Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 62
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup
Fös. 9.des. kl. 21 UPPSELT
Lau. 10.des. kl. 21 UPPSELT
Fös. 16.des. kl. 20 Örfá sæti
Lau. 17.des. kl. 19 Örfá sæti
Lau. 17.des. kl. 22 AUKASÝNING
Mið. 28.des. kl. 20 Nokkur sæti
Fim. 29.des. kl. 20 Nokkur sæti
Fös. 30.des. kl. 20 Laus sæti
Ævintýrið um Augastein
Lau 10. des kl. 14 1. kortasýn Örfá sæti
Sun 11. des kl. 14 2. kortasýn Örfá sæti
Mán. 12. des kl. 10 UPPSELT
Miðasalan opin virka
daga frá 13-17 og allan
sólarhringinn á netinu.
Stóra svið
Salka Valka
Su 11/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20
Woyzeck
Fö 9/12 kl. 20 Fi 29/12 kl. 21
Fö 30/12 kl. 21
Kalli á þakinu
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Su 8/1 kl. 14
Brot af því besta!
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum
Í kvöld kl. 20
Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason,
Hreinn Vilhjálmsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Ólafur
Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn
Léttur jóladjass og kaffihúsastemning.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis
Leikhópurinn Perlan
Frumsýnir Jólasveinasögu í leikgerð eftir sögu
Bergljótar Arnalds. Su 11/12 kl. 15. Miðaverð
1000 kr. Aðeins þessi eina sýning
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Su 11/12 kl. 20 Síðasta sýning!
Þrjár systur e. Tsjekhov
Nemendaleikhúsið, aðeins sýnt í desember
Í kvöld kl. 20 Lau10/12 kl. 20
Þr 13/12 kl. 20 Fö 16/12 kl. 20
Lau 17/12 kl. 20 Su 18/12 kl. 20
Manntafl
Mi 28/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar
Carmen frumsýnt í janúar 2006
Forsala laugardaginn 10/12
Miðaverð í forsölu 2.600, almennt miðaverð
3.600. Milli 14 og 16 verða sýnd atriði úr
Carmen í forsal Borgarleikhússins. Kaffi og
piparkökur í boði. Allir velkomnir.
www.kringlukrain.is sími 568 0878
HLJÓMSVEITIN SIXTIES
Í KVÖLD
leikhúsgestir munið glæsilegan matseðilinn
LAU. 10. DES kl. 20
FIM. 29. DES kl. 20
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI
Frumsýning sun.5. feb. kl. 20
2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20
GJAFAKORT Í ÓPERUNA – jólagjöf sem gleður! Verð við allra hæfi.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Jólaævintýri
Hugleiks
- gamanleikur með
söngvum fyrir alla
fjölskylduna.
Í kvöld, uppselt
Lau. 10.12. kl. 16, örfá sæti laus
Sun. 11.12. Laus sæti
Lau. 17.12. Laus sæti
Sun. 18.12. Laus sæti
Síðustu sýningar fyrir jól.
Sýnt í Tjarnarbíói,
sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir í síma 551 2525
og á www.hugleikur.is .
Útgáfutónleikar
Jóla- og aðventusöngvar
Kammerkórinn Vox Academica
Háteigskirkja
laugardaginn 10. desember kl. 17:00
Stjórnandi: Hákon Leifsson
Miðar á 1.000 kr. í síma 893 6276
og við innganginn
ÁÐUR en tónskáldið Alexander
Scriabin fékk áhuga á guðspeki
samdi hann tónlist sem sumir líktu
við Chopin. Það fór óskaplega í
taugarnar á honum og ekki að undra,
því þó ein og ein laglína minni vissu-
lega á Chopin er í rauninni ekkert
svipað með þeim tveimur.
Scriabin er eitt af uppáhaldstón-
skáldunum mínum; tónlist hans er
einstök, hvort sem hún tilheyrir róm-
antíska tímabilinu eða þeim tíma er
hann var á kafi í dulspeki og reyndi
að brúa bilið á milli þessa heims og
annars með verkum sínum.
Íslenskir geisladiskar með tónlist
Scriabins eru ekki margir og er nýr
diskur með Jóni Sigurðssyni píanó-
leikara því eftir-
tektarverður, því
þar er ekki aðeins
að finna eina tón-
smíð eftir Scriab-
in, heldur tvær.
Þetta eru sónata
nr. 2 op. 19 og
pólónesa op. 21.
Sú síðarnefnda
er afar sjald-
heyrð, sem er synd því tónlistin er
skemmtilega brjálæðisleg og dæmi-
gerð fyrir tónskáldið.
Tæknilega öruggur píanóleikur
Jóns kemur óvart, því tónlistiner síð-
ur en svo auðveld í flutningi. Túlkun-
in er líka í anda Scriabins, öfgafull og
ástríðuþrungin.
Hinsvegar er áslátturinn full
hörkulegur á tímabili og dregur hann
nokkuð úr ánægjunni við hlustunina.
Sónatan eftir Scriabin er jafnframt
á margan hátt sannfærandi, túlkunin
er markvisst byggð upp, allskonar
blæbrigði koma fyrir og undiraldan í
tónlistinni er auðfundin.
Hvort sem það er upptökunni að
kenna eða spilamennskunni sjálfri,
þá er bassinn þó heldur yfirgnæf-
andi, með einkennilegum glymjanda í
kjölfarið. Hugsanlega hefði meiri
skýrleiki í flutningnum verið til bóta.
Svipaða sögu er að segja um flutn-
inginn á nokkrum etýðum eftir
Moszkowski; þær eru fjörlega leikn-
ar en hraðar nótnarunur eru ekki
alltaf nægilega jafnar. Útkoman er
dálítið ófáguð.
Hins vegar er gaman að þremur
völsum eftir ameríska tónskáldið
Wynn-Anne Rossi, en þeir eru
heillandi innhverfir og Jón leikur þá
af listrænu innsæi. Þess ber að geta
að þetta er frumflutningur á völs-
unum á geisladiski.
Sama er ástatt um fúgu eftir Laur-
en Bernofsky, en það er skemmtileg
tónsmíð þrátt fyrir að vera ekki sér-
lega frumleg.
Loks ber að nefna Excursions op.
20 eftir eitt helsta tónskáld Banda-
ríkjanna, Samuel Barber. Túlkun
Jóns er lífleg, litrík og kraftmikil og
kemur ágætlega út.
Þó ég sé hvorki sáttur við allt í
flutningnum, né í upptökunni, þá er
þetta athyglisverður geisladiskur.
Bara pólónesan eftir Scriabin gerir
hann þess virði að eiga.
Skemmtilega
brjálæðisleg tónlist
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Jón Sigurðsson píanóleikari flytur
tónsmíðar eftir Barber, Scriabin,
Moszkowski, Rossi og Bernofsky.
Polarfonia 2005.
Jón Sigurðsson
Jónas Sen
Jón Sigurðsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
62 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ