Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 59
DAGBÓK
Tónlistarfélag Akureyrar blómstrar semaldrei fyrr en aðeins er rúmt ár síðanþað var endurvakið. Vínardansleikur,fræðslufundur um Mozart og hádeg-
istónleikar eru meðal þess sem er á dagskrá fé-
lagsins á komandi misseri.
Sigríður Aðalsteinsdóttir, formaður Tónlistar-
félagsins, segir það löngum hafa verið grasrótina í
tónlistarmálum á Akureyri en félagið á sér yfir
sextíu ára sögu. „Á tímabili var félagið lagt niður
en haustið 2004 var það endurvakið,“ segir hún en
auk hennar sitja Pétur Halldórsson og María Vil-
borg Guðbergsdóttir í stjórn. „Við höfum fengið
ýmsa styrktaraðila í lið með okkur fyrir utan Ak-
ureyrarbæ og það er mjög ánægjulegt hversu
góðar móttökur við höfum fengið í samfélaginu
hér á Akureyri.“
Á starfsárinu eru skipulagðir nokkrir stærri
tónleikar auk hádegistónleikaraðar sem gengur
undir yfirskriftinni Litlar freistingar og er í sam-
starfi við Tónlistarskóla Akureyrar. „Einu sinni í
mánuði erum við með 20 mínútna hádegistónleika
í Ketilshúsinu sem Daníel Þorsteinsson er list-
rænn stjórnandi fyrir. Á þessum tónleikum koma
fram starfandi tónlistarfólk og kennarar á Ak-
ureyri enda er hér mikið af góðu tónlistarfólki
sem gjarnan mætti hafa fleiri tækifæri til að koma
fram. Svo erum við svo heppin að hafa listakokk í
okkar liði, Einar Geirsson á Kaffi Karólínu og á
þessum hádegistónleikum útbýr hann litla rétti
sem eru gjarnan í anda þess lands sem tónlistin er
frá. Þessvegna köllum við þetta Litlar freistingar
– þetta eru bæði freistingar fyrir maga og sál.“
Hún segir tónleikaröðina hafa fengið góðar við-
tökur. „Við viljum ná til almennings – ekki bara
fólksins sem lifir og hrærist í tónlist. Þess vegna
eru Litlu freistingarnar tilvaldar fyrir fólk sem
hefur áhuga á að detta inn á stutta tónleika í há-
degishléinu og fá sér gott að borða í leiðinni.“
Fimm tónleikar eru skipulagðir í þessari röð á
næsta misseri og segir Sigríður þá afar fjöl-
breytta. „Á þeim verður barokktónlist, einleikur á
píanó, söngur og píanó, selló og básúna svo eitt-
hvað sé nefnt þannig að við komum víða við.“
Næsta stóra uppákoma er nýársdansleikur í
byrjun janúar sem Tónlistarfélagið stendur nú
fyrir í annað skipti. „Það verður ekta Vínardans-
leikur með síðkjólum og glæsilegum matseðli,“
segir Sigríður. „Þarna mun Kammersveit Tónlist-
arfélagsins leika vínartónlist undir stjórn Michael
Jón Clarke en eftir klukkan ellefu um kvöldið tek-
ur Hljómsveit Kristjáns Edelsteins við og leikur
undir dansi.“
Þá nefnir Sigríður fræðslufund um tónlist Moz-
arts, sem haldinn verður í febrúar í tilefni af af-
mæli tónskáldsins og er öllum opinn.
Tónlist | Blómlegt starfsár Tónlistarfélags Akureyrar
Vínardans og freistingar
Sigríður Aðalsteins-
dóttir mezzosópran
lærði söng í Söngskól-
anum í Reykjavík hjá
Elísabetu F. Eiríks-
dóttur og Þuríði Páls-
dóttur. Hún útskrifaðist
með burtfararpróf 1995
og stundaði söngnám
við Tónlistarháskólann í
Vínarborg sem hún lauk
árið 2000. Samhliða
námi, eða frá 1997 til 2002, söng hún reglu-
lega í Þjóðaróperunni í Vínarborg. Frá 2002
hefur hún veitt söngdeild Tónlistarskólans á
Akureyri forstöðu samhliða tónleikahaldi og
óperusöng. Sigríður á þrjú börn.
Kafað í djúpin.
Norður
♠9872
♥K93 S/AV
♦D1085
♣D2
Vestur Austur
♠65 ♠ÁKG1043
♥D5 ♥G102
♦974 ♦32
♣G87654 ♣Á10
Suður
♠D
♥Á8764
♦ÁKG6
♣K93
Suður verður sagnhafi í fjórum
hjörtum eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur kemur út í lit félaga síns og
austur tekur á spaðakóng og spilar
ásnum næst, sem suður trompar.
Hvernig er nú best að spila?
Tvær hugmyndir kvikna strax: (1)
Taka ÁK í hjarta og spila svo laufi á
drottningu. (2) Spila strax laufi á
drottningu.
En báðar hugmyndir kolfalla, eins
og legan er: (1) Ef sagnhafi tekur fyrst
tvo efstu í hjarta, mun austur aftrompa
blindan og tryggja vörninni annan slag
á lauf. (2) Spili suður strax laufi á
drottningu, kemur þriðji spaðinn og
austur fær slag á hjartadrottningu á
tvílitinn og austur annan á G10x.
Nei, það þarf að kafa dýpra.
Ef sagnhafi gefur sér að austur eigi
laufásinn fyrir innákomunni, er nokkuð
trygg leið að taka ÁK í hjarta og spila
litlu laufi undan drottningunni. Austur
verður að dúkka og laufkóngurinn á
slaginn. Tvær innkomur blinds á tígul
eru svo notaðar til að trompa spaða, en
þannig fást fimm slagir á hjarta heima.
Austur má stinga tígul hvenær sem
hann vill, því þá verður þriðja trompið í
borði að slag.
Þetta spil leynir á sér.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6
5. Rb5 d6 6. Bf4 e5 7. Be3 a6 8. R5c3 Rf6
9. Bg5 Be7 10. Bxf6 Bxf6 11. Rd2 O-O
12. Rc4 Rd4 13. Bd3 b5 14. Re3 Bg5 15.
Rcd5 Bb7 16. O-O Re6 17. c3 Bxe3 18.
fxe3 Bxd5 19. exd5 Rc5 20. Bc2 Dg5 21.
De2 f5 22. a4 e4 23. axb5 axb5 24. Kh1
Hab8 25. b4 Rd7 26. Ha6 Hf6 27. Hfa1
Re5 28. Ha8 Hff8 29. H8a6 Dh6 30. He1
Hf6 31. Ha5 Rc4 32. h3 Dh4 33. Kg1
Re5 34. Hea1 Rf3+ 35. Kf1 Rh2+ 36.
Kg1 Rf3+ 37. Kf1 f4 38. Bxe4
Staðan kom upp fyrir nokkru í 1.
deild þýsku deildarkeppninnar. Þýski
stórmeistarinn Florian Handke (2.460)
hafði svart gegn Dennis Breder (2.431).
38. … Rd2+! 39. Kg1 hvítur tapar við
þetta manni en hann hefði tapað drottn-
ingunni eftir 39. Dxd2 fxe3+.
39. … Rxe4 40. Ha8 Hbf8 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Sammála Hrefnu og Guðna
ÞAÐ er rétt hjá Hrefnu Magnús-
dóttur, sem skrifar í Velvakanda 4.
desember sl., að það er engu líkara
en það séu samantekin ráð hjá
starfsmönnum Rásar 1 að hunsa
Kristján Jóhannsson. Svipað gildir
um marga aðra óperusöngvara sem
búa og starfa erlendis.
Það er miklu þægilegra og fyrir-
hafnarminna að grípa bara til sömu
söngvaranna ár eftir ár, t.d. Sigrún-
ar Hjálmtýsdóttur, Kristins Sig-
mundssonar og Gunnars Guðbjörns-
sonar.
Gaman væri að vita hversu marg-
ar klukkustundir þessir söngvarar
hafa fengið á þessu ári. Öll eru þau
með ótal tónleika hér á landi og ætti
því að vera ástæða til að leika frekar
lög með þeim söngvurum sem starfa
erlendis og koma sjaldan heim til að
halda tónleika.
Í dag, 5. desember, er umfjöllun
um söngtónleika Garðars Thors
Cortes í Morgunblaðinu. Gagnrýn-
andinn er frá sér numinn af hrifn-
ingu og notar orð eins og unaðslegur
og yndislegur, nú sé kominn fram
maður sem kann að syngja, öfugt við
Kristján Jóhannsson. Þessi aum-
ingja maður virðist ekki geta haldið
jól öðruvísi en hnýta í Kristján því í
fyrra gagnrýndi hann plötu Krist-
jáns, reyndar er ekki hægt að kalla
það gagnrýni heldur geðvonsku-
ræpu.
Ég er sammála Guðna Th. Jóh.
um lélega umfjöllun Morgunblaðsins
um handboltaleiki. Núna um helgina
fóru fram 6 leikir, aðeins er skrifað
af einhverju ráði um tvo, nokkrar
línur um aðra tvo, að lokum ekkert
um tvo nema markaskorara en ekki
tekið fram að markverðir hafi varið
skot í þeim leikjum. Þetta er mikil
afturför og svipað má segja um
körfuboltann.
190342-2129.
Jólagjöf
ÉG fór í Bónus í Kringlunni einn dag
í síðustu viku. Var strax komin með
3 fulla poka. Þar sem ég var að
burðast með þá upp stigann komu
tvær ungar stúlkur, buðust til að
bera pokana fyrir mig. Að auki náði
önnur þeirra í körfu. Vil ég þakka
þessum ungu stúlkum innilega fyrir
og megi þeim vel farnast.
Aðalheiður Torfadóttir.
Hefur þú séð þessa kisu?
TRÍTLA er eins og hálfs árs læða
sem býr í Stórholti. Hún hefur ekki
komið heim í tvær vikur og hennar
er sárt saknað.
Hún er þrílit,
svört, brún og
hvít. Trítla er
eyrnamerkt og
einnig með
merkingu á ól-
inni sinni. Hún
er með svartan
segul á ólinni til
þess að komast
inn um kisulúg-
una sína. Ef einhver hefur séð hana
eða veit um hana þá vinsamlegast
hringið í Steinunni (866 3031) eða
Hugrúnu (820 8288).
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Brúðkaup | Gefin voru saman 3. sept-
ember sl. í Dómkirkjunni af sr. Hjálm-
ari Jónssyni þau Arna Torfadóttir og
Sigurður Long.
Ljósmynd/Jóhannes Long
Brúðkaup | Gefin voru saman 17.
september sl. í Háteigskirkju af sr.
Pálma Matthíassyni þau Linda Jóns-
dóttir og Yngvi Halldórsson.
Ljósmynd/Jóhannes Long
40 ÁRA afmæli. Ásdís Inga Jóns-dóttir, (Dísa) Hrauntungu 54,
Kópavogi, er fertug í dag, 9. desember.
Af því tilefni býður hún vinum og
vandamönnum í kaffi í Gjábakka,
Fannborg 8, laugardaginn 10. desem-
ber kl. 15.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
OPNUÐ verður í kvöld kl. 20 sýn-
ing í Grafíksafni Íslands – sal Ís-
lenskrar grafíkur, Tryggvagötu
17, hafnarmegin. Sýningin er
sölusýning þar sem 17 félagar
sýna verk sín. Sýningin er opin
föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14.00–18.00. Þeir sem
eiga verk á sýningunni eru: Irene
Jensen, Björg Þorsteinsdóttir,
Friðrikka Geirsdóttir, Elva
Hreiðarsdóttir, Ingibjörg Jó-
hannsdóttir, Bjarni Björgvinsson,
Kristín Hauksdóttir, Ásrún
Tryggvadóttir, Díana M. Hrafns-
dóttir, Anna Snædís Sigmars-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Jón Reykdal, Gunnhildur Þórð-
ardóttir, Daði Guðbjörnsson,
Kristín Pálmadóttir, Kristjana F.
Arndal og Rut Rebekka Sig-
urjónsdóttir.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 18. desember.
Jólasýning félagsins
Íslensk grafík
ER ÞITT ATVINNUHÚSNÆÐI
Í SÖLU HJÁ FAGMÖNNUM?
VELDU EIGNAMIÐLUN
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Hef hafið störf á
Rakarastofunni Klapparstíg
Viðskiptavinir, gamlir og nýir,
velkomnir
Viðar Kristjánsson
hársnyrtimeistari
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Einnig opið laugardaga og sunnudaga til jóla
Full búð af öðruvísi vörum.
Lomonosov postulín, Rússneska
keisarasettið, í matar- og kaffistellum.
Handmálað og 22 karata gyllingu. Frábærar
gjafavörur. Alltaf besta verðið.
Jólagjöfin ykkar