Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku vinur, þá er þrautum þínum
lokið. Margt hefði öðruvísi farið ef
engin mistök hefðu orðið, en svona
er lífið. Við minnumst þín sem
ógleymanlegs gleðigjafa á okkar
heimili og annarra. Þú eignaðist
marga vini sem allir minnast þín sem
kraftaverks svo ekki sé meira sagt.
Eitt skyggði þó á í þínu lífi, það að þú
fékkst suma, þér nána, ekki til að
viðurkenna þig, en svona fer nú sumt
í þessu lífi. Langamma þín orti þessa
vísu sem við setjum hér með en hún
lýsir vel þinni lífssýn.
Ég vildi mega lifa lengur
og lífsins njóta, eins og gengur.
En við því ekkert er að segja
ef ég núna verð að deyja.
(GJG.)
Góður guð verði sál þinni náðugur.
Amma og afi, Funalind 1.
Elsku Hilmar Már. Ég sakna þín
svo mikið að það að hafa þig ekki
lengur hér er alveg óhugsanlegt.
Hvað þú varst alltaf svo góður og
yndislegur þrátt fyrir öll „prakkara-
strikin“ sem eru núna góð minning.
Og það verður tómlegt að vita að það
komi ekkert meira óvænt frá þér …
Allar minningar um þig eru góðar.
Ég man þegar þú varst alltaf að
bjóða mér á handboltaleiki en ég
hafði alltaf eitthvað annað að gera.
Ég sé svo eftir að hafa ekki farið með
þér, því að nú er það of seint. Ég
elska þig svo mikið að það er svo sárt
að þú sért farinn en ég veit að þér líð-
ur vel hjá Guði. Ég er alltaf að biðja
fyrir þér og mér finnst alltaf eins og
þú sért við hliðina á mér þegar ég
tala um þig.
Þú áttir ekki skilið allar þessar
þjáningar. Ég fann svo til með þér og
HILMAR MÁR
JÓNSSON
✝ Hilmar MárJónsson fæddist í
Reykjavík 1. júní
1983. Hann lést á
endurhæfingardeild
Grensásdeildar 7.
maí síðastliðinn. For-
eldrar Hilmars Más
eru Sigrún Guðjóns-
dóttir og Friðfinnur
L. Hilmarsson. Hilm-
ar Már ólst að mestu
leyti upp í Hnífsdal
og Kópavogi hjá
móður sinni og fóst-
urföður, Jóni Krist-
jánssyni. Systur hans
sammæðra eru Elsa Borg Jóns-
dóttir og Ester Ýr Jónsdóttir,
bræður hans samfeðra eru Hlynur
og Samúel.
Unnusta Hilmars Más er Aníta
Geirsdóttir.
Síðastliðin 3 ár bjó Hilmar Már
á sambýli fyrir fatlaða á Markar-
flöt 1 í Garðabæ.
Hilmar Már verður jarðsunginn
frá Digraneskirkju í Kópavogi í
dag og hefst athöfnin klukkan 13.
það er örugglega léttir
að vera kominn til
himnaríkis. Eins og
flestir vita þá á engill
að vera á meðal engla.
Ég ætla að fara á
Man. Utd. vs Arsenal
hvað sem það kostar og
þá getur þú fylgst með
leiknum að ofan.
Það er oft sagt að
þegar maður missir
einhvern náinn, þá sé
stór partur af sjálfum
manni horfinn. Og það
er alveg satt, það vant-
ar hluta af mér og það
ert því miður þú, Hilmar Már, þó að
minningin sé alltaf til staðar. Mér
líður alveg ólýsanlega illa, mér finnst
eins og ég sé að missa allt frá mér,
allt sem mér þykir vænt um. Þar í
efsta sæti ert þú, Hilmar Már. Það er
svo sárt að ég er alltaf með svona
kökk í hálsinum og mest í hjartanu.
Núna virkilega finnst mér að það sé
að springa. Hver eru takmörkin fyrir
sorg? Samt finn ég fyrir sælu og
gleði yfir því að þú sért kominn í nýj-
an og betri heim þar sem þú ert
öruggur. En þá finnst mér ég vera
einhver eigingjörn frekja að vilja
hafa þig hjá mér. En þannig er til-
finningin að hafa þig ekki til staðar,
þar sem þú hefur verið allt mitt líf, er
ómögulegt líf án þín.
Ef að þú værir núna hjá mér
myndi ég fara með þér út í fjöru í
myrkrinu, og við myndum finna fyrir
golunni í andlitinu og hlusta á sjóinn.
Það væri yndisleg tilfinning. Ég
heyri í sjónum núna og get alveg
ímyndað mér það. Það er allt á hvolfi
í hausnum á mér. Það er svo margt
sem ég get skrifað núna um þig að
það tæki eilífð að skrifa það allt.
Þú varst alltaf svo góður við alla í
kring um þig og alltaf svo gjafmildur
að stundum passaði maður sig á að
biðja þig ekki um allt of mikið því að
þú sagðir næstum aldrei nei við fólk.
Elskaðir lakkrís, coke, rauðan lit,
Man. Utd., hassý-kjötrétt, snúð með
bleikum glassúr, allt fólk í kring um
þig og svo margt fleira.
Þó að þú hafir stundum verið pirr-
aður, reiður eða nokkuð annað þá
elskuðu samt allir þig. Þú stakkst
upp á svo furðulegum hlutum sem
fáum myndi detta í hug.
Þetta verður allt tómlegt án þín,
Hilmar Már, og ég myndi gefa allt
sem ég á fyrir að heyra þig anda, sjá
þig brosa og geta sýnt þér hvað ég
elska þig mikið. Kveðja, þín systir,
sem mun alltaf elska þig,
Elsa Borg.
Elsku Hilmar Már, þú varst frá-
bær manneskja og varst alltaf svo
góður og gjafmildur. Það var alveg
sama hvað gerðist í þínu lífi, þú hélst
alltaf áfram jákvæður um að allt yrði
í lagi.
Ég man þegar þú ætlaðir út með
Hektor hundinn okkar í göngutúr,
ábyggilega í fyrsta skipti, en það
ruglaðist eitthvað smá og Hektor fór
út með þig í staðinn og hljóp æstur út
um allt og þú á eftir.
En Hilmar Már, ég elska þig alveg
ólýsanlega mikið og ég sakna þín líka
alveg ólýsanlega mikið. En núna líð-
ur þér ábyggilega miklu betur og ég
veit að Guð og Jesús munu hugsa vel
um þig og megir þú hvíla í friði, elsku
bróðir minn.
Þín elskandi systir
Ester Ýr.
Hilmar Már Jónsson fæddist 1.
júní 1983. Hann lést laugardaginn 7.
maí sl. aðeins tæplega 22 ára að
aldri. Þó að Hilmar hafi verið ungur
að árum er hann kvaddi þennan heim
eru margar minningar sem fara um
huga okkar er við kveðjum hann í
hinsta sinni. Allar eru þessar minn-
ingar fallegar og hlýja okkur um
hjartarætur. Hilmar var mjög sér-
stakur drengur. Allir sem eitt sinn
hittu hann muna alltaf eftir honum.
Hann hafði búið hér í sambýlinu í
Markarflöt í rúm þrjú ár og við sökn-
um hans öll, nú þegar hann er farinn.
Hilmar var glaðlyndur, fjörugur,
hlýr, barngóður, skemmtilegur, hug-
myndaríkur og afskaplega atorku-
samur. Hann vildi alltaf hafa nóg að
gera og stundum fannst honum hlut-
irnir ganga allt of hægt fyrir sig og
alls ekki nóg vera að gerast. Hilmar
veiktist hinn 31. október sl. og komst
aldrei á fætur aftur. Hann var ein-
staklega duglegur og var að sjálf-
sögðu ekki sáttur við að geta ekki lif-
að því lífi sem hann var vanur að lifa,
en hann barðist eins og hetja til síð-
ustu stundar.
Sem dæmi um hlýju og gæsku
Hilmars langar okkar að minnast
nokkurra atburða, úr lífi Hilmars,
sem gerðust hér á heimilinu. Svo
óheppilega vildi til að það kviknaði í
hjá einum starfsmanninum og var
kötturinn hennar lokaður inni. Hilm-
ar Már spurði strax um köttinn og
þegar hann heyrði að hann gæti ekki
mjálmað sagði hann „þá getur hann
ekki talað“. Þetta var að sjálfsögðu
alveg rétt athugað hjá Hilmari. Ann-
að tilvik var þegar starfsmaður
missti móður sína. Þá sýndi Hilmar
henni mikla samúð, meiri en margur
annar, var einstaklega nærgætinn
og samúðarfullur. Enn eitt atvik var
að starfsmaður hafði verið veikur í
langan tíma. Þegar Hilmar frétti að
von væri á henni aftur, bað hann um
að keypt væri handa henni ný
svunta, en hún notar alltaf svuntu.
Margar álíka minningar koma upp
í hugann, nú þegar við kveðjum
Hilmar Má. Öllum sem kynntust
honum þótti vænt um hann. Alveg
sama hvort það voru konurnar sem
afgreiddu hann í bankanum, stræt-
isvagnabílstjórarnir sem hann ferð-
aðist mikið með, húsverðirnir í
íþróttahúsunum, en Hilmar hafði
mikinn áhuga á fótbolta, eða við sem
vorum með honum daglega.
Nú er enginn í Markarflötinni sem
tekur á móti okkur úti á hlaði, okkur
sem komum snemma á morgunvakt-
ir, en það var svo notalegt, enginn
strákur til að lesa fyrir bænirnar á
kvöldin og enginn sem kennir okkur
eins og þú gerðir.
Við vonum, elsku Hilmar, að
draumar þínir geti ræst þar sem þú
ert núna. Draumar um að „geta verið
venjulegur og lifað venjulegu lífi“
eins og þú orðaðir það sjálfur. Fötlun
þín kom í veg fyrir það hér á jörðu og
þú varst aldrei alveg sáttur við það.
En þú lifðir samt mjög innihaldsríku
lífi, varst svo sætur strákur, áttir svo
góða kærustu, hafðir svo mörg
áhugamál, áttir svo stóra drauma,
gafst okkur svo mikið.
Okkur langar að lokum að senda
þér okkar dýpstu þakklætiskveðjur
með eftirfarandi orðum Einars Ben.
Vor ævi stuttrar stundar
er stefnd til Drottins fundar,
að heyra lífs og liðins dóm.
En mannsins sonar mildi
skal máttug standa í gildi.
Hún boðast oss í engils róm.
Svo helgist hjartans varðar.
Ei hrynur tár til jarðar
í trú, að ekki talið sé.
Í aldastormsins straumi
og stundarbarnsins draumi
oss veita himnar vernd og hlé.
Um leið og við biðjum Guð að
blessa þig, elsku strákurinn okkar,
sendum við fjölskyldu þinni okkar
einlægustu samúðarkveðjur.
Íbúar og starfsfólk
Markarflöt 1, Garðabæ.
Elskulegi frændi minn, Hilmar
Már, er fallinn frá. Þín hefur beðið
mikilvægt verkefni hjá guði þar sem
þú ert tekinn frá okkur svona ungur.
Hetja er það orð sem kemur í hug-
ann þar sem þú hefur barist við mikil
veikindi síðastliðna mánuði. Þær
stundir sem ég hef fengið að eiga
með þér eru ógleymanlegar og
þakka ég fyrir að hafa átt hlutdeild í
lífi þínu. Það tómarúm sem komið er
í hjarta mitt, fylli ég af hlýjum minn-
ingum um yndislegan, brosmildan
dreng sem ég elska svo innilega
heitt. Þú varst alltaf svo góður við
alla og vildir öllum vel. Vörubíllinn
sem þú smíðaðir og gafst Sigmari
Jósepi vitnar um handlagni þína.
Minningarnar hrannast upp og eru
þær allar skreyttar töfrandi brosi
þínu og einlægni. Ég var að rifja upp
þegar þú fékkst fyrsta reiðhjólið þitt
í afmælisgjöf, þú ljómaðir af ánægju.
Það verður erfitt að halda áfram án
þín, vinur minn, en ég hugga mig við
það að þú sért farinn að hlaupa á ný
og þér líði vel.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Sigrún, Jón, Elsa Borg og
Ester Ýr, til ykkar sendi ég mínar
heitustu óskir um blessun ykkur til
handa frá mér og fjölskyldu minni.
Kolbrún (Kolla).
Löngu og ströngu stríði er lokið.
Ljúfur drengur hefur kvatt þennan
heim, söknuður býr í huga þeirra
sem kynntust honum en eftir standa
minningar sem munu ylja um ókom-
in ár. Hilmar var baráttunni vanur,
alla ævi átti hann við vissa fötlun að
stríða og ýmsar orrustur hefur hon-
um tekist að sigra í gegnum árin. Í
rúmt hálft ár hefur þessi síðasta orr-
usta Hilmars staðið, oft var hopað en
alltaf tókst Hilmari að safna kröftum
og sækja fram að nýju. Svo fór þó
loks að hann varð að lúta í lægra
haldi fyrir sláttumanninum mikla
sem alla sigrar að lokum, það var
bara svo allt of snemmt í þessu til-
felli.
Þrátt fyrir skyldleika okkar Hilm-
ars má segja að við höfum í raun ekki
kynnst fyrr en hann var orðinn ung-
lingur og mætti á ættarmót í Efri-
Hrepp með ÍA trefil. Þá kom það
fljótt í ljós að áhugi hans á íþróttum
var mikill, sérstaklega knattspyrnu
þar sem íslenska uppáhaldsliðið
hans var einmitt Skaginn. Eftir það
varð ekki aftur snúið, sameiginlegur
íþróttaáhugi skapaði vináttutengsl
þrátt fyrir aldursmuninn. Jóhannes
fékk umsvifalaust heiðurstitilinn
frændi þótt þeir væru í raun ekkert
skyldir. Ekki spillti það heldur fyrir
að þeir áttu sama uppáhaldsliðið í
enska boltanum, en þar kom enginn
að tómum kofunum hjá Hilmari,
hann var með allt á hreinu um alla
leikmennina, hverjir skoruðu og á
hvaða mínútu. Oftar en ekki hringdi
síminn að loknum leik í enska bolt-
anum, Jóhannes tók upp tólið og þá
heyrðist kannski: „Sæll, frændi!
Viltu hringja?“ Þá var inneignin bú-
in. Og svo: „Heyrðu, frændi, þetta
var nú ekki nógu gott hjá okkar
mönnum“
Stundum fór Hilmar með okkur á
meistaraflokksleiki, því miður allt of
sjaldan.
Mikið var gaman að fylgjast með
honum þá, uppáklæddum í Skagalit-
unum og sindrandi af áhuga, ekki
síst á úrslitaleiknum góða þegar
Skagamenn unnu mikilvægan bikar-
meistaratitil.
En nú verða fótboltasamtöl
„frændanna“ ekki fleiri. Við sendum
fjölskyldu Hilmars innilegar samúð-
arkveðjur, blessuð sé minning hans.
Guðrún og Jóhannes.
Þegar við vöknuðum snemma síð-
astliðinn sunnudagsmorgun og litum
út um gluggann skein sólin og fuglar
sungu. Þetta var góð byrjun á fal-
legum degi. Stuttu seinna hringdi
síminn, óvenju snemma, en því mið-
ur voru það ekki góðar fréttir sem
við fengum.
Hilmar Már vinur okkar hafði lát-
ist kvöldið áður. Að sjálfsögðu
bregður manni alltaf við slíkar frétt-
ir, þó alltaf hafði mátt búast við því
að svona gæti farið þar sem Hilmar
hafði átt við erfið veikindi að stríða
undanfarna mánuði. Hilmar var alla
tíð sterkur persónuleiki. Ég kynntist
Hilmari fyrst þegar hann var aðeins
nokkurra mánaða gamall þegar ég
og Sigrún móðir hans sátum saman á
skólabekk. Í gegnum tíðina hittumst
við alltaf öðru hvoru, en undanfarið
meira en áður. Það var engin logn-
molla þar sem Hilmar var, hann vissi
alla tíð hvað það var sem hann vildi
og hélt fast í það.
Hilmar fór sínar eigin leiðir, hann
var oft uppátækjasamur og vissi
stundum ekki í hvorn fótinn hann
átti að stíga. Þegar Hilmar veiktist
hélt ég mestallan tímann að hann
færi nú ekki að gefast upp núna frek-
ar en fyrri daginn, en reyndin varð
önnur.
Oft á tíðum áttum við saman
skemmtilegar stundir með Hilmari.
Þær góðu stundir geymum við í
minningu okkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Sigrún, Jón, Elsa, Ester og
fjölskylda, við sendum ykkur okkar
dýpstu samúðarkveðjur og megi Guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu tím-
um.
Kveðja
Anna Marín, Helgi og börn.
Í dag er fallinn frá elskulegur vin-
ur minn og hlýr drengur, Hilmar
Már Jónsson.
Kynni mín af Hilmari hófust fyrir
alvöru þegar ég vann sem starfsmað-
ur í Kaplakrika þar sem hann var tíð-
ur gestur. Ég sá það strax að þarna
var drengur góður og fann ég að
hann vildi kynnast mér og ég honum.
Ég hugsaði með mér að þarna væri
vinátta sem gæti staðið að eilífu.
Hann var ekki jafn heppinn og flest
okkar og átti við veikindi að stríða
allt sitt líf, þrátt fyrir það lét hann
það ekkert á sig fá. Þegar við vorum
saman þá tók ég honum sem jafn-
ingja og náðum við mjög vel saman á
öllum sviðum. Hann gerði hluti sem
allir á hans aldri gera. Minnisstætt
er þegar við fórum saman í Go-Kart
bílana við Smáralind og hann keyrði
mig útúr brautinni og Sverrir sem
var með okkur hló sig máttlausan.
Þetta var þegar ég var að kveðja
hann áður en ég hélt til útlanda.
Einnig þegar við bónuðum bílinn
minn saman reglulega auk þess að
leika okkur í íþróttahúsinu daginn út
og inn. Hilmar var gæddur þeim
hæfileika að halda með tveimur lið-
um, FH og Haukum, hann hafði það
umfram okkur hin að vera ekki í
endalausu stríði og metingi. Þetta er
mín fyrsta minningargrein og tekur
mikið á en ég veit að hann mun vaka
með mér og mun ég biðja fyrir hon-
um í hvert skipti sem ég leita til
hjálpar guðs, sem gerist oft. Ég held
að tárin sem ég felli tákni frekar
virðingu og vinskap frekar en væmni
og oft gott að losa um tilfinningar.
Þegar pabbi hringdi í mig og tjáði
mér að þú lægir á spítalanum frekar
illa haldinn bað ég fyrir þér, þegar
móðir þín sendi mér kveðjur frá þér í
síðustu viku vaknaði gleðin upp hjá
mér. Það eru ástæður fyrir öllu.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst þér og þegar ég hugsa til
baka streyma minningar beint niður
á mig líkt og regn. Þú ert farinn veg-
inn langa sem við munum öll fara, ég
mun hitta þig vinur minn þegar þar
að kemur og mun aldrei gleyma þér,
aldrei. Fjölskylda þín er frábær og
bið ég guð að leiða ykkur í gegnum
þessa erfiðu tíma, ég votta ykkur alla
mína samúð. Ég tek mér það leyfi að
tala fyrir hönd margra góðra manna
úr Hafnarfirði sem þú eyddir mikl-
um tíma með. Við kveðjum þig með
söknuði og minnumst þín í hjörtum
okkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Einhvern tíma sagði ég að þegar
ég yrði ríkur myndi ég bjóða þér út
til mín, það boð stendur enn og munt
þú fá að vera hjá mér í huganum um
ókomna tíð. Þinn vinur að eilífu.
Logi Geirsson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningar-
greinar