Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 30
KARLARNIR í Skotfélagi Akra-
ness hlakka alltaf jafn mikið til villi-
bráðarkvölds sem þeir halda í nóv-
ember ár hvert. Þá koma þeir saman
auk útvalinna karlkyns gesta og
gæða sér að bráð sem þeir hafa sjálf-
ir veitt og eldað af mikilli natni. Í fé-
laginu eru um fjörutíu manns, en
það var stofnað formlega fyrir rúm-
um tíu árum, í þeim tilgangi meðal
annars að koma upp æfingaaðstöðu
fyrir leirdúfuskotfimi. Leirdúfu-
skotfimi er ólympísk keppnisgrein
og á félagið landsliðsmann í grein-
inni, Stefán Gísla Örlygsson. Fé-
lagsmenn eru, eins og nafnið ber
með sér, miklir áhugamenn um skot-
veiðar. „En félagið hefur verið að
þróast út í það að verða hálfgerður
einkaklúbbur því við erum farnir að
færa okkur í auknum mæli út í mat-
seldina enda erum við allir miklir
nautnaseggir og viljum hafa gaman
af hlutunum,“ segir Kári Haralds-
son, veiðimaður, félagsmaður og
starfsmaður Skattstofu Vestur-
landsumdæmis.
Villibráðarkvöldin sívinsælu
„Við veiðum ansi margt, skal ég
segja þér. Við róum til dæmis oft á
hálfgerðri indíánaskel út og skjótum
skarf á haustin. Konan mín er alveg
vitlaus í hann. Svo erum við karl-
arnir nokkuð reglulega á selveiðum.
Förum þá upp í Hvalfjörð og skjót-
um sel. Það er töluvert af honum
þar. Hryggvöðvinn er bestur og
hægt er að búa til svakalega góða
rétti úr honum. Ég er í raun mjög
hissa á því hvað lítið er um sel á mat-
seðlum góðra veitingahúsa. Hver fé-
lagsmaður kemur með einn rétt á
villibráðarhlaðborðið og úr þessu
verður heljarmikil veisla. Auk sela-
rétta svignar veisluborðið af réttum
úr skarfi, svartfugli, öndum, gæsum
og norsku hjartarkjöti meðal ann-
ars,“ segir Kári. Hinu árvissa villi-
bráðar-karlakvöldi er nú nýlega lok-
ið og var það haldið í heimahúsi að
þessu sinni. Þetta mun vera í fimmta
sinn sem slík veisla er haldin og seg-
ir Kári þá félaga hvergi nærri hætta.
Siðurinn sé bæði skemmtilegur og
kominn til að vera. „Hópurinn, sem
fær að gæða sér á krásunum, fer líka
alltaf sístækkandi því fái menn einu
sinni að koma sem gestir, vilja þeir
koma aftur og aftur. Þetta uppátæki
er því farið að vinda duglega upp á
sig.“ Daglegt líf falaðist eftir
uppskriftum úr selkjöti og
skarfi sem þeir Kári og
Kristján Kristjánsson, út-
gefandi og rithöfundur á
Akranesi, urðu góðfúslega
við. Fyrir valinu varð grillað
kryddlegið selkjöt, sem þrætt
er upp á selspjót, með kaldri
piparsósu, pönnusteiktur sel-
ur að hætti Sigfúsar Bjart-
marssonar frá Sandi og loks
skarfabringur.
Selspjót
á grillið
(fyrir fjóra)
700 g hryggvöðvi af
ungum landsel
8 litlir tómatar
Kryddlögur
3 msk. ólífuolía
1 msk. sojasósa
2 msk. tómatmauk
1 msk. blóðberg
pipar og salt
Kjötið er skorið í hæfilega bita og
marinerað í kryddleginum í sólar-
hring. Þrætt upp á teina ásamt tóm-
ötum og léttgrillað.
Með þessum rétti er ágætt að hafa
brúnaðan perlulauk, soðinn í drottn-
ingarsultu og ferskt salat
Köld piparsósa
1 dós sýrður rjómi
2 msk. sítrónusafi
malaður svartur og
hvítur pipar
skvetta af sojasósu
salt
Pönnusteiktur selur
(fyrir fjóra)
700 g hryggvöðvi af ungum landsel
3 msk. ólífuolía
blóðberg
pipar og salt
Vöðvinn er skorinn í hæfilegar
sneiðar og þær léttsteiktar í ólífuolíu
á pönnu. Kryddað með blóðbergi.
Pipar og salt eftir smekk. Með pönn-
usteiktum sel eru hafðar nið-
ursoðnar ferskjur og hundasúru-
salat.
Skarfafiðrildi
(fyrir fjóra)
3 toppskarfabringur
2 msk. ólífuolía
pipar og salt
Sósa
5 dl fuglasoð
30 g smjör
30 g hveiti
2 msk rifsberjahlaup
1 dl rjómi
salt og pipar
Brúnið beinin í potti og búið til
fuglasoð. Bakið upp sósuna og sjóðið
í fimm mínútur, bætið síðan rifs-
berjahlaupi og rjóma saman við. Úr-
beinið skarfabringurnar og for-
steikið í ólífuolíu á pönnu í mínútu á
hvorri hlið.
Bringustykkin eru síðan skorin
svo til í sundur þannig að þau fái á
sig lögun fiðrildis og steikt í tvær til
þrjár mínútur í viðbót. Kryddað með
pipar og salti.
Með réttinum er gott að hafa
gratíneraðar kartöflur og smjör-
steikt grænmeti.
MATUR | Skjóta sér til matar og búa svo til sameiginlegt villibráðarhlaðborð
Selurinn er svakalega góður
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Veiðimennirnir eru að vonum ánægðir með feng sinn og gera sér á hverju ári glaðan dag með villibráðarhlaðborði.
Hugað að indíánafleyinu áður en lagt er í skotveiðitúr um sundin blá.
30 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Jólatrjáasala
skógræktarfélaganna
Skógræktarfélögin selja jólatré í
skóglendum sínum, þar sem fólki
gefst kostur á að koma í skóginn og
velja sér tré. Fyrir hvert selt
jólatré geta félögin gróðursett
30–40 ný tré.
Um helgina verða eftirtalin skóg-
ræktarfélög með sölu á jólatrjám:
Skógræktarfélag Garðabæjar, við
vegamótin austan Vífilsstaða kl. 13–
16 á laugardag. Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar, í Höfðaskógi hjá
Selinu kl. 10–18 á laugardag og kl.
10–16 á sunnudag. Skógræktarfélag
Mosfellsbæjar, í Hamrahlíð í Úlf-
arsfelli kl. 10–16, laugardag og
sunnudag. Skógræktarfélag Kópa-
vogs, Mosfellsbæjar, Kjósarhrepps
og Kjalarness, á Fossá í Hvalfirði
kl. 11–15, laugardag og sunnudag.
Skógræktarfélag Skilmannahrepps,
í Furuhlíð kl. 13–15, á sunnudag.
Skógræktarfélag Borgfirðinga í
Daníelslundi kl. 11–16, á laugardag.
Skógræktarfélag Eyfirðinga í
Kjarnaskógi kl. 10–18, alla daga
fram að jólum, einnig á Glerártorgi
frá 15. desember. Skógræktarfélag
Austurlands í Eyjólfsstaðaskógi kl.
12–16, á sunnudag. Skógrækt-
arfélag Rangæinga í Bolholti á
Rangárvöllum kl. 13–16 á sunnu-
dag.
Skapandi og
náttúruleg leikföng
Börn náttúrunnar er ný netversl-
un sem mun selja náttúruleg leik-
föng og fatnað, sem styðja við skap-
andi og heilbrigða lífssýn.
Verslunin býður upp á leikföng
sem eru úr náttúrulegum efnivið og
hvetja til leikja innblásinna af
ímyndunarafli og sem krefjast þol-
inmæði og einbeitingar.
Í fréttatilkynningu frá Börnum
náttúrunnar segir að leikföng ættu
að dýpka innri þroska barnsins og
leyfa því að tjá tilfinningar og skapa
frjálst og óheflað.
Kubbapúsl með mikla möguleika.
NÝTT
Þar sem netverslunin verður ekki
opnuð á netinu fyrr en um ára-
mót verða Börn náttúrunnar með
sölubasar í Waldorfskólanum
Lækjarbotnum við Suðurlandsveg
hinn 10. og 11. desember kl. 10 til
21.
Skólinn mun selja vöfflur, kaffi og
kakó á staðnum.
ERU vinir og ættingjar vanir að fá jólakveðj-
una frá þér í janúar? Ekki setja jólakortin of
seint í póst þessi jólin. Síðasti öruggi skiladag-
ur á jólakortum til Evrópulanda er fimmtudag-
urinn 15. desember. Síðasti öruggi skiladag-
urinn til landa utan Evrópu var 8. desember.
Til að vinir og ættingjar innanlands fái kortin
fyrir jól má ekki koma þeim á pósthúsið seinna
en miðvikudaginn 21. desember.
Öll pósthús á landinu taka við jólapóstinum.
Auk þess er Íslandspóstur með jólapósthús í
Kringlunni, Smáralind, Mjóddinni, Firði í
Hafnarfirði, Garðatorgi í Garðabæ, Eiðistorgi
og Glerártorgi á Akureyri í desember. Jóla-
pósthúsin eru opin á afgreiðslutíma verslana.
Einnig er Íslandspóstur með póstafgreiðslu í
Nóatúnsverslunum á höfuðborgarsvæðinu,
Hagkaup við Garðatorg og á Eiðistorgi og
Nettó í Mjódd, opið alla daga, frá morgni til
kvölds.
Íslandspóstur tekur auðvitað alltaf á móti
jólapósti en þó er öruggast að senda jólapakk-
ana tímanlega svo að þeir gleðji viðtakendur á
jólum.
Skiladagur jólakorta
Allar nánari uppl. um skiladaga jólasendinga,
afgreiðslutíma og fleira er að finna á heimasíðu
Póstsins á www.postur.is.
Á skarfa-
veiðum.