Morgunblaðið - 23.04.2005, Page 36

Morgunblaðið - 23.04.2005, Page 36
36 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ DagbjarturHansson fæddist á Heiðarhöfn á Langanesi 11. nóv- ember 1933. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akur- eyri 16. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Sveinbjörnsdóttir frá Þórshöfn á Langa- nesi, f. 1914, og Hans Sigurd Johansson frá Færeyjum, f. 1909. Þau skildu. Seinni maður Sigríð- ar og fósturfaðir Dagbjarts var Sigfús Kristjánsson frá Rifi á Mel- rakkasléttu, f. 1896. Dagbjartur átti tvo albræður, Gunnar og Sveinbjörn, sem er látinn. Systk- ini sammæðra eru Þórdís, Gerð- ur, sem er látin, Bára, Kristján, Anna Aðalbjörg, sem er látin, Hreinn, Þór- katla, Sigfús, Ævar og Bergþór Heiðar. Systkini samfeðra eru Bjarni Heiðar, Helena, Alda Sigur- rós, Sigurður Niku- lás, Jónína Valgerð- ur og Guðni Svan. Dagbjartur kvæntist Önnu Lilju Stefánsdóttur og eru börn þeirra Stef- án, í sambúð með Svönu Karlsdóttur, Svandís, í sambúð með Sveinbirni Hannes- syni, og Sigríður. Útför Dagbjarts fer fram frá Stærri-Árskógskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi. Það var erfið biðin á laugardags- morguninn, þegar við vissum í hvað stefndi hjá þér. En nú er baráttunni lokið, þú laus við allar þjáningar, og kominn á betri stað þar sem við trú- um að þér líði vel. Við eigum eftir að sakna þín mikið, en við eigum marg- ar góðar minningar sem munu fylgja okkur um ókomna tíð. Við gætum tal- ið upp svo ótalmargt. Með þessum orðum viljum við kveðja þig, elsku pabbi, og við vitum að þú fylgist með okkur frá öðrum stað. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku mamma. Munum að Guð geymir sálir okkar allra, en við sem eftir lifum, minningu um ástvin. (G.Jóna.) Svandís, Stefán og Sigríður. Það var laugardaginn 16. apríl síð- astliðinn að Dagbjartur tengdafaðir minn lést, eftir langa baráttu við erf- iðan sjúkdóm. Mig langar að minnast hans í nokkrum orðum. Það var fyrir um fimm árum sem við fórum að rugla saman reytum ég og Svandís dóttir Dagbjarts, og í framhaldi af því kynntist ég Dagga, eins og hann var oftast kallaður með- al vina. Ég sá strax að þar var mikill höfðingi á ferð, alltaf boðinn og búinn að redda því sem þurfti að redda. Eitt sinn þegar við komum með vina- fólk okkar í heimsókn á Hauganes til þeirra hjóna Dagga og Lilju fór Daggi strax í að redda þeim gistingu og hún var ekki af verri endanum. Hann fann fyrir þau hús sem var autt á Hauganesi, fór upp í skóla og fann stóla og tilheyrandi, og þetta keyrð- um við á kerru niður í hús til að gera sem best við gestina að sunnan. Þarna er honum vel lýst, vildi allt fyr- ir alla gera. Fyrir rúmum tveimur árum fór heilsu hans að hraka. Í janúar 2004 fór Svandís norður að hitta pabba sinn, og þá var eins búist við því að það yrði í síðasta sinn, hann lá mikið veikur á gjörgæsludeildinni á sjúkra- húsinu á Akureyri. Þá vorum við Svandís búin að eignast okkar fyrsta barn saman, litla stúlku sem heitir Dagbjört Sara, í höfuðið á afa sínum. Þær mæðgur fóru að hitta Dagga á spítalanum, og það urðu miklir fagn- aðarfundir með þeim, Dagga og litlu konunni hans, eins og hann kallaði hana oft, enda búinn að bíða allan daginn eftir að hitta hana. Eftir þessa heimsókn fór heilsa hans batn- andi með hverjum deginum sem leið, og eftir nokkra daga var var hann orðinn það góður að hann gat farið heim, þó svo að heilsan yrði aldrei góð aftur. Þó lét hann heilsuleysið ekki aftra sér frá því að koma á Bakkaflöt í Skagafirði og í Vaglaskóg í sumar þar sem við Svandís og Dag- björt Sara vorum í útilegu ásamt fleira fólki. Það var aðdáunarvert af þeim hjónum Dagga og Lilju að fara í þessar ferðir, og hann var meira að segja farinn að tala um að fá sér tjaldvagn, þar sér maður hversu mik- ill baráttumaður var á ferð, hann ætl- aði ekki að leggja árar í bát þó að heilsan væri ekki upp á marga fiska. Það var aðdáunarvert að sjá hvað Lilja stóð sterk með manni sínum, alla þessa baráttu, þar til yfir lauk. Þegar fjarlægðin er þetta mikil, við Svandís búum í Reykjavík og Daggi og Lilja fyrir norðan, þá leyfði heilsa hans ekki ferðalög til Reykja- víkur síðastliðið ár. Við hittumst því ekki eins oft og við hefðum viljað. En það voru góðar stundir þegar við hittumst, og ég held að við Daggi höf- um átt okkar bestu stundir í eldhús- inu heima hjá þeim hjónum, þegar við vorum búnir að fá okkur smákoníakslögg. Þær lifa í minning- unni um ókomin ár. Ég settist niður á laugardagskvöldið var, daginn sem þú skildir við, og hellti koníaki í glas og skálaði við þig hestaskál. Þegar við sáumst í síðasta sinn, um páskana fyrir norðan, var aðdáunarvert að sjá æðruleysið hjá þér, þá er varla hægt að segja að þú hafir minnst á veik- indin sem voru að hrjá þig. Þú talaðir um að þetta hlyti að fara að lagast. Það var viðhorfið sem þurfti til að berjast á móti þessum vágesti, sem þessi sjúkdómur er. Þó svo að þú náir ekki að sjá annað barn okkar Svan- dísar sem á að fæðast á næstu dög- um, sem ég veit að þú óskaðir, þá veit ég að þú fylgist með okkur frá öðrum stað. Eftir alltof stutt en ánægjuleg kynni kveð ég þig nú elsku Daggi minn, með þakklæti fyrir góðar stundir. Ég hef trú á því að nú líði þér svo miklu betur. Elsku Lilja, Stefán, Sirrý, fjölskyldur og aðrir aðstand- endur, ég votta ykkur samúð mína á þessum erfiðu tímum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þinn tengdasonur Sveinbjörn Hannesson. Elsku afi minn. Nú ertu farinn til englanna, þar sem þér líður núna vel. Mér fannst alltaf gaman að koma norður í heimsókn og fá að sitja í fanginu á þér þegar þú hafðir heilsu til að „gaga mi“. Ég heimsótti þig á spítalann þegar þú varst orðinn mik- ið veikur og þá fékk ég að sitja uppi í rúminu hjá þér og nuddaði á þér tás- urnar svo þér liði betur. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Elsku afi minn, ég hefði viljað eiga meiri tíma með þér, en ég veit að þú munt fylgjast með mér og litla systk- ininu mínu sem mun fæðast á næstu dögum og þú hlakkaðir svo til að sjá. Ég mun kannski ekki muna mikið eftir þér en mamma og pabbi verða dugleg að tala um þig við mig og rifja upp minningar. Elsku litla konan þín og nafna, Dagbjört Sara. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. DAGBJARTUR HANSSON ✝ Oliver Kristjáns-son fæddist í Ólafsvík 10. júní 1913. Hann lést á St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi 17. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anna Elísabet Brandsdóttir frá Ólafsvík, f. 29. mars 1876, d. 1. apríl 1937, og Kristján Kristjánsson báta- smiður frá Ytra- Skógarnesi, f. 20. ágúst 1872, d. 22 jan- úar 1944. Alsystkini Olivers eru Jóhanna, f. 2. mars 1911, og Magnús, f. 16. júlí 1918, d. 22. mars 1978, sammæðra er Sig- tryggur Sigtryggsson, f. 6. ágúst 1898, d. 16. apríl 1978, en sam- feðra eru Guðmundur, f. 18. júlí 1902, d. 10. október 1994, og Helgi, f. 20. sept. 1904, d. 9. sept- ember 1976. Oliver kvæntist 12. apríl 1941 Helgu Rósu Ingvarsdóttur, f. 2. júní 1915, d. 3. febrúar 1996, og voru þau alla tíð búsett í Ólafs- vík. Börn þeirra: 1) Anna Elísa- bet, f. 28. október 1941, maki Karl Valur Karls- son, d. 1. september 2004. Börn þeirra eru Júlíana, Oliver, Vífill og Helga. 2) Jóhanna Helga, f. 2. júní 1945, maki Magnús Steingríms- son, dóttir þeirra er Dagný Ásta. 3) Hjör- dís, f. 6. september 1947. 4) Jón Þor- bergur, f. 1. október 1953, maki Kolbrún Þóra Björnsdóttir, dætur þeirra eru Gunnvör Braga, Helga Björk, Guðbjörg Birna og Kolbrún Ingibjörg. 5) Guðmunda, f. 15. október 1955, maki Páll Ingólfsson, þau slitu samvistum, börn þeirra eru Fannar Baldurs- son, Hafrún og Hjörtur. Langafa- börnin eru tuttugu og langa- langafabörnin eru tvö. Oliver starfaði sem sjómaður, bílstjóri hjá Vegagerð ríkisins, útgerðarmaður, fiskverkandi og síðast starfaði hann sem vörubíl- stjóri á eigin bíl. Útför Olivers fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sævar að sölum sígur dagsins ljós, dimmir í dölum, döggum grætur rós. Einn ég sit og sendi söknuð burt í ljúfum blæ, er sem blítt mér bendi barnsleg þrá að sæ. Alda kæra alda! Eyrum fróar gnýrinn þinn, alda kæra alda! Eini vinur minn. Tengdafaðir minn Oliver Krist- jánsson er nú látinn nærri 92 ára gamall eftir langa og farsæla ævi. Frá fyrstu tíð mætti mér umhyggja og ástúð af hans hálfu þó að um margt værum við ólík. Hann fór sér hægt og hafði það, en ég vildi drífa hlutina af með örlítið meiri krafti. Olli, eins og hann var kallaður, var mikil barnagæla og er mér í fersku minni þegar lítil kríli voru sett í fang hans og hann sagði við þau ,,ég þarf að kenna þér að drekka kaffi með mola og mjólk“, ekki alltaf við góðar undirtektir foreldranna sem var uppálagt að gefa börnunum eitthvað hollara. Afi Olli, eins og stelpurnar okkar Jóns kölluðu hann, vildi sem oftast hafa gesti hjá sér og alltaf var komið við hjá honum þótt stoppið væri stutt, stundum spurði hann hvort við vær- um að fara strax og fannst að við gæt- um nú alveg staldrað við aðeins leng- ur. Þegar fjölskyldan var að ferðast vildi hann að við létum vita af okkur bæði þegar lagt var af stað og þegar heim var komið, hann vildi vita hvar sitt fólk væri. Hann fylgdist af áhuga með hvað börnin og barnabörnin voru að taka sér fyrir hendur í námi, leik og í starfi. Olli var vörubílstjóri og fiskverk- andi þegar ég kom í fjölskylduna. Hann vann langan vinnudag og hann var á níræðisaldri þegar hann keypti sér síðasta vörubílinn sinn, geri aðrir betur, svo var hann með kindur sem krökkunum fannst gaman að kíkja á á vorin. Hann var hafsjór af fróðleik og fólk naut þess að vera samvistum við hann enda átti hann góða vini á öllum aldri sem reyndust honum vel, þó skal sérstaklega minnst á fallega og kær- leiksríka vináttu og hjálpsemi Ása í Rifi, sem seint verður fullþökkuð. En eins og ég sagði oft þá var Olli tengda- pabbi „ungur“ gamall maður sem naut þess að vera innan um fólk á öll- um aldri til hinstu stundar. Í seinni tíð hefur Olli verið svolítið lasinn og síðustu mánuði hefur hann dvalið á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og fengið góða umönnun þar, þótt helst hefði hann viljað vera heima í Ólafsvík til hinstu stundar. Fjölskyld- an hefur verið dugleg að heimsækja hann og eitt sinn vorum við 12 þar í einu. Þá var afi svo hress og kátur og alveg fyrir tilviljun var í farteskinu myndavél sem óspart var notuð og fallegar eru myndirnar sem nú ylja okkur um ókomna tíð. Stundirnar sem við höfum átt í Vallholtinu í gegnum tíðina hafa verið margar og góðar og að leiðarlokum þökkum við öll fyrir samfylgdina og megir þú, elsku Olli, eiga góða heim- ferð. Guð blessi og vaki yfir fjölskyld- unni sem hefur átt þig svo lengi að. Þín tengdadóttir Kolbrún Þóra. Ég lít á það sem mikil forréttindi að hafa fengið að kynnast og eiga ein- staka samleið í rúman aldarfjórðung með manni eins og Oliver Kristjáns- syni eða Olla eins og hann var æv- inlega kallaður af þeim sem hann þekktu og Olli afi á mínu heimili. Olla kynntist ég fyrir um 25 árum þegar við Guðmunda, dóttir hans, bjuggum okkur heimili í Ólafsvík, heimili sem naut sérstakrar umhyggju þeirra Olla og Helgu, sem við erum svo þakklát fyrir. Mér varð strax ljóst að Olli var á vissan hátt kjölfestan og miðpunktur fjölskyldunnar og fleiri skyldmenna hans í Ólafsvík. Olli var einstakur maður á svo margan hátt, hæglátur, hjálpfús og einstaklega traustur og ráðagóður. Strax við okkar kynni fann ég að það væri líklega fátt sem maður gæti ekki leitað ráða með hjá honum, fengið lánað hjá honum eða beðið hann að gera fyrir sig. Ég minn- ist þess ekki að hann hafi nokkru sinni neitað neinum eða ekki sagst geta gert eitthvað sem um var beðið. Alla hluti var hægt að leysa með hans einstöku yfirvegun sem í raun ein- kenndi allt hans líf. Olli var nægju- samur og nýtti hluti vel. Efalaust hef- ur manni einhvern tímann dottið í hug að réttara væri að kaupa nýjan hlut í stað þeirra sem hann var að lagfæra og nýta, bæði í kindakofanum, á heim- ilinu eða í vörubílnum hans. En lík- lega hefur það verið öllum hollt að sjá og læra hvernig hann nýtti hluti og komst af með margt sem fólki nú til dags dytti ekki hug að reyna. Hans lífsviðhorf var bara svona og mættu kannski margir af okkar kynslóð taka það sér til fyrirmyndar. Þegar okkur Kalla Valla datt í hug að gerast „útgerðarmenn“ og keypt- um okkur litla trillu voru ófáar ferð- irnar farnar í Vallholtið til Olla til þess að fá eitthvað „lánað“ eins og verkfæri og hluti sem í ólagi voru hjá okkur. Alltaf átti Olli einhverja lausn á okkar vanda og oftar en ekki þáðum við kaffi og með því hjá Helgu á með- an Olli fann það sem okkur vanhagaði um í bílskúrnum hjá sér. Þar kenndi ýmissa grasa. Olli fylgdist afar vel með öllu sem hans nánustu voru að aðhafast, þó sérstaklega ef það sneri að sjónum. Það hafa þeir Fannar og Torfi reynt öðrum fremur nú seinni árin. En Olli var þannig persóna að þótt hann hringdi oft til þess að fylgj- ast með og fá fréttir, var alltaf tími til að segja honum frá gangi mála, hvernig aflaðist, veðrinu og öðru sem honum fannst skipta máli. Olli var mjög minnugur á alla hluti og það var oft gaman að sitja við eld- húsborðið í Vallholtinu og láta hann segja sér frá ýmsu sem hann hafði upplifað á sinni löngu og viðburðaríku ævi. Hann ólst upp á þeim tímum sem ungt fólk í dag á erfitt með að ímynda sér hvernig voru og því var það mjög lærdómsríkt og gott að heyra við hvaða aðbúnað og kjör hann hafði lif- að. Það má síður en svo skilja að hann hafi verið að kvarta, því aldrei fann maður fyrir öfund hjá honum út í eitt né neitt né að hann hefði í raun viljað hafa hlutina öðruvísi en þeir voru. Olli afi var einstaklega hlýr og elskulegur afabörnum sínum og minnast þau hans sem glettins afa en líka sem kjölfestunnar í fjölskyldunni. Þau leituðu oft til hans og Helgu ömmu sinnar og áttu þá aðstoðina sjálfgefna. Olli afi og Helga amma voru í augum barnanna sem eitt og órjúfanleg heild. Því var það mikill missir og sár, fyrir Olla þegar Helga amma dó í febrúar 1996. Frá þeim tíma hafa árin eflaust verið lengri í huga Olla en mörg önnur sem þau áttu saman. Þau Olli og Helga voru Fannari afar kær þar sem hann ólst upp á heimili þeirra, fyrstu sex ár æv- innar. Hann leit alltaf á Vallholt 3 sem sitt annað heimili. Ég held að það hafi enginn verið Olla fremri í augum Fannars. Það eru ekki allir svo heppnir í lífinu að eiga svo góða og langa samleið með afa sínum og ömmu eins og þau Fannar, Hafrún og Hjörtur hafa átt. Fyrir það eru þau bæði þakklát og ég held á margan hátt betri einstaklingar til að takast á við lífið. Við munum varðveita allar þær góðu minningar sem við eigum um Olla afa og reyna að nýta okkur í framtíðinni það sem við lærðum af honum. Ekki er hægt að ljúka svona OLIVER KRISTJÁNSSON Elsku Olli, betri nágranna er ekki hægt að hugsa sér. Þökkum allar góðu stund- irnar og spjall í gegnum árin. Megi Guð vera með þér. Fjölskyldan Vallholti 5, Ólafsvík. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.