Morgunblaðið - 21.11.2004, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 35
fjölþætt. Á neðstu hæð fær gest-
urinn innsýn í alveg sérstakt tíma-
bil amerískrar málaralistar sem
skrifari þekkti helst af bókum og
naut þess að dvelja endurtekið við.
Einnig sýnishorn af antík og
merkilegt samsafn frumstæðrar
listar frá Ameríku, aðallega
Mexíkó og Kólumbíu, einnig Aust-
urlöndum nær og fjær. Næstu
hæðir opnuðu okkur fjölþætta sýn
yfir list frá endurreisn til nú-
tímans, allt frá Rafael til Bruce
Nauman og enn yngri myndlist-
armanna, mikill fjöldi eldri sem
yngri verka alveg ný fyrir okkur.
Þá státar safnið af öðru mesta úr-
vali verka Andy Warhols í heim-
inum og miklu samsafni af þrykkj-
um, rissum og ljósmyndum, einnig
merkilegum mósaik verkum. Auð-
velt at tapa sér í heilan dag við
skoðun verkanna ekki síst að við-
bættum hinum mikla högg-
myndgarði.
Eins og á fleiri nafn-kenndum söfnum íBandaríkjunum byggistfrægð listasafnsins ekki
síst á gjöf einstaklinga, lang-
samlega viðamest er gjöf systr-
anna Ettu og dr. Claribel Cone.
Þær voru báðar innfæddir
Baltimorebúar og urðu vinir
Gertrude og Leo Stein eftir að
þau systkin fluttu til borgarinnar
á tvítugsaldri. Nágrannar og vinir
þeirra, einnig samtíða í París og
deildu alla tíð með þeim áhuga á
listum og bókmenntum. Þessir
fróðleiksþyrstu frjálslyndu og
framfarasinnuðu gyðingar af þýsk-
um ættum, sem ögruðu viðteknum
venjum með líferni sínu, áttu
drjúgan þátt í viðgangi núlista í
París fyrir hundrað árum. Leo
Stein mun fyrstur þeirra hafa
uppgötvað Picasso og kynnt hann
fyrir hinum og þau Stein-systkinin
voru með fyrstu og tryggustu
kaupendum verka hans og Mat-
isses. Sömuleiðis Cone-systurnar
sem festu sér að auk málverk eftir
Cézanne, van Gogh, Gauguin,
Renoir, Degas og margra fleiri.
Að viðbættum fjölþættum text-
ílum, skartgripum og húsgögnum
svo og list frá Afríku, Asíu og
Austurlöndum. Gertrude og Leo
Stein voru meðal erfingja að járn-
brautaveldi en Stein-systurnar
nutu bræðra sinna Móses og Ces-
ars sem voru stærstu framleið-
endur, jafnframt útflytjendur
baðmullarefnis sem nefndist den-
im. Það var einkum Cesar sem
tryggði þeim árlegar tekjur allt
lífið og fyrir peningana gerðu Etta
og Claribel víðreist um Evrópu.
Voru komnar til Flórenz 1901,
París 1904, dvöldu þar endurtekið
langdvölum, einnig í Frankfurt
1910, München 1914 og 1918,
Lausanne 1926-29, Nice 1933.
Þess á milli var farið yfir hafið til
Baltimore og einnig dvalið í Blow-
ing Rock í Karólínu 1908 og 1949,
en átti þá einungis við Claribel,
Etta látin. Af upptalningunni má
ráða hve hreyfanlegar systurnar
voru á þessum árum, samgöngurn-
ar þó ólíkt frumstæðari en í dag.
Heimssýningin mikla aldamóta-
árið 1900, sem gífurlega athygli
vakti og dró á hálfu ári að sér 50
milljónir gesta frá öllum heims-
hornum, var grunnur að fram-
gangi Parísar í meira en hálfa öld.
Parísarborg í sviðsljósinu sem
miðja framsækinna viðhorfa og
augu nýja heimsins beindust sem
aldrei fyrr til hinnar ríku arfleifð-
ar gamla heimsins. Menjar heims-
sýningarinnar standa enn í formi
stóru og litlu hallanna við Signu,
Grand Palais og Petit Palais, sem
fram á daginn í dag hafa verið
eins konar umferðarmiðstöðvar
myndlista, hver með sínu lagi.
París og raunar meginlandið allt
suðupottur núviðhorfa með gríð-
arlegri gerjun mjúkra gilda. Tíma-
skeiðið enda nefnt Belle Epoque,
fagra tímabilið, og hitti fólk beint í
hjartastað, stóð fram að heims-
styrjöldin fyrri og leifar þess enn í
dag hið upphafnasta sem verður á
vegi ferðalangsins, ekki aðeins í
Evrópu, heldur víða um heim.
Einkum þar sem seinni tíma eft-
irgerðir mikið til í anda Art Deco
náðu í einhverjum mæli að ryðja
sér til rúms, kunnugleg og nær-
tæk dæmi þess í New York eru
Chrysler-skýjakljúfurinn í New
York og ævintýrið í kringum Lou-
is Comford Tiffany á Long Island.
Hin einstæða gjöf systr-anna Ettu og dr. Clar-ibel Cone leggur undirsig heila álmu á ann-
arri hæð safnsins ásamt ýmsum
menjum um þær í einu horninu,
gjöfin lauslega metin á einn millj-
arð dollara fyrir tveim árum. En
að baki lá einungis söfnunarástríð-
an, auðsöfnun og sýndarmennska
ekki til í dæminu eins og líf þeirra
er til vitnis um. Þannig ber fjöl-
skyldugrafreiturinn í Drue Ridge
Cementery í Baltimore einungis
áritunina Cone á framhliðinni og
með öðrum nöfnum inni í hvelfing-
unni getur að lesa: Etta Cone,
November 30, 1870-August 31,
1949/ Claribel Cone, November
14, 1864-September 20, 1929 stutt
og laggott og ekki par annað, jafn-
vel doktorsgráðu Claribel er
sleppt. En hin mikla gjöf er ígildi
minnisvarða um yfirmáta fram-
sýnar og menningarþyrstar systur
sem stóðu með báða fæturna í
núinu, jafnt þefnæmar á fortíðina
og fundvísar á árdegishillingar
sem langt langt í fjarska bjarmaði
af. Þá er til efs að peningar bróð-
urins Cesars Cone, hafi ávaxtað
sig betur í tímans rás en lista-
verkakaupum systranna, í öllu falli
ekki hvað snertir orðstír og ris
Baltimore og bandarísku þjóð-
arinnar í það heila. Minnast má
þess, að þegar Cone- og Stein-
fólkið bar að í París áttu lista-
menn á Montmatre fátt annað ver-
aldlegra gæða en lífsþorstann og
metnaðinn og myndverk þeirra föl
fyrir nokkra franka, en þetta var
á tímum er peningar voru pen-
ingar í orðsins skýrustu merkingu,
hver sá sem átti skilding falinn í
lófa sér átti um leið heiminn að
segja má. En skildingarnir voru
fágætir og mikill hvalreki þegar
þetta eðla fólk kom yfir hafið og
bankaði mjúklega á dyrnar hjá
þeim, setti um leið lóð sín í vog-
arskálar framtíðarinnar …
Systurnar hafa verið miklir aufúsu-
gestir til málara í upphafi síðustu
aldar, eins og ráða má af þessari
sjálfsmynd sem Picasso rissaði upp.
Bonjour (góðan daginn) Mlle Cone.
Velkomin í Eignamiðlun, elstu starfandi fasteignasölu á landinu.
Velkomin í trausta og ábyrga þjónustu hjá fólki sem er með áratuga reynslu af fasteignaviðskiptum.
Velkomin í pottþétt fasteignaviðskipti,
-við sjáum um allt fyrir þig, -nema flutningana.
Velkomin heim!
ÍSLEN
SKA
A
U
G
LÝSIN
G
A
STO
FA
N
/SIA
.IS EIG
26088 LJÓ
SM
YN
D
: SILJA
M
A
G
G
Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað
hann syngur þegar kemur að
sölu bújarða
Ef þú ert að leita að bújörð
þá ertu í traustum höndum
með Jón þér við hlið
Til þjónustu reiðubúinn
í síma 896 4761
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og
úrvalsþjónustu í á annan áratug. Taktu enga áhættu
með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega og ábyrga
fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
ÍBÚÐ Í FLÓRÍDA USA TIL LEIGU
Til leigu er um 190 fm íbúð með bílskúr í íbúðahverfinu Villagio,
sem er skammt suður af Fort Myers á vesturströnd Flórída við
Mexíkóflóa. Íbúðin, sem er af tegundinni Milan, er með tveimur
svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi, borðstofu og
tveimur stofum. Sundlaug og tennisvellir eru einnig í hverfinu.
Sjá nánar á heimasíðunni http://www.villagioestero.com
Frekari upplýsingar eru veittar á netfanginu bob@strax.com
Ertu í söluhugleiðingum?
Þar sem fasteignakaup og sala hefur verið mjög
lífleg upp á síðkastið er svo komið að okkur vantar
allar stærðir eigna á söluskrá.
Við erum reiðubúin að vinna fyrir þig og fjölskyldu
þína að farsælum fasteignaviðskiptum.
Fasteignakaup veitir ykkur sérfræðiþjónustu í
fasteinga viðskiptum
Páll Höskuldsson
Gsm 864 0500
Erna Valsdóttir
lögg. fasteignasali
Guðmundur Valtýsson
Gsm 865 3022