Morgunblaðið - 23.04.2005, Side 28

Morgunblaðið - 23.04.2005, Side 28
28 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Verulegur verð-munur er ádrykkjarföngummilli veitinga- húsa. Í verðkönnun sem Samkeppnisstofnun gerði um sl. mánaðamót á drykkjarvörum í veitinga- húsum kom í ljós að munur á lægsta og hæsta verði á sterku áfengi og líkjörum var á bilinu frá 79% til 150% eftir tegundum. Kannað var verð á sterku áfengi, létt- víni, bjór, gosdrykkjum og kaffi í 154 veitingahúsum á höfuðborgarsvæðinu. Svipuð könnun var gerð í maí 2003. Mikill munur á bjórverði Algengur verðmunur á lægsta og hæsta verði 33 cl bjórflösku var um eða yfir 100% en heldur minni verð- munur var á kranabjór eða frá 56% til 100%. Kaffibolli, sem seldur var nær undantekningarlaust með ábót, kostaði frá 100 kr. til 300 kr. eða 200% verðmunur var á lægsta og hæsta verði. Þá reyndist vera 185% verðmunur á lægsta og hæsta verði á bolla af cap- puccino. Vín hússins á mismunandi verði Mikill verðmunur reyndist einnig vera á glasi af „víni hússins“. Vínglasið kostar 400 kr. þar sem það er ódýrast og er vínmagnið þar 24 cl en 900 kr. þar sem það er dýrast en þar er magnið 18,7 cl. Í fréttatilkynningu frá Samkeppn- isstofnun kemur einnig fram að með- alverðbreyting á sterku áfengi og lí- kjörum í veitingahúsum fylgir nokkurn veginn meðalbreytingum ÁTVR á tímabilinu maí 2003 til apríl 2005, en verðbreytingar ÁTVR á þessu tímabili voru frá 0% –11% eftir tegundum. „Tvöfaldur vodki í gosi hefur að meðaltali hækkað um 5,6% í veitingahúsunum á tímabilinu en það er sama verðbreyting og á nokkrum algengum vodkategundum hjá ÁTVR á sama tímabili. Meðalverð- breyting á bjór í veitingahúsunum fylgir einnig meðalverðbreytingum ÁTVR en verðbreyting á bjór var óveruleg á þessu tveggja ára tíma- bili.“ Verðskrá á áberandi stað Samkvæmt reglum Samkeppn- isstofnunar um verðupplýsingar ber þeim sem stunda veitingarekstur að hafa uppi verðskrá á áberandi stað fyrir framan inngöngudyr þar sem fram kemur verð á algengustu vöru og þjónustu sem í boði er. Í þessari könnun hafði aðeins tæp- lega þriðjungur veitingahúsanna uppi verðskrá. Þá kom fram að 37% veitingahús- anna tilgreindu magn drykkjarfanga en samkvæmt ofangreindum reglum ber að gefa upp magn á drykkjar- föngum hvort heldur er í flösku eða glasi, auk verðs. Það er fyrst og fremst gert til þess að viðskiptavinir geti áttað sig á og borið saman verð. Óviðunandi niðurstaða Flest veitingahúsin bjóða glas af „víni hússins“ til sölu. Erfitt getur verið að átta sig á verðinu og hvað í boði er ef magns er ekki getið, en í þessari könnun var magnið frá 14 til 33 cl eft- ir veitingahúsum. Þessi niðurstaða er mun lakari en í þeirri könnun sem gerð var fyrir tveimur árum. Samkeppnisstofnun telur þessa niðurstöðu óviðunandi gagnvart neytendum og hvetur þá sem stunda veitingarekstur að fylgja þeim reglum sem í gildi eru svo komist verði hjá að beita viðurlögum. Það er ákveðnum erfiðleikum bundið að bera saman verðlagningu veitingahúsa. Þjónustan er afar mis- munandi og hið sama má segja um innréttingar og umhverfi. Slík atriði geta haft áhrif á verðlagninguna, en í könnuninni er ekkert tillit tekið til þess.  VERÐKÖNNUN SAMKEPPNISSTOFNUNAR | Verð á drykkjum á veitingahúsum ;"' ' 4 # ;"' # & 4 #  " A,0 98  " A0   "  ",:Q @  A,0 , & &' +& , , & R,0 + & </-L , & @  A,, , & A" (,#  " "  <  &#  " "  ;(#  " "  2, &,,&  " "  A&  " "  ?# " #""  " "  /,""    " "  <  &# &(.6  " <  &# &(.6  " A" (,# &(.6  " A" (,# &(.6  " ?# " #"" &(.6  " ?# " #"" &(.6  " ;(# &(.6  " ;(# &(.6  " "  # ': H " )  , && ("" ?P, 6 A & !."' ,  &#> G  $5#  , 25  , +& "5#  # 5  +,", 4 4"                                                  D    D   D                               , ! +3!! 4     !"#   $% &'$( ! )*  Mikill verðmun- ur á áfengi og öðrum drykkjum Verðmunur á lægsta og hæsta verði á bolla af cappuccino reyndist 185% í nýrri verð- könnun Samkeppnisstofnunar á drykkjum í veitingahúsum og algengt var að munur væri yfir 100% á 33 cl bjórflösku. Morgunblaðið/Þorkell UNDANFARIÐ hefur mikið verið talað um mikilvægi þess að allir vinni í reyklausu umhverfi. Það er mjög mikilvægt að tryggja öllum reyk- laust vinnuumhverfi en það er einnig mjög mikilvægt að virtur sé réttur allra barna til reyklauss umhverfis. Börnum er að nokkru leyti tryggt reyklaust umhverfi með lögum sem segja að skólar skuli vera reyklausir, gæsla, tómstundasvæði og flest al- menn þjónusturými. Þegar kemur hins vegar að heimili fólks er það á ábyrgð foreldra að tryggja barni sínu reyklaust umhverfi. Hvað eru óbeinar reykingar? Óbeinar reykingar kallast það þegar fólk andar að sér lofti sem er mengað af tóbaksreyk. Sá sem verð- ur fyrir óbeinum reykingum andar að sér sömu efnum og sá sem reykir (þ.e. um 4000 efnum og efna- samböndum eins og ammoníaki, nikótíni og blásýru og yfir 50 krabbameinsvaldandi efnum). Reyk- urinn sem stígur upp af sígarettu brennur við lægra hitastig en sá sem reykingafólk andar ofan í sig og er því enn skaðlegri heilsu fólks. Áhrif óbeinna reykinga á heilsu barna:  Öndunarvegir barna eru hlutfalls- lega þrengri en fullorðinna sem gerir þau sérstaklega viðkvæm fyrir tóbaksreyk. Það getur haft margvísleg áhrif á heilsu barna að reykt sé í návist þeirra. Börn sem verða fyrir óbeinum reyk- ingum eru t.d.:  Tvisvar sinnum líklegri að fá astmakast og sýkingar í önd- unarfærum  Líklegri að leggjast inn á sjúkra- hús á fyrsta árinu  Eru oftar frá skóla vegna veikinda  Líklegri til að fá kvef, hósta og mæði Læknisfræðilegar rannsóknir sýna einnig að:  Vöggudauði er mun algengari hjá þeim sem búa í reyk- umhverfi  Aukin hætta er á heilahimnu- bólgu  Meiri hætta er á eyrnabólgum  Aukin hætta er á að börn þrói með sér astma og ofnæmi Á upptalningunni hér á undan má sjá að hættan vegna óbeinna reyk- inga er mikil fyrir börn og vel stað- fest. En hvernig verndum við börnin okkar fyrir reyknum? Nokkur góð ráð Langflestir foreldrar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda börnin sín gegn hvers konar hætt- um. Hér á eftir eru nokkur ráð um það hvernig við getum verndað börnin okkar fyrir óbeinum reyk- ingum.  Hafðu heimili þitt reyklaust. Að reykja við opinn glugga, í öðru her- bergi en barnið er eða undir gufu- gleypinum verndar barnið ekki al- gjörlega gegn reyknum. Eina raunverulega verndin fæst með því að reykja aldrei í umhverfi barnsins – heldur eingöngu úti og þá vel fjarri barninu.  Segðu fjölskyldu, vinum og öðrum sem gæta barnsins að þú biðjir um hreint loft barnsins vegna.  Leyfðu aldrei að reykt sé í bíl þar sem barnið er – né í bíl sem barnið notar. Auk heilsuskaða auka reyk- ingar mjög bílveiki barna.  Þegar þú ert úti með fjölskyldunni veldu þá reyklaust umhverfi, s.s. reyklaus veitingahús. Mikilvægt er að hafa í huga að ráðin hér að ofan eiga ekki aðeins við ung- börn heldur eiga öll börn rétt á reyk- lausu umhverfi sama á hvaða aldri þau eru.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA|Lýðheilsustöð Verndum börnin okkar fyrir reyknum Morgunblaðið/Ómar Jakobína H. Árnadóttir, M.Sc. heilsusálfræði. Verkefnisstjóri Lýð- heilsustöðvar. Tengill: lyd- heilsustod.is JÓNÍNA Soffía Tryggvadóttir, Ís- landsmeistari kaffibarþjóna og starfsmaður hjá Te og kaffi, er ný- komin heim af heimsmeistaramóti kaffibarþjóna í Seattle í Bandaríkj- unum þar sem hún lenti í fimmta sæti af 36 keppendum hvaðanæva að úr heiminum. Áður en að loka- keppninni kom, komst Jónína Soffía í sex manna úrslit og var hún auk þess stigahæst inn í úrslit- in. Í sjálfum úrslitunum er svo byrj- að frá núlli og hafnaði hún í fimmta sætinu. Fulltrúi Danmerkur vann keppnina, í öðru sæti var Japan, í þriðja sæti Kanada, í því fjórða var fulltrúi Nýja-Sjálands, Jónína í fimmta sætinu og Noregur í því sjötta. „Þeir einstaklingar, sem lentu í fyrsta, þriðja og fjórða sæti voru allir að keppa í annað sinn á heimsmeistaramóti, en annars get ég ekki annað en verið sátt við úr- slitin. Þetta er alltaf spurning um dagsformið. Ferðin stóð í tíu daga og var rosalega skemmtileg. Seattle virkaði vel á mig, en óneit- anlega er ferðalagið dálítið langt frá Íslandi.“ Þurfa að útbúa tólf drykki á fimmtán mínútum Keppendur fengu fimmtán mínútur til þess að laga fjóra expressó, fjóra cappuccino og fjóra frjálsa óáfenga drykki fyrir fjóra dómara í undankeppninni og svo var sami leikurinn endurtekinn í úrslit- unum. Þetta er í sjötta sinn sem heims- meistarakeppni kaffibarþjóna fer fram og segir Jónína Íslendinga alltaf hafa náð góðum árangri í þessum keppnum. „Ég myndi því segja að við séum svolítið hátt skrifuð í þessu.“ Á næsta ári verður heimsmeist- aramót kaffibarþjóna haldið í Bern í Sviss og þar næst í Tókýó í Jap- an. Jónína hefur verið kaffibarþjónn í tæp fjögur ár og vinnur nú í Te og kaffi á Laugaveginum auk þess sem hún stundar frönskunám við Háskóla Íslands. Ísland í fimmta sætinu Morgunblaðið/Júlíus Jónína Soffía Tryggvadóttir, Ís- landsmeistari kaffibarþjóna, tók þátt í heimsmeistaramóti kaffibar- þjóna í Seattle og varð fimmta af 36 keppendum.  KEPPNI|Heims- meistaramót kaffi- barþjóna í Seattle join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.