Morgunblaðið - 01.12.2005, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 39
UMRÆÐAN
Í FÉLAGSMIÐSTÖÐVUM
Íþrótta- og tómstundasviðs Reykja-
víkur (ÍTR) er starfað
samkvæmt Samþykkt
fyrir æskulýðsstarf á
vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs
Reykjavíkur en þar
kemur m.a. fram að
félagsmiðstöðvarstarf
eigi að stuðla að örvun
félagsþroska og já-
kvæðum samskiptum
á meðal ungmenna.
Félagsmiðstöðvar eiga
auk þess að standa
opnar öllum ungmenn-
um sem áhuga hafa á
að taka þátt í starf-
semi þeirra en sér-
staklega skal leitast
við að ná til þeirra
sem sökum áhugaleys-
is eða af öðrum orsök-
um sinna ekki heil-
brigðum
viðfangsefnum í frí-
tíma sínum.
Uppeldisgildi frí-
tímans eru höfð að
leiðarljósi í starfinu en
með eflingu fé-
lagsþroskans er verið
að styrkja einstakling-
inn sem ábyrga og
sjálfstæða manneskju
og beina honum í átt að heilbrigðum
lífsstíl. Ekki má gleyma mikilvægi
forvarnarstarfs en fyrst og fremst
er unnið að því með því að bjóða
upp á félagsstarf sem unglingar
hafa áhuga á og taka virkan þátt í.
Áhersla er lögð á forvarnir gegn
vímuefnum en í þeim reglum sem
gilda í starfi félagsmiðstöðva er
skýr afstaða tekin gegn allri vímu-
efnaneyslu og annarri neikvæðri
hegðun, s.s. einelti og stríðni.
Í félagsmiðstöðvum er svokallað
unglingalýðræði í hávegum haft.
Það þýðir að unglingarnir kjósa
sjálfir í unglingaráð sem hefur mik-
ið um það að segja hvaða dagskrá er
í félagsmiðstöðinni. Unglingaráðið
er yfirleitt með fasta fundi einu
sinni í viku og þá er
farið yfir þær hug-
myndir sem komið hafa
frá unglingunum og
dagskráin ákveðin.
Talsvert er um fasta
liði í dagskránni sem
eru á vegum hverrar
félagsmiðstöðvar fyrir
sig, sameiginlegir við-
burðir hverfa eða borg-
arhluta eða þá á vegum
Samfés (Samtök fé-
lagsmiðstöðva á Ís-
landi).
En félagsmiðstöðin
er líka staður þar sem
unglingar koma saman
og gera það sem sumir
fullorðnir vilja kalla „að
hanga og gera ekki
neitt“ en aðrir vilja
kalla heimspekilegt
spjall og vangaveltur
um lífið og tilveruna.
Það hefur sýnt sig að
unglingarnir vilja ekki
drekkja öllu fé-
lagsmiðstöðvarstarfi í
dagskrá og kvarta ef
skipulögð dagskrá er of
mikil. Félagsmiðstöðin
er nefnilega þeirra
vettvangur til að koma
saman og ræða málin. Þeir vilja
geta labbað þar út og inn og tekið
þátt í bæði skipulögðu og óskipu-
lögðu starfi allt eftir því hvað hentar
hverju sinni. Félagsmiðstöðin er
staður unglinganna þar sem þeir
sinna sínum hjartans málum í fé-
lagsskap fullorðinna og undir for-
merkjum heilbrigðs lífsstíls!
Félagsmiðstöð
fyrir unglinga –
hvað er nú það?
Hulda Valdís Valdimarsdóttir
fjallar um málefni unglinga og
félagsmiðstöðva
Hulda Valdís
Valdimarsdóttir
’Það hefur sýntsig að ungling-
arnir vilja ekki
drekkja öllu fé-
lagsmiðstöðv-
arstarfi í dag-
skrá og kvarta
ef skipulögð
dagskrá er of
mikil.‘
Höfundur starfar sem deildarstjóri
unglingastarfs hjá Íþrótta- og tóm-
stundasviði Reykjavíkur.
1. vinnustofa 12. og 13. janúar kl. 9.00 - 14.00
2. vinnustofa 9. og 10. febrúar kl. 9.00 - 14.00
3. vinnustofa 9. og 10. mars kl. 9.00 - 14.00
Nánari upplýsingar veitir:
Nanna Ósk Jónsdótir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6424
GSM: 825 6424
Skráning er hafin!
Allar upplýsingar og skráning á www.stjornendaskoli.is
AÐ LAÐA FRAM ÞAÐ BESTA
THE COACHING CLINIC
Næsta námskeið er 12. janúar nk. – takmarkaður sætafjöldi
Námskeiðið byggir á virkri þátttöku og
þjálfun stjórnenda í aðferðafræði
coaching.
Stjórnendaskólinn kynnir nýjung á Íslandi Að laða fram það besta – „The
Coaching Clinic”, sem er talin ein áhrifamesta leiðin að árangri, hvatningu
og farsælum samskiptum. Þúsundir stjórnenda um heim allan hafa sótt
námskeiðið við mjög góðan orðstír.
Leiðbeinandi:
Guðrún Högnadóttir,
þróunarstjóri
Stjórnendaskólans /
Associate Corporate Coach
Auk þriggja opinna vinnustofa sérsníðir Stjórnendaskólinn námskeiðið fyrir
einstök fyrirtæki
„Samskiptalíkan CCU hefur gagnast sérstaklega vel við að beina
athyglinni að aðalatriðum hverju sinni og að starfsmaðurinn sjálfur
finni bestu leiðirnar til lausnar á verkefnum og beri ábyrgð á þeim.”
Vilborg Lofts, forstöðumaður starfsmannaþjónustu Íslandsbanka
„Ég get hiklaust mælt með þessu námskeiði, öll aðstaða og
námskeiðið var til fyrirmyndar. Þetta mun örugglega nýtast mér til
reksturs á mínu fyrirtæki.”
Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúð Benna
„Með því að laða fram það besta í öðrum næst betri árangur á öllum
sviðum og því er nauðsynlegt fyrir stjórnendur að tileinka sér þessa
tækni”
Sigrún Guðjónsdóttir, forstjóri Tæknivals
!
"!# $%%&&&'
!"#$ %
&
'
( ) $(
!"
#
!
"#
# "# ! ## $
$%
" & '() &
!"# #$% &'(#
)*+ , #*-)#