Morgunblaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FORSETAKOSNINGAR verða
haldnar í Íran 17. júní og er fyrrver-
andi forseti landsins, klerkurinn Ak-
bar Hashemi Rafsanjani, sem til-
kynnti um framboð sitt nú í vikunni,
talinn langsigurstranglegastur. Mo-
hammad Khatami, sitjandi forseti,
sem kjörinn var árið 1997 er að ljúka
seinna kjörtímabili sínu, en Rafsanj-
ani sat einnig tvö kjörtímabil árin
1989–1997. Hinn sjötugi Rafsanjani
hefur heitið því að vernda írönsku
þjóðina fyrir öfgum og harðlínustefnu
en það er ekki síst trú fólks á að hon-
um takist að koma á efnahagslegum
umbótum sem veldur vinsældum
hans.
Stjórnmálaskýrendur telja að efna-
hagsmál verði Írönum efst í huga í
komandi kosningum enda er verð-
bólga þar í landi há og atvinnuleysi
mikið, einkum meðal ungs fólks, þrátt
fyrir miklar olíuauðlindir og mann-
auð. Þá er ljóst að ungt fólk mun hafa
mikið að segja í kosningunum því
65% landsmanna eru yngri en 25 ára
og kosningaaldurinn í landinu er 16
ár. Þetta unga fólk vill upp til hópa
sjá breytingar í landinu en ungmenni
í Íran hafa í gegnum tíðina staðið fyr-
ir því að knýja á um þjóðfélagsbreyt-
ingar. Raunar voru það stúdentar
sem stóðu fyrir mótmælaaðgerð-
unum árið 1979 sem leiddu til þess að
Reza Palavi, keisara og einvaldi í
landinu, var steypt af stóli og klerka-
stjórnin tók við völdum með Ayatoll-
ah Ruhollah Khomeini sem sinn
æðsta mann. Um þessar breytingar
voru frjálslyndir andstæðingar keis-
ara og íhaldssamir bókstafs-
trúarmenn sammála, en síðan tók
klerkastjórnin til við að umbylta sam-
félaginu. Batt hún meðal annars enda
á trúfrelsi og kom á skipan þar sem
yfirmaður klerkastjórnarinnar er
valdamesti maður landsins þrátt fyrir
kjörinn forseta og þing.
Vaxandi gjá milli
klerkastjórnar og forseta
Klerkastjórnin lítur svo á að hún
hafi vald sitt beint frá Guði og eru
átökin milli hennar – með æðsta
klerkinn Ayatollah Ali Khamenei,
sem tók við eftir dauða Khomeini árið
1989 í fararbroddi – og kjörins for-
seta og þings djúpstæð í landinu.
Hefur gjáin milli þessara afla vaxið í
valdatíð hins hófsama Mohammad
Khatami, sem var kjörinn forseti með
yfirburðafylgi árið 1997. Þá var það
aftur ungt fólk – auk kvenna og
menntamanna – sem krafðist breyt-
inga og flykktist um hinn umbóta-
sinnaða frambjóðanda sem boðaði að
slakað yrði á trúarlegum kennisetn-
ingum við stjórn landsins, að lýðrétt-
indi yrðu höfð í heiðri og samskipti
við umheiminn bætt. Fljótlega fór þó
að bera á vonbrigðum meðal almenn-
ings í Íran sem fannst Khatami ganga
hægt að efna þessi heit og í heildina á
litið má segja að fylgjendur hans meti
það svo að honum hafi mistekist ætl-
unarverk sitt. Klerkastjórnin hafði
reyndar sitthvað um gengi hans að
segja og lagði ítrekað stein í götu
hans þegar hann vildi koma á breyt-
ingum í frjálsræðisátt. Almennt er þó
talið að Khatami hafi ekki verið nógu
mikill bógur í embættið, hann hafi
umfram allt verið hugsjónamaður
með góðar hugmyndir, en ekki verið
maður framkvæmda. Annað þykir
hins vegar upp á teningnum þegar
Rafsanjani kemur aftur til sögunnar.
Hann er einmitt talinn fram-
kvæmdamaður og þrátt fyrir rótgró-
in tengsl hans við valdaöflin í landinu
eru bundnar vonir við að hann geti
unnið að framförum. Þá er fyrst og
fremst horft til þess að hann þykir
raunsær og hagsýnn og hefur lýst því
yfir að hann vilji beita sér fyrir því að
laga og styrkja efnahag landsins.
Þegar hann tilkynnti um framboð
sitt sagði Rafsanjani að nýr forseti
yrði að ráðast gegn „atvinnuleysi, fá-
tækt, spillingu, misrétti“ og að koma
til móts við þarfir þjóðar sem er upp
til hópa „ung að árum“ og kvenna
sem eru æ „staðráðnari í að taka
þátt“. Þá sagði hann að „efnahagslegt
lýðræði og framfarir í iðnaði“ væru
„grundvöllur lýðræðisþjóðfélags og
þjóðfélagslegra framfara“. Þá segist
Rafsanjani vilja bæta samskipti við
Vesturlönd og talar um mikilvægi
þess að byggja upp „alþjóðlegt
traust“ á tímum þegar spenna vegna
kjarnorkuáætlunar stjórnvalda fer
vaxandi og samskipti ráðamanna við
Bandaríkin eru vægast sagt erfið.
En Rafsanjani er ekki einn um að
bjóða sig fram. Á undanförnum dög-
um hafa rúmlega hundrað manns á
ýmsum aldri og úr ólíkum þjóðfélags-
stéttum skilað inn framboðsgögnum,
en það er öllum frjálst að gera áður
en fresturinn rennur út í dag, föstu-
dag. Meðal þeirra sem hafa lagt leið
sína í íranska innanríkisráðuneytið
með framboðsgögn er 72 ára bóndi að
nafni Haji Kasseh sem sagði við það
tækifæri að sig langaði til að setjast
niður með George W. Bush Banda-
ríkjaforseta, segja við hann: „við er-
um allir bræður“ og kenna honum
síðan nokkur persnesk ljóð. Annar
maður sagði starfsfólki innanrík-
isráðuneytisins að hann væri hinn
sögufrægi „horfni imam“, Mahdi,
sem sagður er hafa horfið árið 873, en
endurkomu hans er enn beðið meðal
margra sjíta. Maðurinn var sendur
heim eftir skilríkjum.
En að öllum líkindum verða hvorki
Kasseh né sá sem sagðist vera hinn
horfni imam í framboði þegar að
kosningunum kemur, ekki frekar en
flestir aðrir sem hafa og munu skila
inn framboðsgögnum. Sérstakt ráð á
vegum klerkastjórnarinnar þarf
nefnilega að leggja blessun sína yfir
frambjóðendur. Ráðið, sem er skipað
íhaldssömum bókstafstrúarmönnum,
hefur fimm daga til að skoða vænt-
anlega frambjóðendur meðal annars
með tilliti til þess hvort þeir séu „trúir
gildum íslamska ríkisins og hinni op-
inberu trú“, það er að segja sjíta-
grein íslams, og samþykkir þá síðan
eða hafnar þeim. Í aðdraganda síð-
ustu forsetakosninga, árið 2001 þegar
Khatami var endurkjörinn, sam-
þykkti ráðið aðeins 10 frambjóðendur
af þeim 814 sem lögðu inn framboðs-
gögn. Fyrir þingkosningarnar í fyrra
hafnaði ráðið alls 2000 frambjóð-
endum, og voru þeir sem hafnað var
nær allir umbótasinnar.
Konur útilokaðar frá framboði
Konum sem vilja bjóða sig fram til
forseta er öllum hafnað af ráðinu á
grundvelli kynferðis síns, en þó hafa
um tíu konur lagt inn framboðsgögn,
þar á meðal 18 ára skólastúlka og
Rafat Bayat, þingmaður úr röðum
íhaldsmanna. Meðal þeirra sem hafa
opinberlega gagnrýnt útilokun
kvenna frá forsetaframboði er Shirin
Ebadi, friðarverðlaunahafi Nóbels,
sem hafnar þeirri túlkun stjórn-
arskrár landsins að konur hafi ekki
kjörgengi.
Þannig er ljóst að aðeins þeir sem
hljóta náð fyrir augum klerkastjórn-
arinnar eiga möguleika á forsetaemb-
ættinu og verða keppinautar Rafsanj-
ani um embættið líklega flestir
harðlínumenn. Fremstir í flokki
þeirra eru Ali Larijani, fyrrum yfir-
maður íranska ríkisútvarpsins, Mo-
hammad Qalibaf, fyrrum lög-
reglustjóri og Mohsen Rezai, fyrrum
yfirmaður byltingarvarðsveitanna.
En þó að Rafsanjani segist vilja
vernda þjóðina fyrir öfgafullri harð-
línustefnu hefur hann í gegnum tíðina
átt, og á enn, samskipti við klerka-
stjórnina. Þegar hann var spurður að
því hvort hann hefði rætt við Kham-
enei æðsta klerk áður en hann tók
ákvörðum um framboð, svaraði hann
því til að æðsti maður landsins „skipti
sér ekki af málum varðandi einstaka
persónur“ en gaf þó í skyn að hann
hefði vissu fyrir því að Khamenei
væri ekki andsnúinn framboði sínu.
Umbótasinnaðir klerkar
gagnrýna stjórnskipan landsins
Meðal þeirra sem hafa harðlega
gagnrýnt stjórnskipan landsins í að-
draganda forsetakosninganna eru
tveir af virtustu klerkum landsins,
Hossein Ali Montazeri og Ayatollah
Yusef Saanei. Montazeri og Saanei
eru umbótasinnar og ekki lengur í
náðinni hjá klerkastjórninni. Mont-
azeri, sem á sínum tíma þótti líklegur
eftirmaður Khomeini, þótti of gagn-
rýninn á pólitísk og menningarleg
höft í landinu og sat í fimm ára stofu-
fangelsi, fram til ársins 2003 þegar
hann var látinn laus af heilsufars-
ástæðum. Í viðtali sem hann veitti nú
í vikunni, sagðist hann svartsýnn á að
frelsi og réttlæti yrði haft að leið-
arljósi í komandi forsetakosningum.
„Mitt sjónarmið er, og ég get ekki
sagt meira en þetta, að málin eru ekki
að þróast í rétta átt. Í upphafi bylt-
ingarinnar gáfum við Imam [Khom-
eini] heitinn, loforð um frelsi, og það
hefur ekki verið staðið við þessi lof-
orð.“ Saanei, sem er í flokki þeirra
klerka sem telja að trú og stjórnun
landsins fari ekki saman, skiptir sér
lítið af stjórnmálum núorðið en lýsti
nýlega andstöðu sinni við áðurnefnt
ráð klerkastjórnarinnar sem „velur“
frambjóðendur. „Það á ekki að vera
neitt ráð. Í kosningum þarf enga
varðmenn, það stríðir gegn frelsi
fólks,“ sagði Saanei. Þá gagnrýnir
hann einnig stöðu kvenna í landinu og
segir að réttur kvenna til að gegna
æðstu embættum landsins sé „óve-
fengjanlegur“, þar á meðal embætti
dómara og forseta.
Fréttaskýring| Talið er að næsti forseti Írans verði fyrrverandi forseti landsins, Akbar Rafsanjani.
Birna Anna Björnsdóttir fjallar um stjórnmálaástandið í Íran með tilliti til komandi forsetakosn-
inga þar sem aðeins þeir sem hljóta náð fyrir augum klerkastjórnarinnar fá að bjóða sig fram.
Rafsanjani vekur vonir
um breytingar í Íran
Reuters
Konur í Íran eru útilokaðar frá forsetaframboði af sérstöku ráði á vegum klerkastjórnarinnar. Nokkrar konur
hafa þó skilað inn framboðsgögnum, þeirra á meðal þingmaðurinn Rafat Bayat, sem hér fyllir út viðeigandi plögg.
Akbar Hashemi Rafsanjani
bab@mbl.is
Efnahagsmál
mikilvægust í
komandi forseta-
kosningum
LÖGFRÆÐINGAR þeirra, sem
lifðu af fjöldamorðin á 8.000 músl-
ímum í Srebrenica í Bosníu 1995,
hófu í gær að yfirheyra vitni til að
kanna hvort grundvöllur væri fyrir
málsókn gegn hollenskum yfirvöld-
um. Eru þau sökuð um að bera
ábyrgð á því, að hollenskir her-
menn, sem gættu borgarinnar,
gerðu ekkert til að koma í veg fyrir
morðin. Þegar serbneskur her
réðst inn í Srebrenica var borgin
„griðastaður“ og opinberlega und-
ir stjórn hollensks herliðs á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Stríðs-
glæpadómstóll SÞ komst síðar að
því, að um hefði verið að ræða þjóð-
armorð og árið 2002 sagði öll hol-
lenska ríkisstjórnin af sér vegna
þessa máls.
Sagðir hafa
þegið mútur
frá Saddam
BRESKI þingmaðurinn George
Galloway og Charles Pasqua, fyrr-
verandi innan-
ríkisráðherra
Frakklands, eru
sagðir hafa þeg-
ið miklar mútur
frá Saddam
Hussein, fyrr-
verandi forseta
Íraks. Kemur
þetta fram í
nýrri skýrslu frá
bandarísku öld-
ungadeildinni en
í henni segir, að
múturnar hafi
verið í líki um-
boðs til kaupa á
milljónum fata af
olíu. Er því hald-
ið fram, að með
þessu hafi Sadd-
am verið að
umbuna „póli-
tískum sam-
herjum“ sínum í Evrópu. Engar
sannanir eru þó lagðar fram og
þeir Galloway og Pasqua, sem hafa
áður verið bornir þessum sökum,
vísa þessu harðlega á bug. Í skýrsl-
unni er Galloway sagður hafa feng-
ið umboð fyrir kaupum á 20 millj.
olíufata frá Írak og Pasqua fyrir
11. Fyrir tveimur vikum var hafin
rannsókn í Frakklandi á Bernard
Guillet, fyrrverandi ráðgjafa Pasq-
ua, vegna gruns um aðild hans að
olíuhneykslinu svokallaða.
Ný réttarhöld
yfir Ocalan?
YFIRVÖLD í Tyrklandi sögðust í
gær mundu gera það, sem gera
þyrfti, eftir að Mannréttinda-
dómstóll Evrópu komst að þeirri
niðurstöðu, að réttarhöldin yfir
kúrdíska uppreisnarforingjanum
Abdullah Ocalan hefðu ekki verið
heiðarleg. Tyrkir kalla Ocalan
hryðjuverkamann og segja hann
bera ábyrgð á dauða meira en
30.000 manna. Var hann dæmdur
til dauða 1999 en dóminum síðar
breytt í ævilangt fangelsi vegna
þrýstings frá Evrópusambandinu.
Viðræður við Tyrki um aðild að
sambandinu eiga að hefjast í októ-
ber og því þykir líklegt, að efnt
verði til nýrra réttarhalda yfir
Ocalan.
Stjórnarskrár-
drög samþykkt
NEÐRI deild þýska þingsins sam-
þykkti í gær með miklum meiri-
hluta drögin að stjórnarskrá fyrir
Evrópusambandið. Studdu þau 569
þingmenn en aðeins 23 voru á móti.
Búist er við, að efri deildin, sam-
bandsráðið, afgreiði þau með sama
hætti 27. maí, tveimur dögum fyrir
þjóðaratkvæðagreiðsluna í Frakk-
landi. Sex aðildarríki hafa nú sam-
þykkt drögin að fullu og Þýskaland
verður án efa það sjöunda. Til að
öðlast gildi verða þau að vera sam-
þykkt í öllum aðildarríkjunum 25.
Vilja höfða mál
vegna Srebrenica
Charles Pasqua
George Galloway