Morgunblaðið - 23.04.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 23.04.2005, Qupperneq 48
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Æ, NEI! ÉG ÞARF VIRKILEGA AÐ KOMAST Í KLIPPINGU PRÓFAÐU AÐ FARA ÚR HÁRUM. ÞAÐ ER MIKLU ÓDÝRARA Í DAG ER SUMARDAG- URINN FYRSTI OG ÉG ER VILTUR MEÐ FUGLI... SUMARDAGURINN FYRSTI?! Æ, NEI! ÞETTA ER DAGURINN SEM ÉG EYÐI ALLTAF Í ÞAÐ AÐ SITJA HEIMA, MEÐ KALLA, OG HORFA Á SJÓNVARPIÐ! KALLI Á EFTIR AÐ VERÐA MJÖG FÚLL MAMMA, MÁ ÉG HORFA Á MORÐKISUNA FRÁ MARS? NEI MAMMA, VERÐ ÉG AÐ BORÐA ÞENNAN ÓGEÐSLEGA ASPAS? JÁ MAMMA, MÁ ÉG VAKA TIL MIÐNÆTTIS? NEI AF HVERJU GETUR EKKI VERIÐ MEIRA SAMRÆMI Á MILLI ÞESS SEM ER HOLLT OG ÞESS SEM ER SKEMMTILEGT? Svínið mitt © DARGAUD HÆ ELSKAN ÞÚ VARST AÐ MISSA AF ÞÆTTI Í SJÓVARPINU, ADDA, ÞAR SEM SVÍN VORU Í AÐALHLUTVERKI ÞETTA VAR ÞÁTTUR UM ÍGRÆÐSLUR Á SVÍN? Ö... HVERNIG Á ÉG AÐ ÚTSKÝRA ÞETTA? SVÍN ERU VEL ÚTBÚIN TIL ÞESS AÐ HÆGT SÉ AÐ NOTA HLUTA ÚR ÞEIM TIL ÞESS AÐ BJARGA MANNSLÍFUM EINMITT! ÞETTA ERU SVÍN SEM BJARGA MANNSLÍFUM ÞETTA ER ALVEG FRÁBÆRT MÉR FINNST ÞAÐ EKKI! ERTU Á MÓTI...? ÞEIR EIGA AÐ LÁTA SVÍNIN Í FRIÐI! AF HVERJU NOTA ÞEIR EKKI BARA FÓLK? ÞAÐ ER NÓG AF HRÆJUM Í KIRKJU- GARÐINUM EN VIÐ GÆTUM NÝTT SVÍN BETUR EN VIÐ GERUM GROIN! ÉG HELD AÐ RÚNAR HAFI RÉTT Á ÞVÍ AÐ TJÁ SIG UM MÁLIÐ GROIN GRRROINNN GROIN GROIN GGGROIIIN HVAÐ SAGÐI HANN? HANN ER EKKI Á MÓTI HUG- MYNDINNI EN FINNST AÐ ÞAÐ ÆTTI AÐ RÍKJA JAFNRÉTTI Í ÞESSU EINS OG ÖÐRU OG ÞAÐ ÆTTI AÐ BÚA MENN UNDIR AÐ BJARGA SVÍNUM Dagbók Í dag er laugardagur 23. apríl, 113. dagur ársins 2005 Víkverji er eflaustekki sá fyrsti til þess, en vill samt nota tækifærið til að óska forsvarsmönnum Office 1 verslananna fyrir hönd allra neytenda, fyrir það að hafa stuðl- að að lækkun verðs á erlendum tímaritum. Vara þessi hafði fram að þessu verið boðin til sölu hér á landi á svo svimandi háu verði að ekki er til yfir það betra orð en okur. Víkverji hefur frá því hann man eftir sér verið í hópi þeirra fjölmörgu Íslendinga sem vilja víkka sjóndeild- arhring sinn með því að kaupa og lesa reglulega erlend tímarit. Ætíð sveið Víkverja þó mjög hversu miklu hann þurfti að punga út fyrir þessum inn- fluttu „munaðarvörum“ og enn þá sárara var að sjá prentað á kápur tímaritanna margfalt lægra verð í framleiðslulandi tímaritanna. Skýringar á þessu háa verði hafa alltaf verið sagðar tengjast háum flutningskostnaði, gjöldum og skött- um og maður var satt að segja næst- um búinn að kaupa það að sú væri raunin, að ekki væri mögulega hægt fyrir verslunarmenn að bjóða erlend tímarit til sölu á lægra verði en raun bar vitni. En skyndilega stíg- ur fram aðili sem býð- ur þessu viðtekna ok- urverði birginn og telur hægan grundvöll vera fyrir því að lækka verðið á þessum vörum um helming, stundum meira. Og viti menn; hinir fylgja á eftir og lækka verðið sitt, líka þeir sem fram til þessa höfðu boðið tímarit til sölu á miklu hærra verði. Þetta kallar Víkverji virka og góða samkeppni. x x x Og fyrst rætt er um bætta bók-menningu á Íslandi þá fagnar Víkverji mjög stórauknu framboði á kiljum. Loksins virðist hafa orðið til markaður fyrir kiljur hér á landi, en lengi vel hélt Víkverji að landsmenn væru virkilega svo snobbaðir að vilja ekki eiga bækur í slíku broti, jafnvel þótt þær væru meira en helmingi ódýrari (sem var náttúrlega skýrasta sönnun þess að innihaldið skipti bókaþjóðina meira máli en umbúð- irnar). En nú er farið að gefa út allar helstu bækur í kiljuformi sem getur vart annað en stuðlað að aukinni bók- sölu – og það sem meira máli skiptir – meiri lestri. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is                Grafíksafn Íslands | Í dag kl. 15 verður opnuð sýning á vatnslitamyndum eftir Daða Guðbjörnsson í Grafíksafni Íslands, sal íslenskrar Grafíkur, Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Á sýningunni eru um tuttugu verk öll unnin á síðustu tveimur árum en akvarell-tæknin þykir henta vel fyrir hin ljóðræna stíl sem Daði hefur verið að þróa árum saman. „Hinn frjálsi en taktfasti andi barokksins er að ryðja sér til rúms með öllum sínum léttleika í formi, hvort sem þar er hættulegur öngull veiðimannsins eða fagur háls svansins. Næstu þrjár helgar verður Daði barokkkonungur Íslands og Grafíksafnið verður höll léttra lína, boga og sveigja,“ segir í kynningu. Sýningin Daða í Grafíksafninu stendur til 8. maí. Opið er frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14 til 18. Morgunblaðið/RAX Daði í Grafíksafninu MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir. (Fil. 4, 13.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.