Morgunblaðið - 23.04.2005, Síða 33

Morgunblaðið - 23.04.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 33 UMRÆÐAN Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heimilisofbeldi og kortleggj- um þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyr- irbyggja að það gerist. For- varnir gerast með fræðslu al- mennings. Jóhann J. Ólafsson: Lýð- ræðisþróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt, verið til fyr- irmyndar og á að vera það áfram. Pétur Steinn Guðmunds- son: Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu samræmi við áður gefnar yfirlýsingar fram- kvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar. Guðmundur Hafsteinsson: Langbesti kosturinn í stöð- unni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höf- uðstaður framhalds- og há- skólanáms í tónlist í landinu. Hjördís Ásgeirsdóttir: Ég er ein af þeim sem heyrðu ekki bankið þegar vágest- urinn kom í heimsókn. Vilhjálmur Eyþórsson: For- ystumennirnir eru und- antekningarlítið menntamenn og af góðu fólki komnir eins og allir þeir, sem gerast fjöldamorðingjar af hugsjón. Afleiðingar þessarar auglýs- ingar gætu því komið á óvart. Jakob Björnsson: Mann- kynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvít- isprédikunum á valdi óttans eins og á galdrabrennuöld- inni. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar HRÓSIÐ mitt fær Gunnar I. Birgisson alþingismaður fyrir að lýsa því yfir á Alþingi í síðustu viku að vegargerð með tvennum jarðgöngum milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð sé vit- laus framkvæmd. Að mínu mati er þessi skoðun Gunnars rétt. Héðins- fjarðarleiðin er í raun helmingi dýrari en Fljótaleiðin, sem ég hef barist fyrir í átta ár og sýnt fram á með rökum að sé betri val- kostur í jarð- gangagerð fyrir íbúa beggja vegna Trölla- skagans og lands- menn alla. Í grein sem ég skrifaði í Mbl. 18.2. 2005 komst ég að þeirri niðurstöðu að Héðinsfjarðarleiðin yrði ca 6 milljörðum kr. dýrari en Fljótaleiðin, en sú tala hefur reynst of lág því allir gangamunnarnir á Héðinsfjarð- arleið eru á snjóflóðahættusvæð- um. Sérstaklega er ástandið slæmt á Skútudal, þar sem fallið hafa tvö stór snjóflóð á síðustu árum yfir veglínuna að fyrirhuguðum jarð- göngum. Allar snjóflóðavarnir eru mjög kostnaðarsamar eins og dæmin sanna t.d. á Siglufirði og í Neskaupstað. Því er raunhæft að reikna með kostnaði upp á 1 til 1,5 milljarða kr. í þær framkvæmdir. Heildarkostnaður við Héðinsfjarð- arleiðina er þá kominn í ca 14,5 til 15. miljarða kr., en kostnaðurinn við gerð Fljótaleiðar verður hins vegar ca 7,2 til 7,5 milljarðar kr. Gríðarlegir hagsmunir fylgja því fyrir Skagfirðinga og Nv.- kjördæmið að sátt náist um Fljóta- leiðina. Einnig skiptir miklu máli fyrir íbúa Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar að fá góða vegteng- ingu inn í Skagafjörð og suður. Umferðarflæði um þau göng verða með allt öðrum hætti og munu nýt- ast íbúum á nyrsta hluta Trölla- skagans mun betur. Fljótin verða bakland fyrir Siglufjörð og Ólafs- fjörð, sem er mikils virði og styrkir búset- una í heild sinni á öllu þessu svæði. Í raun hefur bygging jarð- ganga takmarkað gildi nema jafnframt verði gerðar víðtækar áætl- anir um fjölþætta upp- byggingu atvinnulífs í aðliggjandi þéttbýlis- kjörnum þannig að jarðgöngin skipti sköpum að slíkar áætlanir takist vel. Sturla Böðvarsson er fyrsti þingmaður og ráðherra Nv.- kjördæmis og hefur því mesta ábyrgð og skyldum að gegna við að gæta hagsmuna íbúa og kjósenda í kjördæminu. Auk þess er hann ráðherra samgöngumála í rík- isstjórn og er því í lykilaðstöðu til að beita sér fyrir því að ná sáttum og farsælli lausn sem allir íbúar beggja vegna Tröllaskagans geta unað við. Ég hef skoðun á því hvernig best væri að leysa þessa deilu á sem farsælastan hátt, þann- ig að allir geti haft sóma af. Til forna greiddu höfðingjar bætur eftir vígaferli til að ná sáttum og dýrmætum friði. Tillaga mín er sú að ráðherra samgöngumála beiti sér fyrir því, ásamt þingmönnum í Nv.- og Na.-kjördæmi, við rík- isstjórn og Alþingi að lagt verði fram fjármagn til stórátaks í at- vinnuuppbyggingu á norðanverðum Tröllaskaga er nemur 600 millj- ónum kr. á ári í fjögur ár, sem ger- ir 2,4 milljarða kr. alls. Á móti þessu fjármagni leggja frumkvöðl- arnir fram eigið fé og lánsfé sem nemur 4,8 milljörðum kr. og verður framkvæmdaféð því samanlagt 7,2 milljarðar kr. Þetta fjárframlag er skilyrt því að hætt skuli við gerð Héðinsfjarðarganga og fyrirhugað fjármagn til þeirra framkvæmda flutt yfir á Fljótaleið. Frekari út- færsla: 1). Að flýtt verði eins og kostur er rannsóknum á jarð- gangaleiðum á Fljótaleið þ.e. á milli Fljóta og Siglufjarðar og Fljóta og Ólafsfjarðar (úr Holtsdal að Kvíabekk). 2). Stofnað verði sér- stakt vaxtarsvæði hér á Trölla- skaga sem í verða Dalvíkurbyggð, Siglufjörður, Ólafsfjörður og svf. Skagafjörður (þ.e. Fljót, Hofsós og Hólar í Hjaltadal). 3). Gerður verði sérstakur vaxtarsamningur með áherslu á nýsköpun í atvinnulífinu. 4). Framlögin skal nota til að styrkja nýsköpunarfyrirtæki um allt að 1/3 af stofnkostnaði, vegna þess hvað fasteignamat er lágt á þessu svæði (stuðull 0,3) og bankar og sparisjóðir eru tregir að lána meira en 50 til 60% af stofnkostn- aði. 5). Framlögin skulu eyrna- merkt þannig: Siglufjörður fær út- hlutað 1.000. millj. kr., Ólafsfjörður 700 milljónir kr., Dalvíkurbyggð 150 millj. kr., Fljótin 300 milljónir kr., Hofsós 150 milljónir kr. og Hólar í Hjaltadal ásamt Húsa- bakkaskóla í Svarfaðardal fá sér- stakt 50 millj. kr. framlag hvort, vegna mikils menningarlegs gildis þeirra. Stefnt skal að því að útboð vegna borunar jarðganganna fari fram fyrir alþingiskosningarnar 2007. Einnig skal stefnt að því að fyrstu styrkir til nýsköpunar verði tilbúnir til greiðslu á seinnihluta árs 2006. Ótvíræðir kostir þessara tillagna eru þeir að kostnaður við Fljótaleiðina ásamt framlögunum til atvinnusköpunar (9,6 til 9,9 millj. kr.) er minni en kostnaðurinn við gerð Héðinsfjarðarganga, ásamt hlutlægu mati mínu á nátt- úruskaða (3,0 milljarða kr.), sem fylgir því að rjúfa dulúð Héðins- fjarðar og undirritaður gerði grein fyrir í blaðagrein í Mbl. 18.2. 2005 Samanlagt er þessi kostnaður ca 10,0 milljarðar kr. Til að klára Héðinsfjarðarleiðina, svo hún komi að svipuðum notum og Fljótaleiðin, hefði þurft að bora þriðju göngin, þ.e. frá Siglufirði og inn í Fljót vegna jarðskriðsvandamála á Al- menningum og byggja snjóflóða- varnir á Skútudal og víðar. Sá kostnaður er upp á ca 4,5 til 5,0 milljarða kr. til viðbótar. Í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á kostnað og óhagkvæmi Héðinsfjarðarleiðar er nauðsynlegt að endurskoða og meta allar forsendur upp á nýtt og þá með Fljótaleiðina í huga. Vitlaus jarðgöng Trausti Sveinsson fjallar um göngin fyrir norðan ’Í ljósi þeirrar gagnrýnisem fram hefur komið á kostnað og óhag- kvæmi Héðinsfjarð- arleiðar er nauðsynlegt að endurskoða og meta allar forsendur upp á nýtt og þá með Fljótaleiðina í huga. ‘ Trausti Sveinsson Höfundur er bóndi á Bjarnargili. ,  5 % )      +! ,$ -.!!,! '  $ /,        % 678!     / #&# '     % 78!        '      +G"> #&# %& )  "( AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.