Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2005 25
FRÉTTIR
Daily Vits
FRÁ
Stanslaus orka
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Jón Yngvi Jóhannsson í Kastljósi
„Þessi ótrúlega Kjarvalsbók slær öll met í
vandvirkni og metnaði
í útgáfu á Íslandi“
Við óskum Nesútgáfunni og höfundum
bókarinnar til hamingju með tilnefninguna
LANDMÆLINGAR Íslands hafa
gefið út fjórða kortadisk sinn, Stað-
fræðikort.
Á disknum eru 102 kort í mæli-
kvarðanum 1:50 000 af miðhálend-
inu, Suðurlandi og Norðurlandi.
Kortin henta ferðafólki hvort sem
ferðast er á jeppa, vélsleðum eða
gangandi.
Einnig er á disknum ferðakort af
landinu öllu í mælikvarðanum 1:500
000 með nýjustu viðbótum og upp-
færslum. Örnefnaleit á diskunum
hefur verið bætt og er nú unnt að
leita í lista með um um 17.000 ör-
nefnum.
Kortadiskurinn er sá fjórði í út-
gáfuröð Landmælinga Íslands og
markar tímamót að því leyti að nú
hafa Landmælingar lokið útgáfu á
öllum helstu kortaflokkum sínum á
geisladiskum. 240 kort eru fáanleg á
þessu formi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kortadiskar Landmælinga Ís-
lands eru fáanlegir í bókaverslunum
um allt land.
Staðfræðikort frá Landmælingum
Innihaldið skiptir máli
ALÞJÓÐLEGUR fundur sérfræð-
inga á sviði jarðvegseyðingar sem
haldinn var á Selfossi í haust hvetur
ríkisstjórn og Alþingi til að halda
áfram að veita og auka stuðning við
jarðvegsvernd. Einnig að tryggður
sé nauðsynlegur starfskraftur,
tækni og fjármagn til að vinna með
bændum og öðrum og setja víðtæka
nýja löggjöf um landgræðslu.
Á fundinum voru samþykktar yfir-
lýsingar um jarðvegsvernd í Evrópu,
varnir gegn myndun eyðimarka og
nauðsyn alþjóðlegra laga um sjálf-
bæra nýtingu. Einnig var samþykkt
áðurnefnd ályktun um jarðvegs-
vernd á Íslandi. Í henni bera sér-
fræðingarnir lof á ríkisstjórn Íslands
fyrir langtíma skuldbindingar henn-
ar um að stuðla að jarðvegsvernd.
Fagnað er skipulegum aðgerðum
Landgræðslunnar, Skógræktar
ríkisins, Landbúnaðarháskólans og
fleiri stofnana um að auka þekkingu
á vandamálum sem tengjast jarð-
vegshnignun.
Vilja aukna
jarðvegsvernd