Morgunblaðið - 13.05.2005, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKEPPNI TIL GÓÐA
Aukin verðsamkeppni á mat-
vörumarkaðnum átti stóran þátt í
því að vísitala neysluverðs lækkaði
um 0,54% milli apríl og maí. Á árs-
grundvelli mælist verðbólgan nú
2,9% samanborið við 4,3% í apríl-
mánuði. Sé litið til matar- og
drykkjarvöru lækkaði hún um 4%
milli mánaða. Hækkun á fasteignum
og bensíni kom í veg fyrir frekari
lækkun vísitölunnar.
Dregur úr verðhækkunum
Verulega mun draga úr verð-
hækkunum á fasteignum þegar líður
á árið. Stóraukið framboð íbúða á
höfuðborgarsvæðinu mun þó ekki
leiða til almennra verðlækkana á
húsnæði samkvæmt mati greining-
ardeildar Landsbanka Íslands.
Lög gegn einelti
Sænska stjórnin hefur lagt fram
frumvarp sem kveður á um aukin
rétt nemenda til að fá bætur hafi
þeir orðið fyrir einelti eða annars
konar broti á réttindum sínum í
skólum. Munu skólar geta þurft að
greiða sekt ef dómstólar komast að
þeirri niðurstöðu að þeir hafi ekki
lagt sig fram um að hindra brotin.
Óeirðir í Afganistan
Enn kom til blóðugra mótmæla í
Afganistan í gær vegna orðróms um
að bandarískir fangaverðir í Guant-
anamo hafi svívirt Kóraninn. Hafa
nú sjö manns látið í lífið í mótmæl-
unum.
Rússar viðurkenni glæpi
Lettneska þingið skoraði í gær á
rússnesk stjórnvöld að viðurkenna
og bæta fyrir þá glæpi sem Sovét-
stjórnin stóð fyrir í Lettlandi þá
hálfu öld sem landið var undir stjórn
kommúnista.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Fréttaskýring 8 Minningar 34/41
Viðskipti 16 Skák 48
Erlent 18/19 Hestar 45
Minn staður 20 Myndasögur 46
Höfuðborgin 22 Dagbók 46
Akureyri 22 Staður og stund 47
Suðurnes 21 Af listum 51
Landið 23 Leikhús 50
Menning 27 Bíó 54/57
Umræðan 28/33 Ljósvakamiðlar 58
Bréf 33 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
!#
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra og
Lenka Ptácníková skákmeistari
undirrituðu í gær samning um laun
úr launasjóði stórmeistara. Und-
irritunin fór fram í Flataskóla í
Garðabæ en Lenka tefldi fjöltefli við
nemendur skólans við það tækifæri.
Lenka hlaut íslenskan ríkisborg-
ararétt á síðasta ári og er tíundi
stórmeistarinn sem Ísland eignast.
Hún er einnig fyrsta konan sem
hlýtur laun úr Launasjóði stórmeist-
ara.
Morgunblaðið/Eyþór
Lenka Ptácníková á
stórmeistaralaun
Í STAÐ þess að vista börn og ungmenni, sem
glíma við andfélagslega hegðun eða vímuefna-
neyslu, á stofnunum er mun árangursríkara að
notast við fjölþáttameðferð, þ.e. Multisystem
treatment (MST), í nærsamfélagi barnsins. Þetta
er niðurstaða bandarískra og norskra fræði-
manna, en fjölþáttameðferðin var kynnt á ráð-
stefnu sem Barnaverndarstofa stóð fyrir í gær.
Fjölþáttameðferð er meðferðarstefna, sem rutt
hefur sér mjög til rúms í Bandaríkjunum og Nor-
egi á síðustu árum, en hún miðar að því að vinna
bug á andfélagslegri hegðun, afbrotahneigð og
vímuefnaneyslu barna og unglinga með því að
ráðast á þekkta áhættuþætti hjá barninu sjálfu
og í félagslegu umhverfi þess. „Þessi meðferð er
frábrugðin hefðbundinni stofnanameðferð að því
leyti að hún er veitt á heimili barnsins og beinist
fyrst og fremst að fjölskyldunni sem heild, að
barninu sjálfu og þess nánasta félagslega um-
hverfi, s.s. skóla og jafningjahópnum,“ segir
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndar-
stofu, og tekur fram að meðferðarstefnan hafi
verið þróuð á grundvelli ítrekaðra rannsóknar-
niðurstaðna sem benda til þess að hefðbundin
stofnanameðferð skili yfirleitt litlum eða mjög
takmörkuðum árangri og í sumum tilfellum jafn-
vel neikvæðum árangri.
Bæði ódýrari meðferð
og árangursríkari
„Árum saman gekk meðferð í svona málum út
á að fjarlægja vandræðabörnin af heimilinu og
láta sérfræðingana „lækna “ þau á stofnunum og
senda svo aftur heim til sín. Reynslan hefur hins
vegar sýnt okkur að það er ekki nóg, því það þarf
líka að skoða fjölskylduna og nærsamfélagið og
hugsanlega gera þar breytingar ef nást á raun-
verulegur árangur til frambúðar,“ segir Terje
Ogden, prófessor við Óslóarháskóla, sem haft
hefur með höndum árangursmat á innleiðingu
fjölþáttameðferðar í Noregi.
Frá 1999, þegar byrjað var að bjóða upp á
meðferðina þar í landi, hafa alls rúmlega fimm-
tán hundruð fjölskyldur þegið meðferðina, en
hún virðist, að sögn Ogden, spyrjast afar hratt út
meðal foreldra sökum þess hve ánægðir þeir eru
með árangurinn. „Helsti árangur meðferðar-
stefnunnar felst í því að okkur tekst að koma
börnunum aftur í skóla, þau haldast aftur heima
við á kvöldin, auk þess sem hægt er að stöðva
vímuefnaneyslu og afbrotahneigð þeirra.“ Að-
spurður segist Bragi vilja sjá fjölþáttameðferð
notaða hérlendis. „Hjá Barnaverndarstofu höfum
við markað þá stefnu að afar eftirsóknarvert sé
að gera tilraunir með þetta meðferðarúrræði
hérlendis.
Reynsla Norðmanna sýnir að árangur með-
ferðarinnar tekur hefðbundinni stofnanameðferð
fram,“ segi Bragi og bendir á að fjölþáttameðferð
kosti að meðaltali aðeins 10–20% af heildarkostn-
aði við stofnanameðferð. „Þannig að aðferðin er
bæði miklu ódýrari og hún er, samkvæmt nið-
urstöðum rannsókna, miklu árangursríkari.“
Börn fá nýja meðferð
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
TÓLF manna kviðdómur í Flórída mælti með því á
miðvikudag að Sebastian Young, banamaður Lucille
Mosco, hálfíslenskrar konu, yrði dæmdur í lífstíð-
arfangelsi en hinn kosturinn sem kviðdómurinn
hefði getað mælt með var líflátsdómur. Eftir að nið-
urstaða kviðdómsins lá fyrir dæmdi dómarinn
Young í tvöfalt lífstíðarfangelsi, án möguleika á
reynslulausn.
Pensacola News Journal hefur eftir Jóni Atla Júl-
íussyni, syni Lucille, að hann sé ánægður með nið-
urstöðuna, hvort sem hún hefði orðið líflátsdómur
eða lífstíðarfangelsi. „Þessu er lokið og við getum
haldið áfram að lifa lífinu,“ sagði hann. Sebastian
Young var dæmdur fyrir að hafa myrt Lucille og
fyrir að reyna að myrða Jón Atla, sem komst við ill-
an leik undan á flótta.
Daginn áður en Young var dæmdur til refsingar
hafði kviðdómurinn komist að þeirri niðurstöðu að
hann væri sekur um morðið og morðtilraunina. Við
tók réttarhald þar sem fjallað var um hvort hann
skyldi dæmdur til dauða eða í lífstíðarfangelsi. Jón
Atli og Róbert Mosco, bróðir Lucille, gáfu stuttar
yfirlýsingar um hvaða áhrif morðið hefði haft á líf
þeirra. Þrettán manns báru vitni fyrir hönd Young
og kom þar m.a. fram að hann hefði alist upp við
sára fátækt og verið vanræktur sem barn. Móðir
hans lýsti því að hún hefði eignast fyrsta barn sitt
þegar hún var 14 ára og þegar hún varð 18 ára voru
börnin orðin þrjú. Þau hefðu búið í tveggja her-
bergja íbúð sem hún læsti á morgnana áður en hún
fór til vinnu. Í lokaræðu saksóknarans minnti hann á
að erfið æska leysti Young ekki undan siðferðislegri
ábyrgð, segir í frétt Pensacola News Journal.
Hlaut tvo lífstíðardóma
Dæmdur til refsingar vegna morðs á hálfíslenskri konu í Bandaríkjunum
SAMKVÆMT launakönnun
Hagstofunnar, sem vitnað er til
á vef Samtaka atvinnulífsins
www.sa.is, hafa laun kvenna
hækkað jafnt og þétt umfram
laun karla frá árinu 1997.
Launabreytingarnar eru mæld-
ar ársfjórðungslega og byggjast
á ársbreytingu svokallaðra
reglulegra launa hjá sömu ein-
staklingum. Þær 25 kannanir
sem birtar hafa verið frá 4. árs-
fjórðungi 1998 hafa leitt í ljós að
laun kvenna hafa hækkað 22
sinnum umfram laun karla.
Í síðustu könnun, sem gildir
fyrir 4. ársfjórðung 2004, hækk-
uðu laun kvenna um 6,3% en
karla um 4,8% frá sama árs-
fjórðungi árið áður. Niðurstöð-
ur fyrir fjórða ársfjórðung und-
anfarin ár hafa allar sýnt
umtalsvert meiri hækkun á
launum kvenna en karla, oftast
um eða yfir 1% ár hvert. Þegar
niðurstöður fyrir 4. ársfjórðung
ár hvert eru tengdar saman í
vísitölu þá fæst sú niðurstaða að
laun kvenna hafa hækkað um
58% frá 4. ársfjórðungi 1997 en
karla um 48% á sama tíma.
Á vef SA kemur fram að þessi
þróun endurspegli að nokkru
leyti þá áherslu sem var í kjara-
samningum 2000–2003 þegar
lægstu launataxtar voru hækk-
aðir sérstaklega umfram laun
almennt. Í samningunum 2004
var einnig svipuð áhersla uppi
en þá með þeim hætti að ýmsar
aukagreiðslur voru færðar inn í
grunnlaun og kann sú þróun að
hafa komið konum frekar til
góða á almennum vinnumark-
aði.
Konur
hækka
meira en
karlar
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að framlengja gæsluvarðhald
til 15. júní nk. yfir manni sem
hefur verið ákærður fyrir inn-
flutning á 7,6 kílóum af amfeta-
míni til landsins.
Maðurinn var handtekinn í lok
október síðastliðins og hefur set-
ið í gæsluvarðhaldi síðan. Hefur
hann ávallt neitað sök en fíkni-
efnin voru keypt í Hollandi í júlí
á síðasta ári og flutt til Íslands
með skipi. Maðurinn hefur talið
framkomnar upplýsingar frá
öðrum sakborningum í málinu
rangar og ósannaðar. Fíkniefnin
fundust við leit tollvarða í
sendingunni og er þáttur manns-
ins talinn verulegur þar sem
hann er grunaður um að hafa
staðið að skipulagningu, fjár-
mögnun og kaupum á amfetamín-
inu. Umrætt brot getur varðað
allt að 12 ára fangelsi.
Hæstiréttur
staðfestir
gæsluvarðhald
BILUNAR varð vart í flugvél
Landgræðslu ríkisins, Páli
Sveinssyni, við flugtak frá
Reykjavíkurflugvelli um klukkan
hálftvö í gær. Heyrðu flugmenn-
irnir bank og drunur í hægri
hreyfli og sáu olíu leka úr hon-
um, að sögn Heimis Más Péturs-
sonar, upplýsingafulltrúa Flug-
málastjórnar.
Slökkt var á hreyflinum og
vélinni flogið hring yfir Faxaflóa
og áburður sem í henni var,
ætlaður til dreifingar, látinn
gossa í hafið til að létta vélina.
Var henni síðan lent heilu og
höldnu á Reykjavíkurflugvelli
aftur.
Rannsóknarnefnd flugslysa
hefur málið nú til athugunar.
Flugvél Land-
græðslunnar bilaði