn breiddist út og hve mikla
orku í MW eldurinn skapaði. Einn-
ig var mælt hversu nálægt slökkvi-
lið kæmist alelda bílunum. Þyngd
þeirra var 3–10 tonn og kom gíf-
urleg orka og hiti frá þeim þyngstu.
Kom í ljós að slökkviliðsmenn kom-
ust ekki nær en 15–25 metra frá
bílunum vegna hita.
„Markmiðið með tilrauninni var
að sýna fólki fram á að flutningabíl-
ar með venjulegar vörur geta skap-
að samsvarandi bál og olíuflutn-
ingabíll,“ segir Haukur. „Þótt eldur
geti breiðst hraðar út í olíubíl verð-
ur hættan samt að lokum sú sama.“
Nú, einu ári eftir tilraunina, eru
afleiðingar hennar farnar að sjást
með áþreifanlegum hætti með því
að hönnuðir jarðganga eru farnir að
breyta öryggisstöðlum með tilliti til
niðurstaðnanna. Stendur m.a. til að
breyta reglum um jarðgangagerð í
Bandaríkjunum en til þessa hafa
hönnunargildi fyrir jarðgöng verið
of lág fyrir flutningabíla af þessari
gerð að sögn Hauks. „Við erum
einnig farnir að sjá mikla umræðu
um notkun vatnsúðunarkerfa í
stærri jarðgöngum. Við reyndum
oft að vekja athygli á nauðsyn
vatnsúðunarkerfa en umræðan var
fremur dauf. Eftir tilraunina fór
hún hins vegar á mikið flug og nú
er svo komið að við erum orðnir
þátttakendur í viðamiklum tilraun-
um með gagnsemi þessara kerfa.
Menn eru því farnir að gera sér
grein fyrir því að ekki þýðir að
horfa framhjá þeirri hættu sem
getur stafað af vöruflutningabíl-
um.“
Til að gefa nánari mynd af til-
raunabílunum voru þeir ýmist
hlaðnir ósamsettum húsgögnum,
trébrettum eða pappírsrúllum. Seg-
ir Haukur að mönnum hafi brugðið
talsvert þegar kveikt var í bílunum
og séð hversu geysilegt bál varð.
Sem fyrr segir komust slökkviliðs-
menn ekki alveg að bílunum vegna
hita og urðu að staðnæmast 15
metra frá bálinu þegar best lét.
Vakti þetta spurningar um getu
slökkviliða til að ráða við eldsvoða
af þessu tagi.
Hitinn allt að
1.350 gráðum
„Við sýndum líka fram á að hita-
stig í svona brunum getur verið á
bilinu 1.200–1.350 gráður sem þýðir
að steypt jarðgöng undir vatni geta
hrunið. Í kjölfarið var Sænska
brunamálastofnunin fengin til að
gera hitaprófanir á jarðgöngum
fyrir vegagerðir. Þessar niðurstöð-
ur hafa því leitt til mikilla breyt-
inga, bæði fyrir okkur og marga
sem vinna að hönnun jarðganga.“
Tekið skal fram að Hvalfjarðar-
göngin myndu ekki hrynja þrátt
fyrir bruna af þeirri stærðargráðu
sem hér um ræðir þar sem þau eru
grafin í gegnum berg en ekki upp-
steypt.
Haukur fagnar því að tilraunin
hafi leitt til viðhorfsbreytinga með-
al verkfræðinga og hönnuða sem
eru farnir að grípa til ráðstafana
gegn þessari leyndu hættu.
Haukur nefnir að allt að 30% af
allri umferð um jarðgöng í Evrópu
eru flutningabílar með farm af
þessu tagi. „Líkurnar á svona brun-
um eru miklu meiri en eldsvoðum í
olíubílum. Þess ber líka að geta að
bílstjórar á olíubílum sæta mun
meiri öryggiskröfum en aðrir
flutningabílstjórar auk þess sem
eftirlit með olíubílunum er mjög
mikið. Sömu sögu er ekki að segja
um venjulega flutningabíla.“ Þessu
til viðbótar eru sum jarðgöng hönn-
uð með það fyrir augum að banna
umferð olíubíla, þar sem þau eru
ekki gerð fyrir slíkt brunaálag, en
tilraun Hauks sýnir að það er falskt
öryggi ef öðrum flutningabílum er
hleypt í gegn.
Brennandi flutningabílar
jafnhættulegir olíubílum
Brennandi flutningabíll með viðarfarm. Niðurstöður Sænsku brunamála-
stofnunarinnar sýna að hættan af slíkum bruna er vanmetin.
Haukur Ingason tók þátt í rannsókn á brennandi flutningabílum í jarðgöngum
Um 30% af allri umferð um jarðgöng
í Evrópu eru flutningabílar
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir
árið 2005, sem var til umræðu á
stjórnarfundi í vikunni, er heimild til
hækkunar á rafmagni og heitu vatni
um 3,2% í júlímánuði næsta sumar.
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitunnar, segir heimild sem
þessa hafa verið veitta árlega í fjár-
hagsáætlun og því sé ekki um nýjung
að ræða. Heimild til hækkunar fyrir
þetta ár hafi verið nýtt, upp á 2,6%,
og það muni skýrast á vormánuðum
hvort heimild næsta árs verði nýtt.
Það fari eftir þróun verðlagsmála í
landinu og áhrifum breytinga á raf-
orkulögum, sem taka gildi um næstu
áramót. „Ef okkar kostnaður hækk-
ar þá munum við væntanlega þurfa
að grípa til einhverra hækkana.“
Hann bendir jafnframt á að und-
anfarinn áratug hafi heitt vatn og
rafmagn hækkað mun minna en þró-
un byggingarvísitöla. Frá árinu 1993
hafi gjaldskrá raforku hjá OR hækk-
að um 18% og heita vatnið um 40% á
meðan byggingarvísitala hafi hækk-
að um 55% og lánskjaravísitala um
92%. Á sama tíma hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 39%.
Fjárhagsáætlun Orkuveitunnar
Heimild til hækkunar
um 3,2% í sumar
ÞEIR sem ætla að selja skotelda í
smásölu í Reykjavík, Seltjarnarnesi,
Kjalarnesi, Mosfellsbæ og Kjósar-
hreppi fyrir og eftir áramót verða að
sækja um leyfi til slíks til lögreglu-
stjórans í Reykjavík fyrir 10. desem-
ber 2004. Lögreglan bendir á að leyfi
eru aðeins veitt ef kröfur forvarn-
arsviðs Slökkviliðsins eru uppfylltar.
Að gefnu tilefni skal vakin athygli
á að meðferð skotelda er einungis
heimil á tímabilinu frá og með 28.
desember til og með 6. janúar. Nán-
ari upplýsingar má finna á vef lög-
reglunnar www.logreglan.is.
Flugeldasalar
sæki um leyfi
♦♦♦