Morgunblaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Karl MarkúsBender fæddist í
Reykjavík 21. des-
ember 1949. Hann
lést á heimili sínu,
Freyjugötu 34, 30.
nóvember síðastlið-
inn. Hann var sonur
Elínar Sigríðar
Markúsdóttur og
Sófusar Bender.
Fósturfaðir hans
var Gunnþór Ben-
der. Systkini Karls
eru Þór Rúnar Bak-
er, synir hans eru
Marteinn Steinar og Björgvin Elís
(látinn), og Guðleif Bender, maki
hennar er Guðmundur A. Gunn-
arsson, börn þeirra eru Friðrik
Örn, Eva Dögg og Brynjar Freyr.
Sambýliskona Karls er Hrafn-
hildur Ástþórsdóttir. Börn hennar
eru: Sigmundur
Andrésson, Agnes
Sif Andrésdóttir og
Sigurjón Andrés-
son, kvæntur Mar-
gréti Söru Guðjóns-
dóttur, þau eiga
tvær dætur, Hrafn-
hildi Svölu og Heklu
Sif.
Karl gekk í Mið-
bæjarbarnaskólann,
varð stúdent frá MR
og verkfræðingur
frá HÍ. Framhalds-
nám stundaði hann
við DTU í Lyngby í Danmörku. Að
námi loknu hóf hann störf Land-
síma Íslands (nú Síminum) og
vann þar til dauðadags.
Útför Karls fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Frá því að Kalli kom inn í líf mitt
hefur hann verið mér sem besti
stjúpfaðir og vinur. Hann var ein-
stakur á svo margan hátt, rólegur,
kærleiksríkur og gefandi. Það var al-
veg sama hvað ég leitaði til hans
með, alltaf gaf hann sér tíma.
Fyrir nákvæmlega 20 mánuðum
síðan varð hann veikur. Á þeim tíma
komu eiginleikar hans ekki hvað síst
í ljós, öllu var tekið af æðruleysi og
bjartsýni. Mamma og hann voru
gæfa hvors annars og einlæg ást og
virðing einkenndi samband þeirra.
Sú ást var þeirra styrkur í veikind-
unum og mín huggun í sorginni.
Hjúkrunarfræðingar Karitas voru
Kalla og mömmu englar í manns-
mynd og verður þeim seint þökkuð
öll sú umhyggja og færni sem þær
höfðu fram að færa.
Elsku besta mamma mín, nú er
Kalli kominn í ljósið og ég veit að
hann vakir yfir þér. Ég mun sakna
hans óendanlega.
Þín
Agnes Sif.
Ég man eins og það hefði gerst í
gær þegar mamma sagði mér, að
hún hefði kynnst manni. Það örlaði á
smá spennu hjá henni þegar hún til-
kynnti táningssyni sínum þetta. Ég
greindi eftirvæntingu í rödd hennar
og einhverskonar glampa í augunum
sem ég hafði ekki séð áður, mamma
mín var ástfanginn upp fyrir haus af
honum Kalla. Það var alla tíð dásam-
legt að fylgjast með sambandi
mömmu og Kalla. Gagnkvæm virð-
ing, aðdáun og kærleikur. Þau bættu
hvort annað upp og náðu að laða
fram það besta hvort í fari annars.
Kalli var rólegur maður og ekki
fyrir að trana sér fram. Hófsemi,
vinnusemi og hjálpsemi eru orð sem
eiga ákaflega vel við Kalla. Hann var
alltaf til í að rétta hjálparhönd og
miðla af þekkingu sinni. Kalli bjó yf-
ir ríkri réttlætiskennd. Hann smitaði
út frá sér með yfirvegun og skyn-
semi. Okkar bestu stundir áttum við
saman í sumarbústaðnum í Gríms-
nesinu, en þar eyðir fjölskyldan
stærstum hluta frístunda sinna.
Djúpt skarð hefur verið höggvið í
fjölskylduna og það verður tómlegt í
Heiðarseli án Kalla.
Fyrir tæpum tveimur árum
greindist Kalli með krabbamein.
Eiginleikar hans komu vel í ljós þeg-
ar líf hans tók þessa óvæntu stefnu.
Hann tók á veikindunum sínum með
æðruleysi og barðist eins og hetja
fyrir heilsu sinni til síðasta dags. All-
an tímann stóð mamma eins og klett-
ur við hlið hans og studdi hann með
aðdáunarverðum hætti.
Ég hef misst mikið. Ég hef misst
góðan vin og fyrirmynd. Mann sem
hafði afgerandi áhrif á mig sem per-
sónu og mann sem ég dáðist að og
elskaði. Mestur er þó missir mömmu
minnar. Elsku mamma, ég bið að
góður guð gefi þér styrk og huggun.
Ég kveð Kalla með söknuði og
þakklæti fyrir allt sem hann gerði
fyrir mig og mína. Minningarnar
geymi ég í hjarta mínu og mun aldrei
gleyma.
Sigurjón Andrésson.
Ég var svo lánsöm að fá að kynn-
ast honum Kalla. Hann Kalli var
góðmenni og einstakur maður, hæg-
látur, réttlátur, var sífellt að hugsa
um aðra og hafði sérstakt lag á því
að gleðja fólk. Það voru t.d. ófáir bit-
ar sem voru hafðir lengur á grillinu í
sumarbústaðnum. Kalli vissi að ég
vildi kjötið mitt mikið steikt og þrátt
fyrir að honum fyndist það eyðilegg-
ing á fínu kjöti, brosti hann bara í
kímni. Kalli var nefnilega þannig að
hann virti alltaf aðra og skoðanir
þeirra.
Kalli var yndislegur við litlu stúlk-
urnar okkar og þær afskaplega
heppnar að hafa átt jafn frábæran
afa. Hann var snillingur á svo mörg-
um sviðum. Hann var vel lesinn, vissi
allt um tölvur og tæknimál og alltaf
gaf hann sér tíma til að aðstoða aðra.
Hvort sem var í tölvumálum, stærð-
fræði eða bara hverju sem er og þol-
inmæðin endalaus. Hann var ein-
staklega duglegur, vann mikið og
allt sem að hann tók sér fyrir hendur
gerði hann vel. Hann var vandaður
maður á allan hátt og ég veit að hann
var fyrirmynd margra.
Samband Kalla og Höbbu var
yndislegt. Þau voru svo innilega ást-
fangin og miklir vinir. Það var
greinilegt hvað þeim leið vel saman
og aðdáunin og virðingin augljós.
Habba stóð eins og klettur við hlið-
ina á honum Kalla í gegnum veik-
indin og hugsaði um hann eins og
henni einni er lagið. Full af kærleika,
skynsemi og dugnaði. Kalli tókst á
við þennan hræðilega sjúkdóm eins
og allt sem hann gerði, með rósemd,
yfirvegun og aldrei kvartaði hann.
Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst
Kalla. Hann hefur haft mikil áhrif á
mig og ég mun geyma allar þær ótal
góðu minningar í hjartanu. Ég bið
góðan Guð að gefa elsku Höbbu
minni, Agnesi Sif, Siggu, Gullu,
Rúnari og öllum þeim sem syrgja
þennan dásamlega mann styrk og
huggun.
Takk fyrir allt elsku Kalli.
Sara.
Um bróður minn Karl.
Nú er kvatt um stund. Hæfileik-
arnir, umhyggjan og velvildin leiftra
yfir götuna, sem Karl gekk með okk-
ur, og milda þessa dimmu desem-
berdaga. Hann var, en hvorki vildi
né þurfti að sýnast. Því verða orðin
mín um hann fá, þótt við ættingjar
hans og vinir gætum sagt um hann
svo mörg stór, falleg og sönn orð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Huggun sé Hrafnhildi og móður
okkar harminum gegn.
Rúnar.
Fallinn er frá kær vinur, Karl M.
Bender, en hann lést á heimili sínu
að Freyjugötu 34 hinn 30. nóvember
sl.
Margs er að minnast og margt
kemur í huga manns á slíkum stund-
um. En kynni mín við Karl mág minn
hófust er leiðir okkar og systur hans
Guðleifar Bender lágu saman fyrir
um það bil þrjátíu árum. Samþykki
til þess ráðahags virtist liggja nokk-
uð ljóst fyrir, frá sjónarhorni verð-
andi tengdaforeldra, en í ljós kom að
einnig þurfti samþykki bræðranna
beggja, því slík var samheldni þeirra
systkina allra og á sterkum grunni
byggð og hefur verið svo alla tíð.
Karl var þá við nám í Danmörku er
þetta var, við sitt framhaldsnám til
viðbótar verkfræðinni sem hann
nam hér heima við Háskóla Íslands.
Samþykki Kalla bróður fékkst og
þetta gekk eftir. Þar kom að Kalli
kom heim til að vera viðstaddur gift-
ingu okkar. Á milli okkar máganna
hefur aldrei borið skugga á. Um það
vil ég segja, að alltaf hefur mágur
minn verið hreinskiptinn og traust-
ur, yfirleitt ekki mörg orð höfð um
hlutina, heldur ávallt verið traustur
sem bjarg, hvenær sem til hans var
leitað með erindi og vil ég álíta að
svo hafi verið um þau systkin öll alla
tíð, enda ekki langt að sækja, frá
móður þeirra Elínu Sigríði. Er kom
að fæðingu og uppeldisárum barna
okkar Guðleifar, þeirra Friðriks
Arnar, Evu Daggar og Brynjars
Freys, var ekki komið að tómum kof-
unum hjá honum Karli mági mínum.
Oft þurftum við hjónin að leita til
Kalla mágs með aðstoð við uppeldið í
fjarveru okkar og þá þekktist ekki
orðið nei hjá honum og ekki var kast-
að höndunum til neins, er hann veitti
þeim af vizkubrunni sínum, bæði
sem frændi og í leik og starfi síðar
meir. Það verður seint fullþakkað.
Snemma á unga aldri fór Kalli að
rífa í sundur tæki, svo sem útvarps-
tæki sem og annað sem á vegi hans
varð. Ekki var nú alltaf nauðsynlegt
að setja það allt strax saman aftur,
því að það væri aldrei að vita nema
hann gæti betrumbætt þessi verk-
smiðjuframleiddu tæki og var ævin-
lega hent gaman að þessu síðar á
ævinni og hafði Kalli sennilegast
mest gaman af því sjálfur. Seinna á
lífsleiðinni hóf Kalli störf hjá Síman-
um og vita allflestir að Kalla hefur
tekist vel, í samvinnu við samstarfs-
fólk sitt þar, að gera Internetþjón-
ustu Símans vel starfhæfa með
innsæi sínu og kunnáttu. Kalli naut
þess mest að vinna við tölvuna sína
alla daga, hvort sem var í vinnunni
með starfsfélögunum eða heima fyr-
ir og alltaf gat Kalli tvinnað þessa
þætti saman eins og honum einum
var lagið.
En svo kom að því að hann eign-
aðist sitt eigið heimili og fjölskyldu
er hann hitti Hrafnhildi sína og
börnin hennar þrjú og þá veit ég að
Kalli var fullkomlega sáttur með til-
veruna, að ekki sé talað um barna-
börnin þegar þau komu. Ekki vil ég
heldur gleyma að minnast á Sölku og
Grím. Mörgum stundum vorum við
hjónin og börnin þess að aðnjótandi
að dvelja með Kalla, Höbbu og börn-
um á þeirra friðsæla heimareit,
Heiðarseli, austur í Grafningi. Þaðan
líða margar fagrar minningar. Höll
minninganna er stór og salir víðir til
veggja og munum við eflaust koma
þangað oft, fjölskylda mín og ég.
Habba mín og börn, þið „tendr-
uðuð ljósið, er dimma tók,“ og viljum
KARL MARKÚS
BENDER
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
LÁRA ÓSK ARNÓRSDÓTTIR,
Eiríksgötu 6,
lést mánudaginn 5. desember.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 14. desember kl. 15.00.
Rúnar Sigurðsson,
Arna Rúnarsdóttir, Helgi Leifur Sigmarsson,
Gauja Rúnarsdóttir, Emilía Rafnsdóttir,
Hlynur Rúnarsson, Margrét Ásdís Haraldsdóttir,
Valgerður Rúnarsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
RAGNAR BOLLASON,
Bjargi,
Eyjafjarðarsveit,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð miðviku-
daginn 7. desember.
Jónína Þórðardóttir,
Ævar Ragnarsson,
Katrín Ragnarsdóttir,
Bolli Ragnarsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
PÁLMI ÓLAFSSON
frá Holti,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
þriðjudaginn 6. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Aðalbjörg Þorgrímsdóttir,
Jósefína Hrafnh. Pálmadóttir, Ingimar Skaftason,
Vilhjálmur Pálmason, Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Guðrún Pálmadóttir, Andrés Arnalds,
Þorgrímur Pálmason, Svava Ögmundsdóttir,
Ólöf Pálmadóttir, Valdimar Guðmannsson,
Elísabet Pálmadóttir, Jón Ingi Sigurðsson,
Bryndís Pálmadóttir, Sighvatur Steindórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
SNORRI SKAPTASON
arkitekt,
lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn laugardaginn
3. desember.
Lone Ries,
Skapti Ólafsson, Kolbrún Gunnarsdóttir,
Stella Skaptadóttir, Ólafur Elísson,
Sævar Skaptason, Bryndís Óladóttir,
Steinn Skaptason
og aðrir aðstandendur.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir, afi og langafi,
EINAR THORLACIUS MAGNÚSSON,
Lækjasmára 2,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans að morgni fimmtu-
dagsins 7. desember.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Petrína Helga Steinadóttir,
Elín Einarsdóttir, Guðmundur Ingi Leifsson,
Guðmundur Einarsson, Þórstína Aðalsteinsdóttir,
Rósa Einarsdóttir, Ragnar Baldursson,
Steinunn Einarsdóttir Egeland, Torstein Egeland,
Magnús Einarsson,
Kristín M. Möller.