Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Föstudagur 25. mars Laugardalshöll kl. 11:50 – ÍSLAND - Holland, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 14:00 – Austurríki - Úkraína, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 16:00 – ÍSLAND - Pólland, A-vináttulandsleikur Laugardagur 26. mars Laugardalshöll kl. 11:50 – Holland - Austurríki, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 14:00 – Úkraína - ÍSLAND, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 16:10 – ÍSLAND - Pólland, A-vináttulandsleikur Sunnudagur 27. mars Laugardalshöll kl. 11:50 – Úkraína - Holland, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 14:00 – Austurríki - ÍSLAND, U-21 landsleikur Laugardalshöll kl. 16:10 – ÍSLAND - Pólland, A-vináttulandsleikur Áfram Ísland - Fyllum Höllina! Handboltaveisla um páskahelgina LANDIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Borgarnes | Tæpum fjórum millj- ónum var úthlutað úr Menning- arsjóði Sparisjóðs Mýrasýslu vegna 17 verkefna. Afhendingin fór fram með viðhöfn á Hótel Borgarnesi eftir aðalfund Spari- sjóðsins. Sigurður Már Einarsson stjórn- arformaður afhenti styrkina og skiptust þeir á eftirfarandi hátt; Sögufélagið Reykjavík vegna út- gáfu á sýslu- og sóknarlýsingum Mýra- og Borgarfjarðarsýslna, Samkór Mýramanna vegna útgáfu á geisladiski, Freyjukórinn vegna stuðnings við almenna starfsemi, Tónlistarskóli Borgarfjarðar vegna kaupa á píanóbekkjum og tússtöflum, Lýsuhólsskóli vegna verkefnis um nýtingu vistvænnar orku og auðlinda, Mímir ung- mennahús vegna unglistahátíðar og húsgagnakaupa, Kammerkór Vesturlands vegna stuðnings við almenna starfsemi, Kirkjukór Borgarness vegna stuðnings við almenna starfsemi, Leikdeild Skallagríms vegna uppsetningar á ,,Týndu teskeiðinni“, Jónína Arn- ardóttir vegna norrænnar tónlist- arhátíðar í Borgarnesi, Hulda Guðmundsóttir vegna endurgerðar á kirkjugripum Fitjakirkju, Tón- listarfélag Borgarfjarðar vegna tónleikahalds, Söngbræður og Sporið vegna kynningar- og menn- ingarferðar til Tékklands, Nem- endafélag Grunnskóla Borgarness vegna tækjakaupa, Undirbúnings- nefnd á vegum Hilmars Más Ara- sonar vegna útgáfu rits um sögu barna- og unglingafræðslu, Safna- hús Borgarfjarðar fékk tvo styrki, annan vegna Pálssafns og hins- vegar styrkur til Náttúrugripa- safns. Höldum ótrauð áfram Gísli Kjartansson sparisjóðs- stjóri úthlutaði sérstökum fram- lögum Sparisjóðsins og fengu UMSB 800.000 kr. og UMFS 800.000 kr. Landnám Íslands fékk 5.000.000 kr. og veitti Sigríður Björk Jónsdóttir honum viðtöku fyrir hönd stjórnar Landnáms Ís- lands. Sigríður Björk þakkaði þennan rausnarlega styrk og sagði að varla þyrfti að taka fram hversu mikilvægur svona styrkur væri fyrir áframhaldandi upp- byggingu Landnámsseturs í Borg- arnesi, en fyrirhugað er að opna það nú síðsumars. „Styrkurinn mun gera okkur kleift að halda ótrauð áfram við framkvæmdir á byggingu þjónusturýmis og hönn- un sýninga,“ sagði Sigríður. Hún þakkaði jafnframt Borgnesingum fyrir jákvæð viðbrögð og mikinn áhuga á stofnun Landnámsseturs, ,,en jákvætt viðhorf heimamanna til verkefna af slíku tagi er grund- vallaratriði til að vel takist til“. Sparisjóður Mýrasýslu veitir menningarstyrki Fimm milljónir til Landnámsseturs Morgunblaðið/Guðrún Vala Styrkir Sigurður Már Einarsson, stjórnarformaður SPM, Sigríður Björk Jónsdóttir, stjórnarformaður Landnámssetursins, og Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Verðlaun Gunnar Sigurðsson á Stóru-Ökrum, Símon Traustason á Ketu og Þorsteinn Axelsson á Skúfsstöðum tóku við viðurkenningum. Vestur-Eyjafjöll | Félagsbúið á Stóru-Mörk III undir Vestur- Eyjafjöllum bauð nýlega öllum sveitungum og öðrum áhugasöm- um bændum að koma til að skoða nýtt stækkað fjós búið innrétt- ingum frá Landstólpa og mjalta- þjóni frá Vélaborg. Um 250 manns komu, margir langt að, til að sam- fagna hjónunum Ásgeiri Árnasyni og Rögnu Aðalbjörnsdóttur og Kristjáni Mikkelsen og Guðbjörgu Árnadóttur með framkvæmdirnar og þáðu léttar veitingar í nýja fjós- inu. Hjónin voru spurð um fram- kvæmdir og sögðu að ráðist hefði verið í að breyta tveimur hlöðum, samtals um 300 fermetrum í þetta stækkaða fjós, sem væri með hlöð- unum alls um 750 fermetrar. Fram- kvæmdir hefðu byrjað 2002 og í heild hefðu framkvæmdirnar að- eins kostað þau um 24 milljónir, þar af hefði mjaltaþjónninn kostað Mjalta- þjónn tekur við í stækk- uðu fjósi Breiðholt | Borist hefur mikill fjöldi umsókna um 30 nýjar einbýlishúsalóðir við Lambasel, nýja götu í Breiðholtinu, en byrjað var að taka við umsóknum á mánudag. Um kl. 15 í gær höfðu um 430 umsóknir borist til skrifstofu framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, en strax á mánudag bárust 140 umsóknir. Starfsfólki framkvæmdasviðs fannst að von- um nóg um, en einn hafði á orði að það væri ef til vill betra að fá holskefluna strax frekar en allir séu á síðustu stundu eins og stundum vilji vera, en átti samt von á miklum fjölda um- sókna áfram næstu daga. Frestur til að sækja um að fá úthlutaðri lóð við Lambasel er til kl. 16.15 fimmtudaginn 7. apríl. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að úthluta lóð- unum í stað þess að bjóða þær upp og gera á ráðstafanir til þess að tryggja að þeir sem hreppi lóðirnar séu einstaklingar sem eru að byggja þak yfir höfuðið, ekki verktakar eða fyrirtæki. Eiga að skila lóðunum ef aðstæður breytast Í skilmálum vegna úthlutunarinnar kemur fram að ef aðstæður hjá lóðarhafa breytist og hann hætti við að nýta lóðina beri honum að skila lóðinni til Reykjavíkurborgar. Ef lóð- arhafinn brjóti gegn þessari reglu megi hann vænta þess að fá ekki aftur úthlutað lóð frá Reykjavíkurborg á næstu árum. Um tvær stærðir af lóðum er að ræða, 184 fermetra og 240 fermetra. Búið er að ákveða fast verð fyrir lóðirnar, 3,5 milljónir króna fyrir minni lóð- irnar og 4,6 milljónir króna fyrir þær stærri. Um 430 umsóknir um 30 lóðir á tveimur dögum Garðabær | Reiknað er með að framkvæmdir við gatnakerfi í nýju íbúðahverfi á Arnarneshálsi í Garðabæ geti hafist á næstunni, en þar er stefnt að því að reisa íbúðabyggð fyrir 1.500 íbúa á næstu árum. Skrifað var undir samninga milli landeigenda og Garðabæjar í gær Svæðið sem um ræðir er sunn- an við Arnarneshæð og austan við Hafnarfjarðarveginn, en auk þess eiga sömu aðilar land norðan Arn- arnesvegar sem enn hefur ekki verið deiliskipulagt. Landeig- endur munu sjá um að bjóða út gatnaframkvæmdir í hverfinu, og verða lóðir seldar einstaklingum eða fyrirtækjum til uppbygg- ingar. Gatnagerð að hefjast Í fyrsta áfanga, á þessu ári og því næsta, er reiknað með að gera lóðir fyrir samtals 221 íbúð til- búna, þar af 45 einbýlishúsalóðir, segir Ágúst Kr. Björnsson, fram- kvæmdastjóri Akralands, sem á þann hluta landsins þar sem ein- býlishús verða. Samtals er um að ræða 139 einbýlishúsalóðir, og 333 íbúðir í fjölbýli, en það er fyr- irtækið Arnarland sem á landið þar sem fjölbýlishúsin munu rísa. Gatnagerð í fyrsta áfanga, á miðju svæðinu, mun hefjast á næstu dögum, og verða lóðir á þeim hluta svæðisins bygging- arhæfar fyrir haustið. Annar áfangi, sem liggur nær Hafn- arfjarðarvegi, fer í gang á næsta ári, og verða lóðir bygging- arhæfar vorið 2007. Þriðji og síð- asti áfanginn fer svo í gang í framhaldi af því, og verða lóðirnar tilbúnar vorið 2007. „Við erum afskaplega stoltir af því að vera í Garðabæ, þetta er sveitarfélag sem hefur verið að sinna sínu þjónustuhlutverki af kostgæfni, og ánægjulegt að sjá hvernig það hefur lyft gildi fjöl- skyldunnar og skólamálum upp og lagt áherslu á þennan mála- flokk, og skapað með því sveitar- félaginu mikla sérstöðu. Hér er valfrelsi um grunnskóla, hér er leikskólum ekki lokað á sumrin og margir einkaskólar hafa hér að- setur. Ég finn sem forsvarsmaður landeigenda að það fólk sem hringir í mig metur þessi gildi mikils og vill þess vegna koma hingað,“ segir Ágúst. Hann segir að landeigendur verði varir við mikla eftirspurn eftir þessu landi, enda sé það gott byggingarland í suðlægri hlíð. „Þetta verður fljótt að gróa upp og fljótt að vaxa, og verða af- skaplega gott svæði.“ Spurður hvort staðsetning og eftirspurn ýti ekki undir hátt lóðaverð segir Ágúst að því muni markaðurinn ráða, eins og með aðra hluti sem þyki eftirsóknarverðir. Samið við landeigendur um uppbyggingu á Arnarneshálsi Lóðir fyrir 1.500 íbúa á næstu árum Akrahverfi Nýtt hverfi með 1.500 íbúum mun rísa á Arnarneshálsi. Morgunblaðið/Eyþór Uppbygging Ásdís Halla Braga- dóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, og Ágúst Kr. Björnsson, fram- kvæmdastjóri Akralands, und- irrituðu samning um uppbygg- ingu í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.