Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GYLFI Geirsson, forstöðumaður fjarskipta- og upplýsingatæknisviðs Landhelgisgæslunnar, hélt nýlega fyrirlestra um notkun íslenskra stjórn- valda á fjareftirlitskerfi til fiskveiðieftirlits á fundi fiski- málanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sam- einuðu þjóðanna (FAO) í Róm. Gylfi tók þátt í ráðstefnunni á vegum sjávarútvegsráðuneyt- isins. Meðan á fundi FAO stóð var sýnd kynning um íslenska fjar- eftirlitskerfið á tölvuskjám þar sem fundirnir fóru fram. Gylfi fór sérstaklega yfir skjávarpakynningu á kerfinu með mörgum ráðstefnugestum og svaraði spurn- ingum þeirra. „Sá misskilningur hefur víða heyrst að fjareft- irlitskerfi komi í stað hefðbundins eftirlits með varðskipum. Því fer fjarri en fjareftirlitskerfið styður annað eftirlit Landhelgisgæslunnar og gerir það markvissara. Fjareftirlitskerfið kemur ekki í stað hefðbundinna skoðana löggæslumanna á varðskipunum á afla, veiðarfærum, búnaði og atvinnuréttindum skipsáhafna. Fjareftirlitið veit- ir eingöngu upplýsingar um staðsetningu skipa og er lítils virði ef ekkert varðskip er á svæðinu til að færa brotlegt skip til hafnar eða hefja aðrar að- gerðir til að koma í veg fyrir lögbrot. Að auki eru varðskipin björgunarskip og mengunareftirlits- skip og gegna fjölmörgum öðrum hlutverkum sem fjareftirlitskerfi kemur ekki í staðinn fyrir,“ segir í frétt frá Landhelgisgæslunni. Fjareftirlit kynnt hjá FAO Gylfi Geirsson SAMNINGAR milli Sjómannafélags Eyjafjarðar og Félags skipstjórn- armanna annars vegar og Samherja hf. hins vegar, um breytt fyrirkomulag á hafnarfríum, hafa nú verið samþykktir af áhöfnum skipanna þriggja. Ísfisktogararnir þrír eru Björgúlfur EA, Björgvin EA og Akureyrin EA og greiddi meirihluti skipverjanna atkvæði með samningunum, sem undirritaðir voru af forsvarsmönnum félaganna 8. mars sl. með fyrirvara um samþykki skipverja. Samningarnir eru fyrstu sinnar teg- undar hérlendis og gilda í eitt ár. Þeir eru byggðir á hugmyndum sem skipverj- ar skipanna þriggja lögðu fram og eru aðeins mismunandi milli skipanna. Í samningunum er m.a. innivera skipanna lágmörkuð en á móti er skipverjum tryggður ákveðinn fjöldi frídaga á hverju 30 daga úthaldi og um jól og áramót. „Tilefni samninganna var nýtt ákvæði í kjarasamningi sjómanna og útvegs- manna frá því fyrir áramót og snýr að hafnarfríum. Róðrarmynstur togara hef- ur gjörbreyst frá því sem áður var því nú er mun meiri áhersla lögð á ferskleika, sem þýðir að flestar veiðiferðir eru mun styttri en áður. Með þessum samningum eru Samherji og sjómenn félagsins að færa sig nær nútímanum, báðum aðilum til hagsbóta,“ segir í frétt á heimasíðu Samherja. Sjómenn sam- þykkja samninga LAUN stjórnarmanna í SÍF verða á ári ríflega 1,5 milljónir króna eða 20.000 evrur. Laun stjórnarformanns verða þre- falt hærri eða um 4,7 milljónir króna og varaformaður stjórn- ar fær greiddar 40.000 evrur eða ríflega 3 milljónir króna. Þetta var samþykkt á aðal- fundi félagsins í síðustu viku. Tillaga um heimild til stjórnar SÍF til að kaupa hluti í félaginu, allt að 10% að nafn- virði á næstu 18 mánuðum, var ennfremur samþykkt á að- alfundinum. Má kaupverð bréfanna vera allt að 20% yfir meðalsöluverði hlutabréfa í fé- laginu skráðu hjá Kauphöll Ís- lands hf. á síðasta tveggja vikna tímabili áður en kaup eru gerð. Ekki eru sett lág- mörk á heimildina – hvorki hvað varðar kaupverð né stærð hluta sem keyptir er hverju sinni. Þessi heimild kemur í stað heimildar sem samþykkt var á aðalfundi fé- lagsins í mars í fyrra. Einnig var samþykkt tillaga um að reikningsár félagsins yrði frá 1. júlí til 30. júní. Vegna þessara breytinga verður reikningsár félagsins nú frá 1. janúar til 30. júní á þessu ári en síðan frá 1. júlí í sumar til 30. júní á næsta ári. Þá var samþykkt tillaga samþykkt um að fækka í stjórn úr 7 í 5. Jafnframt komu tveir nýir menn inn í stjórnina og því gengu úr stjórn félagsins þeir Gunnar Tómasson, sem verið hefur ritari stjórnar, Jón Eðvald Friðriksson, Jón Kristjánsson og Magnús Gauti Gautason en hann var varamaður í stjórn. SÍF með heimild til kaupa á eigin bréfum Laun stjórnar- manna ríflega 1,5 milljónir króna á ári Ný stjórn SÍF Ólafur Ólafsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Nadine Deswasier, Guðmundur Hjaltason og Hartmut M. Krämer. ÚR VERINU Byggir upp frá grunni  Landvinningar í Lettlandi, Bretlandi og Rússlandi á morgun LANDSVIRKJUN er langt komin með undirbúning nýrrar vatnsafls- virkjunar í Albaníu, sem fyrirtækið hyggst reisa, eiga og reka í félagi með fleiri aðilum. Að sögn Agnars Olsen, framkvæmdastjóra verk- fræði- og framkvæmdasviðs Lands- virkjunar, liggur ekki endanlega fyrir hvort af framkvæmdinni verð- ur þar sem vinna við fjármögnun stendur enn yfir. Ef nægt fjármagn fæst ættu framkvæmdir að geta hafist um mitt næsta ár og virkjunin verið tilbúin árið 2009. Samningaviðræð- ur við albönsk stjórnvöld um virkj- unarrétt til næstu 30 ára eru á lokastigi en í samningsdrögum er ákvæði um framlengdan einkarétt til annarra 30 ára. Hátt í þrjú ár eru liðin síðan norska fyr- irtækið GE Hydro setti sig í samband við Landsvirkjun og bauð þátttöku í virkjunar- verkefni í Albaníu. Síðan þá hefur þetta þróast yfir í það að Landsvirkjun er ráð- andi í verkefninu. Um er að ræða 70 MW virkjun en til saman- burðar þá er stærð Vatnsfellsvirkjunar um 90 MW. Agnar segir raforkuna úr virkjuninni að öllum líkindum fara á almennan markað. Mun Landsvirkjun leggja fram ein- hvern mannskap, enda segir Agnar að með verkefninu í Alb- aníu sé fyrst og fremst verið að nýta þá þekkingu og reynslu sem Íslend- ingar búi yfir í því að beisla vatnsaflið. Spurður hvort Landsvirkjun hugi á svipuð verkefni víðar á erlendum vettvangi segir Agnar að mögu- leikar hafi verið laus- lega skoðaðir í Pól- landi og fleirir ríkjum A-Evrópu. Þau mál séu þó ekki komin eins langt og í Albaníu. Landsvirkjun undirbýr vatnsaflsvirkjun í Albaníu Skoðar möguleika í Póllandi og fleiri ríkjum A-Evrópu Agnar Olsen OLÍUFÉLÖGIN Olís og Skelj- ungur lækkuðu verð á eldsneyti í gær en Olíufélagið Esso lækk- aði sitt eldsneytisverð í fyrra- dag. Er nú algengt verð í sjálfs- afgreiðslu á stöðvum olíufélaganna þriggja 98,60 krónur bensínlítrinn og 46,10 krónur lítrinn af dísilolíu. Atlantsolía hefur ekki breytt eldsneytisverði undanfarna daga. Þar kostar bensín 97,20 lítrinn og dísilolía 44,70. Ein- ungis er um sjálfsafgreiðslu að ræða. Að sögn Huga Hreiðars- sonar hjá Atlantsolíu hefur engin ákvörðun verið tekin um verðbreytingar. Hann telur að þakka megi verðlækkanir hjá keppinautunum nýrri stöð Atl- antsolíu í Reykjavík. Hefði hún ekki komið til hefði mátt búast við því að sagan frá því í fyrra- sumar hefði verið endurtekin, þegar allt að 7 króna verðmun- ur var á bensínverði í Hafnar- firði og Kópavogi annars vegar og í Reykjavík hins vegar. Óbreytt verð hjá Atlantsolíu ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu fulltrúa sjálf- stæðismanna og áheyrnarfulltrúa F-lista að beina þeim tilmælum til stjórnar Skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins að bæta þjónustu skíða- rútunnar með því að hún hafi á ný viðkomu í hinum fjölmennu íbúðar- hverfum vestan Elliðaánna. Fyrirkomulaginu breytt í fyrra Í greinagerð með tillögunni segir að rúta fari daglega úr Reykjavík í Bláfjöll og Skálafell þegar opið er. Áður hófu rúturnar ferð sína við KR- heimilið við Frostaskjól og komu síð- an við á nokkrum stöðum í borginni til að taka upp skíða- og brettafólk áður en ekið var upp í fjöllin. Í fyrra var fyrirkomulaginu breytt þannig að nú er lagt upp úr Mjóddinni og þurfa þeir sem ætla með og búa vest- an Elliðaánna að koma sér sjálfir þangað með strætisvagni eða með öðrum hætti. „Hefur þetta fyrirkomulag mælst illa fyrir meðal margra skíðamanna sem þarna urðu fyrir umtalsverðri þjónustuskerðingu,“ segir í greinar- gerðinni. „Hefur m.a. verið kvartað yfir því að þessi skerta þjónusta dragi verulega úr möguleikum barna og unglinga í vesturhluta borgarinn- ar á að iðka skíðaíþróttina. Getur verið tafsamt fyrir þennan hóp að taka strætisvagn austur í Mjódd á mesta annatíma í umferðinni á virk- um dögum, í veg fyrir skíðarútuna og aftur til baka þegar í bæinn er komið síðla kvölds.“ Í greinagerðinni kemur ennfrem- ur fram að æskilegt sé að skíðarútur fari frá Frostaskjóli eins og tíðkaðist til skamms tíma og taki síðan upp skíðafólk á nokkrum stöðum áður en komið er við í Mjóddinni. Skíðarútan hefji á ný viðkomu vestan Elliðaáa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.