Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 23
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Keflavík | „Þetta er mjög þarft og
glæsilegt framtak,“ sagði Hersir
Oddsson, þátttakandi í fyrsta nám-
skeiði sem Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja hélt fyrir sykursjúka. „Á
svona námskeiði kemst maður að
því að himinn og jörð eru ekki að
farast þótt maður greinist með
sykursýki,“ sagði Hersir ennfrem-
ur í samtali við blaðamann en hann
greindist með sykursýki 2 fyrir
einu og hálfu ári.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
hefur starfrækt móttöku fyrir syk-
ursjúka í rúmlega 4 ár og þörfin
hefur sýnt sig í því að alltaf eru
allir tímar bókaðir. Áður fyrr
þurftu íbúar á Suðurnesjum að
fara á göngudeildina á Landspít-
alanum í reglulega skoðun.
Fyrir rétt um ári fór stofnunin
að bjóða upp á námskeið fyrir syk-
ursjúka, en Borghildur Sigur-
bergsdóttir, næringarráðgjafi og
einn af skipuleggjendum nám-
skeiðsins, segir að víða erlendis
séu reglur sem kveði á um rétt
sykursjúkra til námskeiðs af þessu
tagi. Hún tilgreinir sérstaklega
Noreg í þessu sambandi.
Á námskeiðinu, sem haldin hafa
verið í Eldborg við Bláa lónið, er
komið víða við og ýmsir sérfræð-
ingar eru með erindi. „Öðru nám-
skeiði okkar er nýlokið og nú erum
við að bjóða fyrsta hópnum frá því
í fyrra í móttöku hér á stofnuninni,
þar sem við förum yfir ýmsa þætti
sem komið var inn á á námskeið-
inu, mælum blóðsykur og tölum
saman um reynsluna, en bestu
upplýsingarnar koma oft fram í
umræðum. Við fengum til liðs við
okkur lækni, íþróttafræðing og
sálfræðing, en raunin er sú að and-
legi þátturinn er oft vanmetinn.
Það er mjög erfitt að fá tíðindi af
því að maður sé með sykursýki,“
sagði Borghildur, en auk hennar
sjá hjúkrunarfræðingarnir Sigrún
Ólafsdóttir og Anna Skarphéðins-
dóttir um námskeiðin og leggja inn
fræðsluerindi.
Líf eftir sykursýki
Hersir Oddsson tekur undir orð
Borghildar og segir að það hafi
verið áfall að greinast með syk-
ursýki, ekki bara fyrir hann heldur
ekki síður fyrir eiginkonuna. Hann
segist hafa verið afar lánsamur að
hafa komist á þetta námskeið
stuttu eftir að hann greindist.
„Það var aldeilis flott að komast á
þetta námskeið og þetta er mjög
þarft og glæsilegt framtak hjá
stofnuninni,“ sagði Hersir sem
bætti því við að hann hafi verið
hálfgerð boðflenna á námskeiðinu
þar sem hann er úr Reykjavík.
„Á svona námskeiði nær maður
að einbeita sér að þessum málum
og fræðast enda var þarna hell-
ingur af fróðleik. Það var ekki síð-
ur mikilvægt að maður komst að
því að himinn og jörð eru ekki að
farast þó að maður greinist með
sykursýki. Ef maður sinnir þessu
vel og fer varlega eru lífslíkur syk-
ursjúkra jafngóðar og þeirra sem
ekki eru með sykursýki.“
Borghildur sagði að aðaláhersla
á lífshætti sykursjúkra væri hreyf-
ing og mataræði, sem þó væri í
engu frábrugðið þeim ráðlegging-
um sem heilbrigður maður fengi.
„Það er ekki síður mikilvægt fyrir
sykursjúka að koma í reglulegt
eftirlit og við leggjum sérstaka
áherslu á að vanrækja þann þátt
ekki, þar sem lyfjagjöf getur
breyst mikið í kjölfar breytts lífs-
stíls,“ sagði Borghildur.
Stendur fyrir námskeiðum fyrir sykursjúka
„Allir ættu að hafa
aðgang að námskeiði“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Góð útkoma Hluti af reglulegu eftirliti sykursjúkra er blóðsykursmæling.
Hér mælir Anna Skarphéðinsdóttir hjúkrunarfræðingur sykurinn í blóði
Hersis Oddssonar og Borghildur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafi fylg-
ist með. Þær eru nokkuð ánægðar með niðurstöðuna enda hefur Hersir
hugsað vel um næringu og hreyfingu.
Skagafjörður | Kýr kúabænda í
Skagafirði skiluðu meiri mjólk á
síðasta ári en áður hefur þekkst.
Meðalnyt eftir hverja kú var 5.357
kíló sem er um 236 kílóum meira
en á árinu á undan. Skagfirsku
kýrnar eru 126 lítrum yfir lands-
meðaltali.
Kýrin Síða frá Skúfsstöðum
með 8.084 lítra
Á aðalfundi Félags kúabænda í
Skagafirði voru afhentar viður-
kenningar fyrir góðan árangur í
mjólkurframleiðslu. Afurðahæsta
kýrin mælt í verðefnum reyndist
vera Síða á bænum Skúfsstöðum.
Hún skilaði samanlagt 708 kílóum
af mjólkurpróteini og mjólkurfitu
og skilaði samtals 8.084 lítrum. Af-
urðahæsta kýrin í lítrum talið var
hinsvegar Frekja á Varmalandi
með 10.631 lítra af mjólk. Þá voru
veitt verðlaun fyrir þyngsta grip
sem lagður var inn í afurðastöð á
síðasta ári. Það var tarfur sem vó
432 kíló frá bænum Ketu í Hegra-
nesi.
Mestar afurðir eftir hverja kú í
héraðinu reyndust vera á Stóru-
Ökrum I, 6.842 lítrar. Það eru
mestu meðalafurðir á kúabúi í
Skagafirði sem náðst hafa til
þessa.
Skagfirskir
kúabændur
verðlaunaðir
uppkominn tæpar 12 milljónir.
Ótalin væri mikil eigin vinna þeirra
við þessa uppbyggingu. Þau væru í
dag með um 250 þúsund lítra fram-
leiðslu en þyrftu að auka fram-
leiðsluna um 50 þúsund lítra til að
standa vel undir framkvæmdunum.
Að þeirra áliti væru nú sterk
mjólkurframleiðslubú undirstaða
sveitanna sem yrðu í framtíðinni að
standast samkeppni um framleiðslu
góðrar vöru, bæði í gæðum og
verði, eins og hefði verið und-
anfarin mörg ár.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Mjaltaþjónn Hjónin við nýja mjaltaþjóninn, frá vinstri: Ásgeir og Ragna
með yngsta barnið sitt Lilju Rut, Guðbjörg og Kristján.
Grindavík | Bæjarstjórn
Grindavíkur hefur ákveðið að
reisa nýjan leikskóla í Laut, í
stað gamals skóla sem þar er.
Bygging nýja leikskólans hefur
verið boðin út.
Leikskólinn verður 675 fer-
metrar að stærð og á verktaki
að skila honum fullfrágengnum
fyrir 15. mars á næsta ári.
Tilboð verða opnuð föstudag-
inn 8. apríl næstkomandi.
Nýr leikskóli byggður í Laut
Vesturbær | Verslun Nóatúns í
JL-húsinu var opnuð í gær eftir
miklar endurbætur vegna bruna
sem varð í versluninni í desember
sl. Við það tækifæri þökkuðu
stjórnendur verslunarinnar
slökkviliðsmönnum Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins (SHS) fyrir
vel unnið slökkvistarf og færðu
Líknarsjóði Brunavarðafélags
Reykjavíkur 500.000 kr. pen-
ingagjöf.
Verslunin var endurhönnuð í
hólf og gólf, lýsing og aðgengi
bætt, úrval af grænmeti aukið og
sett upp nýtt bakarí.
Þau Sigurður Arnar Sigurðsson,
forstjóri Kaupáss, sem rekur m.a.
Nóatúnsverslanirnar, og Fanney
Kim Du, verslunarstjóri í versl-
uninni, skáru saman á borða þegar
verslunin var opnuð með kjöt-
hnífum, eflaust til að minna við-
stadda á kjötborð verslunarinnar,
sem eins og annað er nýtt og end-
urbætt.
Þökkuðu SHS vel unnið starf
Morgunblaðið/Júlíus