Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 20
Siglufjörður | Feðgarnir Björn Jónsson og Jón Ingi sonur hans voru að vinna við trilluna Ingeborg SI þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð á Siglufirði um helgina. Ingeborg SI er fimm tonna trilla og síðasti bát- urinn sem smíðaður var á Siglufirði. Það var Jón Björnsson, faðir Björns sem smíðaði trilluna árið 1985 og naut hann aðstoðar sonar síns. Jón skírði trilluna í höf- uð konu sinnar, sem er þýsk. Þeir Björn og Jón Ingi voru að gera klárt fyrir að setja bátinn á flot fyrir grásleppu- vertíðina sem hefst um næstu mánaðamót. Björn sagðist vongóður um að ísinn yrði grásleppukörlum ekki til neinna vandræða eftir að ver- tíðin hæfist. Morgunblaðið/Kristján Styttist í grásleppuvertíð Gert klárt Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Langt að heiman | Fálki sem hafði sveimað annað slagið yfir Heimaey frá áramótum fannst dauður við Blátind á dögunum. Hann hafði verið merktur á Melrakkasléttu á síðasta ári. Fram kemur á vef vikublaðsins Frétta í Vestmannaeyjum að Ingvar A. Sigurðsson hjá Náttúrustofu Suðurlands fylgdist með ferðum fálkans. Þegar fuglinn fannst dauður í skriðu við Blátind kom í ljós að hann var merktur. Hann hafði verið merktur sem ungi í hreiðri á Melrakka- sléttu 21. júní á síðasta ári. Haft er eftir Ólafi Nielsen, fuglafræðingi hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands, að þetta væri með lengri ferðalögum fálka hér á landi en um 370 kílómetrar eru á milli merking- ar- og endurheimtustaðar. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Sigruðu í spurningakeppni | Kenn- arar við Grunnskólann á Hólmavík sigr- uðu í Spurningakeppni Sauðfjársetursins þetta árið. Slógu þeir Hólmadrang út í undanúrslitum og sigruðu síðan fréttaritara á strandir.is í úrslita- viðureign, en fréttamenn höfðu áður sigrað skrif- stofu Hólmavík- urhrepps. Keppnin var býsna spennandi en sigur kenn- aranna var verð- skuldaður að því er fram kemur á frétta- vefnum standir.is. Í sigurliði kennara voru Hildur Guðjónsdóttir, Kristján Sig- urðsson og Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir. Fengu þeir Viskubikarinn til varðveislu í eitt ár að launum, auk bókagjafar frá Eddu útgáfu. Bændafundur á Netinu | Kúabændur um land allt og aðrir áhugamenn um naut- griparæktina geta fylgst með störfum á að- alfundi Landssambands kúabænda þótt þeir séu ekki fulltrúar á fundinum. Verður sjónvarpað frá fundinum á Netinu. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn 8. og 9. apríl á Hótel Selfossi. Ráðgert er að senda út allan fyrri dag fundarins. Þá verð- ur mögulegt að spila á hvaða tíma sem er áðurnefndar umræður og ávörp, með því að smella á sérstaka hlekki á vef LK, naut.is. Jafnframt er ráðgert að sjónvarpa um- ræðum frá seinni degi fundarins. Selasetur Íslandsverður stofnað áHvammstanga í dag. Unnið hefur verið að undirbúningi seturs- ins í um það bil ár. Það verður hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Stofnun Selaseturs Ís- lands tengist uppbygg- ingu á ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, ekki síst á Vatnsnesi, en óvíða eru selalátur eins aðgengileg og við strendur þess. Ætlunin er að hlut- verk Selaseturs verði að koma upp og reka sýningu og upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðafólk á Hvamms- tanga og stuðla að al- mennri þekkingu um sjávarspendýr, nátt- úrufar og búskapar- hætti við strendur Vatnsness. Selasetur Tvær fjölskyldur, sem voru í ferð á Langanesi ígóða veðrinu síðastliðinn sunnudag til að skoðahafís, rákust á tundurdufl í flæðarmálinu við Lambanes. Fólkið lét sprengideild Landhelgisgæsl- unnar og lögregluna á Þórshöfn vita. Um var að ræða gamalt dufl, breskt. Sprengi- sérfræðingur frá Landhelgisgæslunni fór norður í gær í þeim tilgangi að skoða duflið og eyða því. Ferðafólkinu fannst spennandi að rekast á duflið, ekki síst drengjunum þegar fullorðna fólkið skipaði þeim að halda sig fjarri. Sigurður Jóhannes Jónsson segir að fundurinn hafi aldeilis ekki skemmt stemn- inguna í ferðinni. Fundu breskt tundur- dufl í fjörunni ÍDV var frétt um aðsköllóttir karlmennhefðu meiri kynorku en hárprúðir bræður þeirra. Sigrún Haralds- dóttir yrkir: Þeir sem glæstum skalla skarta, skulu heiður spanna; Sjaldnast undan konur kvarta kynngi slíkra manna. Björn Ingólfsson yrkir: Einni er virðist vakin, sofin við að senda út gagnleg boð þykir karlinn Davíð dofinn en dáir meira Steingrím J. Sigrún svarar: Ég er fyrir kímni og kraft. Kappinn skemmtir frái. Steingrím Joð, þann stólpa kjaft staðfastlega dái. Davíð Hjálmar Haralds- son sendir henni kveðju: Þyki einni þörf á leit að þoli gæddum köllum, hérna gætum heila sveit henni fært af sköllum. Hreiðar Karlsson yrkir: Aftur lifnar lífsins þrá laus við sút og trega. Fagna skalla mínum má meira en venjulega. Af sköllum pebl@mbl.is Dalabyggð | Byggðaráð Dalabyggðar tel- ur koma til álita að sveitarstjórn víki Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur, fyrrver- andi oddvita, úr sveitarstjórn, þar til hún tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir var einn af fulltrúum L-lista sem náði meirihluta í sveitarstjórn Dalabyggðar við síðustu kosningar. Var hún kosin oddviti sveit- arstjórnar og varaformaður byggðaráðs. Síðar slitnaði upp úr samstarfi innan L-listans og hluti fulltrúa þess lista hefur starfað með fulltrúum S-listans að stjórn sveitarfélagsins, án þess að formlegur meirihluti hafi verið myndaður, og var Þorsteinn Jónsson, félagi Guðrúnar Jónu af L-listanum, kosinn oddviti. Fram kemur í fundargerð byggðaráðs að Guðrún Jóna stundar fasta vinnu utan sveitarfélagsins og er með skráð aðsetur í Reykjavík en lögheimili á sveitabæ í Döl- um. Í samþykkt byggðaráðs er vísað til ákvæða sveitarstjórnarlaga um að þegar aðalmaður flytji úr sveitarfélaginu um stundarsakir megi ákveða að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur þar aftur búsetu. Það telur byggðaráðið koma til álita og fól sveitarstjóra að kynna Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur það og leita eftir afstöðu hennar. Guðrún Jóna sat fund byggðaráðs þar sem þetta var ákveðið og fund sveitarstjórnar sama dag þar sem fundargerðin var kynnt. Hyggst byggðaráð taka afstöðu til þess á fundi sínum um miðjan næsta mánuð hvort málinu verður vísað til frekari meðferðar sveitarstjórnar. Rætt um að víkja fyrrver- andi oddvita úr sveitarstjórn Ísafjörður | Fjórar konur hófu í vikunni störf við símavörslu og upplýsingagjöf á skiptiborði Íslandsbanka á Ísafirði. Eins og fram hefur komið verður í framtíðinni svarað í síma Íslandsbanka á Ísafirði en fyrst um sinn er einnig svarað á núver- andi skiptiborði í höfuðstöðvunum í Reykjavík. Fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði að konurnar fjórar voru í starfs- þjálfun í Reykjavík áður en þær komu til starfa. Starfsemin hefur gengið vel, eftir að þær komust í samband. Haft er eftir Karítas Kristjánsdóttur að konunum lítist vel á nýja starfið. Fjórar konur hafa verið ráðnar til við- bótar að skiptiborðinu á Ísafirði og stefnt er að því að þær verði orðnar tíu á fyrri hluta næsta árs. Svarað á Ísafirði ♦♦♦      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.