Morgunblaðið - 13.05.2005, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
EFTIR ÓLAF HAUK SÍMONARSON
SÝNINGIN Norðurland 2005 verð-
ur haldin í Íþróttahöllinni á Ak-
ureyri um hvítasunnuhelgina. Sýn-
ingarbásar eru 65 talsins en
sýnendur eru fleiri þar sem margir
hafa samvinnu um kynningar.
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra opnar sýninguna kl.
16 í dag, en hún verður opin til kl.
20. Á laugardag er opið frá 11 til 18
og 12 til 17 á sunnudag.
Á sýningunni kennir margra
grasa, matvælafyrirtæki kynna það
nýjasta í framleiðslu sinni, við-
burðir á Norðurlandi verða kynnt-
ir, sveitarfélög eru með kynningar-
bása, fornbílar verða á svæðinu,
veltibíll VÍS og sýnikennsla verður
í matreiðslu þorskrétta. Tónlistar-
atriði, m.a. þar sem Paparnir og
Hvanndalsbræður koma við sögu
eru einnig í boði. Það eru almanna-
tengslafyrirtækið Athygli og hand-
knattleiksdeild Íþróttafélagsins
Þórs sem annast framkvæmd sýn-
ingarinnar.
Norðurland 2005
AKUREYRI
SÍMENNTUNARNÁM í kín-
versku, bæði í máli og menningu,
verður á næstu misserum komið á
fót við Háskólann á Akureyri.
Kenndir verða áfangar í helsta
tungumáli Kínverja, þróun og
stöðu kínversks viðskiptalífs, kín-
verskum viðskiptaháttum og kín-
verskri nútímamenningu auk
nokkurra annarra menningar-
námskeiða. Þá er einnig í burð-
arliðnum samstarfsverkefni Há-
skólans á Akureyri og Háskóla
Íslands í austrænum fræðum.
Af þessu tilefni afhenti Yang
Junqi frá kínverska sendiráðinu á
Íslandi Bókasafni háskólans veg-
lega bókagjöf í gær, um 1.000
valdar kínverskar bækur, sem nú
er búið að koma fyrir á Bókasafni
háskólans þar sem þær eru til
sýnis. Flestar eru þær á kín-
versku, en nokkrar á ensku eða
báðum tungumálum og verða þær
landsmönnum öllum aðgengilegar
gegnum millilánasafn.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sagði
ánægjulegt að samband við Kína
og kínverska háskóla væri að
styrkjast um þessar mundir, en í
hópi kennara
og nemenda
háskólans
eru Kínverj-
ar, „sem hafa
flust hingað
til að taka
þátt í upp-
byggingu há-
skólans og
lagt sitt mik-
ilvæga fram-
lag til þess af
mörkum“.
Sagði rektor
ekki þurfa að
fjölyrða um
hversu mik-
ilvægt væri
nú á tímum
að kunna skil
á kínverskri
tungu og
menningu,
með vaxandi
samskiptum
við landið.
Gat rektor
þess einnig
að fulltrúi frá
háskólanum
yrði með for-
seta Íslands í för hans til Kína
innan tíðar, en hann myndi heim-
sækja 6 kínverska háskóla í ferð-
inni, „sem vonandi hefur í för
með sér aukin samskipti okkar og
þeirra“.
Yang Junqi, fulltrúi kínverska
sendiráðsins, afhenti gjöfina
formlega við athöfn á Bókasafni
háskólans og lýsti yfir ánægju
sinni með að brátt hæfist kennsla
í kínversku og kínverskri menn-
ingu við Háskólann á Akureyri,
en að hans sögn vilja æ fleiri til-
einka sér tungumálið, enda væri
landið vaxandi markaður í alþjóð-
legum viðskiptum. Menning þjóð-
arinnar væri einnig að taka breyt-
ingum og því tækju landsmenn
einnig meiri þátt í samskiptum á
sviði vísinda. Alls væru 2.300 há-
skólar í heiminum sem byðu upp
á nám í kínversku, í um 100 lönd-
um og væru um þessar mundir
um 30 milljónir manna að læra
tungumálið. Háskólinn á Akureyri
væri nú að skipa sér í hópa há-
skóla sem byðu upp á slíkt nám,
„og ég yrði ekki hissa þó ég hitti í
nánustu framtíð fyrir Íslending
sem ræddi við mig málið á kín-
versku“.
Símenntun í kínversku máli og menningu við Háskólann á Akureyri
Fékk um 1.000 kínverskar bækur að gjöf
Morgunblaðið/Kristján
Bókagjöf Yang Junqi frá kínverska sendiráðinu á Íslandi
afhenti Þorsteini Gunnarssyni, rektor HA, bókagjöfina.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Sýningar | Leikklúbburinn Saga
verður með þrjár aukasýningar á
verkinu Davíð Oddsson – súperstar.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og
hefur verkið fengið mjög góðar við-
tökur. Sýningarnar verða í kvöld, 13.
maí og um helgina, 14. og 15. maí og
hefjast allar kl. 20. Sýnt er í Húsinu
við Hafnarstræti.
Tónleikar | Tónleikar verða í sal
Tónlistarskólans að Hvannavöllum 14
á föstudag, 13. maí, kl. 18.30 þar sem
fram kemur Teitur Birgisson saxó-
fónleikari. Tvennir fiðlutónleikar
verða svo á sama stað á laugardag,
14. maí. Unnur Birna Björnsdóttir
spilar kl. 14 og Pawel og Tomasz
Kolosowski kl. 16. Meðleikari á píanó
á öllum tónleikunum er Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir. Tónleikarnir eru
hluti af framhaldsprófi þessara nem-
enda. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
UPPSVEIFLAN í golfíþróttinni
virðist engan endi ætla að taka, og
áformar Golfklúbbur Kópavogs og
Garðabæjar (GKG) nú að stækka völl-
inn út 18 holum í 27, og er vinna langt
komin við uppbyggingu nýju braut-
anna. Reiknað er með því að þær
verði tilbúnar til notkunar síðla sum-
ars 2006 eða vorið 2007.
Jóhann Gunnar Stefánsson, for-
maður GKG, segir að meðlimir í
klúbbnum séu í dag um 1.300, sem sé
hámarkið á meðan leikið er á 18 hol-
um. Þegar 9 holur hafi bæst við geti
fjöldi meðlima farið í um 1.500, og
enginn skortur á eftirspurn.
Það er í raun Kópavogsbær sem
hefur alfarið tekið að sér að gera nýju
brautirnar í Leirdalnum, sem liggur
meðfram Salahverfi og upp að Kóra-
hverfi. Þegar starfsmenn bæjarins og
verktakar á þeirra vegum hafa lokið
við mestan undirbúninginn taka svo
vallarstarfsmenn GKG við, sá í völl-
inn, bera áburð, vökva og slá til þess
að völlurinn verði sem bestur.
Golf og hestamennska
Jóhann segist ekki vita nákvæm-
lega hver kostnaður Kópavogsbæjar
vegna þessa er, en segir að í dag sé
hann trúlega nálægt 100 milljónum
króna. „Kópavogskaupstaður og bæj-
aryfirvöld í Kópavogi eiga allan heið-
ur skilið fyrir það frumkvæði sem þeir
áttu við það að gera þetta. Það er
ótrúlega stórhuga að nota þetta land,
sem hefði örugglega verið hægt að
selja fyrir
hundruð millj-
óna undir bygg-
ingar, undir
golfvöll.“
Þrátt fyrir að
mikil mynd sé
þegar komin á
hinar nýju
brautir er enn
mikil vinna
framundan við
að sá rétta gras-
inu, nota sér-
blandaðan
áburð svo það
vaxi vel, ásamt
hefðbundnum
sumarverkum
eins og að
vökva og slá,
áður en brautirnar og flatirnar verða
tilbúnar. Jóhann segir að samkvæmt
áætlunum klúbbsins sé reiknað með
því að nýju holurnar verði tilbúnar
vorið 2007, þegar landsmót Ung-
mennasambands Íslands fer fram í
Kópavogi. Hann segir að það velti að
sjálfsögðu mest af öllu á veðurfari, en
er vongóður um að hægt verði að
byrja að spila haustið 2006.
Athygli vekur að reiðstígur liggur
þvert á Leirdalinn, og mun hann
liggja þar áfram, þvert yfir golfvöll-
inn. Jóhann segir golfspilara og
hestamenn eiga auðvelt með að lifa
saman í sátt og samlyndi, og reiðstíg-
ar liggi þegar meðfram vellinum að
hluta.
„Það er ekkert annað en ánægju-
legt að eiga samstarf við hestamenn.
Það eina sem hefur komið fyrir teng-
ist lausagöngu hesta, sem er alger-
lega banvæn fyrir golfvöllinn og
ómetanlegt tjón sem við getum orðið
fyrir. En hestar á ferð á sínum stað og
golfarar á sínum stað er ekki eitthvað
sem við höfum áhyggjur af.“
Mikið veltur á staðarvali
nýs golfskála
Golfklúbburinn stendur frammi
fyrir erfiðu vali, nú þegar einnig hefur
verið ákveðið að reisa nýjan golfskála.
Jóhann segir þann möguleika sem
reiknað sé með í dag vera að reisa
skálann þar sem núverandi golfskáli
stendur. Þá yrði hægt að leika fyrstu
þrjár holurnar á núverandi velli, fara
svo nýju holurnar í Leirdalnum, og
klára svo 18 holur með því að leika 6
holur á gamla vellinum til baka að
skálanum. Þar sé gallinn sá að ekki sé
hægt að koma við í skálanum að lokn-
um 9 holum þar sem þá séu golfararn-
ir staddir upp undir Kórahverfi. Svo
verði 9 holur næst Reykjanesbraut-
inni aukalega sem hægt sé að spila
einar sér.
Hinn möguleikinn er svo að reisa
skálann nær Leirdalnum og skipu-
leggja völlinn sem nokkurs konar
þrjá 9 holu velli, svo hægt sé að spila
hvaða 9 holur sem er í þeirri röð sem
hentar. Það segir Jóhann e.t.v. henta
betur, en ekki hefur verið tekin end-
anleg ákvörðun um hvor leiðin verður
farin. Það sé þó e.t.v. heppilegra þar
sem meirihluti þeirra sem koma og
spila komi e.t.v. eftir vinnu og séu
bara að fara 9 holur.
Mikil uppbygging er fyrirhuguð hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar fram til ársins 2007
Níu holur bætast við
í Leirdal á næstu árum
Uppsveifla í golfinu Jóhann segir að meðlimum í GKG
gæti fjölgað í 1.500 þegar nýju holurnar verða komnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Golf í Leirdalnum Nýju brautirnar í Leirdal liggja meðfram Salahverfi að
Kórahverfi. Í bakgrunni er núverandi golfvöllur.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Morgunblaðið/Golli