Morgunblaðið - 13.05.2005, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FATAHÖNNUÐURINN Stella
McCartney mun hanna eigin línu
fyrir H&M-verslanakeðjurnar, sem
verður fáanlega í búðunum í haust.
Stella „hannar kvenfatalínu, með um
40 hlutum, sem verður framleidd af
og seld í verslunum H&M undir
merkinu: Stella McCartney fyrir
H&M,“ sagði í tilkynningu fyrirtæk-
isins.
Þetta er í annað sinn sem H&M
fær fræga hönnuði til að hanna fyrir
sig, en hinn þýski Karl Lagerfeld,
hannaði fatalínu fyrir keðjuna síð-
asta haust sem varð gríðarlega vin-
sæl.
„Að fá að hanna eina línu fyrir
H&M er mjög spennandi og frumleg
leið til að fá að kynna fötin mín fyrir
stærri hópi kvenna,“ sagði McCart-
ney.
Fatalínan kemur í búðir í nóv-
ember og verður eingöngu til sölu í
ákveðnum verslunum í Evrópu og
Norður-Ameríku. McCartney er
þegar byrjuð að vinna að línunni.
Tíska | Þekktur fatahönnuður til H&M
Stella McCartney
hannar línu
AP
Úr fatalínu Stellu McCartney fyrir
sumartískuna 2005.
MIÐASALA á tónleika Bobbys
McFerrins, sem verða í Há-
skólabíói 9. ágúst, mun hefjast á
miðvikudaginn í næstu viku, 18.
maí. Kammerkór Langholts-
kirkju, undir stjórn Jóns Stef-
ánssonar, mun hita upp fyrir tón-
listarmanninn og taka nokkur lög
með honum, en Bobby McFerrin
þykir vera einstakur listamaður
og skemmtilegur á sviði.
Miðasala verður á Esso-
stöðvunum við Geirsgötu og Ár-
túnshöfða. Einnig verður hægt
að panta miða með því að senda
tölvupóst á netfangið bobby@vis-
indi.is. 850 miðar eru í boði og
kosta þeir 4.900, 6.900 og 8.900
krónur.
„Þetta er alveg einstakir
hljómleikar og ekki auðvelt að
útskýra hvað mun fara þarna
fram. Þó má segja að tónlist og
gleði verði í fyrirrúmi á hljóm-
leikunum og er þetta skemmtun
á heimsmælikvarða fyrir alla fjöl-
skylduna,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá aðstandendum tón-
leikanna.
Tónlist | Miðasala á Bobby McFerrin hefst í næstu viku
„Tónlist og gleði í fyrirrúmi“
Bobby McFerrin þykir vera einstakur listamaður.
Ó.H.T Rás 2
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST ÞEGAR
JÖRÐIN ENDAR
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með
Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira
Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl.5.45 - 8 - 10.15
Diary of a mad Black Woman kl.5.40 - 8 - 10.20
The Jacket kl.5.50 - 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 8 - 10.30
Maria Full og Grace kl. 6 - 10 b.i. 14
Napoleon Dynamite kl. 8
Vera Drake kl. 5,40
Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársins
er komin í bíó.Byggð á einni vinsælustu bók
alheimsins eftir Douglas Adams.
j l í i
i í í . i i i l
l i i i l .
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
S.V. MBL
Ó.H.T Rás 2
SLÓ RÆKILEGA Í GEGN
Á ÍSLANDI, USA OG Á BRETLANDI
I Í
Í I, I
Rómantísk gamanmynd með
Debra Messinger úr Will og Grace þáttunum
Debra Messing Dermot Mulroney i l
ÓVÆNTASTA GRÍNMYND ÁRSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
ÞEGAR LÍF ÞITT ER KOMIÐ
Í RÚST ER GOTT AÐ EIGA
SNARKLIKKAÐA ÆTTINGJA
TIL AÐ BJARGA MÁLUNUM.
MIÐASALA á tónleika Kims Larsens og Kjukken hefst í dag, föstudaginn 13. maí, klukkan 10. Tón-
leikarnir fara fram á Nasa 26. og 27. ágúst og fer miðasala fram í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg
og á midi.is, en miðaverð er 4.900 kr.
Í tilkynningu frá aðstandendum tónleikanna segir að komu Kims Larsens hafi verið beðið með
nokkurri eftirvæntingu og því megi búast við að hið takmarkaða magn miða sem er í boði seljist
fljótlega.
Með tónleikunum hér lýkur Larsen sumartónleikaferð sinni um Danmörku og Færeyjar, sem hófst
reyndar í London 23. apríl sl.
Kim Larsen hefur sl. 5 ár gefið út hverja metsöluplötuna á fætur annarri á Norðurlöndum, eftir
nokkur mögur ár þar á undan. Á síðasta ári átti kappinn tvær metsöluplötur í Danmörku sem báðar
náðu margfaldri platínusölu. Þetta voru plöturnar 7-9-13 sem kom út fyrir jólin 2003 og Glemme-
bogen – Jul og nyt år sem kom út fyrir jólin 2004.
Það er Austur-Þýskaland sem stendur að komu Kims Larsens til Íslands. Kim Larsen er óviðjafnanlegur.
Tónlist | Miðasala á tónleika Kims Larsens hefst í dag
Risi danskrar tónlistar