Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Ljósar buxnadragtir                               Yfirhafnir á hálfvirði þessa viku Mörkinni 6, sími 588 5518. Vattúlpur, ullarkápur, dúnúlpur, húfur og hattar Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Dragtir Str. 36-56 VÍÐA verður hægt að nálgast þjónustu og dægradvöl páskafrí- dagana. Listasafn Reykjavíkur er opið yfir bænadaga og páska á hefð- bundnum tíma. Söfnin í Hafnar- húsinu og á Kjarvalsstöðum eru opin daglega kl. 10–17. Ásmund- arsafn er opið daglega kl. 13–16. Listasafn Íslands er lokað annan í páskum, en opið aðra daga frá kl. 11–17. Hafnarborg verður lokuð föstudaginn langa og páskadag, en opið hina dagana frá kl. 11–17. Samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu verður hægt að komast í Bláa lónið alla páskana. Líkt og í fyrra verður Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn opinn um bænadaga og páska milli kl. 10 og 17, sem og Grasagarðurinn. Hvað sundlaugar Reykjavíkurborgar varðar þá má nefna að Vesturbæj- arlaug, Laugardalslaug og Árbæj- arlaug verða opnar alla dagana, en aðrar laugar eru lokaðar föstu- daginn langa og páskadag. Er þjónustutími fyrrgreindra þriggja sundlauga frá kl. 10–18 föstudag- inn langa og á páskadag. Af matvöruverslunum má nefna að 10–11-búðirnar, 11–11-búðirn- ar og Nóatún eru opnar eins og venjulega bæði á skírdag og ann- an í páskum, en lokaðar föstudag- inn langa og á páskadag. Krónan er opin á skírdag, en lokuð hina hátíðisdagana. Opið er í Smára- lind og Kringlunni á skírdag en lokað hina hátíðisdagana, nema hvað í Kringlunni eru kvikmynda- húsin, veitingastaðir og Hagkaup opið á annan í páskum. Að sögn Hafsteins Hannesson- ar, á kjarasviði Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur (VR) eru lyfja- verslanir, bensínstöðvar, blóma- verslanir, myndbandaleigur og söluturnar undanskildar reglum um helgidagafrið og mega hafa opið alla helgidagana. Samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu verða allmarg- ir veitingastaðir opnir alla dag- ana. Nánari upplýsingar um af- greiðslutíma bæði verslana, veitingastaða og safna yfir bæna- daga og páska má nálgast á vef- slóð stofunnar á www.visitreykja- vik.is. Þjónustutími safna og verslana um páskanaHRÓKURINN og SkáksambandNamibíu, í samvinnu við ÞSSÍ,stóðu að öflugu skákmóti í Windhoek, höfuðborg Namibíu, sl. laugardag. Þátttakendur voru 66 talsins sem er góð aðsókn sjálfa þjóðhá- tíðarhelgina þegar flestir lands- menn höfðu hugann við forseta- skiptin og gleðskapinn er þeim fylgdu. Í fréttatilkynningu kemur fram að klukkan átta á laugardags- morguninn var Wernhill Park Rap- id-skákmótið sett af Gísla Pálssyni umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu. Í aldursflokki barna sex til átján ára mætti 21 til leiks og var mikið um áhorfendur á mótsstað allan dag- inn. Tefldar voru sjö umferðir, en heimamenn höfðu mikinn áhuga á að fylgjast með stórmeistaranum Henrik Danielsen og eins var það helsta ósk þátttakenda að fá að tefla við hann, í mótinu sem skip- aði alla sterkustu skákmenn Nam- ibíu. Henrik er staddur í Namibíu ásamt Kristian Guttesen þar sem þeir hafa heimsótt skóla, spítala og fangelsi ásamt því að kenna ólympíuliðinu í skák. Kanjanga Mukwena, 16 ára, sigraði í flokki unglinga og fast á hæla hans voru systurnar Stephné Swartz, 12 ára, og Celeste Swartz, 15 ára. Þau náðu öll fjórum af sjö vinn- ingum sem verður að teljast fram- úrskarandi árangur á svona sterku móti. Hin kornunga og efnilega Stephné Swarts sigraði ennfremur í flokki kvenna. Efsti heimamaðurinn, og þar með Wernhill Park Rapid meist- arinn, var skákkennarinn Helmuth Leicher sem náði sex af sjö vinn- ingum, en hann tapaði einungis fyrir stórmeistaranum. Í öðru sæti varð Otto Zandell Nakapunda og í því þriðja Klaus Roerkohl, en þeir náðu 5½ vinningi. Öll börn fengu happdrættisvinn- inga við verðlaunaafhendinguna, sem voru skáksett, skákbækur og bolir. Benedikt Ásgeirsson sendi- herra Íslands hélt ræðu við tilefnið og veitti öll verðlaun mótsins. ÞSSÍ, Skáksamband Namibíu og Hrókurinn standa einnig að stóru móti dagana 8.–10. apríl nk. þar sem verðlaunin fyrir hæsta heima- manninn verða ferð til Íslands með gistingu, þar sem sigurvegarinn fær einkakennslu hjá Henrik Dan- ielsen, skólastjóra skákskóla Hróksins, og fær hann einnig tæki- færi til að taka þátt í öflugu ís- lensku skákmóti. Henrik og Kristian verða í Namibíu fram að þessu móti og halda áfram að heimsækja skólana. Góð aðsókn að skákmóti í Namibíu Ljósmynd/Kristian Guttesen Zedwich Rugharo og Alphonce Bere við skákborðið á laugardag. AUGLÝST er nú eftir fjósameistara við Landbúnaðarháskólann fyrir nýja kennslu- og rannsóknarfjósið á Hvanneyri. Um er að ræða fullt starf sem fólgið er í verkstjórn í fjósi og umsjón vaktavinnu. Fjósa- meistari tekur einnig þátt í rann- sóknarstarfi og verklegri kennslu. Umsækjendur skulu hafa búfræði- menntun og reynslu af störfum við kúabú, segir í auglýsingunni. Fjósameistara vantar RÍKISSTJÓRN Íslands samþykkti, að tillögu forsætisráðherra, á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun að verja 2,5 milljónum af sameiginlegu ráð- stöfunarfé sínu til alþjóðlegrar ráð- stefnu á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungu- málum. Að sögn Björns Inga Hrafnssonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra, stendur Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 13.–15. apríl í tilefni af 75 ára afmæli Vigdís- ar Finnbogadóttur hinn 15. apríl nk. Á ráðstefnunni, sem ber yfirskrift- ina „Samræða milli menningar- heima“, munu fulltrúar mismunandi menningar- og málasvæða fjalla um tungumál, menningu, tækni, við- skipti, vísindi og þjóðfélagsmál. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við rektor Háskóla Íslands, utanrík- isráðuneytið, menntamálaráðuneyt- ið, Reykjavíkurborg og Norrænu ráðherranefndina. Ríkisstjórn styrkir Samræðu milli menningarheima ÞEIR sjúklingar sem eru með op á milli hjartagátta sjá nú fram á að geta farið í aðgerð á Landspít- alanum í stað þess að þurfa að fara í aðgerð til útlanda. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, hefur ákveðið að tryggja Landspítalanum fé svo gera megi aðgerðirnar hér á landi. Felst í því mikið hagræði fyrir sjúka og umtals- verður sparnaður borið saman við aðgerðirnar sem hingað til hafa ver- ið gerðar ytra. Kemur þetta fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. Land- spítali fær tæplega fimm milljóna króna tímabundið stofnframlag og sérstakt framlag á árinu svo hægt sé að veita þeim sjúklingum þjónustu, sem þurfa að fara í aðgerðina nú. Kostnaðurinn við að senda sjúkling í sambærilega aðgerð til útlanda er talinn vera fjórfaldur m.v. þær áætl- anir sem fyrir liggja á Landspítala. Þróuð hefur verið aðferð á liðnum árum sem gerir læknum kleift að loka opi milli hjartagátt með sér- stöku neti. Aðgerðin hefur takmark- aða hættu í för með sér, sjúkling- arnir þurfa í flestum tilvikum aðeins að dvelja á spítala í einn til tvo daga og geta alla jafna snúið til vinnu án þess að fara í sérstaka endurhæf- ingu. Á vefsíðunni kemur fram að sérfræðingar á Landspítala hafi afl- að sér þekkingar og reynslu til að gera aðgerðir af þessu tagi og að- staða er til staðar á Landspítala til að gera aðgerðirnar. Gert er ráð fyrir að um sex sjúklingar þyrftu að- gerðir af þessu tagi árlega fyrir utan þá sem beðið hafa eftir aðgerð upp á síðkastið. Fleiri aðgerðir á Landspítala ÆÐARKÓNGURINN er mjög skrautlegur og glæsi- legur fugl sem er fremur sjaldgæfur við Ísland. Hann þvælist þó hingað á hverju ári frá Grænlandi og Sval- barða einkum seinni hluta vetrar. Einn slíkur fugl hafði þvælst í netin hjá Ólafi Magnússyni Hu um daginn á slóðum þar sem allmikið er um æðarfugl. Æðarkóng- urinn var alveg óskemmdur og greinilega nýdauður þegar netin voru dregin. Stefán Jósefsson, útgerðarmaður Ólafs Magnússonar Hu, hirti æðar- kónginn og færði Höfðaskóla hann að gjöf til uppstoppunar. Í skól- anum er gott safn uppstoppaðra fugla þó fram að þessu hafi vantað æðarkóng í safnið. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Æðarkóngurinn er óneitanlega skrautlegur og fallegur fugl sem ber nafn með rentu. Æðarkóngur í netin Skagaströnd. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.