Morgunblaðið - 13.05.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Óvænt pólitísk tíðindi urðu ásíðasta starfsdegi þingsins ívetur. Gunnar Örn Örlygs-
son alþingismaður tilkynnti á þing-
fundi skömmu fyrir þinglok að
hann hefði sagt sig úr þingflokki
Frjálslynda flokksins og gengið til
liðs við sjálfstæðismenn. Nokkrum
mínútum fyrir tilkynningu þing-
mannsins hafði þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins samþykkt sam-
hljóða ósk hans um að ganga í
þingflokkinn.
Tíðindin komu á óvart enda ekki
á hverjum degi sem sitjandi þing-
maður skiptir um flokk. Hvað þá að
þingmaður færi sig milli stjórnar
og stjórnarandstöðu. Það er þó ekki
einsdæmi. Kristinn H. Gunnarsson,
þá þingmaður utan flokka, gekk t.d.
til liðs við þingflokk framsóknar-
manna í desember árið 1998. Tæp-
um tveimur mánuðum áður hafði
hann sagt sig úr þingflokki
Alþýðubandalagsins. Með vista-
skiptunum gekk hann úr stjórn-
arandstöðu yfir í stjórnarliðið. Þar
hefur hann verið allar götur síðan,
þ.e. í stjórnarliðinu, þótt ýmsir
myndu sennilega telja hann til
„órólegu“ deildarinnar. Mér eru
t.d. minnisstæð svör Davíðs Odds-
sonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, fyrir u.þ.b. ári, þegar
fjölmiðlamenn spurðu hann hvort
allir stjórnarþingmennirnir styddu
breytingarnar á fjölmiðlafrumvarp-
inu. Þá svaraði hann eitthvað á
þessa leið: „Það fer eftir því hvað
þið kallið Kristin H. Gunnarsson!“
x x x
En aftur að málefnum Gunn-ars Örlygssonar. Fréttinum hann fór að kvisast um
þinghúsið á sjötta tímanum á mið-
vikudag. Ekkert bólaði þó á form-
legri staðfestingu; hvorki frá Gunn-
ari né frá öðrum sem málið varðaði.
Á elleftu stundu dró hins vegar til
tíðinda, þegar Gunnar gekk í fylgd
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, inn í
þingflokksherbergi sjálfstæðis-
manna. Davíð Oddsson tók á móti
Gunnari í þingflokksherberginu
með orðunum: „Komdu sæll, gott
að fá þig.“ Þeir tókust síðan í hend-
ur. Að því búnu hófst þingflokks-
fundur. Fréttamenn biðu fyrir utan
og heyrðu þrisvar ef ekki fjórum
sinnum öflugt lófaklapp innan úr
þingflokksherberginu. Þingmenn
voru væntanlega að leggja blessun
sína yfir inntökubeiðni Gunnars!
Með vistaskiptum Gunnars eykst
meirihluti ríkisstjórnarflokkanna.
Stjórnarliðar eru orðnir 35 en
stjórnarandstæðingar 28. Þetta
þýðir að fjóra stjórnarþingmenn
þarf til að fella þingmál ríkisstjórn-
arinnar. Áður þurfti aðeins þrjá.
Þess má þó geta að varamaður
Gunnars, Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir, verður áfram í Frjáls-
lynda flokknum. Þurfi hann fjar-
vistarleyfi á þingi, kemur hún inn í
hans stað, og þar með eykst hlutur
stjórnarandstöðunnar að nýju.
x x x
En að síðustu. ÞingfundumAlþingis var frestað á tólftatímanum í fyrrakvöld.
Sama kvöld samþykkti þingheimur
27 frumvörp sem lög frá Alþingi.
Halldór Blöndal, forseti þingsins,
þótti stýra þeim atkvæðagreiðslum
með miklu öryggi og hraða. Til að
mynda voru atkvæði greidd um
sextán þingmál á níu mínútum í
einni lotunni. Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmaður Vinstri grænna,
kom eitt sinn í pontu, í miðri at-
kvæðagreiðslu, og sagðist vilja gera
grein fyrir atkvæði sínu „þótt ekki
væri nema til að gefa forseta þings-
ins tíma til að anda“.
Að öllum líkindum var þetta síð-
asti þingfundurinn sem Halldór
Blöndal stýrði sem forseti þingsins.
Stefnt er að því að Sólveig Péturs-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, taki við af honum næsta
haust. Ögmundur Jónasson,
þingflokksformaður Vinstri
grænna, gerði þetta að umtalsefni
við þinglok og sagði m.a.: „Halldór
Blöndal hefur gegnt embætti for-
seta þingsins frá því á vordögum
1999. Þótti mörgum vita á storma-
sama sambúð hans við þingið
hvernig hann handlék fundar-
hamarinn í upphafi forsetaferils
síns fremur sem verkfæri til stór-
átaka en léttan smíðisgrip úr trjá-
viði.“ Á heildina litið hefði Halldór
þó haldið merki Alþingis Íslendinga
á lofti af reisn og myndarskap. Síð-
ar sagði Ögmundur: „Um þau
ágreiningsmál sem upp hafa komið
hirði ég ekki að ræða nú, enda efast
ég ekki um að forseti Alþingis Hall-
dór Blöndal sé mér sammála um að
mistök eru til að læra af þeim, vítin
eru til að varast þau.“ Hló þá þing-
heimur enda hefur Halldór í for-
setatíð sinni vítt Ögmund fyrir um-
mæli sín á Alþingi.
Vítin eru til að varast þau!
EFTIR ÖRNU SCHRAM
ÞINGFRÉTTAMANN
arna@mbl.is
ÁKVÖRÐUN Gunnars Arnar Örlygssonar um að
ganga úr Frjálslynda flokknum yfir í Sjálfstæðis-
flokkinn kom forystumönnum Frjálslynda flokks-
ins mjög á óvart. Guðjón A. Kristjánsson, formaður
flokksins, segir að það sé alltaf vont að „missa mann
fyrir borð“, eins og hann orðar það, „en þetta er
hörkulið sem eftir er. Þetta þýðir enn meiri vinnu.
En við erum vanir að vinna mikið.“ Engan bilbug sé
að finna á Frjálslynda flokknum; flokkurinn haldi
áfram sínu striki.
Guðjón kveðst fyrst hafa heyrt af vistaskiptunum
frá fjölmiðlamönnum seint í fyrradag, eða sama dag
og Gunnar gekk formlega til liðs við sjálfstæðis-
menn. Guðjón segist hafa átt fund með Gunnari
deginum áður, þ.e. á þriðjudag, þar sem sá síð-
arnefndi greindi frá því að hann væri að hugsa um
að segja sig úr Frjálslynda flokknum. „Gunnar Ör-
lygsson hefur hins vegar aldrei sagt mér að hann
væri að sækjast eftir inngöngu í Sjálfstæðisflokk-
inn.“
Inntur eftir því hvort þessar breytingar séu áfall
fyrir flokkinn, segir Guðjón að þær séu fyrst og
fremst áfall fyrir kjósendur Gunnars. „Það liggur
náttúrlega skýrt fyrir að ekki einn einasti kjósandi
Frjálslynda flokksins taldi sig vera að kjósa þing-
mann fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kjósendurnir voru
að kjósa um stefnu Frjálslynda flokksins og
áherslur hans.“
Guðjón vísar því á bug að flokkurinn hafi færst
frá hægri yfir á vinstri kant stjórnmálanna, eins og
Gunnar heldur fram. „Áherslur Frjálslynda flokks-
ins hafa ekkert breyst í grófum dráttum. En ef
Gunnar hefur þróast til hægri eru það hans vaxt-
arverkir og hann verður að fylgja þeim.“
Guðjón segist einnig vilja minna á að Gunnar
hafi, ekki alls fyrir löngu, boðið sig fram til að gegna
varaformennsku í flokknum. Í þeim kosningum hafi
hann lýst því yfir að hann myndi taka því drengi-
lega ef hann myndi tapa. „Annað ætla ég ekki að
rifja upp. Hann verður sjálfur að gefa skýringar á
þessum sinnaskiptum og þá aðallega gagnvart fólk-
inu, sem kaus hann í góðri trú, sem fulltrúa þeirrar
stefnu sem Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir.“
Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður flokks-
ins, segir eins og Guðjón, að ákvörðun Gunnars hafi
komið á óvart. „Gunnar nefnir málefnaágreining
sem eina skýringu, en ég bendi á að hann hefur
ávallt fylgt okkur í öllum atkvæðagreiðslum inni á
þingi möglunarlaust. Hann hefur aldrei viðrað það
á þingflokksfundum að við ættum kannski að greiða
atkvæði öðruvísi en við höfum gert. Hann kom með
örfá mál inn á landsfund í byrjun mars og fékk eina
ályktun samþykkta. Aðrar tillögur dró hann til
baka í samráði við forystu fundarins. Við höfum
ekki orðið vör við neinn stórkostlegan málefna-
ágreining, sem ætti að réttlæta það að hann segði
sig úr flokknum.“ Gunnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að önnur ástæða fyrir úrsögn úr
flokknum væru samstarfsörðugleikar við Magnús
Þór. Sá síðarnefndi kveðst hins vegar ekki kannast
við samstarfsörðugleika. „Ég minni bara á að sjald-
an veldur einn þegar tveir deila. Ef hann er að
gagnrýna mig fyrir að tala ekki við hann get ég al-
veg eins gagnrýnt hann fyrir að tala ekki við mig.
Ég vísa þessu því til föðurhúsanna.“
„Stórkostleg kúvending“
Magnús Þór rifjar einnig upp að Gunnar hafi
boðið sig fram til varaformanns í flokknum, fyrir
tveimur mánuðum. Þar hafi hann lýst því yfir að
hann myndi ekki erfa það þótt hann tapaði kosning-
unum. „Nú eru aðeins liðnar átta vikur og hann er
farinn úr flokknum og yfir í raðir okkar höfuðand-
stæðinga. Hann er gjörsamlega búinn að snúa við
blaðinu. Virðist því ekkert vera að marka það sem
hann hefur áður sagt, hvorki í ræðu né riti. Þetta er
ein stórkostlegasta kúvending í íslenskum stjórn-
málum sem ég hef nokkurn tíma séð. Ég held það
hljóti að vera leitun að öðru eins.“
Margrét Sverrisdóttir, ritari og framkvæmda-
stjóri Frjálslynda flokksins, segir að Gunnar sé
fyrst og fremst að bregðast kjósendum sínum. Þeir
hafi hringt nær linnulaust til hennar síðasta sólar-
hringinn vegna tíðindanna. „Símalínur hafa verið
glóandi hjá mér frá því ákvörðun hans varð op-
inber,“ segir hún. „Flestir tala um að þeim finnist
ósanngjarnt að hann skuli hafa haft þingsæti af
flokknum með þessum hætti. Einnig að hann skuli
hafa horfið frá þeirri meginstefnu sinni í síðustu
kosningum að berjast gegn kvótakerfinu.“
Persónulega segist hún ekki sjá eftir „lið-
hlaupum sem hverfa frá hugsjónum sínum á einni
nóttu“, eins og hún orðar það. „Áherslur hans í
sjávarútvegsmálum eru núna á vísindastarf, mark-
að og samkeppni. Það er mikil kúvending að mínu
mati.“
Aðspurð segir hún að það hljóti alltaf að vera
áfall fyrir flokk þegar þingmaður taki ákvörðun um
að yfirgefa hann. „Ég hef að sjálfsögðu ákveðnar
áhyggjur af því en það verður bara að koma í ljós.
Gunnar hefur sagt í fjölmiðlum að fylgi flokksins
muni dala við brotthvarf hans. Við skulum bara sjá
hvort þau orð hans reynast rétt.“
Ákvörðun Gunnars Örlygssonar kom forystu Frjálslynda flokksins á óvart
Halda áfram sínu striki
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Margrét
Sverrisdóttir
Magnús Þór
Hafsteinsson
Guðjón A.
Kristjánsson
„ÞAÐ hefur aldrei orpið örn í Borg-
arhólma, ekki svo nokkur viti,“ segir
Hafsteinn Guðmundsson, bóndi í
Flatey á Breiðafirði. Hann setti gas-
byssu í hólmann til að fæla varg frá
æðarvarpi, en Hafsteinn er með víð-
feðmt æðarvarp í eyjum og hólmum.
Náttúrufræðistofnun hefur nú kært
Hafstein fyrir að ætla að koma í veg
fyrir arnarvarp með gasbyssunni.
Hafsteinn segir að næsti varp-
staður arna við Borgarhólma, sem
vitað er um með vissu, sé í Höfði í um
tveggja kílómetra fjarlægð. Þar hafi
tvisvar orpið örn en ekki lukkast að
koma upp ungum. Gasbyssan var
sett upp 25. mars síðastliðinn í fyrsta
sinn. Hafsteinn segir að þá hafi
hvergi sést örn á svæðinu.
„Við fórum um þar sem við töldum
helst að hún gæti verið. Hún sást
hvergi. Síðan fórum við aftur 14.
apríl og skiptum um gaskút. Það var
alveg sama, sást engin örn og reynd-
ar enginn svartbakur heldur.“
Hafsteinn segir að talsvert sé
skotið á svartbaka og sílamáfa og
þeir hrökkvi frá við hvelli gasbyss-
unnar. Æðurin hins vegar laðist að.
„Æðurin finnur verndina þegar
vargurinn er ekki að sækja á hana á
svæðinu. Það eina hreiður sem var
komið í Borgarhólma, meðan gas-
byssan var þar, var grágæsarhreið-
ur og var orpin þar grágæs. Hún
fælist ekki gasbyssuna og lærir á
þetta eins og margir aðrir fuglar.“
Fuglarnir fælast flugvélar
Hafsteinn telur það rétt, sem haft
er eftir Kristni Hauki Skarphéðins-
syni fuglafræðingi, að gasbyssa hafi
einhvern fælingarmátt gagnvart
örnum, sérstaklega í byrjun. „En
það hefur engin áhrif á varp arna því
þeir hafa yfirleitt nokkur óðul til að
verpa á. Það er mjög algengt að örn-
in sé með óðul á tveimur til þremur
stöðum á sínu svæði,“ segir Haf-
steinn. Hann segir að arnarvarp sé
víða í Breiðafirði þar sem menn eigi
leið um, því fuglarnir venjist umferð-
inni, séu þeir látnir óáreittir. Dæmi
um það séu úr Hvammsfirði og við
siglingarleið ferðamannabáta.
„Mesta truflunin sem verður er
þegar Kristinn Haukur er að fljúga í
lágflugi yfir varpstöðvarnar. Þá flýg-
ur allur fugl upp, sama hvaða tegund
það er. Við höfum séð þá fljúga yfir í
hæð sem er innan við 100 metra. Það
kemur mikill hávaði og svo snöggt að
ekki nokkur fugl situr það af sér.“
Örn hefur
aldrei orpið
í Borgar-
hólma
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra veitti
í fyrradag 35 fyrirtækjum viðurkenningu fyrir
að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands.
Félagið er líknarfélag stofnað í september
2003 af konum sem hafa að baki yfir 70 ára
reynslu af sjálfboðastörfum í þágu þeirra sem
minna mega sín á öllu landinu. Markmið Fjöl-
skylduhjálparinnar er að hlúa að einstaklingum
og fjölskyldum sem búa við lökust kjörin í land-
inu hverju sinni og létta þeim lífsbaráttuna.
Að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur stendur
nú yfir söfnun í Sumarbúðasjóð Fjölskyldu-
hjálpar Íslands og beinir félagið tilmælum til
fyrirtækja og einstaklinga um að leggja málefn-
inu lið.
Fyrirtækin fengu
viðurkenningar
Morgunblaðið/Eyþór
MIÐSTJÓRN Frjálslynda flokksins segir í
ályktun, sem hún samþykkti í gær, að úr-
sögn Gunnars Örlygssonar úr flokknum
hafi komið miðstjórninni í opna skjöldu.
„Það er augljóst mál, að þingmaður sem nú
vill styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks undir forystu Halldórs
Ásgrímssonar, á ekki heima í Frjálslynda
flokknum,“ segir í ályktuninni. „Miðstjórn
Frjálslynda flokksins telur það lýsa litlum
drengskap af hálfu Gunnars Örlygssonar
að nota fylgi kjósenda Frjálslynda flokksins
til þess að styrkja ríkisstjórnina til verka
þvert á hans eigin málflutning.“
Kom miðstjórninni
í opna skjöldu