Morgunblaðið - 23.03.2005, Page 56
56 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VALUR Gunnarsson er hættur sem ritstjóri tímaritsins
Reykjavík Grapevine og við af honum hefur tekið Banda-
ríkjamaðurinn Bart Cameron. Valur segist stefna á að
gefa út nýtt blað á íslensku í sumar og hefur það hlotið
nafnið Þorparinn.
Valur segir að blaðið verði „allsherjar menningarblað
á íslensku. Um mannfólk og málefni. Það er náttúrulega
ekki hægt að aðskilja stjórnmál frá menningu, þannig að
þau hljóta að koma fram þarna einhvers staðar,“ segir
hann.
Valur kom heim til Íslands fyrir um tveimur árum, að
loknu MA-námi, og „lenti beint í því að skrifa fyrir
Grapevine. Ég hef verið að vinna að bók frá því ég bjó í
Finnlandi og hékk þar með indverskum jógagúrúum. Ég
fór aftur til Lapplands og Norður-Noregs síðasta vor og
þegar ég kom þaðan fór ég beint í blaðið, eina ferðina
enn. Hingað til hef ég fórnað bókinni fyrir blaðið, en
núna ætla ég að fórna blaðinu fyrir bókina,“ segir hann.
Fer til Rússlands
Valur ætlar aftur út núna í maí, til Múrmansk í Rúss-
landi, í gegnum Finnland. „Þangað fer ég með Akureyr-
ingum og Finna sem býr á Akureyri, en það vill svo til að
Múrmansk er vinabær Akureyrar. Þarna ætla ég að
klára skrudduna og reikna með að hún komi út núna
strax í haust.“
Spurður um efni bókarinnar segir hann hana fjalla um
skipaþrifamann sem uppgötvi að hann hafi dulræna
hæfileika og átök hans við illþýði. Vinnuheitið er Æv-
intýri Ilka Hampurilainen. Valur er einnig að vinna að
bók um „hugarfar og landafræði Reykjavíkur“.
Bart tók við starfi Vals sem ritstjóri Reykjavík Grape-
vine 16. mars. „Ég er búinn að vinna hjá blaðinu síðan í
maí í fyrra. Ég var búinn að vera á Íslandi í eitt ár og
langaði til að fara á tónleika með hljómsveitinni Violent
Femmes, sem er frá heimabæ mínum, Racine í Wiscons-
in. Ég áttaði mig á því að eina leiðin til að komast á tón-
leikana væri að skrifa umsögn um þá fyrir eitthvert blað
og ákvað að taka viðtal við hljómsveitina líka. Viðtalið
varð hins vegar ein mestu vonbrigði lífs míns, því í ljós
kom að æskuhetjurnar mínar voru algjörir óþokkar. En
ég skrifaði greinina fyrir Reykjavík Grapevine og ég
býst við að ritstjórunum hafi litist vel á að ég skyldi hafa
haft siðferðisþrek til að gera lítið úr átrúnaðargoðum
mínum þegar þau áttu það skilið,“ segir hann.
Bart segist ætla að gera nokkrar breytingar á blaðinu.
„Já, ég ætla að gera útlitsbreytingar og svo er ætlunin að
fá til liðs við blaðið fastan hóp höfunda og reyna að auka
gagnvirkni milli þeirra og lesenda,“ segir hann. „Auðvit-
að verða harðar fréttir á sínum stað, en við ætlum líka að
bæta þjónustu við útlendinga sem eru að reyna að koma
sér fyrir hér á landi. Það er meira að segja, svo dæmi sé
nefnt, tilefni til að gefa leiðbeiningar um innkaup í mat-
vöruverslunum, því oft og tíðum veit maður ekki hvort
maður er að kaupa hrossakjöt eða eitthvað annað,“ segir
hann og hlær.
Vinstrisinnað
Pólitísk rödd blaðsins verður vinstrisinnuð, segir Bart.
„Morgunblaðið virðist vera nokkuð til hægri og það er
erfitt að staðsetja Fréttablaðið, þannig að við ætlum að
vera vinstra megin, eins og flestir dyggustu lesendur
blaðsins hingað til; stúdentar og nemendur framhalds-
skóla,“ segir hann.
Þá stendur til að opna Grapevine-búð á Laugavegi 11,
fyrir neðan Bar 11. Þar verður upplýsingamiðstöð fyrir
útlendinga og boðið upp á ýmsar vörur fyrir þá, eins og
íslenskar bækur í enskri þýðingu, auk geislaplatna með
minna þekktum íslenskum tónlistarmönnum.
Útgáfa | Ritstjóraskipti hjá Grapevine og nýtt blað á íslensku
Þorparinn
nálgast
Morgunblaðið/Sverrir
Núverandi ritstjóri Grapevine, Bart Cameron (í for-
grunni), og fráfarandi, Valur Gunnarsson.
ivarpall@mbl.is
HIPP-HOPP-sveitin tilraunaglaða
N*E*R*D hefur lagt upp laupana
eftir að hafa lent ítrekað í útistöð-
um við umboðsmenn sína og útgef-
endur hjá Virgin. Pharrell Will-
iams, forsprakki sveitarinnar, og
félagar hans Chad Hugo og Shay
hafa ákveðið að slíta samstarfinu í
stað þess að standa í stappinu
áfram. „N*E*R*D er dauð. Við
eigum ekki samleið með Virgin Re-
cords og því erum við hættir.“
Williams hefur hins vegar hug-
hreyst aðdáendur sína með að
þetta þýði ekki að þeir Hugo, sem
mynda saman upptökuteymið far-
sæla, The Neptunes, hafi slitið
samstarfinu. Þeir munu áfram
semja og taka upp lög saman fyrir
sig og aðrar stjörnur, en nýjasti
smellur þeirra er „Drop it like it
is“, sem Snoop Dogg gerði vinsælt.
N*E*R*D hætt