Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 51 MINNINGAR ✝ Ása Eiríksdóttirfæddist á Veg- húsastíg 2 í Reykja- vík 11. júní 1911. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Sóltúni 2. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru þau Guðrún Þorbjörns- dóttir húsmóðir, f. í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi 15.1. 1875, d. 26.4. 1922, og Eirík- ur Ásgrímsson söðlasmiður, f. í Rofabæ í Meðallandi 22.8. 1879, d. 14.12. 1962. Bræður Ásu voru Sigurgeir, f. 14.7. 1910, d. 13.12. 1979 og Haraldur, f. 25.5. 1916, d. 7.5. 1996. Árið 1935 kynntist hún manni sínum Þorsteini Einarssyni, f. 6.2. 1907, d. 21.7. 1982, sem lengst af var verkstjóri við Íþróttavöllinn í Laugardal. Foreldar hans voru Einar Jónsson og Þóra Magnús- dóttir. Ása og Þorsteinn gengu í hjónaband 19.4. 1942 og bjuggu alla sína sambúð á Bræðraborg- astíg 31 í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Einar Jón, f. 19.4. 1936. Hann á fjögur börn: Sonur hans og Sigríðar Torfadóttur er Þor- steinn, f. 7.1. 1958. Dætur hans og Bergljótar Bergsveinsdóttur eru: a) Ása Elísa, f. 14.8. 1965, börn hennar og Jónasar Þóris eru Aron Dal- ín, Viktor Díar og Ísold Atla, b) Sús- anna, f. 27.11. 1967, og c) Magdalena, f. 30.10. 1969. 2) Guð- rún, f. 26.10. 1945, d. 1.4. 2004. Sonur hennar og Páls Guðlaugssonar er Guðlaugur, f. 18.1. 1963, kvæntur Kol- brúnu Elsu Jóns- dóttur, börn þeirra eru Jón Örn, Þorsteinn Már og Guðrún Ósk. 3) Eiríkur, f. 26.10. 1945, kvæntur Unni Viggósdóttur, börn þeirra eru; a) Jóhann Þór, sambýliskona Thelma Vestmann Jónsdóttir, dóttir þeirra er Birta Rós og b) Ásgrímur. Eftir að Ása missti móður sína, fluttist hún til Ragnheiðar móð- ursystur sinnar í Hafnarfirði og hlaut þar hefðbundna skóla- göngu þess tíma. Ása byrjaði snemma að vinna fyrir sér og vann við ýmis störf, lengst af sem saumakona meðan heilsa og kraftar leyfðu. Útför Ásu fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku amma, nú ertu búin að fá þína langþráðu hvíld. Margar ljúfar minningar frá samverustundum sem við áttum með þér á Blómsturvöllum og Þingvöllum koma upp í hugann, minningar sem við geymum með okkur. Elsku amma hafðu þökk fyrir þann tíma sem við áttum með þér. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Hvíl þú í friði Jóhann Þór og Ásgrímur. Í dag þegar við kveðjum Ásu í síð- asta sinn reikar hugurinn til baka um rúm tuttugu ár, þegar ég kom fyrst inn á heimili hennar á Bræðra- borgarstíg 31. Ég hafði þá nýlega kynnst dóttursyni hennar Guðlaugi Pálssyni og hann kynnti mig fljótt fyrir ömmu sinni sem var mjög mik- ilvæg persóna í hans lífi. Ása var hlý kona og tók vel á móti mér og hófst þar vinskapur sem aldrei bar skugga á. Ég var fastagestur á heimili henn- ar á meðan við Gulli bjuggum í hús- inu fyrir ofan hana á Bræðraborg- arstígnum. Þangað vorum við alltaf velkomin í mat eða að fá að þvo í þvottavélinni, fara í sturtu og bara hvaðeina sem okkur vantaði, hvenær sem var. Alltaf var kaffi á könnunni og alltaf voru hnetur í skálinni. Hún bjó allan sinn búskap á Bræðraborgarstígnum og ól þar upp 3 börn jafnframt því sem hún vann við saumaskap til margra ára. Barnabörnin voru tíðir gestir hjá henni og ekki má gleyma því að hluti af uppeldinu fólst í að ala upp sanna KR-inga en eiginmaður hennar Þor- steinn Einarsson var mikill fótbolta- maður og spilaði að sjálfsögðu með KR. Ása og Steini voru mikið útivist- arfólk og á sumrin dvöldu þau mikið austur á Þingvöllum en þar byggðu þau sér sumarbústað og nutu þar út- vistar í sveitasælunni auk þess að veiða í Þingvallavatni bæði frá landi og úr bát. Hjá henni borðaði ég fyrst Þingvallamurtu og hef ætíð gert síð- an. Ása hélt áfram að fara austur á Þingvöll eftir að Steini féll frá eða á meðan hún hafði heilsu til og fór þá oft með dóttur sinni Guðrúnu en hún lést í apríl 2004 og var það Ásu mikið áfall. Hún var mikil hannyrðakona og saumaði mikið og eitt af glæsi- legri hlutum sem hún gerði er stórt bútasaumsrúmteppi sem hún saum- aði og gaf okkur Gulla fyrir nálægt 15 árum. Teppið er listaverk og var á sínum tíma sýnt á handverkssýning- um og er okkur Gulla ákaflega annt um það. Nú þegar líður að jólum verður okkur hugsað til Ásu með söknuði, ekki síst á aðfangadag þeg- ar jólamaturinn verður undirbúinn en sami jólamaturinn er á borði á okkar heimili eins og Ása framreiddi á aðfangadagskvöld í mörg ár á heimili sínu. Ása dvaldi síðustu árin á Hjúkr- unarheimilinu Sóltúni og þökkum við starfsfólki þar fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð. Ég kveð Ásu með söknuði og þakklæti fyrir ára- tuga vináttu og hlýju í minn garð og bið Guð að blessa minningu hennar. Kolbrún Elsa Jónsdóttir. ÁSA EIRÍKSDÓTTIR Elsku Hilmir, nú er komið að kveðjustund. Við mæðgurnar vilj- um kveðja þig með nokkrum fátæklegum orðum. Þú varst hetja í baráttunni við vágest- inn sem var sem betur fer ekki löng barátta. Vágesturinn hafði yfir- höndina alltof snöggt en við ráðum engu um það. Á þessari stundu flæða fram ynd- islegar minningar um þig sem við áttum saman. Okkar samverustund- ir yfir kaffibollanum voru margar og ferðir sem við fórum saman á meðan Hulda þín var á lífi. Sér- staklega minnumst við þegar við fórum saman kringum landið við fjölskyldan, þú og Hulda. Einnig þegar við fórum í sumarbústaðinn og í Strandakirkju þar sem við átt- um ógleymanlegar stundir saman í kirkjunni og við sjávarsíðuna. Eftir andlát Huldu hittumst við mjög oft því það var örstutt að skreppa yfir til þín í næstu götu. Við skruppum saman í marga styttri bíltúra. Vin- sælastur var Árborgarhringurinn eða þá bara að við spjölluðum sam- an í eldhúsinu í Kambahrauni 30. Síðan fluttist ég vestur 2003. Það HILMIR HINRIKSSON ✝ Hilmir Hinriks-son fæddist í Vestmannaeyjum 31. mars 1932. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Ási í Hveragerði 24. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hveragerð- iskirkju 3. desember. var ekki auðvelt að fara svona langt frá þér en við hittumst alltaf öðru hvoru eftir það, en svona er bara lífið. Þú hafðir stórt hjarta þegar inn undir skelina var komið, en það var ekki fyrir alla og gott var að losa úr pokanum sínum hjá þér. Þín verður sárt saknað. Það var gott að heimsækja þig, það var orðinn fastur liður að fá kaffisopa og leggja kapal með þér. Elsku Hilmir, við trúum á að þú sért kominn til Huldu þinnar og hefur hún tekið vel á móti þér opn- um örmum eins og henni var lagið. Við vottum börnunum þínum Hörpu, Binna, Erlendi, Júllu, Boggu Fríðu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja þau í sorginni. Við kveðjum þig, elsku Hilmir, með þessum orðum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Valgerður og Guðrún Ósk. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningar- greinar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HERBORG JÓNSDÓTTIR, Álfatúni 37, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 7. desember. Sigríður Bragadóttir, Kjartan Lilliendahl, Jón Trausti Bragason, Kristín Laufey Reynisdóttir, Tómas Bragason, Sigrún Edda Sigurðardóttir, Hermann Kristinn Bragason, Jóhanna Þorsteinsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VIGGÓ EINARSSON flugvirki, Gullsmára 8, andaðist á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 8. desember. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Hjálmar Viggósson, Ragnheiður Hermannsdóttir, Magnea Viggósdóttir, Kenneth Morgan, Erna Margrét Viggósdóttir, Kristján Þ. Guðmundsson, Helen Viggósdóttir, Þórarinn Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.