Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ekki hafa áhyggjur þótt föstudag-
urinn 13. sé í dag, útlitið er gott. Not-
aðu tækifærið og farðu í gegnum
heimilisbókhaldið og sinntu heimili
og fjölskyldu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið er skynsemin uppmáluð og
hugsar á praktískum nótum. Komdu
sjónarmiðum þínum á framfæri í
samtölum, það gengur vel því þú út-
skýrir mál þitt skilmerkilega. Nautið
sker sig úr fjöldanum í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn á að nota daginn til þess að
leysa vandamál tengd heimili og eign-
um. Honum tekst að koma umkvört-
unarefnum áleiðis, án þess að fólki
finnist hann vera að kvarta.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn ætti að koma miklu í verk í
dag, ekki síst ef um veigamikið verk-
efni er að ræða. Hann nýtur þess að
finna að hann sé við stjórnvölinn.
Ráðfærðu þig við góða vini.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið ætti að ná góðum árangri í
dag, ekki síst ef það fær vinnufrið.
Það kann að meta stundir þar sem
það fær að vera eitt með hugsunum
sínum núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er skynsöm þessa dagana og
á að nota tækifærið og hugsa og gera
langtímaáætlanir. Ráðleggingar ann-
arra koma henni að notum. Kannski
færðu góðar fréttir?
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Skipulag og árangur eru lykilorð
dagsins, ekki síst í vinnunni. Vogin er
gallalaus að þessu leyti núna og lítil
hætta á að hún geri slæm mistök. Allt
gengur að óskum í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn kemur miklu í verk í
vinnunni núna, skipulagshæfni hans
er mun meiri en endranær. Hann
nær árangri, en fær ekki endilega
viðurkenningu, enda er það ekki tak-
markið núna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn vill alls ekki eyða tím-
anum í neina vitleysu núna. Hann vill
láta hendur standa fram úr ermum
og ná árangri. Þetta gildir bæði um
vinnuna og önnur verkefni í daglegu
lífi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eyddu deginum með einhverjum sem
þú lítur á sem lærimeistara eða leið-
beinanda, þú munt bera mikið úr být-
um, til að mynda góð ráð og kærkom-
inn stuðning.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gerðu áætlanir tengdar heimili,
vinnu eða heilsu í dag. Vatnsberinn er
skynsamari í dag en oft áður. Hann
vill ekki eyða tíma, peningum eða
orku núna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn á að bæta skipulag sitt, þó
að hann sé kannski áhugasamari um
það núna að segja öðrum hvernig þeir
eigi að fara að. Hann fær miklu áork-
að núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert manneskja sem oft langar til
þess að breyta lífi sínu, en óttast breyt-
ingar á sama tíma. Fyrir vikið er
hugsanlegt að spenna og ófullnægja
kraumi í þér. Það eina sem er öruggt
í lífinu, er að það breytist.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 tannhvalur, 8
trjástofnum, 9 koma und-
an, 10 ambátt, 11 manns-
nafns, 13 nytjalönd, 15
hringiðu, 18 ótryggur, 21
rödd, 22 hindri, 23 út, 24
konungur.
Lóðrétt | 2 sköp, 3 stækja,
4 minnast á, 5 ýlfrar, 6
mestur hluti, 7 nagli, 12
fálka, 14 glöð, 15 slátraði,
16 kirtli, 17 umgerð, 18
hljóminn, 19 vitlausu, 20
heimili.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gráta, 4 sigla, 7 ljáin, 8 öldum, 9 sæl, 11 urta, 13
saur, 14 kaldi, 15 maka, 17 frek, 20 ógn, 22 lepur, 23 æskir,
24 iðrar, 25 annar.
Lóðrétt | 1 guldu, 2 áfátt, 3 agns, 4 svöl, 5 gedda, 6 armar,
10 ærleg, 12 aka, 13 Sif, 15 mælti, 16 kopar, 18 ríkan, 19
kórar, 20 órar, 21 næða.
Hræðslubragð.
Norður
♠D3
♥D95 S/Enginn
♦ÁG1094
♣Á75
Vestur Austur
♠G874 ♠Á1052
♥10743 ♥862
♦753 ♦K6
♣42 ♣KDG3
Suður
♠K96
♥ÁKG
♦D82
♣10986
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 lauf
Pass 1 tígull Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Austur er í aðalhlutverki í spili dags-
ins. Makker hans kemur út með spaða-
fjarka gegn þremur gröndum (fjórða
hæsta), og austur tekur drottningu
blinds með ás. Nú er rétti tíminn til að
staldra við og hugsa um spilið í heild.
Austur á sjálfur 13 punkta og veit því
að makker á ekki mikið, í mesta lagi
gosa eða drottningu. Ennfremur er ljóst
að vestur á aðeins fjórlit í spaða, því
fjarkinn kom út og austur sér bæði þrist
og tvist. Sem þýðir að vörnin getur aldr-
ei fengið nema þrjá spaðaslagi. Og það
er ekki nóg til að bana geiminu.
Austur ætti því að íhuga vel þann
möguleika að skipta yfir í lauf – og þá er
þristurinn mun betri kostur en kóng-
urinn, því suður á líklega fjórlit. En
makker gæti átt 10x (eða 9x) og þannig
mætti sprengja þrjá slagi á litinn.
Önnur hugmynd, og kannski betri, er
að beita hræðsluáróðri – spila spaðatíu
til baka í öðrum slag, ekki tvistinum,
eins og venjan er með þrjú spil á hendi.
Sagnhafi reiknar með því að liturinn
brotni 5-3 og dúkkar væntanlega (hann
sér ekki spaðatvistinn). Þegar austur
hefur þannig stolið slag á spaða, skiptir
hann yfir í laufkóng og lætur fara vel
um sig í sætinu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 b5 6. Bb3 Bb7 7. He1 Bc5 8. c3 d6
9. d4 Bb6 10. Bg5 h6 11. Bh4 De7 12. d5
Rd8 13. Rbd2 g5 14. Bg3 h5 15. h4 g4
16. Rg5 Rd7 17. a4 f6 18. Re6 Rxe6 19.
dxe6 Rc5 20. axb5 axb5 21. Hxa8+
Bxa8 22. De2 c6 23. Ba2 Rxe6 24. Kh1
Rf4 25. Df1 Kd8 26. b4 Re6 27. c4 Rd4
28. cxb5 cxb5 29. Dd3 Dc7 30. Hb1 Ke7
31. Rf1 Dc2 32. Dxc2 Rxc2 33. Rd2 Hc8
34. f3 gxf3 35. gxf3 Rd4 36. Hb2 Re2
37. Rf1 Rd4 38. Kg2 f5 39. Bb1 Hg8 40.
exf5 Bxf3+ 41. Kh2 Re2 42. Bd3 Bg1+
43. Kh3
Staðan kom upp á skákmóti öðlinga
sem Taflfélag Reykjavíkur stóð að fyr-
ir nokkru. Björn Þorsteinsson (2.180)
hafði svart gegn Sigurlaugu R. Frið-
jófsdóttur (1.610). 43. ... Hxg3+! 44.
Rxg3 Rf4#. Björn varð efstur á mótinu
en Sigurlaug var eina konan sem tók
þátt.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss Grétarsson
Svartur mátar í tveimur leikjum.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Tríó Robin Nolan verður
með tónleika kl. 23.
Norræna húsið | Duo Arctica heldur tón-
leika kl. 20. Arnannguaq Gerstrøm flautu-
leikari og Kirsten Karlshøj leika græn-
lensk tónverk og verk eftir Frank Martin,
Messiaen og Prokofiev. Ókeypis aðgangur.
Salurinn | Hátíðartónleikar 13. maí kl. 20.
Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingi-
mundarson flytja nýja efnisskrá sem þeir
flytja á tónleikaferð um Norðurlöndin.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Bretton Woods Disaster, þjóð-
lagarokksveit frá Utah í Bandaríkjunum.
Frítt inn.
Tónlistarþróunarmiðstöðin | Funeral
Diner (usa) spilar ásamt Denver og Gavin
Portland. Miðaverð er 1.000 kr., ekkert
aldurstakmark. Húsið opnað kl. 19.30.
Ytri-Njarðvíkurkirkja | Karlakór Keflavík-
ur heldur aukatónleika kl. 20. Stjórnandi
kórsins er Guðlaugur Viktorsson. Ein-
söngvarar eru Steinn Erlingsson bariton
og Davíð Ólafsson bassi. Undirleik annast
Sigurður Marteinsson píanó. Þórólfur
Þórsson bassa, Juri og Vadim Fedorov
harmonikku.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Benedikts S. Lafleur myndlistarmanns er
á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15. Sjá:
www.artotek.is.
Gallerí Kambur | Sýning á myndum Þor-
steins Eggertssonar. Opið alla virka daga
kl. 13–18. Lokað á miðvikudögum.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um
helgar frá kl. 13–17. Kaffikönnur, bangsar,
gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar,
listaverk úr brotajárni og herðatrjám, fyr-
irlestrar, bíó o.fl. Sjá www.gerduberg.is.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum
Dieter Roth opnuð 14. maí á Listahátíð.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Útskriftarsýning nemenda við Listahá-
skóla Íslands.
Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf
Opdahl.
Skriðuklaustur | Sýning 8 listamanna af
Snæfelli, þ.á m. eru verk eftir Kjarval,
Finn Jónsson og Guðmund frá Miðdal.
Einnig er sýning á svarthvítum ljós-
myndum af fólki eftir Sigurð Blöndal í
galleríi Klaustri. Sýningarnar eru opnar kl.
12–17 alla daga.
Listasýning
Bæjarbókasafn Ölfuss | Rannveig
Tryggvadóttir leirlistakona sýnir verk sín í
galleríinu Undir stiganum, Ráðhúsi Þor-
lákshafnar, í maí. Verk Rannveigar eru
unnin úr steinleir og eru flestir listmun-
irnir ætlaðir sem nytjahlutir. Sýningin er
sölusýning.
Listhús Ófeigs | Halla Ásgeirsdóttir opn-
ar sýningu á raku-brenndum leirverkum 7.
maí kl. 14, í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðu-
stíg 5. Halla stundaði leirlistarnám í
Bandaríkjunum árin 1987 til 1993. Hún
hefur tekið þátt í samsýningum bæði hér
heima og erlendis. Sýningin stendur til 1.
júní.
Iða | Útskriftarnemar í ljósmyndun við
Iðnskólann í Reykjavíkur sýna lokaverk-
efni sín í Iðu, Lækjargötu. Sýningin verður
ist fyrir 13. maí í síma 554 3299 (Svana)
eða 554 1726 (Þórhalla).
Fyrirlestrar
Verkfræðideild HÍ | Jón Guðnason flytur
fyrirlesturinn: Einkennaval með ratsjár-
skuggum og bylgjuhöggum í háupplausna
ratsjárgögnum: Aðferð til að auðkenna
skotmörk í MSTAR gagnasafninu. Fyr-
irlesturinn er 17. maí kl. 16, í VR2, stofu
158 verkfræðideild Háskóla Íslands. Allir
velkomnir.
Málþing
Kennaraháskóli Íslands | Árlegt málþing
útskriftarnema á þroskaþjálfabraut Kenn-
araháskóla Íslands verður haldið í Skriðu í
KHÍ 19. maí kl. 8.30–16. Þar munu nem-
endur kynna rannsóknar- og þróunarverk-
efni sem þeir hafa tekið að sér að vinna
fyrir væntanlegan starfsvettvang. Allir
velkomnir. Nánar á www.khi.is.
opnuð kl. 19 og stendur fram til 31. maí.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið
er heiti sýningar sem segir frá ferðum
fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormón-
anna sem settust að í Utah.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Dúettinn Halli og Kalli
skemmtir.
Broadway | Stuðmenn á handboltaballi.
Fyrr um kvöldið fer fram lokahóf HSÍ.
Verð aðeins 1.000 kr.
Cafe Catalina | Addi M. leikur.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Úlfarnir verða með dansleik föstudags-
og laugardagskvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar heldur uppi syngj-
andi sveiflu föstud. og laugard. Sunnud.
mun hljómsveitin Sérsveitin halda uppi
stuði fram á nótt.
Fundir
Kvenfélag Kópavogs | Kvenfélag Kópa-
vogs fer í vorferð miðvikudaginn 18. maí
að Veitingahúsinu Hafinu bláa. Brottför
frá Hamraborg 10 kl. 18. Þátttaka tilkynn-
Í KVÖLD kl. 20 verða tónleikar í Nor-
ræna húsinu með Duo Arctica en það
skipa Arnannguaq Janna Gerstrøm
flautuleikari og Kirsten Beyer Karlshøj
píanóleikari.
Duo Arctica var stofnað 1996 og hef-
ur leikið á Grænlandi og í Danmörku í
tengslum við ýmsa menningarviðburði
m.a. í Menningarhúsinu Katuaq í Nuuk.
Á efnisskránni á tónleikunum í Nor-
ræna húsinu eru verk eftir Olivier Mess-
iaen, Frank Martin, Toru Takemitsu og
Sergej Prokofiev.
Arnannguaq Janna Gerstrøm býr í
Nuuk og starfar þar sem hljómsveitar-
og kórstjóri. Einnig skipuleggur hún og
heldur tónleika jafnframt því að taka
þátt í ýmsum menningarviðburðum bæði
sem flautuleikari og stjórnandi.
Kirsten Beyer Karlshøj kennir við þrjá
af stærstu tónlistarskólum Kaup-
mannahafnar.
Duo Arctica í Norræna húsinu
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
UM helgina verða 3 aukasýningar á
verkinu Davíð Oddsson – súperstar
sem Leikhópurinn Saga setur upp.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson.
Fram kemur í fréttatilkynningu um
sýninguna að um sé að ræða „póli-
tíska ádeilu með kómísku ívafi“.
Aukasýningarnar verða í kvöld,
laugardag og sunnudag og hefjast
þær allar klukkan 20. Miðaverð er
500 kr., og er hægt að panta miða í
síma 845 9859.
Aukasýningar
hjá Sögu