Morgunblaðið - 13.05.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 19
ERLENT
AÐEINS TIL 22. MAÍ.
Toppurinn í fjölhæfni, þægindum og hönnun í einum sófa. Með einstökum fjölbreytileika í einingum
gerir Klaus sófinn (302sm x 139sm á mynd) þér kleift að móta stofuna þína að þínum óskum, sama
hvernig rýmið er. Djúp seta og þægilegur bakstuðningur veitir þér ítrustu þægindi og sófagrindin er
með 10 ára ábyrgð. Ennfremur færðu hentuga og aðlaðandi útfærslu með fagurlega hannaðri
bogaeiningu. Klaus, eins og hann er sýndur á myndinni með dreamfibre áklæði, getur orðið þinn með
20% afslætti og hraðri afgreiðslu, núna frá 149.000 kr. Ítölsk hönnun, gæði og handbragð eru tryggð
af Natuzzi, heimsins fremsta framleiðanda í leðurhúsgögnum og leðursófum.
Tilboðið gildir í Natuzzi versluninni til 22. maí 2005 og ekki með öðrum tilboðum. Heimsending er innifalin í verði á höfuðborgarsvæðinu. Skjót afgreiðsla
meðan birgðir endast. Fáðu frekari upplýsingar eða ókeypis eintak af Natuzzi bæklingnum. Hringdu gjaldfrjálst í síma 800 4477 eða smelltu á www.natuzzi.com
Klaus raðsófi með kubbi í leðri á sértilboði
frá 229.000 kr. 20% sparnaður
It’s how you live
GÆÐAFRAMLEIÐSLA FRÁ ÍTALÍU - Vottað iso 9001-14001
Verslunin einnig opin á sunnudögum frá kl. 13-18Natuzzi verslunin: SMÁRALIND 201 Kópavogur - Sími 564 4477
ÞRÍR METRAR - ALLT SEM ÞARF TIL AÐ SKAPA HEILDARMYND Á STOFUNA ÞÍNA
Peking. AFP, AP. | Kínverska stjórnin
kvaðst í gær ekki ætla að verða við
beiðni Bandaríkjastjórnar um að
beita Norður-Kóreumenn þrýstingi
vegna kjarnavopnaáætlunar þeirra
og hafnaði þeim möguleika að örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti refsiaðgerðir gegn Norður-
Kóreu. Sérfræðingar í málefnum As-
íulandanna telja að stjórnvöld í Kína
hafi meiri áhyggjur af afleiðingum
hugsanlegs hruns kommúnista-
stjórnarinnar í Pyongyang en af
norður-kóreskum kjarnavopnum.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu og Japan
létu í ljósi miklar áhyggjur af kjarna-
vopnaáætlun Norður-Kóreustjórnar
í gær eftir að hún lýsti því yfir að hún
hygðist láta endurvinna 8.000 elds-
neytisstangir, sem teknar hefðu verið
úr kjarnakljúfi, í því skyni að fram-
leiða fleiri kjarnorkusprengjur.
Norður-Kóreumenn lýstu því yfir 10.
febrúar að þeir réðu yfir kjarnavopn-
um og Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unin telur að þeir eigi nú þegar um
það bil sex kjarnorkusprengjur.
Vilja að Kim haldi völdunum
Fréttaskýrendur telja ólíklegt að
stjórnin í Peking verði við beiðni
Bandaríkjamanna um að beita Norð-
ur-Kóreumenn þrýstingi, meðal ann-
ars með hótun um að hætta að sjá
þeim fyrir olíu.
„Það leikur ekki nokkur vafi á því
að stjórnvöld í Kína óttast óstöðug-
leika og stjórnarskipti í Norður-Kór-
eu meira en kjarnavopn,“ sagði Brad
Glosserman, sérfræðingur í málefn-
um Asíulandanna. „Kínverjar vilja að
Kim Jong-il [leiðtogi Norður-Kóreu]
haldi völdunum. Þeir þekkja hann og
vita að hann er ekki jafnhættulegur
og Bandaríkjamenn láta í veðri
vaka.“
Glosserman bætti við að mikil
óvissa væri um hver tæki við af Kim
Jong-il færi svo að hann hrökklaðist
frá völdum. „Í Norður-Kóreu eru enn
til menn sem eru verri en Kim.“
David Zweig, stjórnmálaskýrandi
við Vísinda- og tækniháskóla Hong
Kong, telur einnig að Kínverjar hafi
áhyggjur af því að refsiaðgerðir geti
orðið til þess kommúnistastjórnin í
Norður-Kóreu falli. „Hrun kommún-
istastjórnarinnar er talið meira
áhyggjuefni en smíði kjarnavopna.
Það gæti hæglega orðið til þess að
milljónir flóttamanna færu yfir
landamærin til Kína, Suður-Kóreu-
menn gætu tekið við völdunum í
Norður-Kóreu og bandarískar her-
sveitir yrðu við landamæri Kína.“
Sérfræðingarnir telja þó að afstaða
kínverskra stjórnvalda gæti breyst ef
Norður-Kóreumenn sprengdu kjarn-
orkusprengju í tilraunaskyni. Banda-
ríkjastjórn telur að Norður-Kóreu-
menn séu að undirbúa slíka
kjarnorkutilraun.
Kínverjar óttast
hrun stjórnar
Norður-Kóreu
Telja það meira áhyggjuefni
en norður-kóresk kjarnavopn
Bagdad. AP, AFP. | Að minnsta
kosti 17 létust og meira en 80
særðust er bílsprengja sprakk í
gærmorgun á fjölförnu stræti í
Bagdad. Þremur klukkustundum
síðar sprakk önnur sprengja í
vesturhluta borgarinnar.
Fyrri sprengjan eyðilagði í það
minnsta átta bíla og farþegavagn
og dreifðust hlutar úr þeim og
sundurtættum líkum víða um ná-
grennið. Komu bandarískir her-
menn fljótlega á vettvang en voru
þá grýttir af fólki á götunni.
Síðari sprengjan í Bagdad
sprakk er bandarísk herflutn-
ingalest fór hjá og í Kirkuk í norð-
urhluta Íraks sprungu að minnsta
kosti þrjár sprengjur. Til vopna-
viðskipta kom síðan í nokkrum
borgum og var þar nokkurt mann-
fall, einkum meðal íraskra lög-
reglumanna.
Á síðustu tveimur dögum hafa
þrír bandarískir hermenn fallið og
enn fleiri særst í sókninni gegn
skæruliðum í Vestur-Írak, rétt við
sýrlensku landamærin. Hafa
Bandaríkjamenn þá misst meira
en 1.600 menn frá því innrásin í
Írak hófst í mars 2003.
Reuters
Óbreyttir borgarar flytja burt lík manns, sem týndi lífi í sprengingunni í
Bagdad í gærmorgun. Nokkru síðar sprakk önnur sprengja í borginni.
Ekkert
lát á
óöldinni
Riga. AFP. | Þingið í Lettlandi samþykkti í gær að
skora á rússnesk stjórnvöld að viðurkenna og bæta
fyrir þá glæpi, sem framdir hefðu verið í landinu í þá
hálfu öld, sem það var undir Sovétríkjunum.
„Við Lettar fordæmum harðstjórnina og hernám
Sovétríkjanna og einnig alla þá, sem tóku þátt í glæpa-
verkum Sovétstjórnarinnar,“ segir í samþykktinni.
Rússneska stjórnin er hvött til að viðurkenna sið-
ferðilega, pólitíska og fjárhagslega ábyrgð á hernám-
inu og bæta fyrir það samkvæmt alþjóðalögum. Þá er
einnig hvatt til, að fyrrverandi sovéskir hermenn og
fjölskyldur þeirra, sem enn eru í Lettlandi, hverfi það-
an hið bráðasta. Talið er, að þetta fólk sé um 10.000
talsins.
Eystrasaltsríkin voru innlimuð í Sovétríkin eftir
undirritun griðasáttmála Þjóðverja og Sovétmanna
1939. Fengu þau ekki fullt frelsi fyrr en 1991. Á sov-
éttímanum voru hundruð þúsunda manna í löndunum
ýmist drepin eða flutt burt en Rússar fluttir til þeirra í
staðinn.
Vilja bætur frá Rússum