Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 11
FRÉTTIR
SJÓKAJAKRÓÐUR á Íslandi hefur
náð nýjum hæðum með árangri Þor-
steins Sigurlaugssonar í íþróttinni
en hann varð fyrsti Íslendingurinn
til að ná svokölluðu 5 stjörnu kaj-
akprófi í Wales nú í vikunni. Þor-
steinn er 29 ára gamall og hefur
unnið markvisst að þessum áfanga í
þrjú ár. Hann settist fyrst í sjókajak
árið 1998 og hefur öðlast hverja kaj-
akstjörnuna á fætur annarri þar til
hann nældi sér í þá fimmtu sem veit-
ir honum víðtæk alþjóðleg leiðsögu-
mannsréttindi á sjókajak. Nokkrir
Íslendingar eru þegar orðnir fjög-
urra stjörnu ræðarar og gæti því
verið stutt að bíða uns næsti ræðari
nær 5 stjörnu prófinu. Aðeins tíu
manns í heiminum hafa réttindi til
að vera prófdómarar í 5 stjörnu
prófunum en þau fara fram á vegum
BCU (British Canoe Union). Prófið
tók 2 sólarhringa og samanstóð af
þrautum og bóklegum hluta.
„Í ár reyndu átta manns við prófið
og fimm þeirra náðu tilskildum ár-
angri,“ segir Þorsteinn. „Þetta var
mjög sterkur hópur.“ Til sam-
anburðar náðu tveir af tíu í fyrra.
Í prófinu þarf að sýna fram á getu
til að stýra kajak, veita hópi leiðsögn
og framkvæma sjóbjarganir og við-
gerðir á biluðum bát í 150 cm öldu-
hæð að lágmarki og 5 km/klst reki.
Enn fremur þarf að stýra hópi ræð-
ara út á sjó að næturlagi og finna
ákveðna staði sem krefst kunnáttu í
siglingafræði. Í þriðja hluta prófsins
átti að skipuleggja ferð með nokkuð
vönum ræðurum yfir sund í 9 m/sek.
í 4,5 hnúta straumi. „Við áttum að
róa yfir sundið, í gegnum nokkrar
straumrastir og hitta á eyju hinum
megin við sundið og róa til baka,“
segir Þorsteinn.
Hann leysti prófið hnökralaust og
segir þrautirnar vissulega hafa verið
nokkuð strembnar. Á móti kom að
hann var vel undirbúinn en hann
rekur kajakleiguna Sagan á Stykk-
ishólmi og er því vanur að fara með
hópa á kajak. „Þetta var samt
hörkuvinna,“ segir hann.
„Þessi áfangi opnar fyrir mér dyr
erlendis sem leiðsögumaður og eins
get ég auglýst mig sterkar sem leið-
sögumann á Íslandi. Ef ég get sýnt
fram á þessa gráðu, þá er auðveld-
ara að ná í erlenda hópa.“
Sjókajaksportið nýtur vaxandi
vinsælda og segir Þorsteinn að gríð-
arlega mikilvægt sé fyrir byrjendur
að fara ekki einir síns liðs út á sjó
heldur róa með vönum. „Það er mik-
ilvægt að fara á námskeið og læra
grundvallaröryggisatriðin svo fólk
geti notið þess að róa án þess að
leggja sig í hættu,“ segir hann.
Þorsteinn Sigurlaugsson á Stykkishólmi er fær í flestan sjó
Fimm stjörnu ræðari fyrstur Íslendinga
Ljósmynd/Nigel Dennis
Þorsteinn Sigurlaugsson þreytir hér próf undir eftirliti Rowland Woollven prófdómara.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn mest fylgi eða 36,2%.
Samfylkingin mælist með 34% fylgi,
Vinstri grænir 14,1%, Framsóknar-
flokkurinn 9,9% og Frjálslyndi
flokkurinn 4,7%.
Samkvæmt könnuninni fengju rík-
isstjórnarflokkarnir ekki meirihluta
á Alþingi ef þetta væru úrslit kosn-
inga nú, að sögn Fréttablaðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 23
þingmenn. Framsóknarflokkurinn
fengi hins vegar aðeins sex eða helm-
ingi færri en í kosningunum. Sam-
anlagt fengju stjórnarflokkarnir því
29 þingmenn af 63. Samfylkingin
sem var með næstmest fylgi, sam-
kvæmt könnuninni, fengi 22 þing-
menn.
Könnunin var að sögn Frétta-
blaðsins framkvæmd 8. maí sl.
Hringt var í 800 manns og tóku
53,3% svarenda afstöðu til spurning-
arinnar um það hvaða lista þeir
myndu kjósa ef gengið yrði til þing-
kosninga nú.
Sjálfstæð-
isflokkur-
inn nýtur
mests fylgis
ÍSLENSKUM ungmennum gefst
nú tækifæri til að taka þátt í norð-
urskautsleiðangri kanadíska skóla-
skipsins Explorer sem kemur
hingað til lands 22. júlí og tekur
Íslendingana um borð áður en
lengra er haldið. Leiðangursstjór-
inn Geoff Green hefur tekið frá
fimm pláss fyrir Íslendinga og
hvetur sem flesta til að sækja um
skipsvist. Hægt er að sækja um á
Netinu á www.studentsonice.com
og verður valið úr umsóknum eftir
því sem þær berast. „Við erum
ekki endilega að leita að nemend-
um með háar einkunnir úr skóla,
heldur skiptir áhuginn mestu,“
segir Green. „Nemendahópurinn
er fjölbreyttur og að svo komnu
máli samanstendur hópurinn af
nemendum frá Englandi, Kína,
Indlandi, Bandaríkjunum, Kanada
og líklega verða Rússar og Norð-
menn líka með í förinni.“ Leiðang-
urinn hefst í Reykjavík 23. júlí og
verður dvalið hér í 4 daga þar sem
lögð er áhersla á að kynna stefnu í
orkumálum. Því næst verður siglt
til Grænlands og Kanada. Leið-
angurinn tekur tvær vikur.
Allt að áttatíu
ungmenni um borð
„Hugmyndin með leiðangrinum
er að fara með 70–80 ungmenni á
aldrinum 14–19 ára hvaðanæva úr
heiminum með hópi kennara og
vísindamanna og fræða þau um
hluti á borð við loftslagsbreytingar
og hlýnun jarðar og afleiðingar
þess fyrir Ísland, Grænland og
Norðurskautið. Það verður einnig
farið í landafræði, sögu, menningu,
sjávarlíffræði og fleira. Við viljum
kafa ofan í hluti sem hafa raun-
verulegt gildi fyrir krakkana til að
þau geti komið heim reynslunni
ríkari og deilt þekkingu sinni með
öðrum.
Ég vona að a.m.k. fimm íslensk-
ir nemendur geti slegist í för með
hópnum. Það er enginn skráður
enn sem komið er, en ég held frá
sætum fyrir Íslendinga. Það er
einstæð lífsreynsla að taka þátt í
svona leiðangri sem við höfum
staðið fyrir undanfarin sex ár. En
þetta er stærsta verkefnið sem við
höfum tekist á hendur á norður-
slóðum.“
Þeir sem vilja sækja um á skip-
inu geta ýmist gert það á Netinu
eða sent tölvupóst til Greens á
geoff@studentsonice.com og feng-
ið send umsóknareyðublöð.
Íslensk ungmenni hvött til að sækja um vist í tveggja
vikna Explorer-leiðangri í sumar
„Einstæð lífsreynsla að
taka þátt í svona leiðangri“
TENGLAR
..............................................
www.studentsonice.com/arctic05
FRUMVARP um Ríkisútvarpið
var ekki afgreitt sem lög fyrir
frestun þingfunda á miðvikudag. Í
nefndaráliti meirihluta mennta-
málanefndar sem dreift var á mið-
vikudag segir m.a. að skilgreining
frumvarpsins um útvarpsþjónustu
í almannaþágu sé helst of víðtæk.
Í 6. gr. frumvarpsins er fjallað
um þátttöku félagsins í nýrri
starfsemi en meirihluti nefndar-
innar telur að svo stöddu ekki
ástæðu til að veita heimild til
starfsemi sem ekki telst beinlínis
til útvarpsþjónustu í almanna-
þágu. Er lagt til að umrædd grein
verði felld brott.
Í frumvarpinu er útvarpsþjón-
usta í almannaþágu sundurliðuð í
18 liðum en meirihluti mennta-
málanefndar segist telja 10. og 18.
tölulið vera helst til of víðtæka og
16. tölulið óþarfan og leggur því til
að þeir verði felldir brott. Í 10.
tölulið segir að umrædd þjónusta
felist í að veita alla þá þjónustu
sem unnt er með tækni útvarpsins
og þjóðinni má að gagni koma.
Samkvæmt 18. tölulið er það hlut-
verk stofnunarinnar að gera hvað-
eina sem stjórn félagsins telur
óhjákvæmilegt eða stuðlar að því
að tilgangi félagsins verði náð. 16.
töluliður hljóðar svo: Að standa
fyrir, taka þátt í eða styðja tón-
leika og annað skemmtanahald
sem tengist dagskrárefni.
Fram kemur í nefndarálitinu,
að töluverðar umræður hafi farið
fram um réttindamál starfsmanna
Ríkisútvarpsins og bent hafi verið
á að ákvæðin um réttindi starfs-
manna væru nokkuð óljóst orðuð
og því ekki nægilega skýrt hvern-
ig réttindamálum starfsmanna
yrði háttað hvað varðar biðlauna-
rétt og lífeyrisréttindi. Leggur
nefndarmeirihlutinn fram breyt-
ingartillögur sem eiga að taka á
þessu.
Skilgreining á út-
varpsþjónustu í al-
mannaþágu of víðtæk ÁRLEGT gróður- og grillblót ása-trúarmanna verður haldið á morg-
un, laugardaginn 14. maí, við
Aronsbústað í landi Mógilsár í
Kollafirði.
Safnast verður saman á bílastæð-
inu við rætur Esju kl. 14. Jóhanna
Harðardóttir Kjalnesingagoði helg-
ar blótið, bakað verður skógar-
brauð, grillað og leitað að földum
hlut.
Allir eru velkomnir.
Gróður- og
grillblót ása-
trúarmanna
NEFND um stefnumörkun Ís-
lands um líffræðilega fjölbreytni
stendur fyrir málstofu á Grand
hóteli í Reykjavík í dag, föstudag,
kl. 13–16.30, þar sem verkefnið
verður kynnt og rætt um for-
sendur og aðferðafræði stefnu-
mörkunarinnar. Þátttaka á mál-
stofunni er ókeypis og er hún
öllum opin.
Málstofa um
líffræðilega
fjölbreytni
Frábær
buxnasnið