Morgunblaðið - 13.05.2005, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NEMENDUR í 2. bekk grunnskólanna á Akureyri
komu saman í Glerárkirkju í gærmorgun og héldu
blokkflaututónleika. Spiluðu bæði hver skóli í sínu lagi,
fyrir aðra nemendur og gesti þeirra, foreldra og önnur
skyldmenni, og svo allir saman. Þetta voru krakkar úr
Brekkuskóla, Oddeyrarskóla, Giljaskóla, Glerárskóla,
Síðuskóla, Lundarskóla og Grunnskólanum í Hrísey,
sem tilheyrir nú orðið Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blásið í blokkflautur
HALLDÓR Ásgrímsson for-
sætisráðherra verður í opin-
berri heimsókn í Noregi
ásamt konu sinni, Sigurjónu
Sigurðardóttur, 13. til 15. maí.
Tilefnið er meðal annars að
liðin eru 100 ár frá því Norð-
menn öðluðust sjálfstæði og
norska konungdæmið var end-
urreist.
Í frétt frá forsætisráðuneyt-
inu kemur fram að ráðherra
muni eiga fund með Kjell
Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs, og verða for-
sætisráðherrahjónin viðstödd
setningu tónlistarhátíðar í
Harðangri, tónleika Dimitri og
Vladimirs Ashkenazy, ballett-
sýningu og fleiri menningar-
viðburði. Halldór Ásgrímsson
mun einnig afhenda norsku
þjóðinni gjöf frá Íslendingum í
tilefni aldarafmælisins.
Forsætis-
ráðherra
til Noregs
V
ísitala neysluverðs lækk-
aði um 0,54% á milli apr-
íl og maí sem þýðir að
verðhjöðnun ríkti milli
mánaða. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 2,9%, sem þýðir 2,9%
verðbólgu á ársgrundvelli. Tólf mán-
aða hækkun verðlags mældist 4,3%
hjá Hagstofunni í apríl sl. þannig að
verðbólgan nú er 1,4 prósentustigum
lægri en í aprílmánuði. Án tillits til
húsnæðisverðs lækkaði vísitala
neysluverðs um 0,39% milli mánaða.
Meginskýringin á lækkun vísitölu
neysluverðs milli apríl og maí er sögð
tvíþætt, annars vegar hörð verð-
samkeppni á matvörumarkaði og
hins vegar breytt aðferð Hagstof-
unnar við útreikning vaxta af hús-
næðislánum. Ekki má heldur gleyma
því að vísitalan tók mikið stökk upp á
við í maí á síðasta ári, fór þá upp í 8%
á ársgrundvelli.
Húsnæðislán eru sem kunnugt er
langflest verðtryggð miðað við vísi-
tölu neysluverðs, eða um 95% af öll-
um lánum. Með lækkun vísitölunnar
um 0,54% milli mánaða lækka af-
borganir fólks af verðtryggðum lán-
um sem þessu nemur og eftirstöðvar
lána lækka þegar vísitöluhækkanir
síðustu mánaða ganga í raun til baka.
Verðbólgulækkunin gæti haft
áhrif á fleiri þætti en afborganir
lána, s.s. húsnæðisverð og laun, en
þá þyrfti hún að vera viðvarandi yfir
lengri tíma en þennan eina mánuð.
Er því óvarlegt að draga of miklar
ályktanir út frá þessari einu lækkun.
Verð á dagvöru lækkaði um
fjögur prósent milli mánaða
Hagstofan segir verðsamkeppni á
matvörumarkaðnum enn vera til
staðar en verð á dagvöru lækkaði um
4% milli apríl og maí. Aðeins sú
breyting lækkar neysluvísitöluna um
0,65%.
Fyrr í þessum mánuði hafði Hag-
stofan tilkynnt breytingu á aðferð
við útreikning vaxta af húsnæð-
islánum í vísitölu neysluverðs. Mið-
ast vextirnir nú við meðaltal síðustu
tólf mánaða í stað fimm ára með-
altals áður. Þessi breyting leiddi til
0,45% lækkunar á vísitölunni að
þessu sinni. Auk þessa lækkaði þetta
12 mánaða meðaltal vaxtanna vísitöl-
una um sem svarar 0,11% milli apríl
og maí.
Á móti lækkunum á vísitölu
neysluverðs kemur að markaðsverð
húsnæðis hækkaði um 2,3% milli
apríl og maí en vísitöluáhrif þeirrar
hækkunar er 0,35%. Þá má nefna að
verð á bensíni og olíum hækkaði um
3,8% (vísitöluáhrif 0,18%), og verð á
fötum og skóm um 1,9% (0,10%).
Hækkun síðar á árinu
Fjármálasérfræðingar bankanna
virðast vera sammála um að lækkun
verðbólgunnar nú sé tímabundin,
hún muni aukast síðar á árinu, og
reikna þeir með að Seðlabankinn
haldi sínu striki í áformum um vaxta-
hækkanir.
Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, reiknar með að þrátt
fyrir verðbólgulækkun hækki Seðla-
bankinn vexti um 0,25 til 0,5% í byrj-
un júní. Edda bendir á að hennar
deild hafi alls ekki reiknað með þetta
mikilli lækkun á verðbólgunni í maí-
mánuði. Búist hafi verið við einhverri
lækkun milli mánaða, bæði vegna
breyttra útreikninga Hagstofunnar
og samkeppni á matvörumarkaði.
Telur Edda Rós þessa verðbólgu-
lækkun tímabundna og hún muni
ekki hafa áhrif á verðbólguspá Seðla-
bankans. Þróunin sé hins vegar í
rétta átt, ekki síst þegar skuldir
heimilanna lækka. Nú sé bara stóra
spurningin hvort verðsamkeppni á
matvörumarkaðnum haldi áfram.
Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka segir að lækkun verð-
bólgunnar sé ánægjuefni, verðbólg-
an hafi verið allt of há nú í ríflega ár,
bæði yfir verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans, en efri mörk verðbólgu-
markmiðsins eru 4,0%, og umfram
það sem telja megi til stöðugleika í
verðlagsmálum.
„Reikna má með því að enn dragi
úr verðbólgunni núna fram yfir mið-
bik ársins,“ segja sérfræðingar Ís-
landsbanka, sem telja jafnframt ólík-
legt að Seðlabankinn nái verðbólgu-
markmiði sínu á þessum tíma þó að
ekki sé hægt að útiloka það. Verð-
stríð á matvörumarkaði sé í eðli sínu
tímabundið og reikna megi með því
að lækkunaráhrif þeirra gangi til
baka að mestu á fáum vikum. Geng-
islækkun krónunnar undanfarið
muni síðan fara að segja til sín en
bent er á að krónan hafi lækkað um
tæp 7% frá lokum mars sl.
Greining Íslandsbanka telur að
frekari lækkun krónunnar muni síð-
an þrýsta verðbólgunni upp að nýju
er líða tekur á árið, svo mikið að
verðbólgan fari aftur út fyrir þol-
mörk peningastefnunnar um eða eft-
ir næstu áramót.
„Möndl“ með vísitöluna
„Þannig eru verðbólguhorfur ekk-
ert sérstaklega góðar og reiknum við
með því að Seðlabankinn bregðist við
með frekari hækkun vaxta á næst-
unni. Reiknum við með því að bank-
inn hækki vexti sína um allt að 0,5
prósentustig 3. júní næstkomandi
eða samhliða útgáfu á verðbólguspá
og ársfjórðungsriti bankans. Frekari
vaxtahækkana af hálfu bankans er
síðan að vænta fyrir lok árs,“ segja
Íslandsbankamenn.
Í Hálffimm fréttum Kaupþings
banka frá í gær segir m.a. að af við-
brögðum á fjármálamarkaði, lækkun
krónunnar og lækkun nafnvaxta
megi sjá að markaðsaðilar hafi tekið
þetta til vitnis um að Seðlabankinn
muni fara hægar í vaxtahækkanir en
áður hafi verið búist við. Lækkun
verðbólgunnar nú sé að miklu leyti
„möndl“ með vísitöluna sem hafi ekki
sterk áhrif á hana til lengri tíma litið.
Kaupþing banki segir ennfremur að
þrátt fyrir að neysluvísitalan hafi
lækkað milli mánaða bendi allar vís-
bendingar um framtíðina til þess að
hagkerfið sé á leið til mikillar of-
þenslu og aukinnar eftirspurnar,
sem muni leiða af sér verðbólgu. Af
þessum sökum er það álit Greining-
ardeildar Kaupþings banka að lækk-
un vísitölunnar nú muni ekki hafa
áhrif á vaxtahækkunarferli Seðla-
bankans. Stýrivextir muni því hækka
um 25–50 punkta við útgáfu Pen-
ingamála hinn 3. júní næstkomandi.
Fréttaskýring | Verðbólga á ársgrundvelli mælist nú um 2,9%, samanborið við 4,3%
í síðasta mánuði. Hörð verðsamkeppni á matvörumarkaðnum dró úr verðbólgunni
en sérfræðingar á fjármálamarkaði telja að verðbólgan muni aukast síðar á árinu.
Grétar Júníus Guðmundsson og Björn Jóhann Björnsson könnuðu markaðinn.
Lækkun verð-
bólgunnar sögð
tímabundin
Morgunblaðið/Golli
Enn samkeppni Verð á dagvöru lækkaði um 4% milli apríl og maí
samkvæmt mælingu Hagstofunnar, sem segir að hörð samkeppni ríki
enn á matvörumarkaði.
gretar@mbl.is, bjb@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað lög-
reglumann, sem ákærður var fyrir
fjárdrátt og brot í opinberu starfi
með því að hafa í starfi sínu sem lög-
reglufulltrúi dregið sér haldlagt fé,
870 þúsund krónur, sem hann hafði
fengið til varðveislu. Lögreglumað-
urinn var sakfelldur í héraðsdómi og
dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6
mánuði skilorðsbundið.
Lögreglumaðurinn neitaði frá
upphafi rannsóknar málsins stað-
fastlega að hafa dregið sér umrætt
fé. Hélt hann því fram að hann hefði
sett hin haldlögðu gögn í pappaöskju
á hillu í sameiginlegu rými en að ein-
hver þeirra lögreglumanna, sem fóru
með rannsókn málsins, hefði gengið
frá peningunum. Hæstiréttur taldi,
að í ljósi þess að engar reglur giltu
um það hver skyldi sjá um að koma
haldlögðum fjármunum í vörslu
skrifstofustjóra sem sæi um að
leggja þá inn á sérgreindan banka-
reikning og framburðar lögreglu-
manna fyrir dómi væri talið ósannað
að sakborningi hefði verið eða átt að
vera ljóst að peningunum var ekki
skilað til gjaldkera í framhaldi af
haldlagningu þeirra. Sú vanræksla
hans sem yfirmanns þeirra lögreglu-
manna, sem stóðu að húsleitinni um-
rætt sinn um að ganga úr skugga um
að búið væri að koma fjármununum
til gjaldkera, var ekki talin leiða til
refsiábyrgðar. Þá taldi Hæstiréttur
ekki, að skýringar lögreglumannsins
á þeim drætti, sem varð á afhend-
ingu peninganna, hefðu verið óeðli-
legar. Framburður yfirlögreglu-
þjóns um að lögreglumaðurinn hefði
í samtölum viðurkennt með óbeinum
hætti að hafa dregið sér peningana
var gegn neitun lögreglumannsins
ekki talinn hafa sönnunargildi í mál-
inu. Taldi Hæstiréttur, að ákæru-
valdið hefði ekki sannað sekt lög-
reglumannsins gegn neitun hans.
Málið dæmdu Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugs-
son og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Sýknaður
af ákæru
um fjár-
drátt
♦♦♦
ÞJÓRSÁRVERANEFND hefur
sent Umhverfisstofnun umsögn um
skipulagstillögu Samvinnunefndar
um miðhálendi Íslands varðandi
Norðlingaölduveitu. Eru þar ítrekuð
fyrri mótmæli gegn veitunni og 6.
áfanga Kvíslaveitu.
Rökstuðningur meirihluta nefnd-
arinnar er einkum sá að Þjórsárver
séu verðmætasta hálendissvæðið
með tilliti til líffræðilegra þátta eins
og tegundafjölbreytileika, freðmýra
og að vera minnst snortna gróður-
lendi hálendisins. Ekki hafi farið
fram mat á umhverfisáhrifum lóna,
stíflna, veituskurða og leiðigarða
austast í Þjórsárverum, né á lands-
lagsáhrifum framkvæmdarinnar við
friðlandsmörkin.
Nefndin telur heldur ekki ljóst að
framkvæmdin uppfylli skilyrði Jóns
Kristjánssonar, setts umhverfisráð-
herra, um að hún hafi ekki áhrif inn-
an friðlandsins.
Á vef Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands kemur fram að Þjórsárvera-
nefnd hafi greitt atkvæði um hvort
svara ætti erindi Samvinnunefndar
um miðhálendið. Var það samþykkt
með þremur atkvæðum gegn tveim-
ur. Andvígir voru fulltrúar Lands-
virkjunar og Ásahrepps sem töldu
nefndina ekki bæra um að svara er-
indinu. Studdist meirihluti nefndar-
innar við álit lögfræðings Umhverf-
isstofnunar, sem taldi að nefndinni
væri heimilt að svara erindinu.
Þjórsár-
veranefnd
ítrekar
mótmæli