Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjárhagsleg áhrifreykingabanns áveitinga- og skemmtistöðum hafa verið skoðuð mjög víða og ekki finnast nokkur áreiðanleg gögn sem styðja áhyggjur veitingamanna,“ segir í greinargerð Lýðheilsu- stöðvar, sem fylgir frum- varpi heilbrigðisráðherra um reykingabann á veit- ingastöðum. Verði frum- varpið að lögum verða reykingar bannaðar með öllu á veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007. Seint verða allir á eitt sáttir. Hefur m.a. heyrst sú skoðun úr röðum veitingamanna að bannið geti dregið úr aðsókn og haft nei- kvæð áhrif á reksturinn. Athygli vakti þegar Samtök ferðaþjónust- unnar lögðu til við stjórnvöld á að- alfundi sínum fyrr á árinu að allir veitinga- og skemmtistaðir yrðu reyklausir frá og með 1. júní 2007. Haft var eftir framkvæmdastjóra samtakanna að eftirspurn gesta eftir reyklausum svæðum og her- bergjum hefði aukist gríðarlega. 35% töldu líklegt að þau myndu draga úr reykingum Athyglisvert er í þessu ljósi að skoða niðurstöður nýlegrar rann- sóknar Júlíusar Inga Jónssonar og Ragnhildar Ágústsdóttur við Háskólann í Reykjavík á mögu- legum áhrifum reykingabanns á aðsókn og rekstur veitingastaða, kaffihúsa og skemmtistaða. Er þetta að öllum líkindum ein viða- mesta rannsókn sinnar tegundar sem gerð hefur verið hér en hún var unnin sem lokaverkefni í BSc viðskiptanámi þeirra. Stóð hún yf- ir á fyrrihluta þessa árs. Þau könnuðu viðhorf gesta veitinga- og skemmtistaða, eigenda og starfsmanna. Var könnunin send á um það bil 10.500 háskólanem- endur á höfuðborgarsvæðinu og svöruðu 2.894 einstaklingar eða 27,6%. Meginniðurstöðurnar eru nokk- uð afdráttarlausar: „[...] má draga þá ályktun að áhrif reykinga- banns á aðsókn og rekstur veit- ingastaða, kaffihúsa og skemmti- staða séu ekki neikvæð – og ef eitthvað er, jákvæð,“ segja þau. Afstaðan er nokkuð afgerandi meðal gesta en í ljós kom að 74,5% gesta sögðust hlynnt reykinga- banni á kaffihúsum, veitinga- og skemmtistöðum. Þá töldu tæp 35% gesta að þau myndu líklegast draga úr reykingum sínum í kjöl- far reykingabanns og 14,5% sögð- ust myndu reyna að hætta. Niðurstöður könnunarinnar styðja skoðun þeirra sem halda því fram að reykingabann muni hafa jákvæð áhrif á aðsókn veit- ingastaða. Í ljós kom að 44% gesta töldu að þau færu oftar á veitinga- staði í kjölfar reykingabanns, 49% jafn oft en aðeins 7% sögðu að þau færu sjaldnar eftir að slíku banni hefði verið komið á. Hvað kaffihús varðar sögðust 54,3% gesta myndu fara oftar á kaffihús í kjölfar reykingabanns en 15,2% sjaldnar. Jafnframt bendir rannsóknin til þess að reykingabann muni hafa jákvæð áhrif á aðsókn að skemmtistöðum þar sem 44,3% gesta töldu að þau færu oftar á skemmtistaði í kjöl- far reykingabanns en 13,8% sögð- ust myndu gera það sjaldnar. Höfundar taka þó fram í þessu sambandi að háskólanemar, sem úrtakið var sótt til, virðist yfirleitt hlynntari reykingabanni en Ís- lendingar í heild, skv. Gallup- könnun. Niðurstöðurnar gefa vísbend- ingar, að mati höfunda, um að eig- endur kaffihúsa, veitinga- og skemmtistaða séu sæmilega já- kvæðir gagnvart reykingabanni „og teldu að aðsókn myndi ekki dragast saman í kjölfarið. Auk þess voru þeir að meðaltali á því að áhrif á reksturinn yrðu lítil sem engin. Það samræmist algjörlega niðurstöðum margra erlendra rannsókna sem sýna flestar að áhrif reykingabanns á aðsókn og rekstur veitinga- og skemmti- staða eru ekki neikvæð [...],“ segja höfundar rannsóknarinnar. Höfundar draga svo sínar ályktanir af niðurstöðum rann- sóknarinnar í lokaorðum og segj- ast telja „[...] ekkert því til fyr- irstöðu að frumvarp um reykingabann verði lagt fyrir þing, samþykkt og að lögin taki gildi fljótlega í framhaldinu. Sá tími sem þetta ferli tekur að jafn- aði ætti að nægja til að leyfa fólki að venjast tilhugsuninni. Rann- sakendur eru þess einnig fullviss- ir að þegar nýjabrumið er farið af banninu og fólk hætt að velta því eitthvað sérstaklega fyrir sér muni ekki líða á löngu þar til litið verði á reykingabann sem eðlileg- an og sjálfsagðan hlut. Því til stuðnings má nefna að ekki fyrir alls kostar löngu síðan tíðkaðist að reykingar væru leyfðar í flugvél- um, rútubílum og jafnvel kvik- myndahúsum. Nú þykir það al- gjörlega fráleitt og ótrúlegt að slíkt hafi einhvern tíma þótt eðli- legt. Í dag þykja það orðin sjálf- sögð réttindi að geta andað að sér ómenguðu lofti hvar og hvenær sem er.“ Fréttaskýring | Rannsaka áhrif reykinga- banns á veitinga- og skemmtistaði Áhrif banns ekki neikvæð Eigendur virðast vera sæmilega jákvæðir gagnvart reykingabanni Verða reykingar bannaðar frá 1. júní 2007? 72,5% gesta sögðust hlynnt reykingabanni  Rannsókn Júlíusar Inga Jóns- sonar og Ragnhildar Ágústs- dóttur leiddi í ljós að meirihluti gesta kaffihúsa, veitinga- og skemmtistaða, sem spurðir voru, sagðist vera hlynntur reykinga- banni eða 72,5% en 17% andvíg. 32,9% töldu að aðsókn ykist í kjölfar banns, 42,9% að hún stæði í stað og 24,3% að hún drægist saman. Þá töldu 47,5% að þau myndu sækja staðina oftar í kjöl- far reykingabanns, 40,5% jafn oft og 12,0% sjaldnar. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Saga sem vex“ Kristján Þórður Hrafnsson edda.is „Þetta er saga sem vex og er jafnvel þess virði að lesa hana tvisvar.“ Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, Mbl „Skrifuð af einlægni og fjallar hreinskilnislega um hluti sem við mættum flest velta fyrir okkur oftar.“ Hjalti Snær Ægisson, RÚV „Kristján nær tangarhaldi á lesanda.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda tók formlega við svo- nefndu EuroRap-verkefni í gær. Verkefnið felur í sér ör- yggisúttekt á íslenskum vegum undir merkjum Euro- RAP (European Road Assessment Programme). Verkefnið felst í skoðun umferðarmestu og slysamestu vega á Íslandi. Vegunum verða gefnar stjörnur út frá ör- yggisþáttum í hönnun og umhverfi. Við þetta tilefni afhenti Askja, umboðsaðili Mercedes- Benz, EuroRAP-skoðunarbíl af gerðinni Mercedes-Benz A150, en fyrirtækin Askja, Goodyear, Olíufélagið hf., Lýsing hf., Landflutningar Samskip hf. og Vátrygginga- félag Íslands styðja verkefnið og standa straum af kostn- aði við notkun bílsins. Bifreiðin hefur einmitt hlotið fullt hús stiga, eða fimm stjörnur, í systurverkefni EuroRAP, sem kallast EuroNCAP sem felur í sér árekstrarpróf- anir á nýjum bílum í Evrópu. Fyrstu niðurstöður í ársbyrjun EuroRAP-verkefni FÍB er unnið í samvinnu við sam- gönguráðuneytið og Umferðarstofu, sem hafa lagt til fjármagn til þess að koma því af stað. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var viðstaddur afhendingu á bílnum og fagnaði hann því að verkefninu hefði verið hrundið af stað. Ætlunin er að hefja öryggisúttekt á vegum í grennd við Reykjavík í næstu viku, en að sögn Ólafs Guðmundssonar, stjórnarmanns í FÍB, verður meirihluti allra umferðarslysa á Íslandi á innan við 50 km fjarlægð frá höfuðborginni. Ráðgert er að niðurstöður úttektar- innar liggi fyrir í byrjun næsta árs. Eftir þrjú ár verða sömu vegir skoðaðir aftur og niðurstöður bornar saman við fyrstu skoðun. Þá verður jafnframt hafist handa á næsta ári við að öryggisúttekt á umferðarmestu vegum á Suðurlandi sem og þjóðveg nr. 1 til Akureyrar. EuroRAP eru samtök 25 bifreiðaeigendafélaga í jafn- mörgum löndum Evrópu og voru þau stofnuð árið 2000. Nú þegar hafa helstu leiðir í Bretlandi, Svíþjóð, Hollandi og hluta Spánar verið teknar út og kortlagðar út frá um- ferðaröryggi og Frakkland og Ítalía eru komin vel á veg. FÍB er nýjasti aðili EuroRAP. Að sögn Ólafs Guðmunds- sonar er EuroRAP öryggisflokkunin mikilvægt tæki fyr- ir veghönnuði, m.a. til þess að mæla áhættu og bera sam- an öryggi mismunandi vega. Flokkunin upplýsir einnig vegfarendur um öryggi vega og vegarkafla. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hannes Strange, framkvæmdastjóri Öskju, afhendir Árna Sigfússyni, formanni FÍB, lyklana að bílnum. FÍB fær sérútbúinn bíl til að skoða öryggi vega Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.