Morgunblaðið - 21.11.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 37
UMRÆÐAN
ÁRIÐ 1996 átti að reisa tuttugu og
fjögurra húsa byggð á Vestursvæð-
inu svokallaða á Seltjarnarnesi. Bæj-
arbúar risu gegn tillögunni og söfn-
uðu undirskriftum gegn ákvörðun
bæjarstjórnar. Þá söfnuðust rúm-
lega níuhundruð undirskriftir.
Hvernig brást bæjarstjórn við? Jú,
hinn reyndi bæjarstjóri Seltirninga,
Sigurgeir Sigurðsson, og bæj-
arstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins ákvað að hlusta á óskir bæjarbúa
og taka fullt tillit til mótmæla þeirra.
Tengsl Sjálfstæðisflokksins við Sel-
tirninga, svo vitnað sé í fundargerð
bæjarstjórnar þennan dag, væru og
hefðu verið sterk. Þess vegna þótti
ástæða til að fara að óskum okkar.
Tæpum tveimur árum síðar, 1998,
fóru fram bæjarstjórnarkosningar á
Seltjarnarnesi. Ýmsir spáðu því, að
nú færi að halla undan fæti fyrir Sig-
urgeir bæjarstjóra eftir langa þjón-
ustu í embætti bæjarstjóra. En það
fór á aðra leið, Sigurgeir vann sinn
stærsta sigur fyrr og síðar í þeim
kosningum. Þar sannaðist, að tengsl
hans og Sjálfstæðisflokksins við bæj-
arbúa voru sterk. Hann hlustaði á
raddir kjósenda sinna.
Átta árum síðar stóð bæjarstjórn
Seltjarnarness enn frammi fyrir því
að taka ákvörðun í mikilvægum
skipulagsmálum. Nú vildi Jónmund-
ur Guðmarsson, nýr bæjarstjóri og
samherjar hans í bæjarstjórn reisa
180 íbúðir á Hrólfsskálamel og Suð-
urströnd og færa íþróttavöll bæj-
arins á mun lakari stað en hann er á
nú, þ.e. inn í væntanlegan miðbæ.
Bæjarbúar risu gegn tillögunni og
söfnuðu undirskriftum gegn ákvörð-
un bæjarstjórnar. Nú söfnuðust
1.091 undirskrift, sem svarar til 44%
af þeim sem greiddu gild atkvæði í
síðustu bæjarstjórnarkosningum.
Hvernig brást bæjarstjórn við?
Jú, bæjarstjóri Seltirninga, Jón-
mundur Guðmarsson, og bæj-
arstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins ákváðu að hundsa vilja bæjarbúa
og keyra í gegn óbreyttar hug-
myndir sínar um breytingu á að-
alskipulag á svæðinu. Þessu fylgdi
loforð um málamyndabreytingar á
deiliskipulagi, þó að bæjarbúar hafi
eindregið mótmælt því skipulagi
ásamt breytingu á aðalskipulagi.
Það verkefni, sem liggur fyrir
bæjarstjórninni nú, er að byggja upp
viðskipta-, þjónustu- og íbúðakjarna
á Hrólfsskálamel í fullri sátt við bæj-
arbúa. Með skynsamlegri uppbygg-
ingu fallegs miðbæjar, m.a. með hóf-
legum íbúðabyggingum fyrir fólk á
öllum aldri, má skapa ný tækifæri
fyrir Seltjarnarnes. Hins vegar á að
láta Suðurströndina, útivistarsvæðin
okkar í friði, þar með talinn íþrótta-
völlinn.
Ekki er heldur hægt að una við
það lengur að bæjaryfirvöld þráist
við að leggja fram tillögu um nýtt að-
alskipulag fyrir 2004–2024 í stað
þess sem rann út 2001. Íbúar Sel-
tjarnarness eiga rétt á að fá að taka
þátt í að móta heildarsýn til fram-
tíðar og hafna misheppnuðum smá-
skömmtum. Þetta eru þau skýru
skilaboð, sem bæjarbúar hafa sent
bæjaryfirvöldum með mótmælum
sínum.
En nú er öldin sannarlega önnur í
bæjarstjórn Seltjarnarness. Í stað
þess að hlusta á óskir bæjarbúa og
fara eftir þeim, kýs bæjarstjórinn að
þvinga mál fram, en gefa um leið
óljós loforð um aukaatriði og loðin
svör við spurningum okkar. Ef
meirihlutinn hefði fullan hug á að
koma til móts við okkur, eins og
hann segist vilja, myndi hann stöðva
þetta framferði og koma með aðrar
tillögur, sem bæjarbúar gætu rætt
og valið úr. Eins og staðan er núna,
sýnist bæjarstjórinn vera í þann veg-
inn að höggva á þau sterku tengsl,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
myndað við bæjarbúa með áratuga
forystu sinni í bæjarstjórn. Aðrir
bæjarfulltrúar flokksins virðast ætla
að veita honum stuðning sinn við
þetta, þótt ótrúlegt sé.
Svo uppskera menn, sem þeir sá.
Tvennir tímar í bæjar-
stjórn Seltjarnarness
Sigmundur Magnússon
fjallar um skipulagsmál
á Seltjarnarnesi
’Í stað þess að hlusta áóskir bæjarbúa og fara
eftir þeim, kýs bæjar-
stjórinn að þvinga mál
fram, en gefa um leið
óljós loforð um auka-
atriði og loðin svör við
spurningum okkar.‘
Sigmundur Magnússon
Höfundur er læknir og Seltirningur.
Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is
F A S T E I G N A S A L A
OPIÐ HÚS Í DAG
JÓRSALIR 10 - KÓPAVOGI
Til sýnis og sölu mjög fallegt og vel
staðsett einbýlishús með bílskúr,
samtals 230 fm. Húsið stendur innst í
botnlanga og er gott útsýni frá turni.
Stór afgirt suðurverönd.
Verð 39,8 millj.
Guðbjörg Hannesdóttir sölufulltrúi tekur á móti áhugasömum
á milli kl. 14.00 og 16.00 í dag.
Viðskiptatækifæri - Keflavík
Sölufulltrúi:
Guðmundur Valtýsson
Gsm 864 3022
Ármúla 15 • sími 515 0500
fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is
fasteignakaup@fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Veitingastaðurinn Olsen Olsen er til sölu. Spennandi tækifæri í hringiðu
Keflavíkur. Reksturinn er í 160 fm snyrtilegu húsnæði á aðalgötu bæjarins.
Staðurinn er sérlega vel tækjum búin. Allt fyrsta flokks. Leyfi fyrir nætursölu.
Langur leigusamningur getur fylgt.
Nánari upplýsingar gefur
Guðmundur Valtýsson
hjá Fasteignakaup,
símar 515 0500 eða gsm 865 3022
Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða, m.a. hlunninda-
jarðir, jarðir með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir
garðyrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frístundabúskap og
ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru víðs vegar um landið. Erum
einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og hesthúsa. Fáið senda
söluskrá í pósti eða nálgist eintak á skrifstofu. Einnig er oft til á
sölu hjá okkur sauðfjár- og mjólkurframleiðsluréttur. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, sem er alhliða fast-
eignasala og selur fasteignir jafnt á landsbyggðinni sem og á höf-
uðborgarsvæðinu. Sölumenn FM aðstoða.
Minnum einnig á fmeignir.is og mbl.is .
135 BÚJARÐIR/LANDSPILDUR
- 75 SUMARHÚS
Atvinnuhúsnæði
Bæjarhraun - Hf. - til leigu
Nýkomið sérlega gott ca 800
fm atvinnuhúsnæði, sem
skiptist þannig: 550 fm lag-
erpláss með innkeyrsludyrum
og ca 250 fm verslunar-/skrif-
stofupláss. Afhending um nk.
áramót. Frábær staðsetning
og gott auglýsingagildi.
Eignasala Reykjavíkur og nágrennis ehf.,
Vegmúla 2, Reykjavík.
Stefán Hrafn Stefánsson hdl., lögg. fasts.
sími 515 7440, stefan@eron.is
Byggingaverktakar - fjárfestar - ATH!
Undirrituðum hefur verið falið að leita tilboða í frábæra byggingarlóð
undir atvinnuhúsnæði á einum besta stað á stór-Reykjavíkursvæðinu.
Um er að ræða stóra byggingarlóð við Dalveg nr. 10-14 í Kópavogi, rétt
við Smáratorgið og í nálægð Smáralindar. Lóðin stendur á milli Dalvegar
og Reykjanesbrautar (Stofnbrautar) og er auglýsingagildi lóðarinnar mik-
ið. Ýmsir möguleikar eru á uppbyggingu á lóðinni. Lóðin er samtals
u.þ.b. 17.600 fm. Gatnagerðargjöld eru innifalin fyrir hluta lóðarinnar.
Verð tilboð.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður á skrifstofutíma.
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 18
SÖRLASKJÓL 34 – 3JA HERB.
Gullfalleg 3ja herbergja íbúð með
sérinngangi á jarðhæð (kjallara) í
Vesturbænum. OPIÐ HÚS Í DAG
MILLI KL.14 OG 18 - SÖRLASKJÓL
34 – 3JA HERB. Forstofa, forstofu-
herbergi, hol, stofa, eldhús, hjóna-
herbergi og baðherbergi. Íbúðin er
nýuppgerð, skólplagnir endurnýjað-
ar og húsið sjálft nýlega uppgert að
utan. Glæsileg eign á frábærum
stað.
Tekið verður á móti gestum sunnudaginn 21. nóvember milli kl. 14-18
Háholt 28 - Reykjanesbæ
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 16
Um er að ræða 164 fm einbýli
á einni hæð með 22 fm bíl-
skúr, samtals 186 fm. Stofa og
borðstofa sem er mjög stór
eða ca 60 fm. Eldhús m/beyki-
innréttingu. Beykiparket er á
eldhúsi, stofu og svefnherbergjum. Flísar á baðherbergi,
þvottahúsi og gangi. Nýlegt baðherbergi og þvottahús. Góð
staðsetning. Skjólgóður sólpallur. Fallega ræktaður garður.
Stutt í skóla. Getur losnað fljótlega. Verð 18,9 millj.
Birgir og Stella bjóða ykkur velkomin.