Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 63 MENNING Má ég gefa þér dagbókinamína,“ sagði Birgitta Jóns-dóttir rithöfundur við starfsfélaga sinn á dögunum og seg- ir hann hafa fölnað. Þegar hún svo dró Dagbók kameljónsins upp úr tösku sinni og rétti honum með þeim orðum að þetta væri nýja skáldsag- an hennar þá létti honum verulega. Birgitta hefur verið nokkuð ein- stakt blóm í flóru íslenskra skálda og farið sínar eigin leiðir og stund- um ótroðnar í sköpun sinni. Hún setti upp fyrstu vefsíðu íslensks skálds árið 1995 og hefur verið í far- arbroddi þeirra sem yrkja á netinu, blogga og hefur komist í samband við skáld og rithöfunda um allan heim í gegnum netheima. Hún hefur þó gefið út einar 15 bækur af ýmsu tagi, mest smábækur, sem hún vinn- ur sjálf að mestu leyti og hliðargrein við skáldskapinn á undanförnum ár- um er útlitshönnun og kápuhönnun bóka annarra skálda. „Mér finnst þetta mjög skemmtileg vinna þar sem hún heldur mér í nánu sam- bandi við aðra rithöfunda en er um leið aðferð til að vinna fyrir salti í grautinn.“    Dagbók kameljónsins er að hlutabyggð á dagbókum Birgittu sjálfrar fram að tvítugu en eftir það segist hún lítið hafa ritað í dag- bækur, „ … kannski einu sinni á ári eða svo, eftir að ég eignaðist börn.“ Birgitta gefur bókina út sjálf en bókaútgáfan Salka sér um dreifingu en Birgitta á allan heiður af útliti bókarinnar sem ber þess greinilega merki að nostrað hefur verið við hana og fléttast texti og mynd- vinnsla, umbrot og frágangur órjúf- anlega saman svo lestur bókarinnar verður heildstæð upplifun þar sem eitt getur ekki án hins verið. „Marg- ir sem lásu yfir fyrir mig hafa þó sagt að textinn standi alveg sjálf- stæður en ég vildi hafa þetta svona, enda finnst mér að listgreinarnar eigi að renna hver inn í aðra, þar eiga engin mörk að vera.“ Sagan sem sögð er í bókinni er saga stúlku, sem upplifir mikla þján- ingu þegar faðir hennar fremur sjálfsvíg. „Hún týnir sjálfri sér og þetta er því lýsing á leit hennar að sjálfinu og til þess þarf hún að hverfa aftur til upphafsins, fæðing- arinnar og síðan er sagan hennar sögð í minningarbrotum, ljóðum og hugleiðingum fram til þess að hún er þrettán, fjórtán ára gömul. Hún er kameljón vegna þess að hún tekur alltaf á sig yfirbragð umhverfisins, veit ekki hver hún sjálf er. Örugg- lega kannast einhverjir við þetta, að skipta t.d. alveg um skoðun af því að einhver segir eitthvað annað en manni hefur fundist fram að því.“ „Ég þrái að vera hamingjulindin í lífi þeirra sem flögra inn um lífs- gluggann minn, breiða mig eins og hlífðartjald um þau og galopna kviku hjarta míns. Ég vil vera allt sem þau þrá. Ég leik kameljón, fell inn í umhverfi þeirra og væntingar eins og stofuskraut í híbýlum sálna þeirra. Ég dirfist ekki að sýna minn rétta lit. Ég er hrædd um að þeim geðjist ekki að því sem þau sjá. Ég óttast kannski mest að verða yf- irgefin.“    Texti Birgittu er á víxl raunsærog draumkenndur, stundum lýsir hún draumum sínum og í annan stað verður hún rómantísk og við- kvæm. „Ég hef alltaf verið hrifin af að- ferð súrrealistanna, þar sem undir- meðvitundin fær að ráða og ég skrifa þannig að allt fær að flæða óheft fram og síðan fer ég yfir það síðar. Ég vildi líka hafa texta bók- arinnar þannig að hann væri að- gengilegur sem flestum, bæði ung- um lesendum af þeirri kynslóð sem vill stutta texta og myndrænar út- færslur og svo líka þeim eldri og bókmenntalegar sinnuðum sem gera aðrar kröfur um mál og stíl. Ég fékk margt og ólíkt fólk til að lesa yfir bókina í handriti en hún hefur verið mjög lengi í vinnslu hjá mér og er núna loksins orðin eins og ég vil hafa hana.“ Birgitta segir að sjálfsvíg föður hennar hafi haft gríðarlega mikil áhrif á hana og sé í vissum skilningi þungamiðja bókarinnar. „Þetta er ekki sjálfshjálparbók fyrir fórn- arlömb sjálfsvíga en sýnir þó hvern- ig hægt er að breyta svona hræði- lega neikvæðri reynslu í jákvæða afstöðu til lífsins og ég hef fundið fyrir því að þetta er það sem fólk vill helst spyrja um og ræða við mig þegar ég hef verið að lesa upp úr bókinni á undanförnum vikum. Eitt af því sem erfitt er að tala um er reiðin í garð þess sem hefur framið sjálfsvíg, fólk gengur kannski með slíka reiði í mörg ár og fær hvergi útrás fyrir hana. Með því að horfa á sjálfsvíg sem sjúkdóm, tímabundna sinnisveiki, þá hefur mér tekist að sættast við föður minn og þessi sátt er eitt af því sem bókin fjallar um.“    Birgitta hefur á undanförnum ár-um staðið fyrir ótal uppá- komum tengdum ljóðalestri og gjörningum og gjarnan tengt saman fleiri listgreinar, myndlist, tónlist og skáldskap. „Þetta er eiginlega allt sprottið af eigingirni,“ segir hún. „Mér finnst sjálfri svo gaman að lesa upp ljóðin mín. Og til þess að fá tækifæri til þess hef ég skipulagt uppákomur og fengið fleiri skáld og listamenn með mér. En á fimmtu- dagskvöldið 15. desember í Alþjóða- húsinu við Hverfisgötu ætla ég í fyrsta sinn að lesa upp ein úr bókinni minni og hafa með mér Hjörleif Valsson fiðluleikara og Jón Sigurðs- son píanóleikara en mér finnst svo spennandi að lesa upp við spunaleik á hljóðfæri. Þetta kalla ég sjálfs- elskukvöld, af því að ég er ein að lesa upp en mér finnst þetta orð eiga skilið að fá jákvæðari merkingu í tungumálið. Við erum alltaf að tala um að maður þurfi að elska sjálfan sig til að geta elskað aðra. Er það ekki sjálfselska? Og er það ekki frá- bært? Mér finnst það.“ Engin mörk á milli listgreina ’Sýnir þó hvernig hægter að breyta svona hræðilega neikvæðri reynslu í jákvæða af- stöðu til lífsins.‘ AF LISTUM Hávar Sigurjónsson Morgunblaðið/Ásdís „Sjálfselska á jákvæðari merkingu skilið,“ segir Birgitta Jónsdóttir rithöfundur. havar@mbl.is L I S T V I N A F É L A G H A L L G R Í M S K I R K J U Hulda Björk Gar›arsdóttir sópran Sesselja Kristjánsdóttir alt Eyjólfur Eyjólfsson tenór Ágúst Ólafsson bassi Schola cantorum Alþjó›lega barokksveitin frá Den Haag í Hollandi Stjórnandi: Hör›ur Áskelsson 11. des. Sunnudagur kl. 18 Kantötur IV-VI 10. des. Laugardagur kl. 17 Kantötur I-III 11. des. Sunnudagur kl. 15 Kantötur I-III Mi›aver›: 3000 / 2500 kr. • Jólaóratóríutvenna (fyrir þá sem vilja heyra Jólaóratóríuna alla): 5000 kr. Mi›asala í Hallgrímskirkju • sími 510 1000 Fyrsti heildarflutningur á Íslandi með barokkhljóðfærum Jólaóratórían I-VI JOHANN SEBASTIAN BACH T Ó N L I S T A R H Á T Í Ð Á J Ó L A F Ö S T U Í H A L L G R Í M S K I R K J U 2 0 0 5 BWV 248 Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700 ÉG ER MÍN EIGIN KONA GJAFAKORT - TILVALIN JÓLAGJÖF örfá sæti laus uppselt laus sæti laus sæti laus sæti 09.12 10.12 11.12 15.12 22.12 fös. lau. sun. fim. fim. ENSKA leikskáldið Harold Pinter, sem hlýtur Nóbelsverðlaunin í bók- menntum í ár, verður ekki við- staddur neina atburði í tengslum við afhendingu verðlaunanna sem fram fara um þessar mundir. Ástæðan er lasleiki, og hafa læknar bannað hon- um að ferðast. Þess í stað flutti Pinter þakk- arræðu sína á myndbandi sem varp- að var á stóran skjá í gær í sænsku akademíunni í fyrrakvöld, en eitt af skilyrðum verðlaunanna er að verð- launahafi flytji ræðu í tengslum við verkið sem hann hlýtur þau fyrir. Forstjóri bókaforlagsins Faber and Faber í London, Stephen Page, mun mæta á verðlaunaafhendinguna sem fer fram í tónlistarhúsi og síðan ráðhúsi Stokkhólms á morgun, og taka við verðlaunapeningi og verð- launaskjali fyrir hans hönd. Nóbelsverðlaunaafhendingin hef- ur farið fram 10. desember frá árinu 1901, með örfáum undantekningum. Pinter ekki á Nóbels- verðlaunaafhendingunni Reuters Harold Pinter. Plásturinn ber hann sökum smáslyss sem hann varð fyr- ir skömmu áður en myndin var tek- in í októbermánuði síðastliðnum. JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ í Hall- grímskirkju lýkur um helgina með því að Jólaóratóría Johanns Sebastians Bach verður flutt í heild með barokkhljóð- færum. Jóla- óratóríuna þarf vart að kynna. Hún er af mörgum talin þekktasta og stórbrotnasta tónverk sem samið hefur verið í tilefni af fæð- ingarhátíð Krists og er sjálfsagð- ur hluti af hátíðarbrag jólanna um allan heim. Um er að ræða fyrsta heildarflutning á verkinu með fullskipaðri barokkhljómsveit hér á landi, kantötur I-III verða flutt- ar á tvennum tónleikum og kant- ötur IV-VI á einum. Kammerkór- inn Schola cantorum, sem mun syngja óratóríuna undir stjórn Harðar Áskelssonar, hefur hlotið verðlaun í alþjóðlegum kóra- keppnum. Einsöngvarar á tónleikunum verða nokkrir af fulltrúum yngri kynslóðar íslenskra söngvara, þau Hulda Björk Garðarsdóttir sópr- an, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Ágúst Ólafsson bassi. Með þeim leikur Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag. Hún er skipuð hljóð- færaleikurum frá 20 þjóðlöndum, sem hafa sérhæft sig í flutningi barokktónlistar, og hlaut mikið lof fyrir þátttöku sína í flutningi á fyrri hluta Jólaóratóríunnar á síð- asta ári og í Matteusarpassíu Bachs á Kirkjulistahátíð í sumar. Jólaóratórían verður flutt laug- ardaginn 10. desember kl. 17 (kantötur I-III), sunnudaginn 11. desember kl. 15 (kantötur I-III) og kl. 18 (kantötur IV-VI). Jólaóratóría Bachs flutt í heild með barokkhljómsveit J.S. Bach
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.