Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 47
FRÉTTIR
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
I.O.O.F.181853238
I.O.O.F. 7 1853237½ MA
I.O.O.F. 9 1853238½ Fimmtud. 24. mars kl. 11.00
Samkirkjuleg útvarpsguðsþjón-
usta. Miriam Óskarsdóttir stjórn-
ar. Friðrik Hilmarsson talar.
Kl. 20.00 Getsemanesamkoma
með brauðsbrotningu.
Allir velkomnir.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Rebirth, mót fyrir ungt fólk
dagana 23. og 26. mars.
Opnunarsamkoma kl. 20:00.
Allir velkomnir. Nánar auglýst á
www.vegurinn.is
Félagslíf
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Fífurimi 8, 010101, Reykjavík, þingl. eig. Ásgrímur Ari Jósefsson
og Braghildur Sif Matthíasdóttir, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fimmtudaginn
31. mars 2005 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
22. mars 2005.
Uppboð
Valsárskóli,
Svalbarðsströnd,
601 Akureyri
Valsárskóli er fámennur skóli með
samkennslu árganga. Í skólanum verða
um 70 nemendur næsta skólaár.
Laus störf
við Valsárskóla skólaárið 2005 – 2006:
Heimilisfræði í 1.—8. bekk, 12 kennslustundir.
Tónmenntakennsla í 1.—8. bekk, 7 kennslu-
stundir.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasam-
bands Íslands og Launanefnd sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk.
Upplýsingar veitir Hólmfríður Sigurðardóttir,
skólastjóri, í síma 462 3105, hs. 462 6822
og 891 7956.
valsar@ismennt.is www.valsarskoli.is
Raðauglýsingar 569 1111
UM PÁSKANA verður haldin
keppni í veiði í gegnum ís í Fells-
endavatni við Hrauneyjar. Fells-
endavatn er rétt innan við Hraun-
eyjar og er vatnið þekkt fyrir væna
fiska. Algengasta stærðin er 4–5
pund en inni á milli eru risaboltar.
Keppni þessi, sem er öllum opin og
tilvalin fjölskylduskemmtun, stend-
ur alla páskana. Verð á hverja
stöng er 2.900 kr. og gildir leyfið
alla helgina, frítt er fyrir 12 ára og
yngri. Tilvalið er að gista í Hálend-
ismiðstöðinni Hrauneyjum sem
verður með sérstakt páskatilboð í
tilefni mótsins.
Verðlaun verða veitt í tveim
flokkum, þeim einstakling (eða
hóp) sem veiðir flestu fiskana og
þeim sem veiðir stærsta fiskinn. 1.
verðlaun eru gisting með morg-
unverði fyrir tvo í hótelsvítu á nýju
hóteli, Hótel Háland, Hrauneyjum,
ásamt veiðileyfi fyrir tvo í Köldu-
kvísl. 2. verðlaun eru veiðileyfi fyr-
ir tvo í Köldukvísl. 3. verðlaun eru
miðar fyrir tvo á Draugasetrið
Stokkseyri. Verðlaun fyrir stærsta
fiskinn eru veiðileyfi fyrir tvo í
Köldukvísl. Ísinn á vatninu er
traustur (um 1 m á þykkt) og hent-
ar vatnið vel til ísveiði. Þátttak-
endur þurfa að hafa með sér allan
veiðibúnað, beitu, ísbor og annað
sem tilheyrir. Veiðst hefur vel á
makríl og síld í Fellsendavatni.
Veiðileyfi eru seld í Hálendis-
miðstöðinni Hrauneyjum sem veitir
allar nánari upplýsingar.
Veitt í gegnum ís í Fellsendavatni
Hiti mestur um 80 fyrir Krist
Í frétt í Morgunblaðinu í gær, þriðjudag, um rannsókn dr.
William Patterson jarðfræðings við háskólann í Saskatchewan
í Kanada, féll niður stuttur kafli sem vísað var til í undirfyr-
irsögn. Í rannsókninni, sem lýtur að tengslum milli atburða
sem greint er frá í Íslendingasögunum og breytinga á veð-
urfari, kemur m.a. fram að hiti á Íslandi reyndist hafa verið
mestur um 80 fyrir Krist, á landnámsöld og síðan á áratugnum
1740–1750. Féll þessi setning niður. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
HIN árlega Dymbilvikusýning hestamannafélagsins
Gusts í Kópavogi fer fram í kvöld, miðvikudaginn 23.
mars, kl. 20.30 í reiðhöll Gusts við Álalind.
Þar koma fram kynbótahross víðsvegar af landinu,
hryssur, stóðhestar og hópar frá ræktunarbúum og
tamningastöðvum. Einnig munu hestamannafélögin á
höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum mæta með
ræktunarhópa og verður glæsilegasti hópurinn valinn
á sýningunni. Miðasalan fer fram í reiðhöll Gusts á
milli kl. 12 og 14 á miðvikudag, húsið verður svo opn-
að kl. 19 og verða miðar einnig seldir við innganginn.
Miðaverð er kr. 1.500 fyrir fullorðna og 700 fyrir
börn. Veitingasala er á efri hæðinni og býðst gestum
að spjalla við ræktendur og sýnendur að sýningu lok-
inni.
Dymbilvikusýning
Gusts í kvöld
FYRIR skömmu var útgáfu-
málum Frjálshyggjufélagsins
breytt á þann veg að fréttabréf
félagsins hóf útgáfu á vefrænu
formi. Opnuð var vefsíða undir
heitinu Ósýnilega höndin og
hefur hún átt miklum vinsæld-
um að fagna. Á hana eru skrif-
aðir pistlar daglega og oft
margir á dag.
Slóðin er http://blogg.frjals-
hyggja.is.
Útgáfa á vef-
rænu formi
UNGIR jafnaðarmenn, ungliða-
hreyfing Samfylkingarinnar, sendu
á dögunum frá sér tilkynningu þar
sem þeir skora annars vegar á ís-
lenska lækna og samtök þeirra að
veita almenningi allar upplýsingar
um þær boðsferðir sem farnar eru á
kostnað lyfjafyrirtækja og hins veg-
ar skora þeir á framsóknarmenn að
nota tækifærið á flokksþinginu núna
um helgina til að spyrja Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra hvað
hann hyggist gera til að auka
gegnsæi gagnvart þessum boðsferð-
um.
Í ályktun Ungra jafnaðarmanna
lýsa þeir furðu yfir þeim viðbrögð-
um Læknafélags íslands, að leita
lögfræðiálits í kjölfar fyrirspurnar
Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur
alþingismanns um fjölda boðsferða
sem farnar eru á kostnað lyfjafyr-
irtækja. Segja þeir viðbrögð félags-
ins hljóta að teljast nokkuð sér-
kennileg. „Það er til þess fallið að
vekja tortryggni að Læknafélagið
skuli ákveða að letja félagsmenn
sína til að veita landlæknisembætt-
inu þær upplýsingar sem það biður
um.“
Segjast Ungir jafnaðarmenn hafa
undir höndum upplýsingar um að al-
vanalegt sé að lyfjainnflytjandi
sendi starfsmann sinn með í hóp-
ferðir íslenskra lækna til útlanda.
„Starfsmaðurinn er þá nokkurs kon-
ar fararstjóri í ferðinni og sér hann
um að greiða „allt“ fyrir læknana
meðan á ferðinni stendur. Gisting á
fimm stjörnu hótelum, kvöldverðir
og vínföng á fínum veitingahúsum
og önnur skemmtan sé þá jafnan
greidd með fyrirtækjakorti lyfja-
heildsalans,“ segir í tilkynningunni
og tekið er fram að samkvæmt
heimildum Ungra jafnaðarmanna
geti kostnaðurinn við hverja slíka
ferð hlaupið á milljónum króna.
Ungir jafnaðarmenn segjast vona
að allir geti verið sammála um nauð-
syn þess að þessar upplýsingar séu
dregnar fram í dagsljósið, enda, að
þeirra mati, nauðsynlegt að taka af
allan vafa um hvort fjármögnun
einkafyrirtækja á þessum ferðum
gangi gegn hagsmunum almennings
um öfluga og hagkvæma heilbrigð-
isþjónustu. Benda þeir á að í ýmsum
nágranalöndum okkar séu stjórnn-
völd byrjuð að taka hart á slíkri
kynningarstarfsemi gagnvart lækn-
um með lagasetningu og jafnvel
ákærum. „Öllum má vera ljóst að
hagsmunir lyfjafyrirtækja og hags-
munir neytenda heilbrigðisþjónustu
fara alls ekki alltaf saman. Það hlýt-
ur því að koma til greina að heil-
brigðisyfirvöld banni hreinlega
þessa óljósu greiðasemi lyfjafyrir-
tækja við íslenska lækna,“ segir í
lok ályktunarinnar.
Skora á lækna að
veita upplýsingar
um boðsferðir
STJÓRN svæðisfélags Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
á Akureyri og nágrenni mótmælir
þeim áformum um framtíðarþróun
Landsvirkjunar sem Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hefur
viðrað í kjölfar undirritunar vilja-
yfirlýsingar um að ríkið leysi til sín
eignarhluta Reykjavíkurborgar og
Akureyrarbæjar í fyrirtækinu.
Þetta kemur fram í ályktun frá fé-
laginu. Segir félagið sameiningar-
áform orkufyrirtækjanna stríða
gegn hagsmunum almennings og
„yrði sérstakt reiðarslag fyrir hinar
dreifðu byggðir, sem nú þegar
standa höllum fæti vegna byggðafj-
andsamlegrar stefnu ríkisstjórnar-
innar. VG er þeirrar skoðunar að
fyrirtæki í framleiðslu, dreifingu og
sölu á raforku til almennings eigi
að vera í félagslegri eigu.
Samkeppnismarkaður við vinnslu
og sölu á raforku til almennings,
sem stefnt er að með breyttu
skipulagi raforkumála frá áramót-
um s.l., verður sýndarveruleiki,
ætlaður til að fela stórfellda eigna-
upptöku og einkagróða á kostnað
almennings bak við leiktjöld hinnar
svokölluðu frjálsu samkeppni, sem
aðeins verður í orði en ekki á borði.
VG mun berjast af alefli gegn því
aðsteðjandi óréttlæti að einkaað-
ilum verði gert kleift að maka
krókinn á þeirri grunnþörf sem
hver maður í nútímaþjóðfélagi hef-
ur fyrir rafmagn og hita,“ segir í
ályktuninni.
Stríðir gegn hags-
munum almennings
STJÓRN Heimdallar styður frum-
varp sem lagt hefur verið fram á
Alþingi um að kynferðisbrot sem
framið er gegn barni yngra en 14
ára fyrnist ekki. Kemur þetta fram
í ályktun frá félaginu.
„Kynferðisbrot gegn börnum
hafa meðal annars þá sérstöðu að
aðstöðumunur geranda og þolanda
er mikill og rannsóknir hafa sýnt
að þolandi áttar sig oft ekki á því
að um brot er að ræða fyrr en
löngu eftir að brotið var gegn hon-
um,“ segir í ályktuninni. „Einnig
má benda á að samkvæmt almenn-
um hegningarlögum eru ýmis önn-
ur alvarleg brot ekki háð fyrn-
ingu.“
Stjórn Heimdallar hvetur því al-
þingismenn til þess að breyta al-
mennum hegningarlögum þannig
að fyrningarfrestur falli niður þeg-
ar um er að ræða kynferðisbrot
gegn barni yngra en 14 ára, segir
ennfremur í ályktuninni.
Heimdallur
styður
frumvarp
♦♦♦