Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BREYTT VERÐSTRÍÐ Krónan og Bónus skera sig úr með lágt vöruverð samkvæmt verð- könnun Morgunblaðsins í lágvöru- verðsverslunum í gær. Bónus var með 73 krónum lægra verð en Krón- an þegar miðað er við kassaverð en Krónan með 35 krónum lægra verð en Bónus þegar hilluverð er borið saman. Kaskó og Nettó virðast gefa eftir í verðstríði lágvöruverðsversl- ana. Tafir við Kárahnjúka Mikill vatnsleki tefur borun hjá Impregilo í aðgöngum 1 og 3 við Kárahnjúkavirkjun. Arnarfelli hefur einnig miðað hægt sökum vatnsleka í gangagerð við Ufsarveitu. Þá er þriðji risaborinn, í aðgöngum 2 við Axará, stopp og verður það líklega í um tvær vikur. Kröfu foreldranna hafnað Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur hafnað kröfu foreldra Terri Schiavo í Flórída um að henni verði á ný gefin næring í æð. Schiavo hef- ur ekki fengið vökva eða næringu frá því á föstudag eftir að dómari í Flór- ída úrskurðaði að ósk eiginmanns hennar að tækin yrðu aftengd skyldi tekin til greina. Foreldrar Schiavo fóru með málið fyrir áfrýjunarrétt. Tíu dóu í Minnesota Tíu manns lágu í valnum eftir að ungur námsmaður gekk berserks- gang í skóla á griðasvæði indíána í Minnesota í Bandaríkjunum. Skaut hann fyrst afa sinn og eiginkonu hans og fór síðan í skólann þar sem hann skaut fimm nemendur, kenn- ara og öryggisvörð áður en hann stytti sér aldur. Ódæðismaðurinn er sagður hafa verið ráðvilltur ungling- ur sem dáðist að Adolf Hitler. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                             ! "  # $ %           &            '( )  *+++                            BOBBY Fischer varð Íslendingur í gær. Síðdegis birtust lög um veit- ingu ríkisborgararéttar hans á vef Stjórnartíðinda. Handhafar forseta- valds, þeir Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra, Halldór Blöndal, for- seti Alþingis, og Markús Sigur- björnsson, forseti Hæstaréttar, staðfestu þau með undirskrift sinni auk Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra. Enn bandarískur ríkisborgari Bandaríska utanríkisráðuneytið lýsti í gær vonbrigðum yfir þeirri ákvörðun Íslendinga að veita Bobby Fischer ríkisborgararétt, sem gæti forðað honum frá fangelsisdómi í Bandaríkjunum. Adam Ereli, tals- maður ráðuneytisins, sagði á blaða- mannafundi í Washington að Fisch- er væri á flótta undan réttvísinni. „Það hefur verið gefin út alríkis- tilskipun um handtöku hans. Hann er í haldi í Japan og bíður brott- flutnings og það er skrefið sem við höfum beðið eftir.“ Spurður um hvort hann vildi að Japanar afhendi Fischer til Bandaríkjanna, sagði Ereli að Bandaríkjamenn hafi farið fram á það. Linda Hartley, talskona banda- ríska sendiráðsins á Íslandi, sagði í gær að Fischer væri enn bandarísk- ur ríkisborgari og hefði ekki sótt um að afsala sér þeim rétti. Stuðningsmenn bíða átekta Stuðningsmenn Fischers, þeir Sæmundur Pálsson og Einar S. Ein- arsson, fyrrverandi forseti Skák- sambands Íslands, fengu í gær vott- orð um að Fischer væri skráður ríkisborgari hér á landi. Sæmundur kvaðst í gær ætla að bíða frekari frétta af máli Fischers í Japan í nótt áður en hann ákvæði hvort hann færi að sækja Fischer. „Ég veit ekki fyrr en í fyrramálið [í dag] hvort ég fer, við erum að bíða eftir fréttum sem við munum líklega fá um klukkan þrjú í nótt. Ég vil ekki fara af stað nema þetta sé allt klappað og klárt og ljóst að hann fái að fara,“ sagði Sæmundur. Hann sagði Fischer vera taugaóstyrkan og ótt- ast að hann verði aftur tekinn hönd- um. Innilokunin hefur tekið á „Það er gott,“ sagði Fischer þeg- ar Masako Suzuki, lögmaður hans, sagði honum í gærmorgun að hann væri orðinn Íslendingur. Suzuki bjóst við að Fischer yrði látinn laus í þessari viku nema eitthvað óvænt gerðist. Reuters-fréttastofan hafði það eftir Chieko Nohno, dómsmálaráð- herra Japans, í gær að japönsk stjórnvöld myndu íhuga að senda Fischer til Íslands þegar þau fengju staðfest að hann hefði fengið ís- lenskan ríkisborgararétt. Nohno sagði að lögum samkvæmt gætu Japanar vísað Fischer úr landi til Ís- lands, hafi hann íslenskan ríkis- borgararétt. „Loks fengum við ríkisborgara- rétt fyrir Bobby,“ sagði Miyoko Watai, heitkona Fischers, en hún fór að heimsækja hann í Ushiku- útlendingabúðirnar í gær. Hún sagði að hún áformaði að flytja til Íslands með Fischer þegar hann yrði látinn laus. „Við munum skoða síðar hvort við giftum okkur á Ís- landi en því ferli hefur verið frest- að,“ sagði hún og bætti við að Fisch- er hefði orðið afar glaður við að heyra fréttir af íslenskum ríkis- borgararétti sínum. Stuðningshópur Fischers hélt blaðamannafund í Tókýó í gær til að fagna íslenskum ríkisborgararétti hans. Sett var táknrænt spjald með nafni Fischers á háborðið í þeirri von að Fischer gæti verið viðstadd- ur. Stuðningsmenn Fischers segja að hann hafi grennst og sé úfinn og tættur eftir nærri níu mánaða vist. „Hann hefur horast og elst mjög hratt,“ sagði Watai. „Ég hugsa að ykkur bregði þegar þið sjáið hann.“ Bobby Fischer orðinn Íslendingur Stuðningsmenn Bobbys Fischers, Einar S. Einarsson og Sæmundur Pálsson, kampakátir fyrir utan Alþingishúsið í gær með ríkisfangs- bréfið sem undirritað er af dómsmála- ráðherra. Bréfið verður þýtt af skjala- þýðanda og Sæmund- ur tekur það vænt- anlega með sér til Japans í dag. Þjóðerni: Íslenskt, stendur í nýju vegabréfi Fisch- ers sem tilbúið var í utanríkisráðuneytinu í gær. JAXLINN, 2.000 tonna strandflutningaskip Sæ- skipa ehf., er nú byrjaður áætlunarsiglingar frá Hafnarfirði til Norðurlandshafna með viðkomu á Vestfjörðum. Að sögn Einars Vignis Einarssonar, skipstjóra á Jaxlinum, er nú farið vikulega frá Hafnarfirði og komið við á öllum Vestfjarðahöfnum áður en farið er norður um land með viðkomu á Siglufirði, Dalvík og Húsavík. Ef þörf krefur er höfð viðkoma í öðrum höfnum á leiðinni. Jaxlinn hóf áætlunarsiglingar til Vestfjarða- hafna um páskana í fyrra. Lagt var upp með að fara tvisvar í viku milli Vestfjarða og Hafnarfjarðar. Að sögn Einars reyndist ekki þörf fyrir svo tíðar ferðir og því var ákveðið að sinna fleiri höfnum vikulega. En er samkeppnin ekki hörð við flutningabílana? „Við viljum meina að fullt af vörum eigi betur heima um borð í skipi en um borð í bíl og öfugt,“ sagði Einar. „Þetta á að geta unnið saman. Við höf- um átt ágætis samstarf við landflutningafyrirtækin og höfum annast flutninga fyrir þau, þegar þörf hefur verið á. Við erum með okkar taxta og engin undirboð. Það sitja allir við sama borð.“ Alíslensk áhöfn Jaxlinn er svokallað ekjuskip, þannig að hægt er að aka varningi um borð og frá borði. Gámar eru fluttir á dekki. Að sögn Einars hefur verið mjög góð nýting á gámaplássinu, en stundum vantað meiri brettavöru. Hann sagði skipið lipurt og henta mjög vel til þessara flutninga. Í nótt ætluðu þeir á Jaxlinum að stoppa á Ísafirði til að fara fyrir Horn í björtu í dag. Áhafnarmenn taka mánaðartörn til sjós og fá svo hálfs mánaðar frí. En hvað er áhöfnin stór? „Við erum sjö um borð, allt Íslendingar – og er- um stoltir af því,“ sagði Einar og hló við. Jaxlinn þjónar Vest- fjörðum og Norðurlandi Siglir frá Hafnarfirði til Húsavíkur „ÞESSI vaxtahækkun veldur mér miklum von- brigðum enda hafði ég vonast til að til hennar þyrfti ekki að koma,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um þá ákvörðun bankastjórnar Seðlabankans að hækka stýri- vexti bankans um 0,25 prósent frá og með 29. mars nk. í 9%. „Ég hef miklar áhyggjur af því að þessi vaxtahækkun, líkt og hinar fyrri, verði til þess að styrkja gengi krónunnar enn frekar en orðið er og þar með gera rekstrarstöðu útflutn- ings- og samkeppnisgreinanna þeim mun erfiðari. Það virðast allir sammála um að gengið sé orðið það hátt að það standist ekki til lengdar og menn tala um að jafnvægisgengi sé nálægt 125 stigum eða 15% lægra en það er í dag,“ segir Halldór. Helmingur hækkunar vísitölu síðustu mánuði stafar af hækkun húsnæðisverðs Halldór segir að rök Seðlabankans fyrir vaxta- hækkuninni séu að verðbólgan hafi aukist mikið að undanförnu og farið yfir þolmörk verðbólgu- markmiðsins. „Það er auðvitað rétt ef horft er á neysluverðsvísitöluna í heild sinni,“ segir Hall- dór. „Ég bendi hins vegar á að meira en helm- ingur af hækkun vísitölunnar síðustu tólf mánuði stafar af hækkun á húsnæðisverði. Sé horft framhjá húsnæðisliðnum mælist verðbólgan ein- ungis um 2% sem er svipað og gengur og gerist í löndunum í kringum okkur. Mér finnst ástæða til þess að skoða það nánar hvernig húsnæðislið- urinn hjá okkur er mældur í vísitölunni og heyra skýringar á því af hverju hann er frábrugðinn því sem gengur og gerist í kringum okkur. Mér skilst til dæmis að ef sömu aðferðum væri beitt við verðbólgumælingar í Bandaríkjunum myndi verðbólgan þar mælast 5% í stað þess að vera inn- an við 2%.“ Spurning hvort Seðlabankanum sé sniðinn of þröngt stakkur Halldór segist út af fyrir sig telja eðlilegt að Seðlabankinn horfi til margra þátta efnahagslífs- ins þegar hann tekur sínar vaxtaákvarðanir, þar á meðal til þróunar fasteignaverðs. „Mér finnst hins vegar full ástæða til að velta því fyrir sér hvort Seðlabankanum sé sniðinn of þröngt stakk- ur með því að skilgreina verðbólgumarkmið sem hækkun neysluverðs án nokkurs fyrirvara. Þetta mun ég ræða við stjórnendur bankans,“ segir Halldór. Segir vaxtahækkun valda vonbrigðum Forsætisráðherra finnst ástæða til að skoða nánar hvernig húsnæðisliðurinn er mældur í vísitölunni Halldór Ásgrímsson  Óhjákvæmilegt/14 ÞEGAR leitað var til Birgis Ísleifs Gunnarssonar seðla- bankastjóra með viðbrögð við gagnrýni Halldórs Ásgríms- sonar forsætisráðherra á hækkun stýrivaxta sagði Birgir að bankinn hefði í gær lagt fram ítarleg gögn og rökstuðning fyrir sinni ákvörðun og svaraði því ekki „einstökum gagnrýnis- röddum“. Svarar ekki einstökum gagnrýnisröddum Birgir Ísleifur Gunnarsson Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Fréttaskýring 8 Bréf 34 Úr verinu 14 Minningar 35/40 Viðskipti 15 Kirkjustarf 41/43 Erlent 18/19 Brids 43/44 Minn staður 20 Myndasögur 48 Akureyri 21 Dagbók 48/50 Höfuðborgin 22 Víkverji 48 Landið 22 Staður og stund 50 Suðurnes 23 Leikhús 52 Daglegt líf 24/25 Bíó 54/57 Menning 26, 51/57 Ljósvakamiðlar 58 Umræðan 27/34 Staksteinar 59 Forystugrein 30 Veður 59 * * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.