Morgunblaðið - 21.11.2004, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í
Reykjavík
17.–25. nóvember
Reykjavik International
Film Festival
www.filmfest.is
Regnboginn kl. 18:00
Regnboginn:
14:00 Baunir kl. hálf sex
14:00 Lifandi í limbói
15:00 Lifandi í limbói
16:00 Stjórnstöðin • Míla frá Mars
18:00 Múrinn • Konunglegt bros
Háskólabíó:
14:00 Gerrie og Louise (frums.)
16:00 Ferðin langa (frums.)
18:00 Furðufuglar (frums.)
22:00 Jargo
Hafnarhús:
10:30, 11:30 og 13:30 AugaÓðins
(Aðgangur ókeypis)
Sunnudaginn 21. nóvember
Austur-Berlín um miðjan níunda
áratuginn meðan múrinn stóð enn
og pönkið var lamið niður af hörku.
Í myndinni er sögð saga Jan Sputnik
og félaga hans í pönkbandinu “Der
Demokratische Konsum”. Múrinn
er önnur mynd Ólafs Sveinssonar í
heimildarþríleik hans um Berlín, sem
hann vinnur samhliða heimildar-
þríleik um Reykjavík. Leikstjóri svarar
fyrirspurnum að frumsýningu
lokinni.
FRUMSÝNING
Saga Bítlanna er mikið ævin-týri og því merkilega semfleiri þættir hennar verðaljósir. Af öllu því furðulega
sem á daga þeirrar merku sveitar
dreif á hennar stuttu ævi er þó
fátt eins sérkennilegt og útgáfu-
sagan, sagan af því hvernig mis-
vitrir og fégráðugir útgáfustjórar
vestan hafs og austan fóru með
plötur sveitarinnar. Það skilaði sér
meðal annars í því að Bandaríkja-
menn fengu til að mynda nokkuð
aðra mynd af sveitinni en Bretar
því framan af voru plöturnar sem
komu út vestan hafs allt öðruvísi
en þær sem gefnar voru út í Bret-
landi. Það hafði meðal annars í för
með sér að þegar plöturnar komu
síðar út á geisladiskum og fylgt
var bresku útgáfunni urðu margir
bandarískir Bítlavinir fyrir mikl-
um vonbrigðum. Þeir geta þó tek-
ið gleði sína að nýju því nú koma
fyrstu fjórar Bítlaplöturnar sem
gefnar voru út þar í landi, allar
saman í einum kassa, Meet the
Beatles!, The Beatles Second
Album, Something New og
Beatles ’65. Flestir evrópskir
áheyrendur fá líka eitthvað fyrir
sinn snúð því sitthvað sem þeir
ekki hafa heyrt er að finna á plöt-
unum.
Vildu ekki Bítlana
Parlophone hét útgáfa Bítlanna
í Bretlandi en eigandi hennar var
EMI-útgáfurisinn. EMI átti líka
bandarískt fyrirtæki, Capitol, en
þó að sveitin hafi fengið fljúgandi
start í heimalandinu leist Capitol-
mönnum ekki nema miðlungi vel á
að gefa Bítlana út vestan hafs.
Fyrsta smáskífa Bítlanna sem
náði á toppinn í Bretlandi, Please
Please Me, dugði þannig ekki til
að heilla stjóra Capitol sem svar-
aði því til er hann fékk skífuna í
hendur að hljómsveitin myndi
aldrei selja neitt af viti í Banda-
ríkjunum.
Næstu smáskífu, From Me to
You, var líka hafnað og í fram-
haldi af því fór George Martin,
umboðsmaður Bítlanna, að leita
hófanna hjá öðrum fyrirtækjum. Á
endanum samdi hann við smáfyr-
irtækið Vee Jay sem gaf út smá-
skífurnar tvær. Smáskífurnar
seldust ekki nema miðlungi vel og
Vee Jay, sem var nánast komið á
hausinn, hafði ekki áhuga á að
gefa meira út að svo stöddu. Það
var því annað smáfyrirtæki, Swan
Records, sem gaf út næstu smá-
skífu, She Loves You.
I Want to Hold Your Hand varð
svo til þess að Capitol kveikti loks
á perunni og gaf smáskífuna út.
Hún seldist gríðarlega vel og í
framhaldi af tók Capitol heldur en
ekki við sér. Vee Jay átti reyndar
enn réttinn á nokkrum lögum og
10. janúar 1964 kom út í Banda-
ríkjunum fyrsta Bítlaplatan,
Please Please Me, sem hét Intro-
ducing the Beatles í bandarískri
útgáfu, enda var búið að klippa af
lögin Please Please Me og Ask Me
Why.
Tíu dögum síðan kom svo út
fyrsta Bítlaplatan sem Capitol gaf
út, Meet the Beatles!, en þar var
komin Bítlaplata nr. 2 í Bretlandi,
With the Beatles, í nokkuð
breyttri mynd. Capitol-mönnum
fannst óþarft að hafa fjórtán lög á
plötunni eins og á bresku útgáf-
unni og sleppti að auki fimm lög-
um eftir bandaríska listamenn
sem Bítlarnir fluttu. Í þeirra stað
komu tvö b-hliða lög og I Want to
Hold Your Hand.
Vestan hafs tíðkaðist að hafa
tólf lög á plötum og útreikningar á
höfundar- og útgáfuréttargjöldum
voru nokkuð frábrugðnir því sem
gerðist á Bretlandi. Í Bandaríkj-
unum voru gjöldin reiknuð eftir
fjölda laga og hækkuðu því við
hvert lag, en í Bretlandi var miðað
við prósentu af heild.
Þrjár breiðskífur á hálfu ári
Þrem mánuðum eftir að Meet
the Beatles! kom út kom svo út
önnur Bítlaplata á vegum Capitol,
The Beatles’ Second Album, sem á
voru lögin fimm sem ekki þóttu
henta fyrir Meet the Beatles!, She
Loves You og tvö ný lög til við-
bótar.
Þriðja Bítlaplatan sem kom út í
Bretlandi var A Hard Day’s
Night. Sú kom líka út vestan hafs,
en þá í talsvert annarri mynd og
annað fyrirtæki, United Artists,
gaf hana út um miðjan júní 1964.
Capitol-menn voru þó ekki af baki
dottnir og í júlí kom út þriðja
Bítlaplatan frá Capitol, Something
New. Á henni voru lög Bítlanna úr
A Hard Day’s Night, tvö nýleg lög
og þýsk útgáfa af I Want to Hold
Your Hand (Komm, Gib Mir
Deine Hand).
Capitol var þá búið að gefa út
þrjár breiðskífur með Bítlunum í
Bandaríkjunum á hálfu ári, United
Artits eina, Vee Jay eina (fimm ef
taldar eru plötur sem seldar voru
út á það að á þeim væru Bítlalög,
eitt eða fleiri, þó þau væru ekki
endilega flutt af Bítlunum), Atco
eina, Savage eina. Ekki var þó allt
búið enn, því Capitol átti eftir að
gefa út tvær Bítlabreiðskífur til
viðbótar á árinu enda eftirspurnin
nóg. Það gefur nasasjón af vin-
sældum sveitarinnar á þessum
tíma að árið 1964 seldi sveitin
fjórtán milljón breiðskífur í
Bandaríkjunum og nokkrar millj-
ónir eintaka af smáskífum.
Í nóvember 1964 gaf Capitol svo
út plötuna The Beatles’ Story, tvö-
föld plata með viðtölum og brotum
úr lögum, sem seldist bráðvel þó
að ekki væri á henni eiginleg
Bítlatónlist – milljón eintök seld-
ust á hálfu ári. Síðasta Bítlaútgáfa
ársins kom svo um miðjan desem-
ber 1964 og hét Beatles ’65. Þar
var komin breiðskífan Beatles for
Sale sem kom út í Bretlandi þá
um haustið, eða réttara sagt hluti
hennar því átta lög voru af Beatl-
es for Sale og tvö smáskífulög
með.
Hrært í hljóði
Capitol-menn áttu eftir að
hræra í lagalistum lengi enn, það
var ekki fyrr en Sgt. Pepper’s
Lonely Hearts Club Band kom út
að Bítlaplata var eins vestan hafs
og austan; meira að segja snilld-
arskífur á við Rubber Soul og Re-
volver voru klipptar til fyrir
Bandaríkjaútgáfu.
Þegar Bítlaplöturnar voru svo
gefnar út á geisladiskum 1987 var
ákveðið að hafa útgáfuna eins og
plöturnar höfðu verið í Bretlandi
sem varð mörgum vonbrigði vest-
an hafs, því þar höfðu menn alist
upp við annað. Eini geisladisk-
urinn sem var eins og bandaríska
útgáfan var Magical Mystery
Tour, sem kom út sem breiðskífa
með aukalögum í Bandaríkjunum
en á stuttskífum í Bretlandi.
Hljóð á plötunum er endurunnið
eftir bandarískum frumeintökum,
en ekki var bara að lögum var
fækkað og þau flutt á milli platna,
heldur bættu menn líka bergmáli
á sum lögin til að hljómurinn yrði
amerískari. Á diskunum eru lögin
í upprunalegri mono-útgáfu en
einnig eru þau mörg í stereo-gerð
og sum í duophone, sem var
heimagert stereo sem Capitol-
menn púsluðu saman úr tveimur
mono-rásum sem voru tónjafn-
aðar, þjappaðar og reverb bætt
við.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Bítlarnir snúa heim úr fyrstu Bandaríkjaferðinni. Í mannhafinu á flugvellinum er meðal annarra Rúnar Júlíusson.
Þeir Bítlar sem Bandaríkjamenn kynntust voru nokkuð frá-
brugðnir því sem menn þekktu í Evrópu, í það minnsta
hvað varðar fyrstu plöturnar sem sveitin sendi frá sér. Á
þriðjudag koma út í einum pakka fyrstu fjórar Bítlaplöt-
urnar eins og Bandaríkjamenn matbjuggu þær.
Bandarískir Bítlar
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is