Morgunblaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 128. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Fá›u
ástarþökk
í sumarbústaðnum ÍSLEN
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
28
36
3
0
5/
20
05
Knattspyrna | 20 síðna blaðauki um Landsbankadeild karla í sumar Kynning á
liðunum Spá sérfræðinga Morgunblaðsins Bílar | Audi A6 reynsluekið Að aka
aftan á jeppa Torfæruhjólin komin á kreik Íþróttir | Rooney klipinn í eyrað?
LANDSBANKINN og Kaupþing
banki tengjast miklum viðskiptum í
gær með bréf í enska knattspyrnu-
félaginu Manchester United.
Bandaríski auðjöfurinn Malcolm
Glazer, eigandi ruðningsliðsins
Tampa Bay Buccaneers, rær nú að
því öllum árum að eignast félagið og
hefur hann samkvæmt nýjustu upp-
lýsingum eignast um 70% hlutafjár í
félaginu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur breska verðbréfafyr-
irtækið Teather & Greenwood, sem
er í eigu Landsbankans, starfað fyr-
ir hönd Glazers og mun fyrirtækið
hafa keypt nær 112 milljónir hluta í
Man. Utd. fyrir hans hönd í gær.
Það eru nær 43% hlutafjár en fyrir
átti Glazer hátt í 30% hlutafjár.
Samkvæmt tilkynningu til kaup-
hallarinnar í London miðlaði Kaup-
þing í Lúxemborg, fyrir hönd selj-
anda, 17 milljónum hluta í knatt-
spyrnufélaginu í gær á kaupverðinu
300 pens/hlut sem er einmitt það
verð sem Glazer greiðir.
Íslenskir bankar í boltanum
Miðla bréfum í yfirtöku Glazers á Manchester United
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ENN kom til blóðugra mótmæla í
Afganistan í gær, þriðja daginn í
röð, vegna fréttar fyrir skömmu í
bandaríska tímaritinu Newsweek
um að bandarískir fangaverðir í
Guantanamo-herstöðinni á Kúbu
hafi svívirt Kóraninn með því að
sturta honum niður úr klósetti til að
hrella þannig múslímafanga. Fjöldi
Afgana er meðal rösklega 500
fanga í Guantanamo og hafa óeirðir
orðið vegna málsins í 10 af alls 34
héruðum Afganistans. Hafa sjö
manns fallið í átökum mótmælenda
við lögreglu og hermenn. Einnig
hefur verið mótmælt í pakistönsku
landamæraborgunum Peshawar og
Quetta en þar er enn mikið af afg-
önskum flóttamönnum. Richard
Myers, forseti bandaríska herráðs-
ins, sagði í gær að farið hefði verið
síðustu daga yfir öll gögn um yfir-
heyrslur í Guantanamo en ekki
fundist neitt sem staðfesti frásögn-
ina. Hins vegar hefði fangi eitt sinn
mótmælt með því að rífa síður úr
Kóraninum og stinga í klósett til að
stífla það.
Reuters
Mótmæli í
Afganistan
Afganskur unglingur í höfuðborginni Kabúl hrópar slagorð gegn Bandaríkjamönnum í gær. Um er að
ræða öflugustu mótmæli gegn Bandaríkjamönnum síðan þeir réðust inn í landið haustið 2001.
AUKIN verðsamkeppni á matvörumarkaðnum
átti stóran þátt í því að vísitala neysluverðs
lækkaði um 0,54% milli apríl og maí. Á árs-
grundvelli mælist verðbólgan nú 2,9% saman-
borið við 4,3% í aprílmánuði. Sé aðeins litið til
matar- og drykkjarvöru lækkaði hún um 4%
milli mánaða. Hækkun á fasteignum og bensíni
kom í veg fyrir frekari lækkun vísitölunnar.
Þetta er engu að síður meiri lækkun neyslu-
vísitölunnar en sérfræðingar á fjármálamarkaði
höfðu reiknað með, en þeir telja að hér sé um
tímabundna lækkun að ræða og að verðbólgan
muni aukast á ný síðar á árinu. Eftir sem áður
muni Seðlabankinn hækka stýrivexti sína í byrj-
un næsta mánaðar.
Af samtölum við talsmenn þeirra tveggja lág-
vöruverðsverslana, sem einna mest hafa barist
á markaðnum undanfarið, Bónuss og Krónunn-
ar, má hins vegar ráða að samkeppnin verði
áfram þetta hörð og matvara eigi jafnvel eftir að
lækka enn frekar.
Guðmundur
Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bón-
uss, segir verðsam-
keppnina alltaf
hafa verið til staðar
en hún verði vænt-
anlega áfram jafn-
hörð og að undan-
förnu. Gengið hafi
að vísu verið hag-
stætt og innfluttar
vörur lækkað í
verði en Guðmund-
ur minnir einnig á orð Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, forstjóra Baugs, eiganda Bónuss, um
að útrás fyrirtækisins í Bretlandi muni skila sér
í lægra vöruverði til neytenda á Íslandi.
Í ljósi aukinnar samkeppni í matvörunni telur
Guðmundur ástæðu fyrir Hagstofuna að auka
enn frekar vægi lágvöruverðsverslana í neyslu-
vísitölunni. Sífellt fleiri neytendur stundi sín
viðskipti þar og því til stuðnings nefnir Guð-
mundur að viðskiptavinum Bónuss hafi fjölgað
um 25% miðað við sama tíma í fyrra.
Hróar Björnsson, rekstrarstjóri Krónunnar,
segir verslunina komna til að vera í baráttunni á
matvörumarkaðnum. Krónan hafi skilgreint sig
sem lágvöruverðsverslun og ætli að halda sam-
keppninni áfram eins lengi og með þarf. „Við
förum bara alla leið, höfum mikið og breitt vöru-
úrval og stefnum að því að viðskiptavinurinn
geti klárað öll sín innkaup hjá okkur,“ segir
Hróar og gleðst yfir því að lækkandi matvöru-
verð hafi stuðlað að lækkun verðbólgunnar.
80% verðmunur
80% munur reyndist á hæsta og lægsta verði
vörukörfunnar í verðkönnun sem verðlagseftir-
lit ASÍ gerði á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag.
Karfan kostaði um 4.600 krónur í Bónus en
rúmlega 8.300 kr. í Nóatúni.
Aukin samkeppni í mat-
vöru lækkaði verðbólguna
Lágvöruverðsverslanir reikna með áframhaldandi lækkun á matvöru
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Lækkun verðbólgunnar/4
80% munur/26
KENNSLUMÁLARÁÐHERRA Svíþjóð-
ar, jafnaðarmaðurinn Ibrahim Baylan, lagði
í gær fram stjórnarfrumvarp um aukinn
rétt nemenda til að fá bætur hafi þeir orðið
fyrir einelti eða réttur þeirra verið brotinn
með öðrum hætti. „Allir ættu að geta sótt
stofnun sem einkennist af öryggi og virð-
ingu fyrir fólki,“ sagði Baylan. „Þetta er
einkum brýnt í skólum sem skylda er að
sækja [grunnskólum].“
Tekið er fram í texta laganna að ekki
megi mismuna nokkrum nemanda í for-
skóla, grunnskóla eða stofnunum fullorð-
insfræðslu vegna kynferðis, þjóðernis, trú-
ar, kynhneigðar eða fötlunar. Engu skipti
hver beri sök á misréttinu eða eineltinu,
nemandi eða kennari. Skólar skulu sjá til
þess að ekki sé brotið á neinum og geta
þurft að greiða sekt takist það ekki.
Fari málið fyrir dómstóla verður skólinn
að sanna að ekki hafi verið um brot að ræða
eða sanna að allt hafi verið gert til að hindra
brot. Séð verður til þess að útgjöld vegna
málskostnaðar fæli ekki efnalitla nemendur
og fjölskyldur þeirra frá því að leita réttar
síns.
Frumvarpið hefur verið gagnrýnt harka-
lega, ekki síst af hálfu talsmanna sveitarfé-
laga og kennara. „Tillagan mun valda ör-
yggisleysi meðal kennara og ástæðulausum
kærum mun fjölga gríðarlega,“ segir Metta
Fjelkner, talsmaður Landssambands
sænskra kennara.
Tryggðar
bætur fyrir
einelti
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
!" #
$
%
♦♦♦
Seoul. AP. | Símafyrirtæki í Suður-Kóreu,
KTF, sagðist í gær ætla að bjóða hundaeig-
endum nýja þjónustu. Geta þeir sem vilja
fylgjast með líðan gæludýrsins þegar þeir
eru ekki heima látið liðsmenn KTF meta
ástandið með því að hlusta á gelt úr nema á
dýrinu og fengið síðan smáskilaboð með
niðurstöðunni.
Símnotandinn verður að tengja farsíma
sinn við Netið og láta fyrirtækinu í té upp-
lýsingar um hundinn, m.a. hvaða tegund sé
um að ræða og hve gamall hann sé. Liðs-
menn KTF meta síðan hvort hvutti sé að
segja „Ég er harðánægður“ eða „Mér líður
ömurlega“.
Einnig er hægt að senda hundinum mik-
ilvæg skilaboð sem þýdd eru úr mannamáli
yfir á gelt.
Túlka gelt fyrir
eigandann
Landsbankadeildin, Bílar og Íþróttir