Morgunblaðið - 13.05.2005, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
ÞORSTEINN Helgi Árbjörnsson, 22 ára ís-
lenskur söngnemi við Oberlin-háskólann í
Ohio í Bandaríkjunum, datt í lukkupottinn
nýverið þegar honum var boðið að syngja í
uppfærslu á Næturgalanum eftir Strav-
inskíj eftir sögu H. C. Andersens, með
einni bestu sinfóníuhljómsveit í heimi, Sin-
fóníuhljómsveitinni í Cleveland í Ohio,
undir stjórn hljómsveitarstjórans kunna,
Pierre Boulez. Þorsteinn er frá Eskifirði
og lærði söng hjá Keith Reed fyrir austan,
áður en hann lagði í framhaldsnámið vest-
ur um haf. Þorsteinn er lýrískur tenór og
stefnir á störf við óperusöng í framtíðinni.
Þótt hann sé tiltölulega stutt kominn í
námi, hefur honum auðnast að næla sér í
óperuhlutverk við atvinnuhús, og það í
ítalskri óperu, á Ítalíu. Það er aðal-
hlutverkið – hlutverk Nemorinos – í Ást-
ardrykknum eftir Donizetti. „Ég fór bara í
prufusöng fyrir óperuhúsið í Urbania, og
fékk hlutverkið. Þetta er mjög þekkt
óperuhús og heiður fyrir mig að fá að
syngja í því.“
Söng undir
stjórn Boulez
Undratenór/27
DANSKI stórmeistarinn í skák
og skólastjóri taflfélagsins
Hróksins, Henrik Danielsen, sló
núverandi Íslandsmet í blind-
skák er hann tefldi 18 skákir
samtímis, en skákin stóð í sex
klukkustundir. Henrik gerði sér
lítið fyrir og vann 15 skákir og
gerði þrjú jafntefli og fékk þar
með 16 og hálfan vinning. Nú-
verandi Íslandsmet var sett af
Helga Áss Grétarssyni stór-
meistara þegar hann tefldi við
11 mótherja árið 2003.
Danielsen sat með bundið fyr-
ir augu og með bakið í andstæð-
ingana og fékk upplýsingar um
leiki þeirra í gegnum aðstoð-
armann og varð því að muna
alla leiki andstæðinganna 18.
Danielsen kvaðst vera orðinn
nokkuð þreyttur eftir sex tíma
lotu og því hafi hann verið far-
inn að gera nokkur mistök und-
ir lokin. Hann segist ekki vera
sérstaklega þjálfaður í blind-
skák og því sé nauðsynlegt að
algjör kyrrð og ró ríki meðan á
taflinu stendur. Blindskák sé
erfið og krefjist gríðarlegrar
einbeitingar og ekki hvað síst
þegar att er kappi við 18 and-
stæðinga. „Það erfiðasta við
þetta er að muna nákvæmlega
hvaða leikur er í gangi. Þ.e.a.s.
er um borð eitt að ræða eða
borð tvö og svo koll af kolli.
Ekki síst í ljósi þess þegar leik-
irnir eru líkir innbyrðis,“ sagði
Danielsen.
Skákviðburðurinn var í boði
taflfélagsins Hróksins og Ís-
landsbanka og voru mótherjar
Danielsen 18 krakkar sem unnu
sér rétt til að tefla á úrslitamóti
Tívolísyrpunnar 2005, en syrpan
er skákmótaröð fyrir börn á
grunnskólaaldri sem Hrókurinn
og Íslandsbanki hafa staðið að.
Aðspurður sagði Danielsen and-
stæðinga sína marga hverja
hafa verið mjög góða og því hafi
hann þurft að einbeita sér vel
og taka sem minnsta áhættu til
þess að ná sem bestum árangri.
Henrik Danielsen atti kappi í blindskák við 18 keppendur
Fimmtán
sigrar
og þrjú
jafntefli
Morgunblaðið/Ómar
Bundið var fyrir augu Henriks Danielsen við upphaf blindfjölteflisins.
HAGNAÐUR Landsbanka Íslands
á fyrsta ársfjórðungi nam rúmum 6
milljörðum króna og var yfir vænt-
ingum. Á sama tímabili í fyrra nam
hagnaður bankans tæplega 4,2
milljörðum.
Breytt tekjustreymi er ein helsta
ástæða þessa afkomubata en tekjur
bankans hafa aukist á nær öllum
sviðum og munar þar mestu um
vaxtatekjur sem hafa aukist um
ríflega 1,3 milljarða króna frá því á
sama tímabili í fyrra.
Arðsemi eigin fjár bankans var
81,7%, sem jafngildir 81,7% vöxt-
um á fé bankans.
Alls eru fjórir bankar skráðir í
Kauphöll Íslands og hafa þeir nú
allir skilað ársfjórðungsuppgjöri
sínu. Samanlagður hagnaður þeirra
á tímabilinu var tæplega 24,8 millj-
arðar króna sem er rúmlega helm-
ingur, 53,4%, samanlagðs hagnaðar
bankanna á öllu síðasta ári en hann
var 46,3 milljarðar króna.
Stefnir í methagnað
Hagnaður bankanna á fyrsta
fjórðungi síðasta árs var tæplega
14,1 milljarður króna og er um
tæplega 76% aukningu að ræða.
Margt bendir því til þess að
afkomumet síðasta árs verði slegið
með látum.
Bankar hafa hagnast
um 25 milljarða króna
/" """
0 1 "/
""2/ =
<-
'A'<-
A'<-
$**$
&
#*
+
(().
) *) )++
)+ Hagnaður Landsbanka Íslands var umfram væntingar
KONUR í Soroptimistaklúbbnum á Austurlandi hafa stofnað til vináttu-
tengsla við erlendar konur í Kárahnjúkum. Sautján konur og nokkur börn
heimsóttu virkjunarsvæðið og hittu Kárahnjúkakonurnar og börn þeirra.
Voru þau Áslaug Kjartansdóttir og drengirnir hennar, Njörður og Trausti,
með í för./23
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Heimsóttu Kárahnjúka
SPARISJÓÐUR Svarfdæla á Dalvík hefur
heitið refa- og minkaveiðimönnum á starfs-
svæði sparisjóðsins að tvöfalda verðlaun
fyrir hvert dýr sem þeir veiða.
„Ég er mikill útivistarmaður og hef orðið
vitni að því hvað ref og mink er að fjölga.
Við erum með friðland í Svarfaðardal og
það má ekki við svona löguðu,“ sagði Frið-
rik Friðriksson sparisjóðsstjóri. „Allir sem
eru úti í náttúrunni sjá hvað þetta hefur
aukist hin síðari ár. Það kemur niður á mó-
fugli og hefur þurrkað út fuglalíf á sumum
svæðum.“
Auknar fjárveitingar í athugun
Umhverfisráðuneytið hefur hafið máls á
því við fjármálaráðuneytið að auka fjárveit-
ingar til veiða á ref og aðgerða til þess að
hrinda í framkvæmd tillögum nefndar, sem
fjallaði um áhrif refs í íslenskri náttúru. Tal-
ið er að til þess þurfi um 30 milljónir króna
næstu fimm árin. Einnig hafa ráðuneytin
rætt um auknar fjárveitingar til aðgerða
gegn mink. Eru bæði þessi mál til frekari
skoðunar milli ráðuneytanna.
Þetta kom fram í svari umhverfisráð-
herra við fyrirspurn Þuríðar Backman al-
þingismanns nýlega.
Sparisjóður
verðlaunar
vargveiðar
♦♦♦
HÆTTUMAT vegna eldgosa og
hlaupa frá vestanverðum Mýrdals-
jökli og Eyjafjallajökli sýnir að við-
vörunartími vegna eldgosa og jök-
ulhlaupa getur verið mjög
skammur, jafnvel fáeinar klukku-
stundir.
Stýrihópur hættumatsins leggur
áherslu á að unnin verði sérstök við-
bragðs- og rýmingaráætlun fyrir
svæðið. Almannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra ásamt almanna-
varnanefndum á svæðinu vinnur nú
þegar að slíkri áætlun vegna mögu-
legra eldgosa í Mýrdalsjökli og
Eyjafjallajökli. Þá bendir stýrihóp-
urinn á mikilvægi góðrar vöktunar á
eldstöðvunum og að við hana sé
beitt þeirri tækni sem tiltæk er á
hverjum tíma. Einnig þurfi að at-
huga hvort vegakerfið á svæðinu
ráði við hraða rýmingu, ef á þarf að
halda. Aukin ferðamennska hefur
valdið því að stundum eru ferða-
menn fleiri en íbúarnir á svæðinu.
Hættumatið var gefið út í gær en
vinna við það hófst haustið 2003. Út-
gefandi er embætti Ríkislögreglu-
stjóra og Háskólaútgáfan. Stýri-
hópur hættumatsins og almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra
efndu í gær til málþings í Norræna
húsinu þar sem niðurstöður hættu-
matsins voru kynntar.
Fjöldi sérfræðinga lagði hönd á
plóginn við gerð hættumatsins og
hefur hliðstætt hættumat vegna
eldgosa og jökulhlaupa ekki verið
unnið áður. Í hættumatinu koma
fram ýmsar nýjar upplýsingar um
tíðni eldgosa í Mýrdalsjökli og
Eyjafjallajökli, jarðfræði svæðisins,
jökulhlaup fyrri tíma, núverandi
ástand eldstöðvanna og einnig er
leitt getum að mögulegum áhrifum
jökulhlaupa og eldgosa í framtíð-
inni.
Hættumat vegna eldstöðva í Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli komið út
Viðvörunartími vegna eld-
gosa getur verið skammur
Hættumat/30
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is