Morgunblaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 41
MINNINGAR
✝ Kristinn Guð-laugur Her-
mannsson fæddist á
Kárnesbraut 95 í
Kópavogi 2. apríl
1948. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 7. maí
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Hermann Mel-
dal, f. 25. júní 1911, d.
11. apríl 1993, og Sig-
ríður Kristmunds-
dóttir, f. 27. janúar
1923, d. 14. nóv.
2002. Systur Kristins
eru a) Hólmfríður, gift Arnþóri
Árnasyni og eiga þau fimm börn,
b) Valgerður, hún á tvö börn, c)
Ágústa Guðríður, eiginmaður Atli
Ragnarsson, hún á þrjú börn, og
d) Hulda, gift Dean Thomas og
eiga þau fimm börn, þau búa í
Houston í Texas.
Kristinn kvæntist hinn 15. apríl
1968 Ingu Jónu Stefánsdóttur, f.
7. sept. 1948. Foreldrar hennar
eru Stefán Jóhannsson, f. í Fljót-
um 12. des. 1916, d. 13. sept. 1997
og Sigríður Sóley Sigurjónsdóttir,
f. í Fljótum 7. maí. 1930 Börn
þeirra Kristins og Ingu Jónu eru:
1) Sigríður Sóley, f. 15. nóv. 1969,
gift Bjarna Traustasyni, f. 10. okt.
1966. Börn þeirra
eru Eyþór Trausti, f.
24. mars 1997, Fann-
ey Ósk, f. 28. feb.
1999 og Kristinn
Rafn, f. 16. ágúst
2004. 2) Heiðrún
Meldal, f. 4. jan.
1972. 3) Selma
Hrönn, f. 16. nóv.
1980, sambýlismað-
ur Ólafur Kári Júl-
íusson. 4) Stefán
Þór, f. 17. júlí 1986.
Krissi, eins og
hann var oftast kall-
aður, ólst upp í
Kópavogi og gekk þar í skóla.
Hann lærði bifvélavirkun hjá
Strætisvögnum Kópavogs og vann
síðan hjá Bílaverkstæðinu Kambi.
Árið 1976 keyptu þau Kristinn og
Inga Jóna Molastaði í Fljótum og
stunduðu þar sauðfjárbúskap í
tuttugu ár. Krissi var í hrepps-
nefnd Holtshrepps til nokkurra
ára. Einnig var hann einn af stofn-
endum Miklalax í Fljótum og var
lengst af í stjórn þess fyrirtækis.
Á sjóinn fór Krissi árið 1994 og
var lengst af baadermaður á
Kleifarbergi frá Ólafsfirði.
Útför Kristins fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Minningar um Krissa mág minn
eru allar góðar. Man ekki eftir neinu
slæmu þegar ég lít um öxl og hugsa
til baka. Fannst t.d. eftirtektarvert
að hún amma mín sem dó þegar ég
var lítil hældi honum í hástert en það
er eitt af fáum minningarbrotum
sem ég á um hana. Eða þegar ég var
nýbúin að taka bílpróf og Inga systir
bað mig að keyra þau eitthvert því
þau voru búin að fá sér í glas. Ég var
ung og óreynd, keyrði löturhægt og
næstum upp á gangstéttunum og þá
gætti óþolinmæði hjá systur minni
sem bað mig að aka hraðar en Krissi
skildi að ég var ennþá græn bak við
eyrun og þyrfti meiri tíma við akst-
urinn og sussaði á systur mína svo
hún þagnaði. Þá var ég þakklát
Krissa.
Alltaf var gott að koma til Ingu og
Krissa í heimsókn og gestrisnara
fólk er vandfundið og vafðist ekki
fyrir Krissa frekar en Ingu að galdra
fram fínustu veitingar. Alltaf leið
manni vel hjá þeim.
Það var reiðarslag fyrir alla fjöl-
skylduna þegar Krissi veiktist í jan-
úar á þessu ári og greindist með
heilaæxli en ekki bjuggumst við að
tíminn sem hann ætti eftir yrði svona
stuttur því hraustari og vinnusamari
mann er erfitt að finna, man varla
eftir honum veikum.
Ég heimsótti hann á spítalann
tveimur dögum áður en hann dó og lá
þá vel á honum, hann reytti af sér
nokkra brandara, sagði meðal ann-
ars að hann þyrfti að fara að komast í
bílskúrinn í smurolíuna því hárið
væri orðið svo grátt og setti hend-
urnar í hárið á sér eins og hann gæti
litað það með smurolíu. Já, hann var
harður af sér, kannski of harður því
við hin áttuðum okkur ekki á hversu
langt hann var leiddur í veikindum
sínum. En svona var hann, harður
nagli allt til dauðadags.
Ég votta systur minni, Ingu Jónu,
börnum og barnabörnum dýpstu
samúð mína og fjölskyldunnar. Guð
veri með ykkur.
Þín mágkona
Linda María.
Í dag kveðjum við þig, Krissi,
minn kæri vinur og svili, sem látinn
ert langt um aldur fram.
Kynni okkar hófust fyrir rúmum
36 árum þegar við Helga byrjuðum
saman og þið Inga bjugguð á Borg-
arholtsbrautinni. Við vorum líka
saman í bekk í Iðnskólanum, þú í bif-
vélavirkjun og ég í rafvirkjun. Dugn-
aður þinn alla tíð var með ólíkindum
og afköst mikil í öllu sem þú tókst
þér fyrir hendur. Það lýsir vel
hversu duglegur þú varst að þú
varðst orðinn verkstjóri hjá Kamb
bílaverkstæði fljótlega eftir nám. Þú
varst alltaf tilbúinn til hjálpar þegar
einhver þurfti aðstoð. Ófá skiptin
gerðir þú við bílana mína hér á árum
áður, skreyttir íbúðirnar hjá
mömmu þinni og tengdamömmu fyr-
ir jólin og svo mætti endalaust telja.
Leiðir okkar lágu í Fljótin þar sem
Rafn, bróðir tengdamömmu okkar,
bjó en þangað fórum við nánast á
hverju sumri með fjölskyldum okk-
ar. Þar var hjálpað við búskapinn
eða skroppið í veiði í Flókadalsá. Ég
man að eitt sinn er við vorum í hey-
skap þá sagði Rafn við mig að mikið
yrði hann Krissi nú góður bóndi. Það
leið heldur ekki á löngu því 1976
keyptuð þið hjónin Molastaði í Fljót-
um þar sem þið bjugguð í rúm 20 ár.
Á Molastöðum var mjög gestkvæmt
enda gott að koma og þið hjónin bæði
fram úr hófi gestrisin. Einhverjar al-
bestu matarveislur, bæði grillveislur
og holusteikveislur, sem ég hef kom-
ist í eru hjá ykkur hjónum. Þegar þið
fluttuð í bæinn keyptuð þið íbúð í
Galtalind í Kópavogi og síðan raðhús
í Jörfalindinni. Þar hafið þið útbúið
glæsilegt heimili með þínu hand-
bragði í hverju rými enda lék allt í
höndum þér, sama hvað þú tókst þér
fyrir hendur. Eftir að þið hjónin
fluttust í bæinn höfum við farið sam-
an í golfferðir á hverju ári bæði inn-
anlands og til Spánar. Fyrsta ferðin
sem við fórum fyrir 4 árum var
hringinn í kringum landið. Þetta er
eitthvert albesta sumarfrí sem ég
hef átt um dagana og vil ég þakka
þér fyrir margar góðir stundir.
Inga mín, Sigga, Heiðrún, Selma
og Stefán Þór, við Helga vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og biðj-
um Guð að vera með ykkur.
Guðmundur Ó. Baldursson.
Elsku Krissi minn.
Þegar um nætur þögla stund
ég þreyi einn og felli tár
og hjartað slegið und við und
um öll sín hugsar djúpu sár,
þá er sem góður andi þrátt
að mér hvísli skýrt, en lágt
„senn er nú gjörvöll sigruð þraut;
senn er á enda þyrnibraut“.
(Kristján Jónsson.)
Ég get ekki lýst því með orðum
hversu mikið áfall það er að þú ert
horfinn frá okkur. Frá því að ég
fæddist hefur þú verið svo stór hluti
af lífi mínu, eins og annar pabbi. Ég
var lítill heimalningur á Molastöðum
og hvern einasta dag þegar við Stef-
án vorum að leika okkur í hlöðunni
eða hesthúsunum varst þú þar, fífl-
aðist og grínaðist og varst alltaf
reiðubúinn að hjálpa okkur ef eitt-
hvað var. Þú varst alltaf í góðu skapi,
hress og síhlæjandi, ég sá þig sjaldan
öðruvísi. Allar fetturnar og gretturn-
ar standa mér ljóslifandi fyrir aug-
um og þú gast látið okkur gráta úr
hlátri.
Ég vil þakka þér fyrir allar frá-
bæru stundirnar, alla hlýjuna og vin-
áttuna. Það var gott að vita að ég gat
alltaf leitað til ykkar, hvort sem var á
Molastöðum, Sauðárkróki eða Kópa-
vogi. Hvar sem þið voruð átti ég þar
annað heimili.
Takk fyrir allt, elsku Krissi, þín
Fjóla Guðbjörg.
Áhöfnin á Kleifabergi ÓF-2 hefur
misst góðan vin og félaga með
Kristni Hermannssyni. Krissi, eins
og hann var kallaður, hafði verið með
okkur frá upphafi útgerðar skipsins
frá Ólafsfirði og var einn af þeim sem
mynduðu kjarna áhafnarinnar. Okk-
ur sem unnum með Krissa, varð
strax ljósir mannkostir hans sem
einkenndust mest af heiðarleika í
samskiptum, ósérhlífni við vinnu og
glaðlegu fasi og framkomu. Hann
gekk óhikað til þeirra starfa sem
honum voru falin og vann þau vel.
Hann var glaðlyndur með afbrigðum
þó greina mætti undir niðri alvar-
legri mann, þess sem þurft hefur á
stundum að hafa fyrir lífinu og mót-
aði hann að því sem hann var. Hann
var reffilegur ásýndum, bar sig vel
og laðaði að sér vini og félaga með
háttalagi sínu öllu. Hann var fyrsta
flokks skipsfélagi og afbragðsmaður
í því lokaða samfélagi sem togara-
áhöfn er. Krissi var ekki skaplaus og
engin geðluðra heldur. Hann var
hreinn og beinn yst sem innst og
hafði til að bera alla þá kosti sem
prýða má góðan dreng. Þannig
minnumst við hans. Við kveðjum í
dag með trega þennan góða vin og
félaga, um hann eigum við ekkert
nema góðar minningar.
Við vottum eiginkonu hans og fjöl-
skyldu okkar dýpstu samúð. Þeirra
missir er mikill.
Áhöfnin á Kleifabergi ÓF-2.
Kristinn Hermannsson fæddist 2.
apríl 1948. Kristinn ólst upp í Kópa-
vogi að Kársnesbraut 23 sem er nr.
95 í dag. Hann gekk í Kársnesskóla
og fór svo í Iðnskólann í Reykjavík
og lærði bifvélavirkjun. Hann byrj-
aði ungur að vinna hjá Kópavogsbæ
og Strætisvögnum Kópavogs sem
lærlingur í bifvélavirkjun, síðar lauk
hann meistararéttindum í þeirri
grein. Hann vann hjá bifreiðaverk-
stæðinu Kambi og við Þórisósvirkj-
un.
Kristinn gerðist bóndi 1976 að
Molastöðum í Fljótum og bjuggu
þau Inga Jóna þar í tuttugu ár og
stunduðu sauðfjárbúskap. Á þeim
árum vann hann við fiskeldi í Fljót-
um og svo lá leiðin á sjó og var meðal
annars á Siglfirðingi í Namibíu um
tíma og nú síðast á Kleifaberginu frá
Ólafsfirði.
Kristins er sárt saknað. Hann féll
frá langt um aldur fram eftir stutt en
erfið veikindi. Kristinn og Inga voru
fyrst að njóta lífsins í Jörfalindinni
þegar veikindi Kristins gerðu vart
við sig.
Kristinn var mikill fjölskyldumað-
ur, heilsteyptur, ákveðinn, réttsýnn
og var manna kátastur í vinahóp. Við
sem eftir sitjum söknum Krissa eins
og hann var kallaður. Þannig viljum
við minnast hans og biðjum Guð að
styrkja Ingu Jónu, Siggu, Heiðrúnu,
Selmu og Stefán ásamt öðrum að-
standendum á þessum erfiðum tím-
um.
Jón Stefánsson og
Ásthildur Sigurjónsdóttir.
Þegar þú greindist með krabba-
meinið í janúar átti ég von á að þú
myndir í það minnsta fá sumarið og
jafnvel næstu tvö árin til að vera hér
og gera það sem þig hefur langað til.
En þá finnast ný æxli og eftir þrjá
daga ert þú búinn að kveðja. Eftir
situr minningin um þig, hjálpsaman,
góðviljaðan og duglegan mann. Þú
geymdir ekki til morguns það sem
mátti gera í dag. Húmorinn var í
góðu lagi og þú vildir hafa glaðværð í
kringum þig. Þegar þú varst fársjúk-
ur varstu að segja brandara til að
létt væri yfir þeim sem komu í heim-
sókn. Krissi minn, ég veit að þegar
þú ert búinn að heilsa öllum ættingj-
um og vinum sem voru farnir á und-
an þér, þá ferð þú að athuga hvort þú
finnir ekki góðan húsbíl til að ferðast
um í á himninum og golfsettið verður
með. Þú spilar golf á fallegum völlum
í góðu veðri og þess á milli lítur þú til
okkar og fylgist með að allt sé í lagi.
Nú kveð ég þig, Krissi minn, og
guð gefi Ingu og fjölskyldu styrk, því
þú varst svo umhyggjusamur og
góður eiginmaður og faðir og missir
þeirra er svo mikill.
Helga Kristín.
Kæri vinur. Það er erfitt að sætta
sig við það að maðurinn með ljáinn
hafi tekið þig svona fljótt. Það er svo
óskaplega stutt síðan veikindi þín
komu í ljós, en svona er víst lífið, því
miður. Það var í febrúar sem við sát-
um með þér og Heiðari vini þínum á
Borgarspítalanum, báðir voruð þið
þá orðnir veikir en samt kátir. Þú
hafðir miklar áhyggjur af honum
Heiðari, en ekki af þínum eigin veik-
indum. Þetta lýsti þér svo vel, sann-
ur vinur vina þinna, og að þið skyld-
uð kveðja þennan heim með tveggja
daga millibili. Það er margs að minn-
ast í gegnum árin, eins og það þegar
þið Inga Jóna fluttuð norður í Fljót
og þú gerðist bóndi á Molastöðum.
Þá var bæði gaman og gott að koma
til ykkar. Fá að taka þátt í heyskapn-
um með ykkur, fara í réttir og að
ógleymdu, að lenda á þorrablóti í
sveitinni. Þegar þið fluttuð aftur suð-
ur urðu samverustundirnar fleiri og
var gott að koma í kvöldkaffi til ykk-
ar hjónanna, þar sem ætíð var tekið
á móti manni með mikilli reisn og
glaðlyndi.
Elsku vinur, við viljum með þess-
um fátæklegu orðum þakka þér allar
þær góðu stundir sem við áttum með
þér og Ingu Jónu.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Við biðjum góðan guð að styrkja
Ingu Jónu, Siggu, Heiðrúnu, Selmu,
Stefán, tengdasyni og barnabörnin í
þessari miklu sorg.
Pétur og Una.
Mig langar að minnast í nokkrum
orðum vinar míns Kristins Her-
mannssonar, eða Krissa eins og hann
var jafnan kallaður. Hann lést langt
fyrir aldur fram eftir stutta sjúk-
dómslegu. Við kynntumst árið 1976
þegar Krissi og eiginkona hans Inga
Jóna Stefánsdóttir fluttu til Skaga-
fjarðar og hófu búskap á Molastöð-
um í Fljótum. Þar tóku þau við sauð-
fjárbúi en ég og eiginkona mín
Sigríður Björnsdóttir höfðum þá ný-
lega hafið búskap á Stóru Brekku í
sömu sveit. Krissi var einstaklega
duglegur bóndi og tókst að reka bú
sitt af miklum myndarskap sem hef-
ur oft reynst erfitt í sauðfjárrækt-
inni.
Eitt af því sem einkenndi Krissa
vin minn var hversu óvenjulega
handlaginn hann var. Allt lék í hönd-
um hans hvort sem það voru smíða-
tæki eða vélaviðgerðir. Hann var
ætíð boðinn og búinn að aðstoða
sveitunga sína og ég hygg að enginn
bóndi í Fljótunum hafi ekki notið að-
stoðar hans á einhvern hátt við smíð-
ar eða viðgerðir og margir eiga hon-
um mikið að þakka. Hann var líka
ófáanlegur að taka nokkurn tímann
neitt fyrir þá vinnu sem hann lagði á
sig fyrir Fljótamenn. Krissi reyndist
mér og Sigríði ómetanlegur í okkar
búskap og mörg handtökin átti hann
að Stóru Brekku.
Við Krissi kynntumst náið í gegn-
um störf okkar í hreppsnefnd Fljóta-
hrepps en þar störfuðum við saman
um nokkurt skeið. Árið 1986 réðust
margir fljótamenn í það stórræði að
reka laxeldisstöð Miklalax. Ég starf-
aði þar sem framkvæmdastjóri og
Krissi var í stjórn fyrirtækisins.
Fljótamenn höfðu stóra drauma um
leiðir til að reisa sveitina við aftur
með þessu fyrirtæki en því miður
tókst það ekki.
Fyrirtækið hætti starfsemi árið
1994 og Krissi réði sig þá til sjó-
mennsku hjá Þormóði ramma á
Siglufirði. Hann starfaði á togurum
fyrirtækisins allt til dauðadags en
hann og Inga fluttu búferlum til
Kópavogs árið 1997.
Krissi var einstakt ljúfmenni og
maður sem laðaði fólk auðveldlega til
sín, enda var ætíð mjög gestkvæmt á
Molastöðum meðan Inga og Krissi
bjuggu þar.
Mannlífið verður í mínum huga
aldrei eins að Krissa gengnum því
hann hafði svo margt að gefa öðrum.
Við Sigríður og börn okkar send-
um Ingu og börnum hennar, þeim
Sigríði, Heiðrúnu, Selmu og Stefáni,
innilegar samúðarkveðjur á þessum
erfiðu stundum.
Gunnar Reynir Pálsson.
Með nokkrum orðum vildi ég
minnast vinar míns Kristins sem var
kvæntur frænku minni Ingu Jónu
Stefánsdóttur. Kristinn var ákaflega
greiðvikinn og fljótur að bregðast við
þegar þess þurfti með, mér og minni
fjölskyldu reyndist hann drengur
góður eins og öllum er hann þekktu.
Þær fréttir bárust að hann Krissi
hefði greinst með illkynja sjúkdóm
er hann barðist við í rúma þrjá mán-
uði, en hann hélt sinni reisn og fór
allra sinna ferða fram undir það síð-
asta.
Á þessari sorgarstund eru hugs-
anir mínar og minnar fjölskyldu hjá
þér, elsku Inga mín, börnum ykkar
og fjölskyldum þeirra.
Eitt verður aldrei frá ykkur tekið;
það eru þær fögru og góðu minning-
ar er þið eigið um eiginmann, föður
og afa.
Inga, við sendum þér, börnum þín-
um og barnabörnum innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum að hækk-
andi sól lýsi þér og þínum til að kom-
ast í gegn um þessar sorgarstundir
með góðra manna hjálp.
Krissi minn, hafðu þökk fyrir allar
okkar samverustundir, drengskap
þinn og hjálp í öllum okkar sam-
skiptum. Vertu þeim Guði falinn sem
léði þér lífið, hvíl í friðarfaðmi hans.
Ólafur Jóhannsson.
KRISTINN
GUÐLAUGUR
HERMANNSSON
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar