Morgunblaðið - 21.11.2004, Blaðsíða 25
gjósku frá Öræfajökulsgosinu 1362
vestur yfir Mýrdalssand kom í ljós
að mikið gjóskugos hefur komið úr
Kötlu fáeinum árum fyrr. Heimildir
um það er að finna í þremur göml-
um annálum. Í Skálholtsannál (um
1354) segir af eldsuppkomu í
Trölladyngjum og „eyddust margir
bæir í Mýdal af öskufallinu, en vik-
urinn rak allt vestur á Mýrum og
sá eldinn af Snæfellsnesi“. Gott-
skálksannáll (um 1357) segir m.a.:
„Elds uppkoma í Trölladyngjum
leiddi þar af ógnir miklar og dunur
stórar, öskufall svo mikið að nær
alla bæi eyddi í Mýdalnum og víða
þar nálægt gerði mikinn skaða,
vikra reki svo mikill austan til að
út frá Stað á Snæfellsnesi rak vikr-
ina og enn utar.“ Í annál Flateyj-
arbókar (um 1360) er svipaða lýs-
ingu að finna. Oddur Einarsson
segir í Íslandslýsingu sinni frá gosi
í Trölladyngju 1356 og eyðingu
margra bæja í sveit sem nefnist
Mýdalir.
Sigurður Þórarinsson segir ljóst
að hvorki sé um að ræða gos í
Trölladyngju á Reykjanesi, né í
Trölladyngjum í Ódáðahrauni.
Hann telur líklegast að Kötlugos
hafi getið af sér öskufallið í svo-
nefndum Mýdal sem myndaði
gjóskulagið rétt undir 1362-laginu
austast í Mýrdalnum.
1416
Kötlugoss þessa er aðeins getið í
einni heimild, viðbót við Lögmanns-
annál sem nefndist Nýi annáll. Þar
segir m.a.: „Kom upp eldur að
Höfðárjökli og brenndi mikinn dal
(les í) jökulinn. Varð þar af öskufall
mikið, svo lá við skaða.“ Gjóskulag-
ið úr þessu gosi hefur m.a. fundist í
Álftaveri.
Um 1500
Eina heimildin um þetta gos er
svart gjóskulag sem nær vestur á
Reykjanes og í Reykjavík er það
þykkasta gjóskulagið sem fallið
hefur frá því Ingólfur Arnarson
steig á land. Sigurður Þórarinsson
taldi að þetta gos hefði orðið á
tímabilinu 1480–1495 en síðari
rannsóknir benda til að það sé ívið
yngra, eða frá því um 1500. Einar
Ólafur Sveinsson leiðir rök að því í
ritgerð sinni, Byggð á Mýrdals-
sandi, að Dynskógar hafi trúlega
farið í auðn seint á 15. öld, eftir
1480, og spyr hvort það hafi ef til
vill verið af völdum stórkostlegs
eldgoss sem fallið hafi í gleymsku?
Við uppgröft í Kúabót í Álftaveri,
undir stjórn Gísla Gestssonar á ár-
unum 1972–1976, komu í ljós rústir
af bæ sem jökulhlaup lagði í eyði á
svipuðum tíma.
1580, 11. ágúst
Björn Jónsson á Skarðsá ritar í
annál sínum: „Sprakk og hljóp
fram Mýrdalsjökullinn með eld-
gangi suður frá Þykkvabæjar-
klaustri, svo bæir eyddust, en ekki
sakaði fólk.“ Jarðirnar munu allar
hafa verið byggðar aftur, nema
Efri-Mýrar.
Oddur Einarsson ritaði einnig
um þetta gos í Íslandslýsingu sinni:
„Þá sást nýstárlegt eldgos í fjalli,
sem nefnist Sólheimajökull, kring-
um árið 1580. Steig eigi aðeins upp
úr því reykur, heldur sást einnig
neistaflug sem náði allt út á sundið
milli Vestmannaeyja og lands. Að
vísu gerði dagsljósið og sólskinið
sjálft neistaflugið ógreinilegt, þegar
það varð, en við sólsetur mátti
greinilega sjá eldgosið, sem var svo
feiknlegt, að stór björg þeyttust á
haf út. Og þótt furðulegt sé, heyrð-
ust dunurnar og dynkirnir eins og
drunur frá öflugustu fallbyssuskot-
um í fjarlægustu landshlutum, þ.e.
á norðanverðu og vestanverðu
landinu, en þeir sem bjuggu í nánd
við fjallið urðu þess alls ekki varir.“
1612, 12. október
Þorvaldur Thoroddsen getur
goss í Eyjafjallajökli en ekki Kötlu-
goss þetta ár. Það byggir hann á
Skarðsannál um árið 1612. Espólín
tekur það upp: „Sprakk fram Eyja-
fjallajökull austur allt í sjó; kom
þar upp eldur; hann sást nær alls
staðar fyrir norðan land.“ Sigurður
Þórarinsson segir Þorkel Þorkels-
son veðurfræðing hafa bent á að
hér myndi um Kötlugos að ræða,
því sannanlega hafi komið Kötlugos
þetta ár. Þorsteinn Magnússon,
klausturhaldari í Þykkvabæ, skrifar
um Kötlugos og nefnir þar gosið
1612 „og var það það fyrsta ár, er
eg meðtók þetta klaustur, og að
skeði 12. Octobris“.
1625, 2.—14. september
Þorsteinn Magnússon, sýslumað-
ur og klausturhaldari í Þykkva-
bæjarklaustri, skrifar merka heim-
ild um þetta gos í september 1625
og viðbótarskýrslu í mars 1626.
Telur Sigurður Þórarinsson að
„eigi hafi áður verið skrifað nokk-
ursstaðar gagnmerkari goslýsing,
ef undanskilin er hin fræga Plinius-
ar yngra á gosinu í Vesúvíusi 79
e.Kr. Sérstaklega athyglisverð er
lýsing Þorsteins á rafmagnsfyrir-
bærum í gjóskufallinu. Þetta var
mikið gjóskugos og barst gjóskan
aðallega til austurs. 23 bæir fóru í
eyði um skeið, þar af 18 í Skaft-
ártungu. Í Öræfum varð að taka
búpening á gjöf.“
Eini staðurinn þar sem gjósku-
falls gætti lítið á svæðinu var í Ból-
hrauni í Álftaveri. Sagt var „að
þangað hafi komið sauðfé, naut og
hross hvaðanæfa, allt að tvær þing-
mannaleiðir.“ Þetta olli ofbeit og
var jörðin sem sviðin. Mikið af bú-
peningi féll um veturinn. Jök-
ulhlaupið varð sennilega mest á
austursandinum.
1660, 3. nóvember
fram yfir áramót
Samtímaheimild um þetta gos er
m.a. að finna í skrifum séra Jóns
Salómonssonar, sem dagsett eru að
Kerlingardal 12. nóvember 1660.
Fremur lítið gjóskufall fylgdi gos-
inu en mikið hlaup. Getur Sigurður
Stefánsson, sýslumaður, þess að
jökulvatn hafi gengið fram úr
skarðinu í Hafursey sem er milli
Skálarfjalls og megineyjarinnar.
Aðalhlaupið þann 3. nóvember
spillti svo fjórum jörðum í Álfta-
Ljósmyndir Kjartans Guðmundssonar frá Hörgsholti eru mikilvæg heimild um Kötlugosið 1918. Hann tók myndir af gos-
mekkinum og tröllslegum jökum á Mýrdalssandi og fór tvívegis á jökulinn 1919 og tók myndir af afleiðingum gossins.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 25
Lexus | Nýbýlavegi 6 | sími 570 5400 | www.lexus.is
Þinn tími er kominn. Glæsilegt tilboð á
rekstrarleigu gerir þér kleift að njóta þess
að aka Lexus IS200, bíl sem sameinar
fegurð og gæði í fullkominni hönnun,
kosti sportbíls og aðalsmerki lúxusbíla.
IS200 sjálfskiptur á 16" felgum
Rekstrarleiga aðeins 49.200 kr. á mánuði
IS200 Limited, sjálfskiptur á 17" felgum
Rekstrarleiga aðeins 53.100 kr. á mánuði
Lexus IS200 er engum öðrum líkur. Þú átt
skilið að upplifa hið besta sem völ er á.
Komdu og reynsluaktu Lexus IS200
BÚÐU ÞIG UNDIR ATHYGLINA
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
26
48
0
1
1/
20
04