Morgunblaðið - 23.03.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í Morgunblaðinu í gær birtist
fréttafrásögn á forsíðu þar sem
vísað var til umræðna á göng-
um Alþingis manna á milli um
ríkisborgararétt Bobby Fisch-
ers og um meint viðbrögð fjár-
málaráðherra í því sambandi.
Þessi frásögn byggðist á mis-
skilningi og er fjármálaráð-
herra beðinn afsökunar á því.
Þá gætti ónákvæmni í frétt á
baksíðu blaðsins í gær um ræðu
fjármálaráðherra á Alþingi í
fyrradag um leikskóla. Geir H.
Haarde gagnrýndi ekki þau
áform Reykjavíkurborgar að
fella niður leikskólagjöld. Hann
gagnrýndi vinnubrögð borgar-
yfirvalda vegna þessarar
ákvörðunar og er fjármálaráð-
herra beðinn velvirðingar á
þessari ónákvæmni.
Athuga-
semd ritstj.
MEIRIHLUTI eigenda í Keri, móð-
urfélagi Olíufélagsins, lagði fram
lögbannskröfu hjá embætti sýslu-
mannsins í Reykjavík í gær vegna
hlutafjáraukningar í fasteignafélag-
inu Festingu. Eigendur Kers, aðrir
en fjárfestingarfélagið Grettir, vilja
að fulltrúum meints nýs meirihluta í
Festingu verði bannað að neyta at-
kvæðisréttar í félaginu og/eða fram-
selja hann til þriðja aðila þar til
dómstólar hafa kveðið upp úr um
lögmæti hlutafjáraukningarinnar.
Er þessi lögbannskrafa áfram-
hald þeirra átaka sem hafa verið
milli viðskiptablokka S-hópsins og
Björgólfsfeðga síðan eignarhalds-
félagið Sund og Nordic Partners
seldu hluti sína í Keri, lykilfélagi
S-hópsins, til Grettis, sem er í aðal-
eigu Landsbankans og Trygginga-
miðstöðvarinnar. Hafa Björgólfs-
feðgar verið sagðir ætla að reyna ná
ítökum í S-hópnum og viðskipta-
veldi Ólafs Ólafssonar í Samskip og
fengið eigendur Sunds og Nordic
Partners til liðs við sig.
Á allar fasteignir
Olíufélagsins og Samskipa
Festing á meðal annars og rekur
allar fasteignir Olíufélagsins og
Samskipa. Félagið varð til haustið
2003 við skiptingu Kers, þegar fast-
eignir Olíufélagsins voru færðar yfir
til Festingar. Síðar tengdust félag-
inu fasteignir Samskipa og eignir
frá Sundi. Þrír menn sitja í stjórn
Festingar, þeir Guðmundur Hjalta-
son, forstjóri Kers, sem er stjórn-
arformaður, Jón Þór Hjaltason, að-
aleigandi Nordic Partners, og Páll
Þór Magnússon, mágur Jóns Krist-
jánssonar, aðaleiganda Sunds, en
Jón er jafnframt varamaður í stjórn
Festingar. Benda Kersmenn á að
meirihluti stjórnarmanna Festing-
ar, þeir Jón Þór og Páll, sem hafi
staðið að hinni umdeildu ákvörðun
um hlutafjárhækkun, tilheyri hlut-
hafahópi sem hafi haft að baki sér
19,2% hlutafjár félagsins.
Lögbannskrafan beinist gegn
Landsbankanum og Angusi, ný-
stofnuðu einkahlutafélagi í eigu Jó-
hanns Halldórssonar, framkvæmda-
stjóra Festingar. Í tilkynningu frá
meirihluta eigenda Kers segir að
Angus hafi eignast alla hlutafjár-
hækkunina í Festingu og Lands-
bankinn hafi veitt félaginu lán fyrir
hluta kaupanna. Beinist lögbanns-
krafan meðal annars að því að
hindra að Landsbankinn hagnýti
sér réttindi samkvæmt tryggingar-
skjölum sem gefin hafa verið út með
veði í hinum nýju hlutum.
Jón Þór og Páll stóðu sl. föstudag
fyrir hlutafjáraukningunni í Fest-
ingu. Kom Páll þá með tillögu um að
stjórnin nýtti sér heimild sam-
kvæmt samþykktum félagsins um
aukningu hlutafjár, nú um 100 þús-
und krónur að nafnvirði á genginu
10, og seldi það til framkvæmda-
stjóra Festingar. Fól hækkunartil-
lagan í sér rúma tvöföldun á hlutafé
félagsins og ef hún nær fram að
ganga mun Jóhann Halldórsson, eða
Angus, eignast meirihluta í Fest-
ingu, eða tæp 53%.
Í tilkynningu Kersmanna segir að
áður en ákvörðun hafi verið tekin
um hlutafjáraukninguna hafi stjórn
Festingar verið kynnt yfirlýsing
hluthafa sem hafa að baki sér meiri-
hluta hlutafjár í Festingu þar sem
þess var krafist að engar mikilvæg-
ar ákvarðanir yrðu teknar varðandi
Festingu fyrr en á aðalfundi 13. apr-
íl nk. Þeirri beiðni var hafnað.
Guðmundur Hjaltason segir að
hér sé klárlega um ólöglega aðgerð
að ræða þar sem beiðni um hlut-
hafafund hafi verið lögð fram fyrir
ákvörðun um hlutafjáraukningu en
því verið hafnað. Guðmundur gerir
einnig athugasemdir við boðun
stjórnarfundarins sl. föstudag.
Fundarboð í SMS-skeyti
Hann hafi fengið SMS-skeyti
seint á fimmtudagskvöldi um að
fundur skyldi haldinn árla næsta
morguns utan lögheimilis félagsins,
eða í höfuðstöðvum Sunds.
Þá gera meirihlutaeigendur Kers
athugasemdir við gengi hinna seldu
hluta því fyrir liggi minnisblað frá
endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte
um að gengi bréfanna í Festingu
hafi verið miklum mun lægra en til-
efni hafi verið til við hlutafjárhækk-
unina. Þar muni tugum prósenta.
Dómstólar fjalli um lög-
mæti hlutafjáraukningar
Áframhald átaka
S-hópsins og
Björgólfsfeðga
Morgunblaðið/RAX
Fasteignafélagið Festing á m.a. hina nýju byggingu Samskipa í Sundahöfn, auk fasteigna Olíufélagsins Essó.
Meira á mbl.is/itarefni
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
hefur óskað eftir upplýsingum um
samninga sem fyrrverandi stjórn
Sameinaða lífeyrissjóðsins (SL)
gerði við Jóhannes Siggeirsson,
framkvæmdastjóra sjóðsins, í maí
2000 og um starfslok hans í febrúar
sl., að því er segir í tilkynningu frá
stjórn SL. Stjórnin ætlar að verða
við beiðni FME.
„Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðs-
ins ákvað að óska eftir við fyrrver-
andi framkvæmdastjóra að hann
hætti störfum snemma á árinu 2005
vegna óánægju með ávöxtun sjóðs-
ins. Þá fyrst varð henni ljós viðauki
við starfskjarasamning fram-
kvæmdastjórans sem fyrrverandi
formaður og varaformaður sjóðsins
gengu frá við framkvæmdastjórann
á sínum tíma. Núverandi sjóðs-
stjórn komst að þeirri niðurstöðu
að samningur um starfslok fram-
kvæmdastjórans á dögunum yrði að
taka mið af gildandi ráðningar-
samningi hans ásamt viðaukum og
studdist þar við álit lögmanna sem
til var leitað,“ segir í tilkynning-
unni.
Járniðnaðarmenn álykta
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
sendi frá sér ályktun vegna málsins
í gær. Þar er harðlega gagnrýnd
gerð viðauka við ráðningarsamning
fyrrverandi framkvæmdastjóra SL
árið 2000 þannig að greidd eru full
laun í 30 mánuði að meðtöldum
uppsagnarfresti.
Félagsstjórnin telur brýnt að nú-
verandi stjórn SL kanni hvort hægt
sé að hnekkja þessum gjörningi og
geri grein fyrir niðurstöðum. Einn-
ig að settar verði starfsreglur um
meðferð ráðningarsamninga og að
sjóðsfélögum verði árlega gerð
grein fyrir launakjörum fram-
kvæmdastjóra og stjórnarmanna.
Félagsstjórn telur jafnframt eðli-
legt að óskað verði eftir mati FME
á gildi ráðningarsamningsins og
hvort rétt hafi verið að honum stað-
ið.
Fjármála-
eftirlitið
biður um
skýringar
LÖGREGLAN í Kópavogi hefur
þurft að hafa talsverð afskipti af
unglingum sem hafa verið með ólæti.
Í gærkvöldi hafði hún hendur í hári
sex ungmenna á grunnskólaaldri
vegna rúðubrots í Kópavogsskóla.
Teknar voru skýrslur af börnunum
en þar sem þau eru öll undir 18 ára
aldri mun félagsþjónustan hafa af-
skipti af málinu.
Brutu rúðu í
Kópavogsskóla
DAGFORELDRAR í Reykjavík eru
ósáttir við að ekki skuli rætt um að
hækka niðurgreiðslur vegna þjón-
ustunnar sem þeir veita, um leið og
áformað sé að bjóða upp á gjald-
frjálsan leikskóla í Reykjavík. Um-
talsverður munur er á niður-
greiðslu vegna barna yngri en 18
mánaða í umönnun hjá dagfor-
eldrum og einkareknum leik-
skólum, og barna eldri en 18 mán-
aða í dagvist hjá leikskólum
borgarinnar.
Þá benda dagforeldrar á að
áformað sé að draga enn frekar úr
niðurgreiðslum næsta haust til
námsmanna sem nýta sér þjónustu
þeirra, sem komi illa við dagfor-
eldra, þar sem margir treysti sér
ekki til að greiða enn hærri gjöld.
Margir íhuga að hætta
Inga Hanna Dagbjartsdóttir, sem
sæti á í stjórn Barnavistunar – fé-
lagi dagforeldra, segir að með að-
gerðum borgaryfirvalda sé í raun
verið að kippa fótunum undan
rekstri dagforeldra. „Við fáum
hringingar frá dagmömmum sem
eru jafnvel að ræða um að hætta í
haust. Þær treysta sér ekki til að
standa undir auknum kröfum og
eftirliti, þegar við getum ekki einu
sinni verið í samkeppni við leik-
skólana hvað varðar niðurgreiðslu
til foreldra,“ segir hún.
Eðlilegt að skoða samtímis
Að sögn Bergs Felixsonar, fram-
kvæmdastjóra Leikskóla Reykja-
víkur, er það reynsla stofnunar-
innar að foreldrar kjósi fremur að
koma börnum sínum fyrr að á leik-
skólum en hjá dagforeldrum, án
þess að í því felist vantraust á dag-
mæður, enda sinni þær mikilvægu
starfi, að sögn Bergs. Bergur segir
á hinn bóginn að eðlilegt sé að
skoða samtímis áform um niðurfell-
ingu leikskólagjalda og breytingar
á niðurgreiðslu vegna þjónustu
dagforeldra og einkarekinna leik-
skóla, eins og raunar hafi alltaf ver-
ið gert þegar breytingar hafi verið
gerðar á gjaldskrám.
Dagforeldrum hefur fækkað um-
talsvert síðustu ár í Reykjavík. Þeir
voru 193 við áramót 2003–4 og hef-
ur fækkað nokkuð síðan.
Dagforeldrar ósáttir við lægri niðurgreiðslur samhliða
hugmyndum um ókeypis vistun á leikskóla
Segja fótunum kippt
undan rekstrinum
Morgunblaðið/Golli
RÍKISKAUP fyrir hönd Fram-
kvæmdasýslu ríkisins og Háskóla Ís-
lands hafa auglýst eftir alverktaka
til að taka þátt í samkeppni um hönn-
un og byggingu Háskólatorgs. Verk-
ið felur í sér hönnun og byggingu
tveggja nýbygginga á lóð Háskóla
Íslands við Suðurgötu í Reykjavík.
Kemur þetta fram á vef Ríkiskaupa.
Önnur byggingin, Háskólatorg I, er
um 5.000 m² og er milli aðalbygg-
ingar Háskóla Íslands og íþrótta-
húss. Tengingar verða við Lögberg
og íþróttahús. Í byggingunni skulu
vera m.a. kennslustofur, lesrými,
skrifstofur fyrir þjónustustofnanir
HÍ, Happdrætti Háskóla Íslands,
bóksala stúdenta, skrifstofa FS og
stúdentaráðs auk veitingaaðstöðu.
Hin byggingin, Háskólatorg II, er
um 3.000 m² og er milli Odda, Lög-
bergs og Nýja-Garðs. Tengingar
verða við Odda og Lögberg. Í þeirri
byggingu skulu vera skrifstofur fyrir
starfsmenn og nemendur, lesrými
fyrir meistaraprófsnema, doktors-
nema og grunnnema auk rannsókn-
arstofa. Áætluð stærð tengibygg-
inga er um 500 m².
Til alútboðs verða valdir allt að
fimm alverktakar sem keppa um
hönnun Háskólatorgs og fá afhent
útboðsgögn að forvali loknu. Sá al-
verktaki sem verður hlutskarpastur
í keppninni um hönnun mun, auk
þess að fullhanna húsið, byggja það.
Frestur til að skila inn þátttöku-
tilkynningum rennur út 14. apríl nk.
Samkeppni
um hönnun
Háskólatorgs
♦♦♦