Morgunblaðið - 21.11.2004, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 45
AUÐLESIÐ EFNI
KENNARAR hafa fengið nýjan
kjara-samning. Hann var
undir-ritaður á
miðvikudaginn. Kennarar og
sveitar-félögin hafa verið í
erfiðri launa-deilu.
Ríkis-stjórnin setti lög á
kennara. Þeir máttu ekki
vera lengur í verk-falli.
Gerðar-dómur átti að ákveða
lausnina ef ekki tækist að
semja. Kennarar og
sveitar-félögin vildu frekar
semja sjálf. Nú eiga báðir
aðilar eftir að greiða atkvæði
um samninginn.
Ef hann verður
sam-þykktur fá kennarar
launa-hækkun. Þeir fá líka
130.000 krónur núna og
75.000 krónur í júlí. Þeir
voru ekki með nein laun
meðan þeir voru í verk-falli. Á
næstu árum verður
kennslu-skyldan minnkuð.
Þá þurfa kennarar að kenna
26 tíma á viku í staðinn fyrir
28.
Uppsagnir á nokkrum stöðum
Mikið rót var á skóla-starfi í
síðustu viku. Á mánudag
mættu fáir kennarar til
vinnu. Þeir voru mjög reiðir
eftir að ríkis-stjórnin setti lög
á þá. Á Fáskrúðs-firði sögðu
allir kennarar upp vinnunni.
Á öðrum stöðum var líka
nokkuð um upp-sagnir.
Sumir foreldrar voru mjög
reiðir út í kennara fyrir að
mæta ekki til vinnu. Aðrir
voru reiðir út í ríkis-stjórnina
fyrir að fara þessa leið.
Nýju samningarnir kosta
sveitar-félögin mikla
peninga. Sum þeirra eru illa
stödd fjárhags-lega. Þetta
gæti þýtt að sums staðar
þurfi að hækka einhver gjöld.
Kennara-deilan leyst í bili
Nemendur mættu í skólann síðasta mánudag.
Morgunblaðið/Sverrir
BANDA-RÍKIN hafa náð
Fallujah á sitt vald. Fallujah
er borg í Írak. Þar hafa verið
miklir bardagar.
Bandaríkja-menn sögðu að
uppreisnar-menn réðu
borginni. Fyrst sögðu þeir að
það væru mest útlendingar.
Núna segja þeir að flestir
þeirra séu Írakar.
Í Fallujah eru lík úti um allt.
Nánast allir íbúarnir hafa
flúið burtu. Örfáir eru eftir. Þá
skortir mat og vatn. Rauði
hálfmáninn hefur ekki komist
inn í Fallujah með mat og
hjálpar-gögn.
Alþjóða-lög brotin?
Amnesty International eru
mannréttinda-samtök. Þau
hafa sagt að alþjóða-lög hafi
verið brotin með innrásinni.
Þau segja að
Bandaríkja-menn hafi ekki
hugsað um örlög saklauss
fólks. Þau segja líka að
uppreisnar-mennirnir hafi
notað saklaust fólk sem
tál-beitur. Í síðustu viku
náðist upp-taka af
bandarískum hermanni
skjóta Íraka. Írakinn var
særður og óvopnaður.
Upp-takan hefur vakið mikla
reiði.
Banda-ríkin hafa náð Fallujah
Banda-rískir hermenn að störfum í Fallujah.
Reuters
Hærri skattar í Reykjavík
Reykvíkingar þurfa að borga
hærri skatta. Borgar-fulltrúar
R-listans sam-þykktu það í
vikunni. Borgar-fulltrúar
Sjálfstæðis-flokksins sögðu
að þetta væri út af
skulda-söfnun R-listans.
Munaði einu höggi
Birgi Leifi Hafþórssyni tókst
ekki að tryggja sér fullan rétt
til að keppa á evrópsku móta-
röðinni í golfi. Það munaði að-
eins einu höggi. Hann getur
samt leikið í sumum mótum
og á áskorenda-mótaröðinni.
Of mikil völd í pólitík
Íslendingum þykja
stjórn-mála-menn hafa of
mikil völd. Þetta kemur fram í
nýrri könnun Gallup. Könn-
unin var gerð í meira en 60
löndum. Flestum sem voru
spurðir finnast stjórnmála-
leiðtogar ekki heiðar-legir.
Við-horf til viðskipta-leiðtoga
eru hins vegar jákvæðari.
Sjálfs-morð í fangelsi
Fangi framdi sjálfs-morð í
Kópavogs-fangelsi á
þriðjudag. Fanginn var kona.
Hún átti að vera í fangelsi í 45
daga fyrir auðgunar-brot.
Sjálfs-víg eru ekki algeng í
fangelsum á Íslandi.
Íslands-póstur sektaður
Íslands-póstur þarf að
borga 900.000 krónur í sekt.
Fyrir-tækið notaði mynd af
hundi á frí-merki. Konan sem
tók myndina kærði af því að
Íslands-póstur samdi ekki um
greiðslur fyrir myndina. Mynd-
in var af íslenskum fjár-hundi.
Dauði Arafats rannsakaður
Það er ekki víst hvers vegna
Arafat dó. Sumir halda að það
hafi verið blóð-sjúkdómur.
Stjórn Palestínu hefur skipað
nefnd til að rannsaka málið.
Sumir hafa áhyggjur af að
honum hafi verið gefið eitur.
Önnur Hval-fjarðar-göng?
Spölur vill stækka Hval-
fjarðar-göngin á næstu 5–6
árum. Spölur sér um að reka
göngin. Ástæðan er mikil um-
ferð um göngin. Hugmyndin er
að leggja önnur göng við hlið-
ina á þeim sem nú eru. Það
kostar í kringum 2 milljarða.
Sjó-menn hvílast ekki nóg
Margir sjó-menn fá ekki
nógan svefn þegar þeir eru á
sjó. Þetta kemur fram í nýrri
rann-sókn. Svefn-klefarnir
þeirra eru litlir og hávaði
mikill. Of lítil hvíld eykur
hættu á slysum. Þrátt fyrir
það eru næstum því 8 af
hverjum 10 sjó-mönnum
ánægðir í vinnunni.
Stutt
THE Fall hélt tvenna tón-leika
á Íslandi í vikunni.
Hljóm-sveitin kemur frá
Bret-landi og spilar
neðan-jarðar-rokk. Hún var
vinsæl á 9. áratugnum.
Fyrri tónleikarnir voru í
Austurbæ. Það voru færri á
þeim tónleikum en búist var
við. Vonbrigði og Dr. Gunni
hituðu upp. Seinni
tónleikarnir voru á Grand-
rokki og þar var þétt-setið.
The Fall
hélt tvenna
tónleika
Morgunblaðið/Sverrir
COLIN POWELL hefur sagt af
sér. Hann er
utanríkis-ráðherra
Banda-ríkjanna. Powell
sagðist vera ánægður með
að hafa verið í liði sem
frelsaði Afganistan og írösku
þjóðina og byrjaði stríð gegn
hryðju-verkum. Powell hefur
alltaf hvatt til varkárni. Hann
vildi ekki fara í stríð nema
það væri nauðsyn-legt. Hann
fékk samt ekki alltaf að ráða.
George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, er búinn að
ákveða hver tekur við af
Powell. Það verður
Condoleezza Rice. Rice er
50 ára. Hún hefur verið
ráðgjafi Bush í
þjóðar-öryggis-málum. Hún er
herská og og ákveðin. Talið
er að Bush vilji auka tök sín í
utanríkis-ráðuneytinu. Þess
vegna hafi hann valið Rice.
Hún er líka góð vinkona hans.
Colin
Powell segir
af sér
ÍSLAND vann Ungverja-land í handbolta á
fimmtudag.
Leikurinn var á heims-bikar-mótinu. Mótið
er haldið í Svíþjóð. Leikurinn fór 33:29.
Þetta er fyrsti sigur liðsins eftir að Viggó
Sigurðsson byrjaði að þjálfa það. Ísland
spilaði góða vörn í leiknum. Hreiðar
Guðmundsson var líka mjög góður í
markinu.
Ísland tapaði fyrstu 2 leikjunum sínum á
mótinu. Frakkar unnu Íslendinga 38:29.
Íslenska liðið stóð sig ekki vel.
Baráttu-andann vantaði. Leikmenn gáfust
upp of snemma. Ísland hefði ekki átt að
tapa svona stórt þótt Frakkar séu góðir.
Þýska-land vann Ísland með einu marki
síðasta miðvikudag.
Viggó hefur gert miklar breytingar á
landsliðs-hópnum. Í 17 manna hópi eru 8
sem ekki voru með á ólympíu-leikunum.
Fyrsti sigur
hand-bolta-liðsins
Ljósmynd/Borlänge tidning
Þórir Ólafsson, hornamaður úr Haukum, sækir
hér að marki Ungverja í leiknum á heimsbik-
armótinu í Svíþjóð, sem Ísland vann, 33:29.
DAVÍÐ Oddsson,
utan-ríkis-ráðherra, fór til
Washington í vikunni. Hann
fundaði með Colin Powell.
Powell er utan-ríkis-ráðherra
Banda-ríkjanna en hann
ætlar að hætta. Þeir töluðu
mest um bandaríska herinn
á Íslandi.
Davíð var ánægður eftir
fundinn. Hann sagði að
Banda-ríkin haldi áfram að
hafa her-þotur hér á Íslandi.
Þær eiga að sjá um
loft-varnir.
Davíð sagði að málið
væri komið í öruggari
farveg.
Davíð hitti
Colin
Powell