Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
UMTALSVERT tjón varð í húsum við Lauf-
ásveg í Reykjavík í gær eftir að holræsi stífl-
aðist og vatn flæddi inn í hús. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var vatnið á annan metra á dýpt í kjallara eins
hússins en alls flæddi inn í fimm hús.
Bilað hjá Bilanavaktinni
Ekki tókst að ná sambandi við Bilanavakt
Reykjavíkurborgar í gærkvöldi til að afla frek-
ari upplýsinga um málið. Ástæðan var einföld;
samkvæmt upplýsingum frá Símanum var
símanúmer Bilanavaktarinnar bilað.
Mikill erill var hjá slökkviliðinu í gær, allt
frá morgni til kvölds. Eftir úrhelli í gærmorg-
un bárust allmargar tilkynningar um vatns-
flaum innandyra og um svipað leyti varð all-
harður árekstur í Fjarðarhrauni í Hafnarfirði.
Á meðan verið var að sinna þessum málum
kviknaði eldur í rafmagnstöflu í Alþingishús-
inu og varð að senda mikið lið þangað. Á tíma-
bili voru næstum allir dælubílar slökkviliðsins
í notkun á sama tíma og kalla varð út auka-
mannskap.
Tjón vegna
stíflaðs
holræsis
SAMHERJI og Síldarvinnslan hafa í nokkr-
um mæli staðið að flutningum á sjávaraf-
urðum sínum á eigin vegum. Þar er fyrst og
fremst um afurðir úr uppsjávarfiski að ræða,
síld og loðnu, alls um 80.000 tonn á þessu ári.
Unnar Jónsson, forstöðumaður flutninga-
sviðs Samherja, segir að ýmsar ástæður liggi
að baki þessu. „Þetta er ódýr vara sem ekki
ber flutningskostnað með gámum. Því þarf
að flytja hana út á brettum og íslenzku
skipafélögin, Eimskip og Samskip, hafa ekki
boðið upp á slíka flutninga. Enn fremur fer
herji flytji áfram afurðir með íslenzku skipa-
félögunum til þeirra landa sem þau sigli til.
Þess má í þessu samhengi geta að Síld-
arvinnslan er nú að byggja stóra frysti-
geymslu í Neskaupstað. Fyrir um fjórum ár-
um reisti SVN nýja frystigeymslu við
fiskiðjuverið við höfnina og rúmar hún 8.000
til 10.000 tonn. Sú nýja mun rúma um 14.000
bretti eða á bilinu 14.000 til 18.000 tonn. Fyr-
ir vikið er hægt að safna þar saman miklum
birgðum til útflutnings frá Neskaupstað.
Þá hafa Samherjaskipin gert mikið af því
að umskipa afurðum sínum yfir í flutninga-
skip á hafi úti, þegar þau hafa verið að veið-
um á norsk-íslenzku síldinni.
þessi vara mest til landa við Eystrasaltið og
þangað sigla skipafélögin ekki. Þess vegna
hefur þurft nýjar lausnir í þessum flutn-
ingum og að hluta til höfum við leyst málin
sjálfir og að hluta til með öðrum,“ segir Unn-
ar.
Hann segir enn fremur að gámaflutning-
arnir séu frekar sniðnir að þörfum innflutn-
ings en útflutnings. Reyndar hafi íslenzku
skipafélögin brugðist við þessari þróun með
því að kaupa sig inn í skipafélög í Noregi,
sem sinni flutningum af þessu tagi. Einnig sé
hið nýja frystiskip Eimskips búið til flutn-
inga á frystivöru á brettum eins og á við með
afurðir úr loðnu og síld. Hann segir að Sam-
Útgerðarfyrirtækin Samherji og Síldarvinnslan
Flytja sjálfir út 80.000
tonn af sjávarafurðum
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
FAGNAÐARLÁTUNUM ætlaði aldrei að
linna í gærkvöldi í Háskólabíói eftir tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en Bryn
Terfel, hinn þekkti óperusöngvari frá Wal-
es, söng með sveitinni á tónleikunum.
Terfel var vel tekið og segir tónlistar-
eftir Mozart. Við það tækifæri afhenti
Terfel nokkrum kvenkyns tónleikagestum
rósir. Á myndinni sést Sólveig Kristjáns-
dóttir, einn tónleikagesta, sem fékk rós úr
hendi söngvarans. Að tónleikunum loknum
var boðið til kvöldfagnaðar.
gagnrýnandi Morgunblaðsins, Jónas Sen, að
söngur hans hafi verið guðdómlegur. Terfel
tók tvö aukalög á tónleikunum og í því síð-
ara brá hann á leik ásamt Ólafi Kjartani
Sigurðarsyni, sem lék á mandólín. Tóku
þeir saman atriði úr óperunni Don Giovanni
Morgunblaðið/Sverrir
Söngur Bryn Terfel guðdómlegur
UNGIR íslenskir hönnuðir blása
þessa dagana nýju lífi í íslensku ull-
ina með samvinnu sinni við prjóna-
stofuna Víkurprjón. Afraksturinn
eru einkar frumlegar værðarvoðir og
ábreiður þar sem innblásturinn er
m.a. sóttur í íslenskar þjóðsögur.
Þannig skilaði sagan af selakonunni í
Mýrdalnum af sér værðarvoð sem
minnir mest á selsham, hannaður
hefur verið hestur, eða nykur, sem
nálgast það að vera í fullri stærð, auk
hefðbundnari nálgunar við íslenskt
landslag í ábreiðugerð. Að baki þess-
ari frumlegu framleiðslu standa Þur-
íður Rós Sigurþórsdóttir, textíl- og
fatahönnuður, Hrafnkell Birgisson,
Egill Kalevi Karlsson, Brynhildur
Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magn-
úsdóttir iðnhönnuðir. „Við byrjuðum
á dálítið rómantískum og þjóðlegum
nótum,“ segir Þuríður og bætir við að
þótt þau séu rétt að byrja að kynna
þessa nýju framleiðslu þá hafi þau
fundið fyrir miklum áhuga nú þegar
og töluvert af pöntunum borist.
„Þetta hefur verið mjög skemmtilegt
og áhugavert ferli sem gefur okkur
von um að aftur vakni áhugi á ís-
lenskri ullarvöru.“ | Lifun
Nykur í barnaherbergið
og selshamur í sófann
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
Þuríður Rós Sigurðardóttir við nykurinn sem óneitanlega er tilkomumikill.
TVÖ hreindýr drápust eftir að jepp-
lingur ók á þau í Lóni í Austur-
Skaftafellssýslu síðdegis í gær. Bif-
reiðin stórskemmdist en eldri hjón
sem voru í bílnum sluppu við meiðsli.
Að sögn lögreglunnar á Höfn stukku
hreindýrin skyndilega upp á veginn
þannig að ómögulegt var að koma í
veg fyrir árekstur. Þetta er í fjórða
skipti sem ekið er á hreindýr í Lóns-
sveit í vetur. Ökumenn þurfa að bera
tjón á bifreiðum sínum sjálfir, nema
þeir séu kaskó-tryggðir. Seinna um
daginn keyrði ungur maður niður
ljósastaur við Hafnarbraut. Bifreið
hans er talin ónýt. Ökumaðurinn og
tveir farþegar sluppu lítið meiddir.
Ekið á tvö
hreindýr í Lóni
ÆTLA má að hátt í hundrað þúsund manns
um allan heim hafi skoðað vefupptöku af tón-
leikum Sigur Rósar sem haldnir voru í Laug-
ardalshöllinni hinn 27. nóvember síðastliðinn.
Upptökur útgáfufyrirtækisins EMI af tónleik-
unum voru settar á vefinn sigur-ros.co.uk á
föstudaginn fyrir viku, og höfðu um sjötíu þús-
und manns skoðað upptökuna þegar aðsókn-
armælingar voru gerðar fjórum dögum síðar.
Aðspurður segir Orri Páll Dýrason, trommu-
leikari Sigur Rósar, að viðbrögðin við vef-
útgáfu tónleikanna hafi komið þeim mikið á
óvart en hljómsveitarmeðlimir ákváðu að láta
gera upptöku af tónleikunum þar sem þeir
höfðu heyrt að margir væru forvitnir að sjá þá
spila á heimaslóðum. | 68
Þúsundir skoða
tónleika Sigur
Rósar á vefnum
♦♦♦
STEFÁN Jón Bernharðsson hornleikari hlaut
3. verðlaun í alþjóðlegri keppni hornleikara á
Ítalíu um liðna helgi. Þetta er í þriðja skiptið
á árinu sem Stefán Jón hlýtur verðlaun í
slíkri keppni. Hann segir keppni af þessu tagi
krefjast mikils undirbúnings; leika þurfi tíu
ólík verk komist maður alla leið. Oft geti ver-
ið erfitt að finna tíma til undirbúnings með-
fram öðrum störfum sem hljóðfæraleikari.
„En ég er mjög ánægður að hafa gert það, í
það minnsta í ár. Að nota formið sem maður
er í núna til að halda boltanum rúllandi.“ | 41
Hlýtur verðlaun í
þriðja sinn á árinu
♦♦♦