Morgunblaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Tryggvi Vil-mundarson
fæddist í Höfðahús-
um á Fáskrúðsfirði
12. október 1938.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss
laugardaginn 7. maí
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Stefaníu Mörtu
Bjarnadóttur, f. 18.
sept. 1901, d. 13. okt.
1970, og Vilmundar
Sigurðssonar, f. 31.
ágúst 1889, d. 6. júlí 1978. Systkini
Tryggva eru Gunnar, f. 13. des.
1931, d. 17. okt. 1996, og Sigur-
laug, f. 1. júní 1935, búsett í Vest-
mannaeyjum. Synir Mörtu með
fyrri manni sínum, Gunnari Sam-
úelssyni, hálfbræður Tryggva,
voru Bjarni, f. 12. mars. 1926, d.
23. feb. 2004, og Jón Þórir, f. 6.
okt. 1928, d. 1. ágúst 1981.
Tryggvi kvæntist 18. des. 1959
Lilju Jóhannsdóttur, f. á Trölla-
nesi á Norðfirði 25. nóvember
1938, dóttur hjónanna Guðnýjar
Stefaníu Guðmundsdóttir, f. 28.8.
1907, d. 1.8. 1980, og Jóhanns
Jónssonar íþróttakennara, f. 22.3.
ágúst 2000 og Andrea Cecillja, f.
6. júní 2004, b) Björn Natan, f. 11.
ágúst 1987 og c) Hörður Barðdal,
f. 8. mars 1990. 5) Stefanía Marta,
f. 10. mars 1965, d. 12. apríl 1967.
Tryggvi flutt ungur með for-
eldrum sínum frá Fáskrúðsfirði í
Neskaupstað, með stuttri dvöl í
Hellisfirði við Norðfjörð. Tryggvi
og Lilja hófu búskap í Kópavogi
1956 og bjuggu þar og víðar á höf-
uðborgarsvæðinu til 1965 en þá
flytja þau aftur á heimaslóðir í
Neskaupstað og þar hóf Tryggvi
síðan nám í netagerð á Netaverk-
stæði Friðriks Vilhjálmssonar. Að
loknu námi var Tryggvi allmörg
ár til sjós á skipum Síldarvinnsl-
unar. 1974 fór fjölskyldan til
Þórshafnar í Færeyjum þar sem
Tryggvi tók að sér rekstur neta-
verkstæðis. Haustið 1975 kemur
fjöldskyldan heim aftur og er
Tryggvi þá nokkur ár á Berki og
Beiti, nótaskipum Síldarvinnsl-
unnar, þar sem hann hafði verið
áður. Tryggvi tekur svo við verk-
stjórn á Netaverkstæði Friðriks
Vilhjálmssonar í kringum 1984,
og er þar til 1989, er hann gerist
meðeigandi og rekstarstjóri í
Veiðarfæragerð Hornafjarðar og
hafa þau hjónin búið þar síðan.
Veiðarfæragerðin var seld á síð-
asta ári til Ísnets en Tryggvi hélt
áfram sem stjórnandi hjá fyrir-
tækinu.
Útför Tryggva fer fram frá
Fella- og Hólakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
1905, d. 10.1. 1990.
Systkini Lilju eru
Halldór, f. 16. júní
1932, og Sólveig , f. 5.
júlí 1948, bæði búsett
í Garðabæ.
Börn Tryggva og
Lilju eru: 1) Lilja, f.
30. des 1956, dóttir
hennar er Heiða
Dögg, f. 7. nóv. 1975,
sonur hennar Tristan
Jóhannes, f. 28. des.
2004. 2) Vilmundur, f.
20. mars 1961, kvænt-
ur Gyðu Maríu Mar-
vinsdóttir, f. 10. ágúst
1960, börn þeirra eru, a) Guðrún
Halla, f. 21. júní 1979, dóttir henn-
ar Martha María, f. 23. sept 1999,
b) Ólöf María, f. 5. des 1981, sonur
hennar Alexander Vilmar, f. 28.
feb. 2004 og c) Tryggvi, f. 1. júlí
1986. 3) Jóhann, f. 20. mars 1961,
kvæntur Jennýju Sigrúnu Jörgen-
sen, f. 10. janúar 1961, börn
þeirra, a) Stefán Jóhann, f. 12.
sept. 1980, b) Karl Friðrik Jörg-
ensen, f. 11. feb. 1986, c) Bjartur
Þór, f. 18. mars 1994 og d) Lilja
Tekla, f. 18. sept 1995. 4) Bjarni, f.
6. des 1963, börn hans eru, a)
Svanhildur Jóna, f. 12. sept. 1980,
börn hennar Jakop William, f. 15.
Drýpur sorg á dáins vinar rann,
Drottinn, huggaðu alla er syrgja hann,
börnin ung sem brennheit fella tár,
besti faðir, græddu þeirra sár.
Þú ert einn sem leggur líkn með þraut
á lífsins örðugustu þyrnibraut.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Í dag kveð ég góðan tengdaföður
minn, Tryggva Vilmundarson. Nú
þegar hann er farinn frá okkur
streyma allar minningarnar fram í
huga mér, minningar sem við geym-
um í hjarta okkar. Hann var trygg-
ur og góður vinur, það var ávallt
gott að leita til þeirra hjóna.
Tryggvi var fullur af fróðleik sem
barnabörnin fengu að njóta. Hann
var tekinn frá okkur allt of fljótt,
aðeins 66 ára, lífið er ekki alltaf
réttlátt.
Elsku tengdapabbi, með þessum
fáu orðum vil ég þakka þér fyrir
samfylgdina.
Þín tengdadóttir,
Gyða María.
Elsku afi. Lífið er ekki alltaf
sanngjarnt, en það hefur víst sinn
gang og verðum við að sætta okkur
við að þú sért kominn á betri stað.
Við barnabörnin viljum, með þess-
um fáu orðum, minnast þeirra
stunda sem við áttum með þér. Þær
verða ávallt vel geymdar. Tryggvi
afi var þögull maður, en alltaf svo
góður og blíður. Hann fylgdist vel
með okkur öllum og því sem við tók-
um okkur fyrir hendur. Alltaf feng-
um við hlýjar móttökur þegar við
komum til ömmu og afa á Höfn. Á
Humarhátíð var gerð hin gómsæta
humarsúpa sem Hörður man svo vel
eftir. Afi var maður sem orti fjölda
vísna og vísurnar sem hann kunni
eftir aðra voru enn fleiri. Alltaf lum-
aði hann á einni við hvert tilefni. Öll
munum við eftir því að hann hafði
ótrúlega gaman af því að deila þessu
með okkur og virðast þessi gen vera
í okkur öllum.
Okkur er minnisstætt þegar nær
öll fjölskyldan hittist í Svíþjóð hjá
Gyðu og Villa. Þá var mikið hlegið
eins og alltaf. Tekið var upp á því að
fara í skemmtigarð og gista þar. Við
krakkarnir skemmtum okkur kon-
unglega í vatnsrennibrautum og
öðrum tækjum og munum eftir afa í
stuttbuxum, fráhnepptri stutt-
ermaskyrtu, sólbrunnum með
bumbuna útí loftið og með
skipstjórahúfu sem hann keypti
handa sér og einnig handa litlu kút-
unum sínum Teypa og Túlla. Þeir
sem lentu í kofa með ömmu og afa
fengu ekki mikinn svefn fyrir ýms-
um búkhljóðum.
Við munum flest eftir veiðidell-
unni í afa og ekki síst eftir ferðinni
þegar hann bakkaði yfir nýja veiði-
boxið hans Kalla. Öll höfum við ein-
hvern tímann farið með afa í veiði-
ferð.
Hann gaf sér alltaf tíma til segja
okkur sögur og gera eitthvað með
okkur. Þá var alltaf gert eitthvað
skemmtilegt.
Við munum eftir þegar hann
sagði Kalla og Tryggva söguna um
einbjörn, tvíbjörn og þríbjörn. Svo
var afi orðin þreyttur og allt í einu
segir annar strákanna: Afi, nú ertu
farinn að tala í hringi.
Okkur stelpunum fannst ekkert
skemmtilegara en þegar afi sagði
við ömmu að reyna að losa smápláss
úr fataskápnum og fórum við þá
með ömmu í fataskápatiltekt og
fengum fullt af ónotuðum tískuföt-
um. Hann fylgdist með en sagði fátt,
glotti og fannst gaman að fylgjast
með.
Öll barnabörnin fengu að vera hjá
ömmu og afa fermingarsumarið sitt.
Enginn mun gleyma sumrinu sem
Stefán Jóhann fitnaði. Hann lifði
góðu lífi í þessar vikur. Uppáhalds-
maturinn var borinn fram, þar á
meðal var franskbrauð og öll barna-
börnin fengu að vera hjá ömmu og
afa fermingarsumarið sitt steik í
kvöldmat.
Þetta eru nokkrar minningar af
mörgum sem við eigum um afa og
erum sammála um það að hann var
af gulli gerður og vildi öllum vel.
Elsku afi, við kveðjum þig og
biðjum Guð að geyma.
Þín barnabörn
Stefán Jóhann, Karl Friðrik,
Tryggvi, Björn Natan, Hörður,
Guðrún Halla, Ólöf María.
Elsku afi minn.
Núna þegar guð hefur kallað sinn
engil á jörðu aftur til sín, verðum
við að varðveita minningu þína.
Minningu sem ekki er auðvelt að út-
skýra fyrir öðrum. Þitt skakka bros
og þín björtu augu, þín innri ró sem
var alltaf yfir þér, léttleikinn sem
fékk mig til að brosa, og indælu orð-
in sem þú áttir alltaf handa mér.
Ást þína til fjölskyldunnar sá ég
þegar við hittumst fyrir stuttu, þá
sá ég mjög stoltan mann, yfir að
vera eiginmaður, faðir, afi og
langafi, og augu þín gátu ekki leynt
ánægjunni, hún lýsti úr augum þín-
um. Þegar ég sagði syni mínum Jak-
obi frá því að uppáhalds langafi
hans væri engill, svaraði hann:
Þetta er allt í lagi, mamma, ég bara
dreg frá gardínurnar, og þá sé ég
stjörnuna hans. Og það er alveg
rétt, þú ert hjá okkur, um allt í
minningu og hjarta. Vængir þínir
munu faðma okkur og lyfta okkur
upp þegar okkur vantar styrk. Þú
ert góð manneskja með hjartað á
réttum stað, afi minn.
Ég elska þig, afi minn, og mun
sakna þín af öllu mínu hjarta.
Svanhildur Jóna Bjarnadóttir,
Danmörku.
Elsku afi, það er erfitt að sætta
sig við að þú sért ekki lengur hér,
en við vonum að nú sért þú kominn
á góðan stað hjá henni Stefaníu
Mörtu.
Við hefðum svo gjarnan viljað
eiga meiri tíma með þér, geta komið
í heimsókn, Bjartur að kíkja á verk-
stæðið með þér og Lilja að fá reykt-
an silung, sem alltaf var til hjá þér.
En nú reynum við að hugsa um
ömmu og kveðjum þig og vonum að
þér líði vel.
Nú guð ég vona að gefi
af gæsku sinni frið
og sársaukann hann sefi
af sálu allri ég bið
En þó að sárt sé saknað
og sól sé bak við ský
þá vonir geta vaknað
og vermt okkur á ný
Þá ljósið oss mun leiða
með ljúfum minningum
og götu okkar greiða
með góðum hugsunum
(JT.)
Bjartur Þór og
Lilja Tekla Jóhannsbörn.
Gaman er að gleðja fólk
á gömlu tungu Braga
hún hefir verið móðurmjólk
mína um lífsins daga.
Þessi vísa eftir K.N. lýsir vel okk-
ar uppvexti og öllum þeim minn-
ingum um pabba sem munu fylgja
okkur um ókomin ár.
Það er komið að kveðjustund og
við vitum að lífið er að heilsa og
kveðja.
Og þó við höfum oft kvatt hann
þegar við vorum yngri er hann var
oft langdvölum að heiman, sjómaður
að afla heimilinu tekna. Það var hins
TRYGGVI
VILMUNDARSON
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Krithóli,
Skagafirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
þriðjudaginn 3. maí síðastliðinn, verður jarð-
sungin í kapellunni á Löngumýri laugardaginn
14. maí kl. 14.00.
Jarðsett verður að Víðimýri.
Guðríður Björnsdóttir, Jónas Kristjánsson,
Kjartan Björnsson, Birna Guðmundsdóttir,
Bára Björnsdóttir,
Ólafur Björnsson, Anna Ragnarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Okkar ástkæri
HENRIK LANGVAD,
fæddur 16.11. 1926,
lést föstudaginn 6. maí.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fjölskyldan.
TERESA HALLGRÍMSSON,
Túngötu 2,
Grindavík,
er látin.
Jarðarför auglýst síðar.
Ættingjar.
Okkar elskulega eiginkona, móðir, tengda-
móðir, dóttir, amma og langamma,
GUÐRÚN MARÍA EIRÍKA EGILSDÓTTIR
(Edda),
lést á heimili sínu þriðjudaginn 10. maí.
Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju
laugardaginn 21. maí kl. 14.00.
Jón Pétur Andrésson,
Egill Guðni Jónsson, Hulda Þorbjarnardóttir,
Vilhelm Jónsson, Bjarney Aðalheiður Pálsdóttir,
Jóhann Jónsson, Svanhildur Jónsdóttir,
Jónas A. Þ. Jónsson, Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir,
Guðný Þ. Jónsdóttir, Gísli M. Auðbergsson,
Egill Egilsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er
vottuðu okkur samúð og vináttu vegna andláts
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
LAUFEYJAR HALLDÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar fyrir ein-
staka umönnun, hjálpsemi og vináttu.
Helga Guðmundsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Gunnar Guðmundsson, Sigrún E. Einarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför móður
minnar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÚNAR HÓLMKELSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-3 á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða
umönnun.
Sjöfn Eyfjörð, Ásgeir Eyjólfsson,
Sigrún Ásgeirsdóttir.
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is