Morgunblaðið - 23.03.2005, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Tillaga að breytingu á
svæðisskipulagi sunnan
Skarðsheiðar 1992-2012
Samvinnunefnd um svæðisskipulag sunnan
Skarðsheiðar auglýsir skv. 1. mgr. 14. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m/síðari
breytingum tillögu að niðurfellingu svæðis-
skipulags sunnan Skarðsheiðar 1992—2012.
Til að flýta fyrir og auðvelda auglýsingu og
gildistöku tillagna að aðalskipulagi í sveitar-
félögunum Innri-Akraneshreppi, Hvalfjarðar-
strandarhreppi, Leirár- og Melahreppi og Skil-
mannahreppi er gerð tillaga um að svæðisskipu-
lagið í heild sinni verði fellt úr gildi, ásamt síðari
breytingum sem gerðar hafa verið á því. Sveitar-
félögin lýsa því jafnframt yfir að strax verði hafist
handa um gerð nýs svæðisskipulags.
Breytingartillagan verður til sýnis í Heiðarskóla,
skrifstofum sveitarfélaganna Skilmannahrepps
á Innri Mel 2 í Melahverfi, Innri Akraneshrepps
í félagsheimilinu Miðgarði, Hvalfjarðarstrand-
arhrepps í félagsheimilinu Hlöðum, bæjarskrif-
stofu Akraneskaupstaðar og á Skipulagsstofn-
un frá og með fimmtudeginum 31. mars n.k.
og til og með fimmtudeginum 28. apríl 2005.
Einnig verður breytingartillagan birt á heima-
síðunum www.hvalfjordur.is ,
www.skilmannahreppur.is og www.akranes.is.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við breytingartillöguna. Frestur til þess
að skila inn athugasemdum rennur út miðviku-
daginn 18. maí 2005. Senda skal athugasemdir
til formanns samvinnunefndar, Hallfreðs Vil-
hjálmssonar, skrifstofu Hvalfjarðarstrandar-
hrepps, Hlöðum, 301 Akranesi. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir
tilskilinn frest, teljast samþykkir henni.
16. mars 2005.
HallfreðHallfreður Vilhjálmsson,
formaður samvinnunefndar um
svæðisskipulag sunnan Skarðsheiðar.
Ríkislögreglustjórinn
Sumarafleysingar
í lögreglu árið 2005
Auglýst er eftir nokkrum lögreglumönnum
vegna sumarafleysinga. Þeir verða ráðnir hjá
flestum embættum á landinu, en þessi auglýs-
ing gildir þó ekki fyrir Reykjavík, Kópavog og
Hafnarfjörð, þar sem nemar Lögregluskóla rík-
isins munu verða þar í starfsþjálfun.
Nánari upplýsingar um þörf á afleysingamönn-
um hjá einstaka embættum fást hjá viðkom-
andi embættum.
Auglýst er eftir lögreglumönnum sem hafa út-
skrifast frá Lögregluskóla ríkisins, en náist ekki
að manna allar stöður menntuðum lögreglu-
mönnum er heimilt að ráða ófaglærða menn
til afleysinga og skulu þeir fullnægja skilyrðum
2. mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og þurfa
að standast inntökupróf, hafi þeir ekki ekki
starfað við afleysingar innan árs frá því að þeir
hefja störf að nýju.
Áður en afleysingamenn, sem ekki hafa lokið
prófi frá Lögregluskóla ríkisins, hefja störf,
þurfa þeir að sitja undirbúningsnámskeið, hafi
þeir ekki starfað áður í lögreglu. Inntökupróf
fyrir þá sem uppfylla almenn skilyrði verða
haldin hjá Lögregluskóla ríkisins, en nánari
tímasetning ákveðin síðar. Prófin gilda ekki
sem inntökupróf í Lögregluskóla, skv. ákvörðun
skólanefndar frá 28. október 2003.
Námskeið fyrir sumarafleysingamenn og
héraðslögreglumenn verða haldin síðari hlut-
ann í maí, nánari tímasetning og staðsetning
verður ákveðin síðar.
Umsóknum skal skilað til viðkomandi emb-
ættis fyrir 4. apríl 2004 á sérstökum eyðu-
blöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum,
annars vegar fyrir þá sem lokið hafa prófi
frá Lögregluskólanum og hins vegar fyrir
þá sem ekki hafa próf frá Lögregluskólan-
um. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin
á lögregluvefnum, www.logreglan.is ,undir
liðnum „Eyðublöð“. Nánari upplýsingar
um inntökupróf er hægt að nálgast á lög-
regluvefnum undir Lögregluskóli ríkisins/
Inntaka nýnema.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að
sækja um.
Reykjavík, 21. mars 2004.
Ríkislögreglustjórinn.
ÚU T B O Ð
Útboð nr. 13837
Tollhúsið, Tryggvagötu 19,
viðhald utanhúss
Fasteignir ríkissjóðs óska eftir tilboðum í viðhald
utanhúss á Tollhúsinu við Tryggvagötu 19 í
Reykjavík.
Suðurhluti hússins er fimm hæða með steyptum
sléttpússuðum útveggjum. Suðurhlið 4. og 5.
hæðar er að mestu hverfigluggaveggur, en 1.
og 2. hæðin klædd nátturusteini og mósaíkmynd.
Verkið felst að mestu í múrviðgerðum og málun
austur- og vesturgafla; viðgerðum og málun
glugga og niðurtekningu á járnbraut meðfram
þakkanti og klæðning hans. Varsla er mikil þar
sem umferð fólks og bíla er látlaus meðfram hús-
inu á alla vegu.
Helstu magntölur eru:
Hreinsun og málun flata 950 m²
Niðurtekning á járnbraut 120 m
Klæðning á þakkanti 120 m
Viðgerðir á sprungum 200 m
Málun glugga 1.240 m
Endurnýjun á gleri 15 stk.
Bjóðendum er boðið að kynna sér aðstæður á
verkstað fimmtudaginn 31. mars nk. kl. 13.00.
Verkinu skal vera að fullu lokið 8. ágúst 2005.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 150 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 11. apríl nk.
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
ÚU T B O Ð
Útboð nr. 13836 - Viðhald utanhúss
á Atvinnudeildarhúsi á lóð Háskóla
Íslands í Reykjavík
Fasteignir ríkissjóðs óska eftir tilboðum í viðhald
utanhúss á Atvinnudeildarhúsi á lóð Háskóla
Íslands í Reykjavík.
Húsið er þriggja hæða og er um 330 m² að
grunnfleti, byggt 1936. Þakið er lágreist valma-
þak klætt þakpappa. Útveggir eru staðsteypt-
ir, múrhúðaðir og yfirborðið með steiningar-
mulningi. Gluggar og hurðir úr tekki hafa verið
settar í eftir uppsteypu húss. Verkið felst að
mestu í steypuviðgerðum, endursteiningu, við-
gerðum á gluggum; endurnýjun á þakdúk og
nýrri sinkklæðningu.
Helstu magntölur eru:
Hreinsun flata og endursteining 600 m²
Endursteypa og steining
gluggakanta 580 m
Viðgerðir á sprungum 180 m
Endurnýjun á gleri 190 m²
Þakdúkur og læst sinkklæðning 280 m²
Málun glugga með olíu 840 m
Bjóðendum er boðið að kynna sér aðstæður á
verkstað fimmtudaginn 31. mars nk. kl. 14.00.
Verkinu skal vera að fullu lokið 1. september
2005.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 150 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
12. apríl nk. kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar 569 1111
Tilkynningar
Húsavík
Grunnskólakennarar/
þroskaþjálfar
Húsavík er 2.400 manna bæjarfélag, þar er
öflugt félags- og menningarlíf, aðstæður til
uppeldis barna hinar ákjósanlegustu, vega-
lengdir litlar. Í bænum er framhaldsskóli,
grunnskóli, tveir leikskólar, tónlistarskóli og
öflug heilbrigðisstofnun (sjúkrahús og heilsu-
gæsla) auk allrar almennrar þjónustu.
Borgarhólsskóli er 390 nemenda einsetinn, heildstæður grunnskóli
í glæsilegu og að hluta nýlegu húsnæði. Tónlistarskóli er í skólahús-
inu og er samstarf grunn- og tónlistarskóla mikið. Áhersla lögð á
umbóta- og þróunarstarf og samvinnuverkefni af ýmsu tagi. Veffang
er: http://bhols.ismennt.is og www.borgarholsskoli.is og þar er að
finna upplýsingar um skólann.
Næsta skólaár er m.a. laus ein 100% umsjónar-
kennarastaða á yngsta stigi skólans, 60% staða
enskukennara í unglingadeildum, 60% staða
íþróttakennara og 100% staða þroskaþjálfa.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Valdimarsson skólastjóri, vs. 464 1660,
hs. 464 1974, netfang:
hvald@borgarholsskoli.is og Gísli Halldórsson
aðstoðarskólastjóri, vs. 464 1660, hs. 464 1631,
netfang: gisli@borgarholsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra Skóla-
garði 1, 640 Húsavík.