Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 9
FRÉTTIR
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af peysum og bolum
í dag og á morgun
Kringlunni · sími 568 4900
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. kl. 10—16
Ný sending
Kvartbuxur - st. 36-56
Sími 544 2140
Gjafavörur
í úrvali
RALPH LAUREN
Polo bolur
yfir 40
mismunandi litir
SMÁRALIND - SÍMI 561 1690
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
Réttu stærðirnar
Hlíðasmára 11 • Kópavogi
Sími 517 6460
www.belladonna.is
Vertu
bella
donna
í sumar!
Laugavegi 63
sími 551 2040Silkitré og silkiblóm
Útikerin komin
ÚT er kominn sumarbæklingurinn
„Upp í sveit“ frá Ferðaþjónustu
bænda en í honum er að finna gist-
ingu og afþreyingu um allt land.
Helstu breytingar frá síðustu út-
gáfu er flokkun gististaða í heima-
gistingu, gistihús bænda og sveita-
hótel. Í heima-
gistingu er boðið
upp á einfalda en
þægilega gist-
ingu, í gistihús-
um bænda er að
finna fjölbreytt
úrval af gistingu í
herbergjum með
og án baðs, en
nýja skrautfjöðr-
in eru sveitahótelin þrettán þar sem
meira er lagt upp úr aðbúnaði og
þjónustu við gesti. Þá eru margir
ferðaþjónustubændur með sumar-
hús. Ferðaþjónustubændur bjóða
upp á ýmsa afþreyingu; hestaferðir,
veiði, gönguferðir, fuglaskoðun, golf,
fjórhjólaferðir, siglingar og afslöpp-
un í heitum pottum. Um 150 eru inn-
an Ferðaþjónustu bænda, þar af eru
yfir 30 meðlimir í félaga- og um-
hverfisvottunarsamtökunum Green
Globe 21.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni www.sveit.is. Þá er sumarbæk-
lingnum dreift á Essó-bensínstöðvar
og upplýsingamiðstöðvar.
Gisting og
afþreying um
allt land
NÍU umhverfis- og náttúruverndar-
samtök hafa tekið höndum saman í
þeim tilgangi að heiðra verðugan
einstakling fyrir einstakt framlag til
náttúru- og umhverfisverndarmála.
Markmið með þessu er að vekja at-
hygli landsmanna á verkum þeirra
sem vinna vel og ötullega að verndun
umhverfis- og náttúru. Að verkefn-
inu standa Fuglavernd, Hið íslenska
náttúrufræðifélaga, Landvernd,
Náttúruverndarsamtök Austur-
lands, Náttúruverndarsamtök Ís-
lands, Náttúruverndarsamtök Suð-
urlands, Náttúruverndarsamtök
Vesturlands, Samtök um náttúru-
vernd á Norðurlandi (SUNN) og Sól
í Hvalfirði. Valnefnd óskar eftir til-
lögum um einstakling sem vegna
verka sinna og athafna á undanförn-
um árum er þess verðugur að hljóta
þessa viðurkenningu. Æskilegt er að
tilnefningu fylgi greinargerð. Tillög-
ur skulu sendar skrifstofu Land-
verndar á Ránargötu 18, 101
Reykjavík eða til Náttúruverndar-
samtaka Íslands, Hringbraut 121,
107 Reykjavík og skal umslagið
merkt „Viðurkenning – tilnefning“.
Skilafrestur er til 18. maí nk.
Óska tilnefn-
inga til verð-
launa fyrir
náttúruvernd
♦♦♦
ÁHUGALEIKHÚS atvinnumanna
sýnir „Ódauðlegt verk um stjórn og
stjórnleysi“ í Klink&Bank við Braut-
arholt í kvöld kl. 21. Verkið er unnið
eftir hugmynd Steinunnar Knúts-
dóttur sem jafnframt er leikstjóri
verksins.
Í fréttatilkynningu um sýninguna
segir: „Verkið skoðar mannlegt eðli í
gegnum hugmyndina um stjórn og
stjórnleysi og spyr um leið áleitinna
spurninga um tilvist mannsins, til-
gang lífsins og guðlegt inngrip.“
Stjórn og
stjórnleysi
♦♦♦