Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 47
DAGBÓK
TILBOÐ Á PRENTLAUSNUM FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Lægri rekstrarkostnaður og hraði í fyrirrúmi
������� ��� � ���������� �� � ��� ��������� � ���� ��� ���� � ��������������
Canon iR1600
Ljósritunarvél fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki
16 eintök á mín.
Afritar A3 - A6.
Stækkar í 200%.
Minnkar í 50%.
250 blaða pappírsskúffa.
100 blaða framhjámatari.
16 MB minni.
Aukabúnaður: Prentaratengi,
nettenging, heftun í horn, skápur,
matari.
Tilboðsverð 119.900 kr.
Listaverð 149.900 kr.
Canon B180C
Hraðvirkt faxtæki fyrir lítil fyrirtæki
A4 fax og afritun.
Bleksprautuprentun, litaprentari.
Mikið minni (42 síður).
Blaðabakki: 100 bls.
Tilboðsverð 16.900 kr.
Listaverð 26.900 kr.
Canon iP4000R
Þráðlaus prentari - Tilvalinn á skrifstofuna
IEEE802.11g/b WiFi og 10/100 Ethernet.
Innbyggð ,,duplex” tækni og CDR/DVD diskaprentun.
4800x1200dpi, 2pl prentstútar og ContrastPLUS.
Allt að 25 bls. á mín. í svörtu og 17 bls. í lit.
Hagkvæmt Single Ink kerfi.
Windows og Mac samhæfður.
Tilboðsverð 19.900 kr.
Listaverð 24.900 kr.
Söluaðilar um land allt.
Síminn er 569 7700 og netfangið er
prentlausnir@nyherji.is
85 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn13. maí, verður Vilborg Hall-
dórsdóttir 85 ára. Af því tilefni verður
opið hús á Kópavogsbraut 69 laug-
ardaginn 14. maí kl. 15–19.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Pétur Jónasson gítarleikari og GuðrúnBirgisdóttir flautuleikari fengu þá hug-mynd fyrir nokkrum árum að koma afstað árlegri tónlistarhátíð í Ísafirði og
á Bolungarvík, og létu drauminn rætast. Hún
verður nú haldin í þriðja sinn, dagana 3. til 7.
júní. „Við höfum unnið hátíðina í nánu samstarfi
við tónlistarskólana á þessum stöðum og bæj-
aryfirvöld og erum mjög ánægð með það sam-
starf,“ segir Pétur við Morgunblaðið. Poka-
sjóður styrkir hátíðina myndarlega, annað árið í
röð, og gerir þau raunverulega kleift að halda
hana, segir Pétur.
En hvers vegna svona hátíð fyrir vestan?
„Við erum reyndar bæði ættuð þaðan, mis-
munandi mikið að vísu, og ég hef sjálfur verið
með annan fótinn í Bolungarvík af því að við
konan mín eigum hús þar. Svo er þarna mikil
hefð fyrir tónlist og öllum listum, þannig að
segja má við höfum gengið inn í mjög sterka
hefð og þarna voru allar dyr opnar.
Náttúrufar fyrir vestan skiptir líka máli;
þarna er mjög fallegt og fólk er spennt fyrir því
að koma vestur á þessum árstíma. Enda
skipuleggjum við útivist í tengslum við hátíðina
og höfum verið í samstarfi við verkefnið
Heilsubær á nýrri öld, Bolungarvík.“
Pétur segir hátíðarhaldarana færa út kvíarnar
með hverju ári. „Núna erum við með sér-
staklega glæsilega dagskrá og til landsins kem-
ur sérstaklega vegna hátíðarinnar tékkneski
píanistinn Jaromir Klepac, sem kennir m.a. við
Mozarteum-tónlistarháskólann í Salzburg. Í
þetta sinn erum við líka í samstarfi við Listahá-
tíð í Reykjavík og Ísafjarðarbæ og þá kemur
Pacifica-strengjakvartettinn frá Bandaríkjunum,
sem er farinn að gera það mjög gott á al-
þjóðavísu. Í kvartettinum er einn Íslendingur,
Sigurbjörn Bernharðsson fiðuleikari.“
Hátíðin felst bæði í námskeiðum og tón-
leikum. Pétur, Guðrún, Jaromir og Sigurbjörn
kenna öll á námskeiði á daginn og tónleikarnir
fara svo fram á kvöldin.
„Við höfum verið ánægð með að sífellt fleiri
nemendur taka þátt í námskeiðunum, m.a. nem-
endur úr Listaháskólanum í Reykjavík. Ég tel
það gott fyrir styttra komin börn að sjá hvernig
slíkir nemendur vinna. Við höfum nefnilega ekki
sett nein takmörk á aldur eða getu á námskeið-
unum og það hefur mælst vel fyrir. Þau eru því
opin öllum sem eru að læra á hljóðfæri.“
Tékkneski píanóleikarinn spilar m.a. verk eft-
ir Rússann Mussorgskíj á einleikstónleikum og
Pacifica-kvartettinn verður með blandaða dag-
skrá.
Skráning á námskeiðið er hafin, en hægt er
að skrá sig á heimasíðunni www.viddjupid.is „og
þess má geta að Ísafjarðarbær býður upp á
ókeypis gistingu fyrir börn sem vilja koma á
námskeiðið og ódýrar máltíðir“, segir Pétur Jón-
asson.
Tónlist | Hátíðin Við Djúpið verður haldin í þriðja skipti fyrir vestan í byrjun júní
Sérstaklega glæsileg dagskrá
Pétur Jónasson er
fæddur í Reykjavík
1959. Hann lærði á
klassískan gítar hjá
Eyþóri Þorlákssyni og
stundaði síðan fram-
haldsnám í Mexíkó og
á Spáni um árabil.
Pétur starfar nú sem
einleikari og við
kammertónlist auk
þess að kenna í
Listaháskóla Íslands
og Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Eiginkona
Péturs er Hrafnhildur Hagalín leikskáld og
eiga þau tvö börn.
80 ÁRA afmæli. Á morgun, 14.maí, verður áttræð Helga Ás-
dís Rósmundsdóttir, Kópnesbraut 3a,
Hólmavík. Hennar maður er Árni
Daníelsson. Þau taka á móti ættingjum
og vinum á afmælisdaginn milli kl. 14–
18 í Félagsheimilinu á Hólmavík.
Skjáreinn á Hvammstanga
VIÐ hér á Hvammstanga áttum þess
kost að fá Skjáeinn í ókeypis áskrift
núna í vetur. Ekki var ég nú mikill
áhugamaður um að fá þessa fótbolta-
stöð inn á mitt heimili, horfi sjaldan á
fótbolta. En lét til leiðast og ekki sé
ég eftir því, þar er sá þáttur sem ég
vil síst missa af í ljósvakamiðlum, en
það er Sunnudagsþátturinn á Skjá-
einum sem er á dagskrá kl. 11 á
sunnudögum. Þarna er ungt fólk sem
tekur þjóðmálin til umfjöllunar eftir
að hafa kynnt sér þau vel. Byrja á að
skiptast á skoðunum og kynna þau
málefni sem á dagskrá verða, síðan fá
þau viðmælendur til að rökræða mál-
in nánar.
Léttleiki ræður þarna ríkjum þó að
stundum sé rökrætt af fullri hörku,
þarna fær maður málin rædd frá hin-
um ýmsu hliðum og fróðlegt á að
hlýða.
Þessi þáttur minnir mig á rökræð-
ur sem fóru oft fram hér áður fyrr er
menn mynduðu sér skoðanir og rök-
ræddu þær og slógu á létta strengi á
milli.
Þá lásu menn Ísafold, Tímann og
Nýjatímann (sem var útdráttur úr
Þjóðviljanum), hlustuðu á fréttir í út-
varpinu sem voru vanalega ekki end-
urteknar á klukkutíma fresti allan
sólahringinn, svo maður hættir
stundum að nenna að hlusta. Mér
fyndist nú ekkert gera til að inn kæmi
nýtt blóð í ríkisfjölmiðlana þó að sjálf-
sagt sé þar ágætisfólk innanum.
Í Norðurlandsútvarpi heyrast
mjög sjaldan fréttir nema frá Akur-
eyri og næsta nágrenni nú orðið.
Umsjónarfólk Sunnudagsþáttarins
á Skjá einum, kærar þakkir fyrir góð-
an þátt.
Ragnar Gunnlaugsson.
Öryrkjar latir?
ÞAÐ veldur mér sársauka að lesa og
heyra það að við öryrkjar nennum
ekki að vinna. Ég bað ekki um það að
verða öryrki.
Ég fæddist fyrir 53 árum með
sjaldgæfan hjartasjúkdóm. Ég fór til
London í erfiðan uppskurð, allt var
gert til að lækna mig. 19 ára var ég
metinn 75% öryrki vegna míns
hjartasjúkdóms. Ég bað ekki um að
fæðast þetta veikur og þurfa að lifa
við mín veikindi alla mína ævi.
Ég frábið mér þessa umræðu sem
gerir ekki annað en að særa mig. Ég
átti mér drauma í lífinu eins og aðrir,
en þeir voru ekki þeir að nenna ekki
að vinna.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni 10a.
Kettlingur í óskilum
íKópavogi
SVARTUR kettlingur fannst nálægt
Bræðratungu í Kópavogi sl. þriðju-
dag. Þetta er ca 5 mánaða fress,
ómerktur, mjög gæfur.
Upplýsingar í síma 698 8710 og
564 1331.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
MATTHÍAS Mogensen opnar
málverkasýningu í gamla Kaab-
erhúsinu, Sætúni 8, Reykjavík,
laugardaginn 14. maí kl.15.
Þetta er fyrsta sýning Matth-
íasar á Íslandi, en hann hefur ver-
ið búsettur í Svíþjóð lengi. Hann
hefur haldið fjölda sýninga þar og
segir í fréttatilkynningu að hann
sé vel þekktur sem „kunstnerinn“
frá Jönköping.
Sýningin verður opnuð almenn-
ingi sunnudaginn 15. maí og
stendur til 21. maí. Opið verður kl.
14–21 alla sýningardagana.
Málverka-
sýning
Á MORGUN opnar Sissú sýningu
á stafrænum verkum sem unnin
eru með blandaðri tækni. Sýn-
ingin verður á Kaffi Kidda Rót
sem er við Þjóðveginn í Hvera-
gerði.
Einnig setur Sissú upp mynd-
varpasýningar sem sýna hluta af
vinnuferlinu, ferðalaginu með
myndavélina.
Sissú, Sigþrúður Pálsdóttir,
lærði myndlist í School of Visual
Arts 1979–82 og arkitektúr við
School of Architecture and Plann-
ing, University of New Mexico
1990–95. Sýningin er til 1. júlí.
Sissú með
sýningu
„HEPPINN með veður“ er yfir-
skrift málverkasýningar Elfars
Guðna en í fréttatilkynningu frá
aðstandendum sýningarinnar seg-
ir: „Eins og yfirskriftin ber með
sér þá hefur Elfar verið ein-
staklega heppinn með veður, enda
er veðrið oft gott við suðurströnd-
ina, þó stundum geti blásið.“ Sýn-
ingin opnar í Lista- og menning-
arverstöðinni, Hafnargötu 9,
Stokkseyri á morgun kl. 14. Sýn-
ingunni lýkur 5. júní.
Sýning á
Stokkseyri
Opið er um helgar kl. 14–22 og
virka daga kl. 17–22.