Morgunblaðið - 23.03.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 29
UMRÆÐAN
BÆJARFULLTRÚI Samfylk-
ingarinnar í Kópavogi, Hafsteinn
Karlsson, skrifar grein í Morgun-
blaðið fyrir nokkru og gagnrýnir
hækkanir á gjöldum og þjónustu í
bænum. Hann fullyrðir að það sé
dýrast að búa í Kópavogi. Svo er
auðvitað ekki. Kópavogur er með
næstlægstu fasteignagjöldin, þegar
þau eru borin saman við fjögur ná-
grannasveitarfélög og Akureyri.
Það er gott að búa í Kópavogi, og
alls ekki eins dýrt og Hafsteinn vill
meina. Núverandi meirihluti vinnur
að því að stilla í hóf álögum á bæj-
arbúa eins og mögulegt er. Ég undr-
ast það og þykir það leitt að félagi úr
bæjarstjórninni skuli dreifa upplýs-
ingum sem virðist ætlað að skaða
bæjarfélagið.
Tónlistarskólinn
og Kópavogsbær
Hafsteinn veit mæta vel af hverju
ýmsar hækkanir stafa. Samt er
hann að rugla með óskylda hluti. Til
dæmis hækkanir á skólagjöldum í
Tónlistarskóla Kópavogs, sem er í
eigu Tónlistarfélags Kópavogs og
rekinn í góðri samvinnu við Kópa-
vogsbæ. Skólagjöld Tónlistarskól-
ans eru ákveðin af stjórn Tónlistar-
félagsins en alls ekki af bæjarstjórn.
Ég er undrandi á að Hafsteinn skuli
finna þörf fyrir að láta birta eftir sig
þessa lágkúru. Við höfum staðið
rækilega við bakið á listaskólum
okkar um árabil, bæði Tónlistar-
skóla Kópavogs og Myndlistarskóla
Kópavogs, einum fárra slíkra skóla
sem eftir eru í landinu. Því miður
brenglaðist grein eftir mig í bæj-
armálablaðinu Vogum sem kom ný-
lega út. Þar var talað um að Tónlist-
arskólinn væri rekinn á vegum
ríkisins. Auðvitað veit ég allt um
Tónlistarskólann og rekstur hans.
Það leiðrétti ég hér með og harma
þau mistök sem urðu í vinnslu grein-
arinnar. Að öðru leyti stendur sú
grein sem mín.
Hafsteinn veit að gjaldahækkanir
eru óumflýjanlegar. Fasteignamat
hefur hækkað, því miður, af ýmsum
orsökum. Til dæmis vegna gíf-
urlegrar aukningar lánsfjármagns
til kaupa á íbúðum ásamt víðfrægum
lóðarskorti í Reykjavík. Þetta
tvennt eru helstu orsakir þess að
fasteignamat hækkar nú. Sú hækk-
un er utan seilingar fyrir yfirvöld
bæjarins, það sér hvert mannsbarn.
Fasteignagjöldin eru ákveðið hlut-
fall af fasteignamatinu og eru einn
af tekjustofnum sveitarfélaga. Þess-
ar tekjur geta sveiflast milli ára. Í
efnahagslægð lækkar fasteigna-
matið og þar með tekjur sveitarfé-
laga. Í uppsveiflu og sérstökum að-
stæðum eins og nú hækkar matið.
Viljum ekki sjá hækkanir
Það skiptir miklu máli að Kópa-
vogsbær íþyngi ekki íbúum sínum
með álögum. Við sjálfstæðismenn
erum þeirrar gerðar að við erum sí-
fellt á bremsunni gagnvart óþarfa
hækkunum. Við viljum sjá stöð-
ugleika, ekki sífelldar hækkanir. En
það verða hækkanir á þjónustu-
gjöldum, bæði vegna hækkunar á
verðlagi og eins vegna launahækk-
ana. Til dæmis hafa laun grunn-
skólakennara og leikskólakennara
hækkað verulega sem er gott mál.
Einnig hefur starfsmatsverkefnið
milli launanefndar og samflots
starfsmannafélaga leitt til aukinna
launaútgjalda fyrir bæjarsjóð um á
annað hundrað milljónir króna. Ein-
hvers staðar frá verða peningarnir
að koma til að greiða fyrir launa-
hækkanir og hækkun á aðföngum.
Kópavogsbær er með næstlægstu
fasteignagjöldin sem skýrt er ít-
arlega í grein minni í Vogum. Þar er
samanburður milli sveitarfélaganna
birtur. Fasteignagjöld á Kópavogs-
búa munu lækka þegar
Reykjavíkurborg hættir
þeim ótrúlega hernaði
sem hún beitir gegn
íbúum Kópavogs í
vatnsmálinu, þ.e.a.s.
neitar okkur að fara
með vatnsleiðsluna
gegnum þeirra land.
Miðað við áætlanir sem
liggja fyrir mun vatns-
gjaldið lækka að
minnsta kosti um þriðj-
ung eftir að við losnum
úr okursamningnum við
Orkuveitu Reykjavíkur.
Eitt var þó rétt í grein Hafsteins:
„Það er gott að búa í Kópavogi.“ Um
það deilir enginn lengur, enda fast-
eignaverð í Kópavogi hið hæsta á
landinu. Þar vilja allir búa. Þar er
þjónustan best. Um það deilir eng-
inn lengur. Sú var þó
tíð að ekki voru menn
ánægðir með stjórn
mála í þessum bæ.
Það var þegar skoð-
anabræður Hafsteins
réðu lögum og lofum
fyrir 1990. Ég efa að
Hafsteinn og félagar
vilji yfirgefa Kópavog
og flytja til samherja
sinna í Reykjavík, eða
heldur að hann vilji fá
aftur ástandið sem
hér var á níunda ára-
tugnum.
Ég sendi Kópavogsbúum óskir
um gleðilega páska og gleðilegt
sumar.
Næstlægstu
fasteignagjöldin
eru í Kópavogi
Gunnar I. Birgisson svarar
Hafsteini Karlssyni
Gunnar I. Birgisson
’„Það er gott að búa íKópavogi.“ Um það deil-
ir enginn lengur, enda
fasteignaverð í Kópa-
vogi hið hæsta á land-
inu. Þar vilja allir búa.
Þar er þjónustan best.‘
Höfundur er alþingismaður og for-
maður bæjarráðs Kópavogs.
Okkar bestu bo›!
Vaskar og handlaugar
Ver› 29.900
19.900
Ver› 29.900
19.900
Handklæ›aofnar
60 x 60 sm 60 x 120 sm
Ver› 39.900
29.900
Ver› 29.900
19.900
Salerni
Ver› 58.000
39.900
Ver› 24.900
19.900
Hur›irMjög gott úrval af innihur›um
Spónlagt Mahony: ver› 25.900
Eik, Hlynur, Mahony, Hnota. 70, 80 og 90 sm.
19.900
Sturtuhausar
Ver› frá 7.990
2.990
Margar stær›ir og ger›ir
Victory sturtuklefar
Ver› 92.900
49.900
Ver› 92.900
49.900
Gólfflísar Frábært úrval
Ver› frá
1.790
30 x 60 sm 30 x 30 sm 45 x 45 sm
Ver› 29.000
14.900
Ver› 28.900
14.900
Ver› 12.900
9.999
Ver› 15.900
9.999
Ver› 7.990
4.900
-flegar flú kaupir gólfefni
Parketúrvali› er í Har›vi›arvali
BEYKI 60cm
1.990
BEYKI Country 60cm BEYKI 60cm
1.990
BEYKI Natur 60cm BEYKI 60cm
1.990
ik 60cm
BEYKI 60cm
3.990
Eik Tundra s ellt BEYKI 60cm
2.490
ik Natur BEYKI 60cm
2.690
Eik Rusti al
Me› hljó›einangrandi
undirlagi og gólflistum
Vi›arfliljur
Ver› 1.690
1.290
Ver› 1.600
1.290
Ver› 11.900
7.900
Ver› 19.990
9.900
Blöndunartæki
Ver› frá
1.790
Veggflísar
á ba›herbergi og eldhús
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
8
7
.0
4
1
13 x 260 sm
20 x 25 sm
Ver› 29.000
14.900