Morgunblaðið - 21.11.2004, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 19
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is
Aðeins það besta fyrir
andlit þitt
SNYRTIKLEFI
Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita
þér slökun og dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun
húðarinnar að yndislega róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum
sem stafa af þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri
blóðrás, þreytulegri húð og öðru sem hrjáir húðina.
Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og
sjáðu hvað svolítið dekur gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 2.500.
Hringdu og pantaðu tíma í síma 568 9970.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að
njóta áramótaveislu í Sviss á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Zürich með Loftleiðum.
Zürich er stærsta borg Sviss og liggur í
hjarta landsins við hið fagra Zürich vatn.
Hér er að finna heillandi stemmningu um jól
og áramót, hin stórkostlega flugeldasýning um hver áramót er stærsta
partý í Sviss og hingað koma þúsundir til að fylgjast með stemmningunni
og njóta matar og drykkjar á hverju götuhorni fram eftir nóttu.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Áramótaveisla í
Sviss
frá kr. 29.990
Verð kr. 29.990
Flugsæti með sköttum.
Verð kr. 44.890
Flug, gisting, skattar, hótel
Novotel, 4 stjörnur.
Beint flug Heimsferða
29. desember
Brottför frá Keflavík kl. 8.00.
1. janúar
Brottför frá Zürich kl. 19.30.
Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir og fl.
Það var ekki vegna launannasem ég gerðist kennari envissi að hverju ég gekk.Mig langaði einfaldlega aðvinna með ungu fólki og
miðla því sem ég kunni best. Frá
fyrsta degi fann ég taktinn. Við byrj-
uðum á Gíslasögu og Bárður var
nýbúinn að fífla
Þórdísi, okkur til
mikillar skemmt-
unar þegar verkfall
skall á. Það tók sinn
tíma að ná upp
spennunni eftir
þrjár vikur.
Síðan hef ég farið í mörg verkföll,
stundum í grunnskóla en oftar í
framhaldsskóla. Það lengsta tók átta
vikur, það stysta einn dag. Mér er
sagt að þau hafi öll skilað miklum
kjarabótum og ekki rengi ég það.
Hins vegar hét ég því eftir síðasta
verkfall að segja upp ef ég neyddist
til að loka enn einu sinni á nemendur
mína og segja þeim að verkfallið
beindist ekki gegn þeim heldur
launagreiðendum sem sýndu okkur
kennurum ekki nægilega virðingu.
Sjálfsagt má túlka þetta viðhorf sem
skort á stéttvísi, ég kæri mig koll-
ótta. Í mínum huga snýst virðing
ekki um peninga heldur trú-
mennsku.
Sjaldan hef ég notið þess betur að
sinna nemendum mínum en undan-
farnar vikur. Sjaldan hefur mæting
þeirra verið betri, áhugi og ástund-
un. Ástæðan er nærtæk. Þeir eru
fegnir þeirri kjölfestu sem fram-
haldsskólinn er þegar glundroði rík-
ir á neðri stigum. Þeir vilja læra.
Þeim finnst sem þeir hafi sloppið fyr-
ir horn. Það finnst mér líka.
Sannleikurinn er líka sá að fátt
veitir meiri fullnægju en að leiða
ungt fólk eftir menntabrautinni þótt
sú leiðsögn sé stundum þyrnum
stráð og veraldleg uppskera ekki í
samræmi við erfiðið. Góður árangur
nemenda, þakklæti þeirra og hlý-
hugur er ígildi nokkurra skólastjóra-
potta, jafnvel launaflokka. Þetta vita
flestir kennarar innst inni. En þar
sem dansinn kringum gullkálfinn er
löngu orðinn hin eina sanna þjóðar-
íþrótt er erfitt að verma bekkina. Í
mínu ungdæmi voru orðin stríðs-
gróðamaður og braskari talin
skammaryrði og kapp lagt á að
stunda heiðarleg vinnubrögð en nú
virðist allt metið til fjár, hvort sem
það er vel eða illa fengið. Menn taka
því bara sem hverju öðru hundsbiti,
séu þeir staðnir að rangindum og
lögleysu og því fýsilegra virðist hlut-
skipti þeirra eftir því sem þeir ota
meiri gróða og glysi að náunganum.
Kannski er það þversögn að vilja
ala upp nemendur til þátttöku í slíku
samfélagi og raunin er líka sú að
mörgum þeirra hafa þegar verið inn-
rætt þau gildi sem allt snýst um. En
á meðan ég get miðlað þeim því
besta sem ég kann langar mig að
halda áfram. Vera kann að ég dansi í
vitlausum takti en vonandi skaðar
það engan.
Um virðingu, stétt-
vísi og hundsbit
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Guðrúnu
Egilson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni