Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ger›u flér dagamun og fagna›u vorinu á Nordica hotel. Vi› bjó›um
sannkalla›a draumadaga í maí- júní; gistingu fylgir morgunver›ur og
a›gangur a› líkamsrækt. Bóka›u gistingu og láttu drauminn rætast.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
16
15
0
Á NORDICA HOTEL Í MAÍ
DRAUMADAGAR
• Nordica SPA, heilsulind
• VOX veitingasta›ur
• Frí akstursfljónusta til
og frá mi›bæ
• Vildarpunktar
www.icehotels.isNordica I Loftlei›ir I Flughótel I Hamar I Flú›ir I Rangá I Klaustur I Héra›
Sími: 444 4000
TILBO‹
Gisting fyrir tvo í tveggja
manna herbergi,
morgunver›ur og
a›gangur a› líkamsrækt.
á mann alla virka daga
8.000 kr.Frá
Frambo› á herb. er takmarka›.
Á ég ekki bara að hringja í frúna og biðja hana að skutlast eftir þér, Mr. Blair?
Mannslíkaminn býryfir ótal aðferð-um og leiðum til
að bregðast við hungri en
er aftur á móti afar illa bú-
inn undir það að takast á
við offitu. Að sögn Stefáns
B. Sigurðssonar, forseta
læknadeildar Háskóla Ís-
lands, skýrist það e.t.v. af
því að í gegnum aldirnar
hefur mannkyn reglulega
þurft að takast á við mat-
arskort og hafa þá þeir
einstaklingar lifað af sem
voru best í stakk búnir lík-
amlega til að takast á við
langvarandi næringarskort.
Nokkuð hefur verið einblínt á
erfðir og umhverfi sem aðalor-
sakavalda offitu, en líkt og fram
kom í erindi Hildar Harðardóttur,
yfirlæknis á kvennadeild LSH og
lektors við HÍ, sem hún flutti á
málþingi sem bar yfirskriftina
„Offita og ofþyngd frá fæðingu til
fullorðinsára, orsakir og meðferð“
sem læknadeild HÍ, landlæknis-
embættið og franska sendiráðið
gengust fyrir í síðustu viku, benda
rannsóknir til þess að sé kona of
feit eða þung á meðgöngunni þá
getur það haft áhrif á það hvernig
barn hennar tjáir gen sín í fram-
tíðinni í þá veru að barnið þurfi að
glíma við offitu síðar á ævinni.
Rannsóknir á offitu barna og
unglinga er fremur ungt fræða-
svið, en sjónum er í auknum mæli
beint að því sviði enda telja sér-
fræðingar að fyrsti hluti ævi-
skeiðsins sé mótandi fyrir fram-
haldið. Þannig hefur, að sögn
Bertrands Lauth, barna- og ung-
lingageðlæknis, t.d. verið sýnt
fram á að brjóstagjöf hafi for-
varnaráhrif eða verndandi áhrif
gegn offitu hjá börnum alla vega
fram á unglingsár.
Hluti af því sem gerir fræði-
menn mjög hugsi í tengslum við
umræðuna um offitu er sú stað-
reynd að almennt virðist fólk ekki
borða svo mikið meira en það
gerði áður fyrr og fituneysla hef-
ur frekar minnkað en hitt. Samt
erum við að fitna. Að sögn Stefáns
hafa fræðimenn í auknum mæli
leitt sjónum sínum að öðrum þátt-
um í líferni fólks til að leita skýr-
inga á þessu. Meðal þeirra rann-
sóknarspurninga sem sérfræð-
ingar hafa velt upp er hvort í fæðu
okkar sé eitthvað sem geri það að
verkum að við stækkum og þyngj-
umst sífellt meir. Bendir hann á
að í öllum landbúnaði er mark-
miðið ávallt að hlutir séu ræktaðir
eins hratt og hægt er til þess að
við fáum sem mest magn fyrir
sem minnst. Velta má upp þeirra
spurningu hvort þetta geti haft
áhrif í gegnum fæðukeðjuna á
mannfólkið, þ.e. hvort fæða okkar
innihaldi efni sem leitt geti til örv-
unar fitufrumumyndunar.
Vega þarf upp kyrrsetuna
Í erindi Jean-Michel Oppert,
prófessors við Parísarháskóla, á
fyrrnefndu málþingi kom fram að
hingað til hafa menn einblínt á lík-
amlega þjálfun, þ.e. að lausnin fel-
ist í því að fara í ræktina nokkrum
sinnum í viku. Oppert lagði hins
vegar aðaláherslu á hin gríðar-
legu áhrif kyrrsetunnar. Í nú-
tímaþjóðfélagi eru flestir í kyrr-
setu í 8–10 klst. á dag og þótt fólk
fari í ræktina í hálftíma til klukku-
tíma á dag þá nær sú hreyfing
ekki að vinna upp öll kyrrsetu-
áhrifin sem það verður fyrir dag-
langt.
Að mati Opperts er því mikil-
vægt að finna leiðir til þess að
virkja hreyfingu almennings á
þessu kyrrsetutímabili með því
t.d. að fá fólk til að velja ávallt
stigann í stað lyftunnar og standa
reglulega upp í vinnutímanum og
hreyfa sig svo eitthvað. Er aðal-
atriðið að auka vægi lítillar og
stöðugrar hreyfingar á kyrrsetu-
tímanum. Með þessu er þó ekki
verið að gera lítið úr mikilvægi
þjálfunar, enda benti Oppert á að
öflug hreyfing í hálftíma á dag,
s.s. að ganga hratt eða hjóla,
minnkar verulega hættuna á að fá
t.d. ýmsa kvilla síðar á ævinni, s.s.
hjartasjúkdóma og sykursýki.
Fræðslan þarf að vera
á jákvæðum nótum
Að mati Stefáns og Bertrands
er brýn þörf á vitundarvakningu
þar sem nútímatækni geri það að
verkum að fólk þarf sífellt minna
að hreyfa sig í hinu daglega lífi,
þannig senda t.d. flestir sam-
starfsfélögum sínum tölvupóst í
stað þess að labba við hjá viðkom-
andi til að bera upp erindi sín.
Leggja þeir þó áherslu á að vit-
undarvakningin og fræðslan til
handa almenningi þurfi að vera á
jákvæðum nótum, enda annars
hætt við að þeir sem nú þegar eru
of þungir verði fyrir aðkasti eða
finnist þeir misheppnaðir.
Bendir Bertrand á að þetta eigi
sérstaklega við um börn og ung-
linga, en rannsóknir sýna að of
þung börn geti þróað með sér
bæði líkamlega og andlega sjúk-
dóma vegna ofþyngdar sinnar.
Þannig eru of feit börn í mörgum
tilvikum með afar lélega sjálfs-
mynd sem gerir það að verkum að
þau forðast félagsleg samskipti og
leitast eftir því að einangra sig
frekar sem leiðir svo aftur til þess
að þau hreyfa sig enn minna.
Bendir hann á að hafa megi bein
áhrif á þyngd barna með því að
draga úr veru þeirra fyrir framan
sjónvarps- eða tölvuskjáinn.
Fréttaskýring | Hvernig vinna má á offitu
Þörf á vitund-
arvakningu
Líkaminn mun betur í stakk búinn til að
takast á við vannæringu en ofnæringu
Gera þarf hreyfinguna skemmtilega.
Auka þarf hreyfingu
almennings í kyrrsetutíma
Hluti af því sem gerir fræði-
menn mjög hugsi í tengslum við
umræðuna um offitu er sú stað-
reynd að almennt virðist fólk
ekki borða svo miklu meira en
það gerði áður og fituneysla hef-
ur frekar minnkað en hitt. Samt
erum við að fitna. Hafa fræði-
menn sökum þessa í æ ríkara
mæli beint sjónum sínum að
breyttum lifnaðarháttum í nú-
tímasamfélagi, þó sérstaklega sí-
aukinni kyrrsetu okkar.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is