Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 20
Akureyri | Það var heldur dauft
hljóðið tveimur gömlum trillu-
körlum sem voru að landa afla í
Sandgerðisbót þegar ljósmynd-
ari Morgunblaðsins var þar á
ferð í gær. Þeir Grétar Sigurðs-
son á Von EA og Stefán Bald-
vinsson á Elvu Dröfn EA voru
sammála um að ástandið í firð-
inum hefði sjaldan verið eins
slæmt á þessum árstíma. „Það
hefur alltaf verið góð veiði á
færin í maí og jafnvel mok,“
sagði Grétar. Hann kom að
landi með um 115 kg af þorski
en Stefán gerði heldur betur og
kom með um 300 kg af þorski og
nokkrar ýsur.
Morgunblaðið/Kristján
Stefán Baldvinsson kom með 300 kg af þorski úr róðri í gær og nokkrar ýsur.
Dauft hljóð í körlunum
Trillukarlar
Höfuðborgin | Akureyri |Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Fuglalíf | Þröstur nokkur hefur ekki mikl-
ar áhyggjur af umferð um pósthúsið á
Raufarhöfn því hann hefur – án þess að
sækja um bygging-
arleyfi, eins og segir
á heimasíðu hrepps-
ins – gert sér hreið-
ur á syllu ofan við
inngang starfs-
manna.
Þykir frágangur
þrastarins heldur
tjásulegur svona til
að byrja með. Sam-
býli þrasta og manna á Raufarhöfn er með
þeim ágætum að hann fær þó að vera
óáreittur á syllunni með búskap sinn.
Annað verður ekki sagt um hettumáf sem
hyggst verpa í Hólmanum í Kottjörninni og
á bökkum tjarnarinnar. Sveitarstjórnin
hefur samþykkt að undan honum skuli
steypt og fá starfsmenn hreppsins það hlut-
verk að hirða egg hans nú í maí.
Að öðru leyti hefur sveitarstjórnin sam-
þykkt að öll eggjatínsla sé bönnuð innan
hreppsmarkanna. Jafnframt sé óheimilt að
beina ferfætlingum á fenjasvæðið svo og
öllum almenningi nema í samráði við sveit-
arstjóra.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Hamingjudagar | Menningarmálanefnd
Hólmavíkurhrepps hefur farið yfir tillögur
sem bárust um nafngift á bæjar- og fjöl-
skylduhátíðina sem fram fer á Hólmavík
helgina 1.–3. júlí nk. Í fréttatilkynningu frá
framkvæmdastjóra hátíðarinnar kemur
fram að alls bárust nefndinni um þrjátíu til-
lögur að nafni frá fjölmörgum áhugasömum
einstaklingum. Samþykkt var að velja til-
lögu Ásdísar Jónsdóttir frá Hólmavík og
verður hátíðin hér eftir kynnt og markaðs-
sett undir nafninu Hamingjudagar á
Hólmavík.
Evrópumeistari | Jósef Ægir Stefánsson
einn af hraustustu sonum Skagastrandar
gerði garðinn frægan úti í Landerneau í
Frakklandi um liðna helgi en þar sigraði
hann í glímu sem kölluð er gouren. „Þessi
tegund glímu er satt að segja ekki algeng á
Skagaströnd en Jósef hefur ekki verið
þekktur fyrir að setja smámuni fyrir sig og
lærði glímuna eftir óhefðbundnum leiðum.
Að vonum eru Skagstrendingar mjög stolt-
ir yfir afreki Jósefs,“ segir á vefnum skaga-
strond.is.
Ísland hafnaði í fimmta sætinu sem verð-
ur að teljast mjög góður árangur miðað við
að Ísland hefur ekki tekið þátt síðan 1991
og auk þess að vera aðeins með sex menn,
segir í frétt á vef Glímusambands Íslands.
Hrútavinir og gest-ir þeirra fagnafimm ára afmæli
félagsins í kvöld, klukkan
21, í lista- og menning-
arverstöðinni Hólmaröst
á Stokkseyri á sérstakri
vorhátíð. Guðni Ágústs-
son, landbúnaðarráð-
herra flytur hátíðarávarp
og fjölbreytt tónlistar-
atriði verða á samkom-
unni.
Stjórn Kaupfélags Ár-
nesinga afhendir Hrúta-
vinafélaginu uppstopp-
aðan hrút sem var um
árabil á skrifstofu félags-
ins á Selfossi. Elfar
Guðni Þórðarson, listmál-
ari á Stokkseyri, verður
með forkynningu á mál-
verkasýningu sem hann
opnar svo formlega laug-
ardaginn 14. maí kl. 14.
Hrútavinir
Þessar ungu stúlkur, Bergþóra Björg, ÞorbjörgEva og Elva Dögg, eiga heima á Raufarhöfn. Ítilefni af sumarkomunni gengu þær í hús á
Raufarhöfn og sungu til styrktar UNICEF – Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna. Þær söfnuðu 2.616 krónum.
UNICEF er sjálfstæð stofnun sem treystir eingöngu
á frjáls framlög. Lögð er áhersla á að fjárstuðningur-
inn skili sér beint til þeirra barna sem á honum þurfa
að halda, segir í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.
Sungið til styrktar börnum
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndlætur sér fátt
mannlegt óviðkomandi.
Hann fylgdist með frétt-
um af kosningunum í
Bretlandi á dögunum:
All is going up and down
everywhere in London town.
I like neither Blair nor Brown,
Britain’s Labour men of crown!
Og fyrst hann er farinn
að velta fyrir sér heims-
málunum:
Hitler og Stalín að líku ég legg
því ljóti karlinn þeim báðum
réð.
En ólík voru þau yfirskegg
sem óþokkar þessir voru með.
Loks sá Rúnar mynd í
Morgunblaðinu af Basil
fursta, hagmæltum hundi
Péturs Þorsteinssonar, og
orti:
Alla virðist aðra bursta
er í vísnaleik hann fer.
Bragsnilldin hjá Basil fursta
bregður ljóma á Kópasker!
Hitler og Stalín
pebl@mbl.is
Snæfellsnes | Ferðaþjónustan Snjófell
verður með skíðalyftuna á Snæfellsjökli
opna um hvítasunnuhelgina.
Forsvarsmenn Snjófells gera ráð fyrir
allnokkrum fjölda fólks á jökulinn um
helgina. Fyrstu tjöldin og tjaldvagnarnir
eru farnir að sjást á þessu vori.
Jökullinn hefur reyndar oft komið betur
undan vetri og hefur sjaldan verið jafn lítill
snjór í honum um þetta leyti, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Snjófelli. Því má
gera ráð fyrir að vertíðin á jöklinum verði
með stysta móti í ár.
Lyftan á Snæ-
fellsjökli opnuð
Njarðvík | Atlantsolía opnaði í gær fyrstu
almennu bensínstöð sína á Suðurnesjum.
Hún er við Hólagötu í Njarðvík, við Bið-
skýlið. Árni Sigfússon bæjarstjóri dældi
fyrstu lítrunum á bíl af því tilefni og naut
við það aðstoðar Geirs Sæmundssonar
framkvæmdastjóra.
Stuttan tíma tók að byggja stöðina því
Árni tók fyrstu skóflustunguna að henni
fyrir nákvæmlega tveimur mánuðum. Geir
segir að erfitt sé að fá lóðir fyrir bens-
ínstöðvar og því sé opnun stöðvarinnar í
Reykjanesbæ mikilvæg viðbót. „Þetta er
líka stór áfangi fyrir íbúana því nú fá þeir
samkeppni um bensínsöluna. Það verður
þeim til hagsbóta.“
Stöðin í Njarðvík er hefðbundin sjálfs-
afgreiðslustöð með bensín og dísilolíu.
Fjórir bílar komast að í einu. Geir segir að
fyrst í stað verði starfsmaður félagsins við-
skiptavinum til aðstoðar á stöðinni.
Atlantsolía vonast til að geta hafið fram-
kvæmdir við tvær nýjar stöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu á næstunni. Segir Geir að
þótt það sé tiltölulega fljótgert að byggja
bensínstöð taki skipulagsferlið mjög lang-
an tíma og hafi tafirnar orðið vegna þess.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Fyrsta stöð
Atlantsolíu
opnuð á
Suðurnesjum
♦♦♦
Ólafsvík | Fiskmarkaður Íslands hf. sendi ekki jólakort til viðskiptavina
sinna um síðastliðin jól. Þess í stað var andvirði þeirra ráðstafað til björg-
unarsveitanna Bjargar á Hellissandi og Sæbjargar í Ólafsvík. Keypt var
hjartastuðtæki til endurlífgunar og var tækið afhent sveitunum nýlega.
Með þessu vill Fiskmarkaður Íslands hf. sýna þakklæti fyrir hið mikla og
fórnfúsa starf sem félagar í björgunarsveitunum leggja af mörkum til að
auka og tryggja öryggi meðborgara sinna.
Á myndinni má sjá Tryggva Leif Óttarsson framkvæmdastjóra og Fann-
ar Baldursson fjármálastjóra Fiskmarkaðs Íslands hf. afhenta fulltrúum
björgunarsveitanna tækið, þeim Davíð Óla Axelssyni, Hlyni Hafsteinssyni,
Arnari Laxdal og Guðbjarti Þorvarðarsyni.
Morgunblaðið/Alfons
Hjartatæki í stað jólakorta